Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 10
enning FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 JjV 10 \lll__________ --------=— x ik Fyrir börn á öllum aldri Engin er eins hýr og rjóð Á sunnudaginn kemur kl. 16.00 frumsýnir leikhópurinn Augnablik bamaleikritið hug- ljúfa um Dimmalimm. Það er byggt á leik- gerð frá árinu 1992 sem meðlimir Augna- bliks unnu upp úr hinu góðkunna ævintýri um Dimmalimm og svaninn eftir listmálar- ann Mugg. Tónlistin í sýningunni er eftir Atla Heimi Sveinsson en svo skemmtilega vill til að hann verður sextugur daginn eftir frumsýningu, mánudaginn 21. september. Með aðalhlutverk fara Harpa Arnardóttir, Þorsteinn Bachmann og Ólafur Guð- mundsson. Tónlistina flytja Guðrún Birgisdóttir og Peter Maté. Leikstjóri er Ásta Arnardóttir. Sjónleikurinn segir frá prinsess- unni Dimmalimm sem fékk leyfi til að fara út úr hallargarðinum og skoða sig um. Hún kom að vatni þar sem hún hitti stóran og fallegan svan sem hún vingaðist við. Dimmalimm heimsótti svaninn sinn á hverjum degi í heilt ár og varð óhuggandi þeg- ar hann dó. En hér sem oftar sannast að ástin er sterkari en dauðinn. Að sýningu lokinni í Iðnó verða ungir leikhúsgestir leystir út með brauði sem þeir geta gefið svönunum á tjöminni. Finnur í Garðabæ Náttúrumál Um helgina, nánar til tekið frá föstudegi til sunnudags, verður haldin ráðstefna um menningu og náttúru á vegum Siðfræði- stofnunar Háskóla Islands. Alls verða haldn- ir nítján fyrirlestrar og koma margir þeirra inn á listir. Til dæmis heldur Aðalsteinn Ingólfsson erindið „Hugsandi land - náttúr- an í verkum Jóhannesar Kjarvals“ kl. 15 á föstudag, Ólína Þorvarðardóttir talar um samskipti manns og náttúm í íslenskum þjóðsögum kl. 16.40 sama dag. Á sunnudag kl. 10 talar Helga Kress um hinn hreina tón og kvenmynd eilíföarinnar í verkum Hall- dórs Laxness og næst á eftir henni koma Sveinn Yngvi Eg- ilsson með „Hugmyndina um hið háleita norður", Soffia Auður Birgisdótt- ir með „Náttúmsýn í nútímabókmenntum" og sr. Gunnar Kristjánsson sem talar um dulhyggju í íslenskum náttúruljóðum. Ráðstefnan er sjálfstætt framhald ráð- stefnunnar Náttúrusýn sem Siðfræðistofnun gekkst fyrir haustið 1993 og er ætlað að hvetja fræðimenn úr ólíkum grein- um til frekari rannsókna á tengslum manns og náttúru. Einnig á hún að skapa vettvang þar sem fr'æðimenn og almenningur geta skipst á skoðun- um um þau tengsl. Ráðstefnan verður haldin i Hátíð- arsal Háskóla íslands og mun Páll Skúlason rektor setja hana kl. 13 á morgun, föstudag. Á laugardag hefst dag- skrá kl. 9 meö erindi Þóru Ellenar Þórhalls- dóttur, prófessors í líffræði, en Helga byrjar sunnudaginn með erindi um Halldór Lax- ness eins og áður gat. Ráðstefnan er öllum opin. Fullt þátttöku- gjald fyrir alla þrjá dagana er 1000 kr. „Eg stend í þvi að þýða ís- lenskar bækur yfir á þýsku og er frekar einangraður í Þýska- landi. Það jaðrar við að ég þyki skrýtinn. Það sem mér þótti svo skemmtilegt við þingið í Skál- holti var að hitta fjölda manns frá mörgum löndum sem eru í sömu sporum og ég; þeir eru jafnvel að þýða verk eftir sömu höfunda og ég. Þetta sýnir að maður er ekki alveg einn i heiminum." Þetta segir Þjóðverjinn Andr- eas Vollmer en hann er staddur hér á landi vegna þings um þýð- ingar sem haldið var í Skálholti á vegum Stofnunar Sigurðar Nordals í síðustu viku. Þar komu saman víðs vegar að úr Evrópu þeir sem eru að þýða ís- lenskar bókmenntir. Jafnt þeir sem nú eru að þýða sina fyrstu bók og atvinnuþýðendur eins og Svíinn Inge Knutsson sem hefur þýtt yfir fjörutíu íslensk verk. „Þetta var mjög fróölegt," segir Andreas, „íslendingar segja það líka einstaka upplifun að heyra allt þetta fólk tala saman á íslensku." Erfiðir höfundar vanmetnir Andreas stundaði nám í is- lensku fyrir erlenda stúdenta við Háskóla ís- lands á árunum 1985-1988. Nú kennir hann ís- lensku við háskólann í Berlín og að uppá- stungu Steidl-forlagsins er hann að þýða Stúlkuna í skóginum eftir Vigdisi Grímsdótt- ur og Hvatt að rúnum eftir Álfrúnu Gunn- laugsdóttur. „Að mínu mati verða slíkar uppástungur að koma frá forlögunum vegna þess hve bóka- markaður í Þýskalandi er gríðarlega stór,“ segir Andreas. „Það þýðir ekki fyrir einn mann að koma með bók til einhvers forlags og segja: „Ég er hérna með góða bók sem mig langar að þýða.“ Það er nauðsynlegt fyrir hann að hafa sambönd og vinna verkið í sam- ráði við forlag." Steidl-forlagið er um þessar mundir að end- urútgefa verk Halldórs Laxness í Þýskalandi. báðar í þeim hópi.“ Þegar Andreas er spurður hvernig verkið gangi segist hann aðeins hafa lokið að slá inn hrá- an textann; á döf- inni sé að funda með Vigdísi og ræða við hana ým- islegt er varðar verkið. Að mati Andreasar eru það forréttindi þýðandans að hann getur fengið höfundinn til þess að útskýra fyrir sér torskilin at- riði verksins. En íslendingar hafa ef til vill mestan áhuga á að vita hvort einhver markaður er fyrir skandinavískar bókmenntir í Þýskalandi og Andreas telur góðar líkur á því. „Veröld Sofflu eftir Jostein Gaarder varð gífurlega vinsæl í Þýskalandi og seldist vel. Hún hratt af stað bylgju og forlögin fóru að líta í kringum sig eftir fleiri skandinavískum höfund- um. En íslendingar verða að átta sig á því að þetta er bylgja sem getur gengið yfir á tveimur árum. Það er ekki um að ræða „landnám íslenskra bókmennta í Þýskalandi" eins og sagt var í íslensku dagblaði um daginn. Svona yfirlýsingar eru ótrúlega hlægilegar því þetta eru bara nokkrar bækur sem alveg eins geta týnst í mörg þúsund bóka flóði. Það kemur ekki í ljós fyrr en eftir nokk- ur ár hvort einhver sýnir þessum bókum at- hygli.“ Þegar Andreas er spurður hvað hann langi til að þýða næst verður honum svarafátt. Hann segist hafa nóg að gera um þessar mundir. „Raunar býst ég ekki við að ég geti farið að sinna mínum hugðarefnum af fullum krafti fyrr en ég er kominn á eftirlaun og því erfltt að segja hvað ég tek mér fyrir hendur þá. Mér dettur þó í hug að nefna einstaka bók sem væri mikil áskorun fyrir þýðanda og jafnvel segðu einhverjir að hún væri óþýðan- leg; það er Tabúlarasa eftir Sigurð Guðmunds- son.“ -þhs Andreas Vollmer vinnur að þýðingum á verkum Vigdísar Grímsdóttur og Álf- rúnar Gunnlaugsdóttur. DV-mynd ÞÖK Hubert Seelow þýðir áður óþýdd verk og end- urskoðar einnig eldri þýðingar Brunos Kress. Sú hugmynd kom síðan upp að gefa samhliða út verk íslenskra nútímahöfunda. Fyrstu bæk- urnar í þeim flokki eru Svanurinn eftir Guð- berg Bergsson og Meðan nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur en síðan koma þýð- ingar Andreasar á Stúlkunni í skóginum og Hvatt að rúnum. Andreas er mjög hrifinn af verkefnum sin- um og segist lengi hafa verið aðdáandi Vigdís- ar Grímsdóttur. „Ég tel líka að Álfrún sé stórkostlega van- metinn höfundur á íslandi og ástæðan er ef til vill sú að hún er ekki einn af þessum fyndnu höfúndum. Mér þykja rithöfundar sem skrifa bækur sem reyna á lesandann ekki njóta sannmælis á íslandi. Álfrún og Vigdís eru Gott að hitta aðra S • • í somu sporum Einar Áskell og starfsfólk Möguleikhússins leikárið 1998-9. Yst til vinstri stendur leikhússtjórinn, Pét- ur Eggerz. DV-mynd Teitur Möguleikhúsið, bamaleikhúsið við Hlemm, er nú að hefja sitt níunda leikár og má orðið heita stofnun i is- lenska leikhúsheiminum. Á siðasta leikári sóttu um 10.000 gestir sýningar þess og munar þar mest um hina vin- sælu sýningu Góðan dag, Einar Áskell, sem um 8000 börn hafa nú séð. Nýtt leikár hefst einmitt á Einari Áskeli. Pétur Eggerz og Skúli Gauta- son era að leggja i leikferð með hann um Austurland því börnin þar hafa enn ekki haft tækifæri til að sjá sýn- inguna. Annað verk sem endurvakið verður er Hvar er Stekkjastaur? Það hefur verið sýnt á aðventunni undan- farin tvö ár og nú er meiningin að byrja á Akureyri snemma í desember og sýna svo á höfuðborgarsvæðinu. En fyrsta frumsýning haustsins er á nýrri leikgerð Péturs Eggerz á sögum Iðunnar Steinsdóttur um hrekkjóttu systurnar Snuðru og Tuðru sem alltaf eru að rífast. Sögurnar komu út i tíu heftum en leikgerðin er aðallega byggð á þremur þeirra. Sýningin er ætluð börnum frá tveggja til níu ára og mun ferðast milli staða eins og all- ar sýningar Möguleikhússins en líka verða sýnd i leikhúsinu sjálfu. Linda Ásgeirsdóttir og Drífa Arnþórsdóttir leika systurnar, Bjarni Ingvarsson leikstýrir og Katrín Þor- valdsdóttir býr til brúður. Frumsýningin er áætluð 3. október. í októberlok verður frumsýnt leikverkið Rúna sem er byggt á þjóðsögum og þjóðkvæð- um. Pétur Eggerz leikstýrir og Katrín Þor- valdsdóttir hannar leikmynd og búninga en leikkonan Vala Þórsdóttir verður ein á svið- inu. Eftir áramót verður svo sýnt leikrit fyrir unglinga (og fullorðna) sem fjallar á nýstár- legan hátt um tvær persónur úr Nýja testa- mentinu, Júdas og Maríu Magdalenu. Það er eftir danska höfundinn Kim Nerrevig og heitir Maðurinn frá Nasaret. Leikritið gerist þegar Kristur hefur verið tekinn höndum og lýsir uppgjöri milli þessara tveggja fylgis- manna hans. Júdas hafði litið á hann sem byltingarforingja gegn erlendu valdi og sveik hann þegar annað kom í ljós, en María leit á Krist sem andlegan leiðtoga, og þau takast á um þessar ólíku skoðanir. Spurningin sem verkið varpar fram er hve langt réttlætanlegt sé að ganga í baráttu fyrir þjóðfrelsi. Verkiö hefur verið sýnt víða í Danmörku og einkum verið boðið fermingarbörnum. Það verður einnig gert hér. Fyrstu tónleikarnir á þriðju Kammertón- listarhátíöinni i Garðabæ verða haldnir á laugardaginn. Þá mun Finnur Bjamason barítonsöngvari flytja söngljóð eftir Robert Schumann við undirleik Gerrits Schuil pí- anóleikara. Á efnisskránni eru tólf söngvar við ljóð Justinusar Kemer, Liederkreis op. 24 og fleiri lög við ljóö Heinrichs Heine. Finnur er kornungur en hefur sungið sig inn í hjörtu áheyrenda hér á landi og erlend- is undanfarin ár. Svo dæmi séu nefnd hélt hann í vor sem leið tónleika með hinni þekktu söngkonu Emmu Kirkby i Bretlandi og í sumar vann hann fyrstu verðlaun fyrii- ljóðasöng í mikiismet- inni keppni sem kennd er við söngvarann Richard Tauber. Væntanlegur er hljómdiskur með söng hans í haust og verður undirleikari hans þar sá sami og á tónleikunum, Gerrit Schuil. Ger- rit hefur búið hér á landi í flmm ár og sett æ meiri svip á tónlistarlíf landsmanna, ekki sist með því að skipuleggja metnaðarfullar tónlistarhátíðir I Garðabæ. Tónleikarnir verða í Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ og hefjast kl. 17. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.