Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
Fréttir
Ávirðingar Ríkisendurskoðunar vegna forstjóra Landmælinga fengu óblíða meðferð álitsnefndar:
Hreinn sparðatíningur
- 9 af 12 ávirðingum taldar marklausar - umhverfisráðuneyti gagnrýnt
Ríkisendurskoðun fær óblíða með-
ferð í álitsgerð þriggja manna nefndar
sem fjallaði um hvort rétt hafl verið af
umhverfisráðuneytinu að veita
Ágústi Guðmundssyni, þáverandi for-
stjóra Landmælinga, timabundna
lausn frá störfum 16. apríl. Byggði
ráðuneytið þá á greinargerð Ríkisend-
urskoðunar þar sem bomar voru
ávirðingar á Ágúst fyrir óreiðu í bók-
haldi og fjárreiðum Landmælinga ís-
lands. Nefndin klofnaði reyndar í áliti
sínu sem sent var málsaðilum 3. sept-
ember. Viðar Már Matthíasson og Jó-
hannes Rúnar Jóhannsson töldu rétt
að Ágústi skyldi veitt lausn um stund-
arsakir en Gestur Jónsson ekki.
Ávirðingar Ríkisendurskoðunar
vora í 12 liðum. Álitsnefhdin öll taldi
níu þeirra vera marklausar þar sem
Ágúst hefði gefið viðeigandi skýring-
ar og mál hefðu verið lagfærð. Á ein-
um stað, þar sem fjallað er um
greiðslu ferðakostnaðar 1997, fer
nefndin afar háðulegum orðum um
Ríkisendurskoðun:
„Nefndin telur hins vegar að þau
einstöku tilvik sem nefnd eru í grein-
argerð Ríkisendurskoðunar undir
þessum lið séu hreinn sparðatíningur
og beri ekki með
sér að ásetningur
hafi verið til þess
að hafa fé út með
óréttmætum
hætti. Telur
nefndin að hér sé í
öllum atvikum
um að ræða atriði
sem leiðrétta hefði
átt með ábendingu
til starfsmannsins
og hefðu átt að falla út úr greinargerð-
inni, eftir að fram komu skýringar af
hans hálfu...“
Eitt atriði
Eftir standa fjögur atriði sem
nefndin telur ámælisverð. Það eru
greiðslur frá Landmælingum íslands
án þess að fullnægjandi reikningar
hafi verið lagðir fram, tímasetning og
greiösluháttur reiknings vegna vinnu
við stjómsýslumörk á miðhálendinu,
dráttur á framlagningu endanlegra
ferðareikninga og ferðagagna og loks
viðtaka og síðar sala á GPS-staðsetn-
ingartæki til Landmælinga íslands.
Gestur telur að einungis sú hátt-
semi að veita GPS-tæki viðtöku sem
gjöf og selja það síðan Landmæling-
um kunni að hafa verið refsiverð.
Hún hafi þó ekki valdið óreiðu á bók-
haldi og fjárreiðum Landmælinga.
Lögmaður Ágústs segir að um þetta
leyti hafi Ágúst verið orðinn mjög
veikur vegna streitu og álags, eins og
læknisvottorð sanni. Því hafi dóm-
greind hans verið skert. Hann segir
DV að mikið vinnuálag hafi verið á
þessum tima og þær aðstæður uppi að
Ágúst þurfti að framfylgja stefnu
stjómvalda um flutning Landmælinga
upp á Akranes gegn vilja þorra starfs-
manna.
Dómstólar ákveði sekt
Nefhdin átelur ráðuneytið fyrir að
hafa ekki framkvæmt sjáifstæða rann-
sókn á atvikum máls og mótað sér
sjálfstæða skoðun á athugasemdum
sem fram komu í greinargerð Ríkis-
endurskoðunar og skýringum Ágústs
á þeim. Þannig hafi viðamikil grein-
argerð lögmanns og endurskoðanda
Ágústs verið send ráðuneytinu 15.
apríl 1998 en bréf ráðuneytisins um að
Ágústi sé veitt lausn frá embætti um
stundarsakir sent daginn eftir, 16.
apríl.
Gestur Jónsson metur það svo að
skilyrði lausnar um stundarsakir hafi
verið að stjómvaldið fylgdi grunsemd-
um sínum eftir með kæm til réttra yf-
irvalda þannig að réttir aðilar kvæðu
upp úr um sekt eða sakleysi. „Það er
hvorki hlutverk stjórnvaldsins né
þessarar nefhdar að taka endanlega
afstöðu til þess hvort verknaður
Ágústs hafi verið refsiverður." -hlh
Lögmaður Ágústs:
Fékk ekki að andmæla
„Við munum höfða mál til aö fá úr-
skurði umhverfisráðuneytisins
hnekkt. Umhverfisráðuneytið mat
ekki sjálfstætt niðurstöður álits-
nefndarinnar heldur byggði ákvörð-
un sína á því að skylt hafi verið að
víkja Ágústi að fúllu úr starfl. Það
teljum við ólögmæt sjónarmið. Enda
segir nefndin að hún dæmi ekki um
þetta mál heldur verði ráðuneytið að
meta það sjálfstætt. Þá er ótalið að
Ágústi var ekki gefinn kostur á að tjá
sig um niðurstöður nefhdarinnar
áður en ráðuneytið tók endanlega
ákvörðun. Þar er brotinn á honum
andmælaréttur. Það á að fara eftir
niðurstöðum ne&darinnar ef ávirð-
ingamar em sannaðar en þama er
búið að henda út tveimur þriðju hlut-
um ávirðinganna og hinar era um-
deilanlegar þar sem álitsnefndin
klofnaði í afstöðu sinni,“ segir Jó-
hannes Sigurðsson, lögmaður Ágústs
Guðmundssonar, brottrekins for-
stjóra Landmælinga íslands, við DV.
-hlh
Ágúst
Guðmundsson.
Nefndarmenn málefnanefndar vinstri flokkanna og forystumenn kynna málefnaskrá væntanlegs samframboðs vinstra fólks, félagshyggjufólks, kvenfrelsis- og jafn-
réttissinna. DV-mynd Pjetur
Málefnaskrá nýs félagshyggjuframboðs:
Afangi að sameiningu
- segja forystumenn A-flokka og Kvennalista
Níu manna samræmingamefnd
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista afhenti síðdegis í gær
forystumönnum flokkanna mál-
efnaskrá fyrir sameiginlegt fram-
boð flokkanna í alþingiskosning-
unum að vori. Afhendingin fór
fram að viðstöddum blaða- og
fréttamönnum og mærðu forystu-
menn flokkanna mjög þá samstöðu
sem verið hefði í undirbúnings-
vinnunni og þann áfanga sem
náðst hefur í þá átt að sameina
vinstra fólk, félagshyggjufólk, jafn-
réttis- og kvenfrelsissinna í einu
pólitísku afli. Steinunn V. Óskars-
dóttir, sem var fulltrúi Kvennalista
í málefnanefndinni, sagði m.a. að
sér hefði komið á óvart hve ein-
huga fólk var. Samstarfið hefði
verið gott, svo gott að það hefði
nánast verið pólitísk upplifun.
Þeir Guðmundur Ámi Stefáns-
son og Magnús Jón Ámason, sem
einnig áttu sæti í nefndinni, tóku í
sama streng og sögðu að málefna-
skráin væri merkur áfangi og mik-
ilvægt skref í átt til sameiginlegs
framboðs vinstra fólks. Sighvatur
Björgvinsson, formaður Alþýðu-
flokksins, og Margrét Frímanns-
dóttir, formaður Alþýðubandalags-
ins, sögðu að skráin hefði að
geyma stefnu nýrrar samfylkingar
í næstu kosningum. Ekki bæri að
líta á hana sem markaða heildar-
stefnu þar sem tekið væri á sér-
hverju atriði um langa framtíð,
heldur sem lýsingu á þeim við-
fangsefnum sem tekist yrði á við á
næsta kjörtímabili. Það væri í
sjálfu sér mjög stórt skref og vitn-
isburður um hið gagnkvæma
traust sem náðst hefði milli flokk-
anna þriggja.
Guðný Guðbjörnsdóttir, formað-
ur þingflokks Kvennalista, tók í
sama streng og sagði að mikilvæg
kvenfrelsissjónarmið hefðu fengið
nýjan farveg, en taka ætti á jafn-
réttismálum á nýjan hátt með setn-
ingu nýrra jafnréttislaga, stofnun
sérstaks jafnréttisráðuneytis og
jafnréttisstofnunar sem annaðist
framkvæmd hinna nýju laga sem
stefnt væri að. Þá væri stefnt að
uppstokkun á félagslega kerfinu
sem hefði verið smíðað þegar kon-
ur voru flestar enn heimavinnandi
og aðlaga það breyttum atvinnu-
háttum og aukinni þátttöku
kvenna i atvinnulífínu. -SÁ
Viðamikil rannsókn á innflutningi bíla:
Grunur um stórfellt svindl
Viðamikil rannsókn stendur nú
yfir vegna grans um stórfellt svindl í
innflutningi á fjölda bíla til landsins.
Samkvæmt upplýsingum frá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er
um að ræða hugsanleg tollsvik og
skjalafals í tengslum við innflutning
vel á annað hundrað bila frá Banda-
ríkjunum, Þýskalandi og Kanada.
Rannsóknin er unnin í samvinnu
skattrannsóknarstjóra, ríkistoll-
stjóra og efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra. Samkvæmt heimUd-
um DV hafa nokkrir aðUar verið yf-
irheyrðir vegna málsins en enginn
er i haldi. Samkvæmt upplýsingum
DV er rannsóknin mjög viðamikU og
talsvert þangað tU henni lýkur.
Svikamál þetta er talið tengjast
öðru svipuðu máli sem dæmt var í
nýlega í Héraðsdómi Suðurlands.
Þá voru tveir menn ákærðir fyrir
toUsvik og skjalafals vegna inn-
flutnings á 40 bílum tU landsins.
Annar mannanna var dæmdur en
hinn sýknaður. Dóminum var áfrýj-
að til Hæstaréttar. -RR
Stuttar fréttir i>v
Bætt gæsla á Hrauninu
Öryggisgæsla á Litla-Hrauni hef-
ur verið hert og meðal annars verið
reist 800 metra löng tvöfóld öryggis-
girðing umhverfis fangelsið. Svæðið
mUli girðmganna verður upplýst.
Dagur sagði frá.
Betri afkoma
Aðalfundur
Samtaka fisk-
vinnslustöðva
hefst á morgim
og segir Amar
Sigurmundsson,
foi-maður sam-
takanna, heldur
hafa rofað tU í af-
komu fiskvmnslunnai' síðustu miss-
eri. Á fundinum verður m.a. rætt
um Kvótaþingið og Verðlagsstofu
skiptaverðs. Dagur sagði frá.
Áhyggjur af landleysi
Bæjarstjóm Hafnarfjarðar hefur
áhyggjur af því að bærinn sé að
verða landlaus. Bæjarstjómarmenn
telja að bærinn hefði átt að keppa
harðar við Reykjavík um kaup á
landi í nágrenni við bæinn.
20% í Baugi tii útlanda
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
hf. og Kaupþing hf. hafa selt 20%
hlut í Baugi, eignarhaldsfélagi Bón-
uss, Hagkaups og Nýkaups, tU er-
lendra aðUa. Um er að ræða nokkra
fagfjárfesta. Þetta kom fram á Við-
skiptavef Vísis.
Stofnar vanmetnir
Öm Pálsson,
formaður smá-
bátaeigenda, seg-
ir fiskistofnana
kringum landið
vanmetna. Smá-
bátasjómenn vUja
fiölga sóknardög-
um úr níu í 40.
Hross frá Akureyri
Beinn hrossaútflutningur er haf-
inn frá Akureyri og sér Eimskip um
þjónustuna. í gær fóra 8 hross með
Dettifossi úr Akureyi-arhöfn tU
Þýskalands.
Skífan eignast Spor
Skífan ehf. hefur keypt aUt hluta-
fé í Spori ehf. í framhaldi af því
verður þegar hafist handa um sam-
einingu fyrirtækjanna en sam-
keppnisyfirvöld gera ekki athuga-
semd við hana.
Borga meira
Garðyrkjubóndi í Tungunum fuU-
yrðir við Dag að græn stóriðja, þ.e.
garðyrkja, þurfi að kaupa raforkuna
dýrara verði af Landsvirkjun en er-
lend og mengandi stóriðja.
Fækkar á breiðbandi
Bamasjónvarpsstöðin Bamarásin
verður flutt af breiðbandi Landssím-
ans yfir á örbylgju. Böðvar Guð-
mundsson, forsvarsmaður stöðvar-
innar, segir að um sé að kenna
stefhu Landssímans varðandi breið-
bandið og útbreiðslu þess. Morgun-
blaðið sagði frá.
Skólastjóri í
Grétar Unn-
steinsson, skóla-
stjóri Garðyrkju-
skóla ríkisins,
hefúr látið af
störfum við skól-
ann vegna ósam-
komulags við
kennara, starfs-
menn og fulltrúa garðyrkjunnar í
landinu. Hann verður í staðinn
skrifstofustjóri í landbúnaðarráðu-
neytinu og sinnir sérverkefnum að
sögn Morgunblaðsins.
Ljóð á kínversku
Safn 137 íslenskra ljóða eftir 37
skáld hefúr verið gefið út á kín-
versku og kynnt fréttamönnum í
Peking. Dong Jiping þýddi ljóðin.
Morgunblaðið sagði frá.
Hrossaútflutningur
Hrossaútflutningur er aftur kom-
inn á skrið eftir hrossaflensufarald-
urinn í vetur og vor. Hrossin fara í
þriggja vikna sóttkví áður en þau
eru flutt úr landi. Stefht er að því að
flytja lifandi hross út með flugi frá
Reykjavíkur- og Akureyrarflugvöll-
um í vetur. RÚV sagði frá.
-SÁ
sérverkefni