Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1998, Blaðsíða 16
I
i
16 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 17 ->
íþróttir DV DV íþróttir
Blcand í poka
Tore Andre Flo hjá Chelsea gæti
verið á leiðinni til Newcastle sem er
tilbúiö að borga um einn milljarö
fyrir leikmanninn. Ruud Gullit,
sfjóri Newcastle, keypti hann í fyrra
til Chelsea fyrir 35 miHjónir.
Gianluca Vialli segist ekki ætla að
selja neinn af framherjum sínum.
„Framherjarnir hjá Chelsea eru allir
frábærir og ég veit að allir knatt-
spyrnustjórar á Englandi myndu vilja
hafa þá,“ segir Vialli.
Julian Dicks sem hefur veriö frá allri
keppni i 18 mánuði vegna meiðsla lék
sinn fyrsta leik með West Ham gegn
Northampton í deildabikamum í
gærkvöld.
H'esí Ham og Juventus stefna að
samstarfi í framtíðinni. Samstarfið
felst m.a. i að liðin skiptast á mönnum
og ungir og efnilegir strákar dvelja á
víxl hjá félögunum. ítalska liöiö haði
áður gert samkomulag við Crystal
Palace um sama efni en fyrst liðið féll
úr úrvalsdeildinni féll samstarfið
niöur.
Teddy Sheringham, leikmaöur
Manchester United, gæti verið á
leiðinni til Crystal Palace en Terry
Venables, stjóri Palace, hefur í hyggju
að bjóða United 380 milljónir fyrir
leikmanninn sem ekki hefur átt fast
sæti í liöinu.
Allir leikmenn KR og ÍBV sem leika
til úrslita um íslandsmeistaratitilinn í
knattspyrnu á laugardaginn eru heilir
og enginn leikmaður úr þessum
félögum er í leikbanni.
Eyjamenn koma til lands á
fimmtudag og á föstudaginn halda
þeir til Hveragerðis og ætla að dvelja
á Hótel örk fram að leik.
Forsala á úrslitaleikinn er hafin og
fer hún fram á eftirtöldum stöðum:
KR-heimilinu við Frostaskjól, Spörtu
Laugavegi og í Select-búöunum viö
Birkimel, Suðurströnd, Bústaðaveg,
Vesturlandsveg og við SuðurfeU.
4000 mióar eru i boði á leikinn og
ætla KR-ingar að koma upp
bráðabirgðapöUum fyrir áhorfendur.
Leikur Þróttar og Keflavikur i
lokaumferð úrvalsdeUdarinnar í
knattspymu verður á ValbjarnarveUi
klukkan 13.30 á laugardaginn en ekki
á LaugardalsveUi. Þróttarar hafa ekki
riðið feitum hesti frá leikjum sínum á
LaugardalsveUi og hafa ekki unnið
þar leik i deildinni í sumar.
-GH/JKS
Enski deildabikarinn:
Óvænt
skipbrot
Mjög óvænt úrslit urðu í gær-
kvöld í síðari leikjunum í 2. um-
ferö enska deildabikarsins í
knattspyrnu.
Tvö stórlið úr ensku a-deild-
inni fengu það óþvegið hjá and-
stæðingum sínum og duttu úr
keppninni.
West Ham lék gegn Nort-
hampton og marði sigur með
marki á síðustu mínútu leiksins
sem ekki dugði til þátttöku í 3.
umferð. Sömu sögu er að segja af
Sheffield Wednesday sem réði
ekki víð Cambridge.
Arnar Gunnlaugsson lék allan
leikinn fyrir Bolton gegn Hull en
skoraði ekki. Eiður Smári var
varamaður en Guðni Bergsson í
leikbanni. Hermann Hreiöarsson lék
ekki með Bradford, ekki löglegur.
Birm.ham-Macclesfield . .. 6—0 (9-0)
Bradford-Halifax .......3-1 (5-2)
Cambridge-Sheff.Wed .... 1-1 (2-1
Charlton-QPR............1-0 (3-0)
Chester-Sunderland......0-1 (0-4)
Crewe-Bristol City .....2-0 (3-1)
Grimsby-Sheff. Utd......2-0 (3-2)
Hull-Bolton.............2-3 (3-0)
Luton-Ipswich...........4-2 (5-4)
Nott. Forest-Leyton ....0-0 (5-1)
Southend-Coventry.......0-4 (0-5)
Tranmere-Blackpool......3-1 (4-3)
West Ham-Northampton . 1-0 (1-2)
Wigan-Norwich ..........2-3 (2-4)
Wimbledon-Portsmouth . . 4-1 (5-3)
Wolves-Bournemouth ... 1-2 (2-3)
Wycombe-Middlesbrough . 1-1 (1-3)
-SK
Kvennahandboltinn hófst í gærkvöld:
Magnaður
bardagi
- þegar Haukar unnu Stjörnuna, 22-20
„Við ætluðum alltaf að
vinna. Þær hafa verið skref-
inu á undan okkur tvo síðustu
vetur en nú er komið að okk-
ur að vera á undan. Eftir að
Herdís meiddist þá tvíefldust
þær en við unnum ekki vegna
þess,“ sagði Harpa Melsted,
fyrirliði Hauka, eftir að dýr-
mætur og sætur sigur á liði
Stjömunnar var í höfn í Hafn-
arfirði í gærkvöld, 22-20. Stað-
an i leikhléi var 13-10.
Leikur liðanna var mjög
góður og skemmtilegur og lof-
ar svo sannarlega góðu fyrir
komandi leiktíð. Greinilegt er
að bæði þessi lið koma vel
undirbúin til leiks. Lið Stjöm-
unnar varð fyrir áfalli um
miðjan fyrri hálfleik er Herdís
Sigurbergsdóttir meiddist á
ökkla og gat ekki leikið meira.
Vaiva Drillinngaite varði
mark Hauka af snilld og lagði
gmnninn að sigrinum. Hún
varði 19 skot í leiknum og eitt
vítakast i lokin á mjög mikil-
vægu augnabliki.
Mörk Hauka: Thelma Björk
Ámadóttir 5, Auður Hermanns-
dóttlr 4, Hanna G. Stefánsdóttir 4,
Juditd Esztergal 4/1, Harpa Mel-
sted 3, Hekla Daðadóttir 2.
Mörk Stjömunnar: Ragnheið-
ur Stephensen 8, Nína K. Bjöms-
dóttir 3, Inga Fríða Tryggvadóttir
3, Anna Blöndal 2, Inga Björgvins-
dóttir 2, Hrund Grétarsdóttir 1,
Herdís Sigurbergsdóttir 1.
Rússnesku stúlkurnar
ólöglegar?
Fram sigraði FH örugglega,
30-23, eftir 14-10 í leikhléi.
Rússnesku stúlkurnar Mar-
ina Zcveva og Olga Prolorova
voru bestu menn Fram í
leiknum ásamt Jónu Björk
Pálmadóttur. Svo kann að
fara að FH kæri leikinn vegna
þess að leikheimild hefur ekki
enn borist fyrir þær rúss-
nesku. Úr því fæst væntan-
lega skorið í dag.
Mörk Fram: Marina Zoveva 10,
Jóna Björk Pálmadóttir 6, Olga
Prolorova 5, Svanhildur Þengils-
dóttir 3, Steinunn Tómasdóttir 2,
Díana Guðjónsdóttir 2, Bjamey
Ólafsdóttir 2.
Mörk FH: Drifa Skúladóttir 6,
Þórdís Brynjólfsdóttir 3, Dagný
Skúladóttir 3, Björk Ægisdóttir 3,
Hildur Erlingsdóttir 2, Guðrún
Hólmgeirsdóttir 2, Hafdís Hinriks-
dóttir 2, Gunnur Sveinsdóttir 2.
Öruggt hjá Víkingi
Vfkingur vann nokkuð ör-
uggan sigur gegn Gróttu/KR,
20-17, í mjög slökum leik.
Staðan í leikhléi var 14-9.
Mörk Víkings: Halla María
Helgadóttir 9/6, Svava Sigurðar-
dóttir 5, Guðmunda Kristjánsdótt-
ir 1, Anna Kr. Árnadóttir 1, Krist-
ín Guömundsdóttir 1, Margrét Eg-
ilsdóttir 1, Eva Halldórsdóttir 1,
Dóra Sighvatsdóttir 1.
Mörk Gróttu/KR: Helga S.
Ormsdóttir 4, Kristin Þórðardóttir
4, Edda Hrönn Kristinsdóttir 3,
Brynja Jónsdóttir 2, Eva Björg
Hlööversdóttir 2, Harpa M. Ingólfs-
dóttir 1, Sara Smart 1.
Tap hjá nýliðunum í ÍR
og KA
Nýju liðin í efstu deild
kvenna töpuðu bæði leikjum
sínum á heimavelli í gær-
kvöld. ÍR tapaði í Austur-
bergi gegn ÍBV, 18-26 og KA
tapaði á Akureyri fyrir Val,
16-23. -ih/-RS/BB/-SK
Harpa Melsted, fyrirliði Hauka, sést hér í átökum í varnarleiknum gegn Stjörnustúlkum í gærkvöld.
Leikurinn var mjög skemmtilegur og vel leikinn af beggja liða hálfu. DV-mynd E.ÓI
Fram, fótboltafélag Reykjavíkur ehf., stofnað:
„Opnar nýja
möguleika"
Stofnað hefur verið
Fram, fótboltafélag
Reykjavíkur ehf. Það
var fyrir nokkru sem
aðalstjóm Fram og
knattspymudeildin
samþykktu stofnun fé-
lagsins. Þetta félag
mun þegar tímabilinu
lýkur um næstu helgi
yfirtaka rekstur meist-
araflokks knatt-
spymudeildar og verð-
ur eigandi félagsins
aðalstjórn hins ný-
stofnaða félags.
Samhliða þessu
mun félagið yfirtaka
allar skuldir knatt-
spymudeildarinnar
þannig að eftir stend-
ur hlutafélagið sem
byrjar á núllpunkti,
skuldlaust, en hefur þá
alla tekjuliði sem
knattspyrnudeildin
hafði af meistara-
flokknum.
Knattspymudeildin
verður áfram við lýði
en hún verður með
alla yngri flokka á
sinni könnu.
Sveinn Andri
Sveinsson, formaður
Fram, sagði í samtali
við DV í gær þetta
stóran og merkan
áfanga í sögu félags-
ins. Heyrst hefur að
hið nýja félag hafa átt
í viðræðum við stóran
knattspyrnuklúbb í
Evrópu. Sveinn Andri
var inntur eftir þessu.
„Já, ég get staðfest
að það hafa verið
þreifingar milli okkar
og knattspymufélags í
Evrópu um kaup á
helmingnum í félag-
inu. Það er það eina
sem ég get sagt á þessu
stigi málsins," sagði
Sveinn Andri.
Sveinn Andri sagði
vinnuna viö þetta
ákveöna félag á byrj-
unarreit og ómögulegt
væri að segja til um
hvenær línur myndu
skýrast.
„Breyting með þess-
um hætti er að eiga
sér stað miklu seinna
hér á landi en annars
staðar. Menn eru að
hætta í þessu sjálf-
boðaliðastarfi sem hef-
ur auðvitað ákveðinn
ljóma yfir sér. Það em
komnir miklir pening-
ar í þetta og því er
þetta orðinn hreinn
fyrirtækjarekstur. Við
erum aö breyta form-
inu til þess að geta
svarað þessum breyttu
tímum. Hlutafélaga-
formið hentar best
þessu breytta um-
hverfi,“ sagði Sveinn
Andri.
„Ég er mjög ánægð-
ur með þennan áfanga
í málinu sem hefur
reyndar verið í undir-
búningi lengi. Það var
hins vegar ákveðið að
kýla á stofnunina
núna. í stjóm þessa
nýja félags hafa komið
öflugir Framarar, sem
ekki hafa komið að
starfi félagsins áður en
em sterkir í viðskipta-
lífinu. Það er síðan
ætlunin að ráða fram-
kvæmdastjóra á fag-
legum viðskiptanót-
um. Það er ekki annað
hægt að segja en að
það séu mjög spenn-
andi tímar fram und-
an. Þetta nýja rekstr-
arform opnar nýja
fj ármögnunarmögu-
leika en fylgismenn fé-
lagsins geta auðvitað
keypt sér hlutabréf í
félaginu,“ sagði
Sveinn Andri.
-JKS
Tómas Ingi stóð belgfska félaginu
Aalst til boða.
Bland í poka
Aalst hafði ekki
áhuga á Tómasi
Tómas Ingi Tómasson, knattspyrnumaður úr Þrótti, sem er næst
markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar, er einn af þeim leikmönnum sem
belgíska félaginu Aalst hefur verið boðið til kaups. Danskur umboðsmaður
setti sig í samband við Aalst í vikunni og bauð félaginu Tómas Inga fyrir 2,5
milljónir belgiska franka sem er um 50 milljónir islenskra króna.
„Jú, það er rétt. íslendingurinn er einn af mörgum leikmönnum sem okkur
stendur til boða. En hann er ekki sá leikmaður sem ég er að leita að,“ sagði
Krist Van Puyvelde, framkvæmdastjóri Aalst, við DV. „„ , . ._
-KB/Belgíu/GH
Eyjólfur Sverrisson og félagar
í Hertha Berlín unnu Bayer
Leverkusen á útivelli í þýsku bik-
arkeppninni í knattspymu í gær-
kvöld, 3-4, eftir vítakeppni.
Kaiserslautern var slegið út af
Bochum eftir vítakeppni, 5-3.
Stuttgart vann Frankfurt, 3-2, og
Dusseldorf vann 1860 Munchen,
2-1.
ÍR og Leiknir eru að sameinast
í eitt stórt íþróttafélag i Breiðholt-
inu. Samningaviðræður félaganna
hafa staðið yfir undanfarið ár.
Samstarf Juventus og West
Ham kann að vera í burðarliðn-
um. Ef af verður getur West Ham
fengið leikmenn frá Juventus að
láni og unglingar frá West Ham
æft með ítalska stórliöinu.
Obrick til UMFN
Rodney Obrick, bandarísk-
ur blökkumaður, er kominn
til íslandsmeistara Njarðvík-
ur til reynslu.
Obrick er 1,80 metrar á
hæð og leikur í stöðu bak-
varðar. Hann hefur undanfar-
in ár leikið í smærri atvinnu-
mannadeildunum í heima-
landinu.
-SK
Hermann Hreiöarsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Crystal Palace. í samtali við
DV segist hann mjög sáttur við sitt nýja lið, Brentford, sem leikur í c-deildinni
ensku.
Allir ósáttir
- en samkomulag er þó í augsýn milli dómara og félaga í körfunni
Nú sér loks fyrir endann á
langri deilu körfuknattleiksdóm-
ara og félaganna í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik. Deilu sem í raun
hefur staðið í eitt ár og lengi vel
leit út fyrir að keppnin í úrvals-
deildinni í vetur færi fram án okk-
ar bestu dómara.
Deilan hefur verið á mjög við-
kvæmu stigi undanfarnar vikur og
hvorugur aðili hennar fengist til
að tjá sig um málið í fjölmiðlum.
í september í fyrra hækkuðu
laun körfuknattleiksdómara úr
3.600 krónum í 3.900 krónur. Um
9% hækkun. Þegar hér var komið
sögu töldu félögin að búið væri að
semja um launakjör dómara fyrir
síðustu leiktíð. Siðan kom skattur-
inn til sögunnar og krafðist þess
að dómarar greiddu skatt af sínum
launum. Dómarar vildu þá að fé-
lögin hækkuðu greiðslurnar sem
næmi skattgreiðslunum. Félögin
neituðu því. í janúar kom til átaka
og litlu munaði að keppnin í úr-
valsdeildinni stöðvaðist. Allt end-
aði þetta með því að greiðsla fyrir
leik til dómara hækkaði úr 3.900
krónum í 4.900 krónur. 26% hækk-
un. Þegar hér var komið sögu, í
janúar sl., höfðu greiðslur til dóm-
ara hækkað um 36% á nokkrum
mánuðum.
20% hækkun í viðbót
Kröfur dómaranna í núverandi
deilu eru að greiðslurnar hækki
um 20% til viðbótar, fari úr 4.900
krónum í 5.900 krónur. Ef þetta
verður samþykkt, sem engar líkur
eru á samkvæmt heimildum DV,
hcifa laun dómara hækkað um 64%
á einu ári.
Deilan undanfarnar vikur hefur
sem sagt staðið um 1.000 króna
hækkun, úr 4.900 í 5.900 krónur.
Samkvæmt heimildum DV eru
yfirgnæfandi líkur á því að samið
verði um 10% hækkun og greiðsl-
an fyrir leik verði 5.400 krónur.
Forráðamenn félaganna eru fox-
illir vegna krafna dómaranna og
telja illa með sig farið. „Það eru
allar líkur á því að sættir náist um
10% hækkun á næstu dögum en
það er ljóst að það verða allir ósátt-
ir við niðurstööuna," sagði for-
ráðamaður eins úrvalsdeildarfélag-
anna við DV í gærkvöld.
Til samanburðar má nefna að
dómarar í handknattleik fá í dag
5.100 krónur fyrir hvern leik.
-SK
Ekkert má fara úrskeiðis
- er Island mætir Finnlandi í undankeppni HM í kvöld
„Fyrir okkur er þetta mjög mikilvægur leikur. Við
verðum hreinlega að sigra og það er ljóst að það má ekk-
ert út af bera,“ sagði Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari
í handknattleik, í samtali við DV í gærkvöld.
íslendingar hefja i kvöld í Smáranum í Kópavogi
langa og stranga göngu að úrslitakeppni HM í hand-
knattleik sem fram fer í Egyptalandi í júní á næsta ári.
Fyrstu þröskuldarnir verða tveir leikir gegn Finnum, í
Smáranum í kvöld og á fmnskri grund á laugardag. Það
er ljóst að íslenska liðið hefur ekki efni á því að van-
meta lið Finna.
Er skemmst að minnast ósigursins gegn Finnum í síð-
ustu Evrópukeppni landsliða þar sem Finnar hirtu af
okkur dýrmæt stig.
„Ég held að mínir menn geri sér vel grein fyrir mik-
ilvægi þessara leikja og vonandi komum við vel inn-
stilltir til leikjanna gegn Finnum. Riðillinn okkar er
mjög sterkur og nægir þar að nefna að lið sem urðu í 4.
og 5. sæti að lokinni síðustu heimsmeistarakeppni eru í
riðlinum. Þetta verður erfltt en með góðum stuðningi
áhorfenda ættum við aö eiga nokkuð góða möguleika.
Við verðum hins vegar að byrja vel gegn Finnum og við
verðum að vinna. Mér er alveg sama hvemig við fórum
að því, bara að við vinnum," sagði Þorbjöm Jensson.
íslenska liðið sem leikur í kvöld verður tilkynnt í dag.
Leikur íslands og Finnlands fer fram í Smáranum og
hefst kl. 20.30 í kvöld.
-SK
Strákarnir tóku vel á á æfingu í Smáranum í gær. Patrekur,
Konráð og Geir. DV-mynd E.ÓI.
Boris Akbashev og Þorbjörn Jensson fá um nóg að
hugsa í kvöld í leiknum gegn Finnum.DV-mynd E. Ól.
Viðureignir
gegn Finnum
Leikur íslendinga og Finna i
undankeppni heimsmeistara-
mótsins í handknattleik er sú ní-
unda i röðinni. ísland liefur unn-
ið sex leiki og tvisvar sinnum
hefur orðið jaftitefli.
Bilbao, Spánn , 1972 ........ 10-10
Hamar, Noregur, 1980 .........29-12
Espoo, Finnlandi, 1983 ...... 31-19
Sjundea, Finnlandi ...........30-28
Tapiola, Finnlandi ...........32-13
Reykjavik.....................31-25
Karjaa, Finnlandi.............23-33
Reykjavík.....................28-23
Westerholm
hættulegastur
„Hættulegasti leikmaður
Finnanna er Patrik Westerholm
sem leikur með Kolding í
Danmörku. Þetta er öflug
rétthent skytta sem verður aö
taka fast á,“ segir Þorbjörn.
Þá segir Þorbjörn að í finnska
liðinu sé mjög góður örvhentur
hornamaður, Mikko Koskue að
nafni, en hann leikur með
Gústafi Bjarnasyni og Magnúsi
Sigurðssyni hjá Willstadt í
þýsku 2. deildinni.
Finnar töpuðu meö litlum
mun fyrir Litháum og Lettum en
sigruöu Pólverja á móti í
Lettlandi fyrir skömmu.
-GH
„Veit að þetta lítur illa út“
- Hermann Hreiðarsson skrifaði undir 3ja ára samning við Lundúnalið Brentford
Hermann Hreiðarsson,
landsliðsmaður í knatt-
spymu, var í gær seldur frá
Crystal Palace til c- deildar-
liðsins Brentford. Ron Noa-
des, knattspyrnustjóri hjá
Brentford, reiddi fram
750.000 pund, 88 milljónir
króna, fyrir Hermann og
er þetta langhæsta upphæð
sem félagið hefur greitt fyr-
ir leikmann en fyrra metið
var 275.000 pund eða 32
milljónir króhá.
Noades var stjómarfor-
maður hjá Crystal Palace
þegar félagið keypti Her-
mann frá ÍBV í fyrra og
greiddi fyrir hann 400.000
pund eða um 47 milljónir
króna.
Ert þú sáttur við að fara
niður um tvær deildir?
„Ég er mjög sáttur við
þennan samning og annars
hefði ég ekki gert hann. Mér
var boðinn mjög góður samn-
ingur og er að fá meira út úr
honum peningalega en hjá
Palace. Ef félagið er að reyna
að selja menn þá eru skýr
skilaboð hvað bíður þeirra ef
þeir verða ekki seldir. Það er
bekkurinn og varaliðið. Eftir
langa umhugsun fannst mér
besti kosturinn að fara tU
Brentford á meðan ekki var
færi á öðru. Það eru kannski
meiri líkur á að einhver
stærri klúbbur muni kaupa
mann meðan maður er að
spUa í aðalliðinu heldur en
að vera að leika með varalið-
inu i b-deUd,“ sagði Hermann
í samtali við DV rétt eftir að
hann hafði skrifað undir 3ja
ára samning við félagið.
Hermann segir að Terry
Venables, knattspymustjóri
hjá Crystal Palace, hafi verið
búinn að ákveöa fyrir
nokkru síðan að selja sig
enda búinn að kaupa mikið
af útlendingum, síðast varn-
armenn frá Ástralíu og Kina
sem þurfa að spUa 75% af
leikjum liðsins tU að halda
atvinnuleyfmu.
Veit að þetta lítur ter-
lega illa út
„Ég veit að þetta lítur
ferlega Ula út. Ég er að
hrapa niður um tvær deUd-
ir og ég geri mér alveg
grein fyrir því að þetta er
veikari deUd. Maður vonast
hins vegar tU að vera meira
áberandi í þessari deild
þannig að stærri liðin taki
eftir manni. Þó svo að ég
hafi gert þriggja ára samn-
ing er klausa í honum um
að ég megi fara ef stór
klúbbur sýnir mér áhuga.“
Hermann og kona hans,
Ragna Lóa Stefánsdóttir,
festu kaup á einbýlishúsi í
London í vor og segir Her-
mann að það sé stór kostur
að þurfa ekki að flytja þar
sem Brentford er í London
eins og Palace.
Mætir toppliðinu á
laugardaginn
Hermann klæðist bún-
ingi Brentford í fyrsta sinn
á laugardaginn en þá mæt-
ir liðið efsta liðinu, Darl-
ington, á heimaveUi. Brent-
ford á bikarleik gegn
Tottenham i kvöld en Her-
mann er ekki löglegur þar
sem hann hefur leikið með
Palace í keppninni. Brent-
ford er í 7. sæti í ensku 3.
deUdinni með 15 stig eftir 9
leiki en Darlington er á
toppnum með 20 stig.
Tveir fyrrum þjálfarar
hjá Crystal Palace eru
komnir til starfa hjá Brent-
ford og á skömmum tíma
hefur Ron Nodes keypt
fjóra leikmenn frá Palace.
Þá æflr liðið á gamla æf-
ingavelli Crystal Palace
þannig að viðbrigðin verða
kannski ekki eins mikil
fyrir Hermann að skipta
yflr til Brentford.
-GH
F-
t