Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 Spurmngin Lesendur Hvaöa álegg finnst þér best á pitsuna? Eyjólfur Gestur Ingólfsson nemi: Skinka. Gunnlaugur Hlöðversson nemi: Pepperoni og sveppir. Gísli Berg Sævarsson nemi: Lauk- ur. Eyjólfur Sigurjónsson nemi: Pepperoni. Haukur Þorsteinsson nemi: Mér íinnst pitsur vondar. Finnbogi Ásgeir Finnbogason nemi: Gular baunir. Viðskiptahalli og verðbólga „Úr því við búum ekki viö betri eða sterkari mynt en gömlu, slitnu og ógæfu- sömu krónuna verður alvörumynt aldrei köliuð annað en „gjaldeyrir““. Magnús Sigurðsson skrifar: Það er ekki að ástæðulausu að nokkrir menn í viðskiptalífinu hafa kosið að hafa uppi aðvörunarorð í garð stjómvalda vegna óhóflega mikils viðskiptahalla við útlönd sem nú er orðinn til á fyrri helm- ingi þessa árs. Þegar tala að upp- hæð 24 milljarðar er nefnd í þessu sambandi ættu allar viðvörunar- bjöflur i efnahagskerfinu að klingja. - Slíkur viðskiptahaOi er áflt of mikiO tO að stjómvöld geti látið sem ekkert sé. Einhver myndi nú spyrja sem svo: Á að stöðva innflutning á nýj- um bUum og öðrum flutningatækj- um (sem við eigum áreiðanlega nóg af í bili) eða stemma stigu við utan- landsferðum landans, sem hefur aukist um hvorki meira né minna en rúm 90%? Mér fyndist ekkert tUtökumál að gera ráðstafanir tU að draga úr þessum eyðsluliðum gjaldeyrisöfl- unar þjóðarinnar, a.m.k. tímabund- ið. Aðrar eins ráðstafanir gerast meðcd þjóða. Líka hér á Vesturlönd- um. Það er fásinna að gera hróp að stjórnvöldum þótt gripið sé tU krassandi aögeröa tU að verja þjóð- arbúið áframhaldandi áfoOum. Einkum þegar ráðstafanirnar bitna ekki harkalega á almenningi. Og það myndi sannarlega ekki gerast þótt innflutningur drægist eitthvað saman eða erlendur gjaldeyrir skertur tU frUystinga erlendis. - Úr því við búum ekki við betri eða sterkari mynd en gömlu, slitnu og ógæfusömu krónuna verður alvöru- mynt aldrei köUuð annað en „gjald- eyrir“. Verðbólga er sögö lítil hér nú og það stingur talsvert í augu manna sem þykjast þekkja vel tO fjármála og verðbréfaumsvifa, að lesa uppslátt í blöðum um svo tU verðbólgulaust ís- land, með ævintýralegan viðskipta- haUa. Er kannski einhver ósýnUeg hönd eða hendur, innan eða utan okkar peningalega stjómsýslukerfls, sem stritast við það öUum stundum að reikna verðbólguna niður í núUið eða sem næst því? - Sparnað er tU- gangslaust að tala um hér fyrr en hið opinbera gengur sjálft á undan með fordæmi um spamað, sjálfvirkan eða lögþvingaðan. Móðgaður fréttastjóri Sigurjón Einarsson skrifar: í blaði sem fylgir DV á föstudög- um, Fókusi, var sl. föstudag athygli- verð úttekt á nokkmm ofmetnum íslendingum. Þar segir m.a. um Helga H. Jónsson: „Missti áhuga á fréttum fyrir mörgum árum og vildi helst búa til smáfréttir um böm, dýr og skrýtið fólk, en skortir inni- leika tU að gera þessi innslög hlý- leg. Varð fréttastjóri fyrir misskO- inn eigin metnað og algera þumð á hæfUeikafólki sem kýs Framsókn. Tókst að gera lélegustu fréttastofu landsins enn slappari. Gat ekki set- ið á sér með að launa sínu fólki stöðuhækkunina og varð hlutdræg- ur fyrir sveitarstjómarkosningarn- ar. Ætti að viðurkenna það í stað þess að látast verða móðgaður." Ef eitthvað er tU í þessum um- mælum skulum við átta okkur á því að þaö er árið 1998, og það gengur ekki lengur að minn gamli flokkur, Framsókn, gangi sig upp að eyrum fyrir svona fólk. Fréttastofa SjónvEirpsins á að vera ópólitísk og þar á fagmennska að ráða ríkjum. Getur verið að ein skýring á minnkandi fylgi okkar sé sá farsi sem umleikið hefur frétta- stofu Sjónvarpsins? SennUega verður aldrei kymð á þessum vinnustað nema skipt verði um fréttastjóra sem mér skUst að eigi að verða um næstu áramót. Miðað við ferU áðumefnds frétta- stjóra er ekki úr vegi að ætla að hann hafi valið sér rangan starfs- vettvang og ætti því að huga sér- staklega vel að öömm vettvangi sem hæfir hans hæfileikum betur. Stöð 2, þar sem ég sé aðeins frétt- ir, er á góðri leið með að valta yfir Sjónvarpið. Þeir hirtu af mér og fleirum ensku knattspymuna og Simpson, og núna sé ég að þeir eru á góðri leið með að kippa spum- ingaþættinum Gettu betur yfir tU sín. - RÚV þarf að fara i stranga naflaskoðun og hressa sig við á öU- um sviðum, og umfram aUt; láta einungis fagmennsku og metnað ráða ríkjum. Stóru matvöru- markaðirnir ofmetnast Helga Gunnarsdóttir skrifar: Mörgum fleiri en mér finnst áreiðanlega svör forsvarsmanna stóm matvömmarkaðanna sem hér hafa lengst verið tU staðar á Reykja- víkursvæðinu (annarra en Nóatúns- verslananna) vera í stU við hortug- heit, vegna komu einnar KEA-versl- unar í Mjódd. Þeir hafa greinUega ofmetnast. Þótt það valdi eflaust pirringi hjá stóra kaupmönnunum að KEA kemur inn í myndina hér ættu forsvarsmenn þeirra ekki að láta á því bera á jafn augljósan hátt sem fram kemur í því svari, að þeir muni ekki selja vömr sem KEA framleiðir. m þjónusta hortugheit í garð neytenda Kappsmál aö samkeppni haldist sem mest og sem lengst. Fjöldi verslana sem mestur og okk- ur neytendum er borgiö, segir m.a. í bréfinu. Þessi svör eru bein hortugheit í garð neytenda. Þessir menn bera ekki hag þeirra fyrir brjósti. Hvað t.d. með jólahangikjötið frá KEA, ætla stórmarkaðir Hagkaups og Bónuss ekki að bjóða viðskiptavin- um sínum þetta eftirsótta kjöt? Eða aðrar vömr sem koma að norðan á vegum KEA? Ég er sammála forsvars- manni KEA, sem segir að stríð á markaðnum hér syðra, gæti leitt tU fleiri Nettóbúða á þessu þétt- býlasta svæði landsins. Og ætti í raun að gera það. Okkur neytendum er það kappsmál að sam- keppni haldist sem mest og sem lengst. Fjöldi verslana sem mestur og okkur er borgið. Það er verðið og gæði vörunnar sem okkur stendur næst. Hefndaraðgerðir eru þessar hótanir af hálfu stóra markaðanna hér og ekkert annað. Það eina sem þeir geta gert tU að lifa og starfa áfram er að sætta sig við samkeppnina og sættast við við- skiptavini sína sem koma hvaðanæva að hingað á þéttbýlis- svæðið og versla þar sem þeim þyk- ir sjálfúm hagkvæmast og þar sem þeir em boðnir velkomnir með lægsta verðinu, bestu vörunum - og besta viðmótinu. Gagnagrunnur á einni hendi Friðjón skrifar: Auðvitað skUja það ekki allir en það segir sig sjálft að þegar um er að ræða gagnagrunn sem kost- ar í kringum 20 mUljarða króna er ekki á færi margra aðUa að koma honum upp. Og aUs ekki margra aðUa í samkeppni hverjir við aðra. Þótt maður sé ekki tU- kippilegur aUajafha að mæla með fákeppni, hvað þá einokun, er hér um að ræða viðkvæmt mál og gif- urlega kostnaðarsamt, sem hvergi á heima nema á einni hendi. Þar sem nú er búið að leggja mikinn kostnað í gagnagrunn og uppsetn- ingu rannsóknarstofú íslenskrar erfðagreiningar, væri fáránlegt og raunar algjör mistök að snúa núna frá ÍE og taka mark á úr- töluröddum fárra lækna sem hafa það eitt að markmiði að komast yfir einhvem hluta hins miðlæga gagnagrunns. Framsóknar- flokkur á Austurlandi? Reynir hringdi: Ég vissi ekki einu sinni um neina skipulagða starfsemi Fram- sóknarflokksins á Austurlandi fyrr en ég heyrði frétt um það í Ríkisútvarpinu nýlega að í skoð- anakönnun Gallups hefði Fram- sóknarflokkurinn mest fylgi í Austurlandskjördæmi, af öllum kjördæmum! - Ef marka má skoð- anakönnun Gallups bætir svo Morgunblaðið við í sinni frétt um málið sl. þriðjudag. Það er eins og Mbl. efist dálítið um þessa könn- un og segir því „ef marka má ...“. En hvers vegna þessi skoðana- könnun um Fi'amsókn á Austur- landi nú? Jú, einfaldlega vegna þess að flokkurinn er harmi sleg- inn vegna könnunar á þjóðarvísu þar sem hann er á hraðri leið nið- ur. Austurland verður því gull- kista Framsóknar í bili a.m.k. Hvalrengi til Islands Bjami Guðmundsson skrifar: Einkennilegt er ef útilokað er að fá rengi til landsins frá Noregi þar sem hvalveiðar era súmdaðar. Nú er sagt að búið sé að stöðva sölu á rengi hingað með stjómvaldsað- gerð í Noregi. Þeir í Nóatúni, sem ætluðu að selja okkur rengið, em samt ekki bangnir en vonast auð- vitað til að fá stuðning íslenskra forystumanna í kerfinu. En ég er viss um að t.d. sérhver ráðherra hér kastar málinu frá sér af hræðslu við að ef hvalspik kemst til íslands, þá komi þrýstingur á frekari aðgerðir í hvalveiðimál- inu. Við fylgjumst með málinu. íslenska út- varpsfélagið - klén síma- þjónusta Bragi hringdi: Ég hef oft hringt í aðalskipti- borð íslenska útvarpsfélagins til að fá upplýsingar um eitt og ann- að varðandi dagskrá eða annað sem mér þykir þurfa við í sam- bandi við hlustun eða áhorf í miðlum þessa félags. Ávallt er einhver agnúi í spilinu, Ýmist svarar ekki eða skiptiborð getur ekki gefið samband eða bendir á svokallaða hlustendalinu sem ekki er einu sinni virk. i gær- kvöldi (mánudaginn um kl. 17.30) hringdi ég til að spyrjast fyrir um lag sem leikið var og sungið af Frank Sinatra og einhverjum öðr- um söngvara sem ég kannaðist við en mundi ekki hver var og vildi vita hið rétta. Ekki mögulegt að fá þær upplýsingar og vísaö á hlustendalínu sem að sjálfsögðu svaraði ekki. Svona er ótækt hjá alvöra útvarpsfélagi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.