Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 Torfæra Torfærukeppni Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu iyrm og ain voru erfið að vanda Síðasta umferð Islandsmeistaramótsins í torfæruakstri var haldin á Hellu sl. laugardag. Það var að vanda Flugbjörgunarsveitin á Hellu sem stóð fyrir keppninni, eins og hún hefur gert síðustu áratugi, en keppnin á Hellu er sú keppni sem lengst hefur verið haldin. Að vanda var mikið fjölmenni mætt til að fylgjast með enda ___ stefndi allt í spennandi keppni þar sem í boði var nýr jeppi fyrir þann keppanda sem tækist að aka allar brautimar villulaust. Sú spenna slokknaði þó strax í fyrstu brautinni þar sem hún var svo snúin að engum ökumannanna tókst að komast hana villulaust. Fyrir keppnina voru íslandsmeistaratitlarnir í báðum flokkum fráteknir. Þeir Gísli G. Jónsson og Gunnar Pálmi Pétursson höfðu tryggt sér þá fyrr í sumar þegar þeir sigruðu í fjórum fyrstu keppnum sumarsins. En þrátt fyrir aö úrslitaspennan væri ekki fyrir hendi skemmtu áhorfendur sér vel við að fylgjast með keppendunum, sem voru óvenjumargir, í torfærunum. Sérstaklega var það mýrin fræga og áin sem hleyptu fjöri í keppnina en þar áttu margir keppendanna í erfiðleikum. Gunnar Pálmi Pétursson hlífði gamia ‘42 Ford-jeppanum hvergi þó svo að hann hefði verið búinn að tryggja sér íslandmeistaratitilinn fyrr í sumar. DV-myndir JAK Ættingjar og vinir Gílsa G. Jónssonar færðu honum og Vigdísi Helgadóttur, eiginkonu hans, veglega gjöf að keppni lokinni. Voru þeir greinilega ánægðir með sinn mann. EkkivarmiK'' keppni enda mjög bratta brást þó ekki oq tók léttan Nítrósprenging varð í Frissa fríska hjá Helga Schöith í lok keppninnar og laskaðist vélin í bílnum eitthvað. Hún var þó í góðu formi þegar Helgi botnaði hana í þetta barð. ekki góðan dag. Hann rmi haetti að virka og SSw'-1* I “ sagði lngi Wlan Það kviknaði í „Trúðnum" hans Gunnars Gunnarssonar í Mýrinni eftir að hann hafði verið dreginn upp. Vandræði hlutust af því að slökkvitæki það sem flugbjörgunarsveitar- menn voru með virkaði ekki og varð Gunnar að nota handslökkvitækið sem hann var með í bílnum til að slökkva eldinn. Stýrið hætti að virka hjá Hrólfi Árni Borgarssyni í tímabrautinni og ók hann á þjónustubíl Inga Más Björnsonar. Eftir keppnina fékk hann sérstök aulaverðlaun fyrir afrekið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.