Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1998, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998
11
pv___________________________________________________________Fréttir
Sölumiðstöð hrossa opnuð á Melgerðismelum:
Mikill áhugi og fjöldi
hrossa á söluskrá
DV, Akureyri:
„Þessi starfsemi er tvímælalaust
til mikilla hagsbóta, bæði fyrir þá
sem vilja selja hross og eins fyrir þá
sem eru að huga að hrossakaupum.
Hér er fjöldi hrossa til sýnis og sölu
á einum og sama staðnum og af því
er umtalsvert hagræði fyrir alla að-
ila,“ segir Birgir Ámason, en hann
ásamt Birgi Stefánssyni veitir for-
stöðu nýrri sölumiðstöð fyrir hross
sem opnuð hefur verið á Melgerðis-
melum í Eyjafirði.
Það er Hrossaræktarsamband Ey-
flrðinga og Þingeyinga sem stendur
að sölumiðstöðinni, en hún hefur
aðsetur í stóðhestahúsinu á Mel-
gerðismelum sem byggt var fyrir
landsmót hestamanna í sumar.
Birgir Stefánsson segir að starfsem-
in hafi verið hugsuð sem tilrauna-
verkefhi í 2-3 mánuði, og hafi farið
mjög vel af stað.
„Þetta er farið að spyrjast út, við-
tökur hafa verið mjög góðar og við
erum nú þegar komnir með um 40
hross hingað i hús sem koma víðs-
vegar að, bæði úr Þingeyjarsýslum
og úr Eyjafirði. Hér eru hross í ýms-
um verðflokkum, allt frá 150 þúsund
og upp í um 450 þúsund krónur.
Birgir Árnason og Birgir Stefánsson, sem veita sölumiðstöðinni forstöðu,
með tvö hross i hesthúsinu á Melgerðismelum. DV-mynd gk
Okkar starf hér er að sjá um um-
hirðu hestanna og halda þeim í
þjálfun. Þeir sem hafa áhuga á að
selja hross setja sig í samband við
okkur og panta pláss og koma svo
með hrossin hingað og væntanlegir
kaupendur geta svo komið hingað
og skoðað mörg hross á sama stað.
Við áformum svo að halda hér sér-
stakar sölusýninga á um tveggja
vikna fresti," segir Birgir Árnason.
Aðstaðan á Melgerðismelum er
mjög góð, nýtt glæsilegt hesthús og
góð aðstaða til að halda hrossunum
í þjálfun á svæðinu. Þá er að ljúka
byggingu stórrar hrossaréttar við
húsið þar sem einnig skapast góð
aðstaða er til að sýna hrossin. -gk
Mynd um íslenskar erfðarannsóknir
„Ásthildur Kjartansdóttir kvik-
myndagerðarmaður hefm að undan-
fórnu verið að vinna heimildarmynd
um íslenskar erfðarannsóknir og
erfðamengi íslendinga," segir Helgi
Sverrisson kvikmyndagerðarmaður.
Störf Kára Stefánssonar verða þar í
brennidepli og hefm hann gefið sam-
þykki sitt fyrir gerð myndarinnar.
Framsóknarmenn:
Fjör og fjöldi
í Miðgarði
Fyrir áratug eða tveimm voru hér-
aðsmót stjórnmálaflokkanna algeng í
flestum héruðum landsins. Þangað
mættu þingmenn eða ráðherrar,
fluttu boðskap líðandi stundar, ýmis
skemmtiatriði voru höfð i frammi en
að lokum stiginn dans. Nú heyra flest
þessara móta sögunni til, enda aðsókn
að þeim víðast orðin mjög dræm.
En í Skagafirði láta framsóknar-
menn ekki merkið falla og er héraðs-
mótið, sem jafnan er haldið í Miðgarði
síðustu helgi ágústmánaðar, með fjöl-
mennustu og bestu skemmtunum
hvers sumars. Að þessu sinni flutti
Guðni Ágústsson hinn pólitíska boð-
skap í bland við gamansögur sagðar á
kjarnyrtu máli sem Guðna einum er
lagið. Á mótinu var fjölbreytt dagskrá
í töluðum orðum og söng. Að lokum
var stiginn dans við undirleikGeir-
mundar Valtýssonar. -MÓ
„í fyrravetur kynnti Ásthildur
verkefnið fyrir forsvarsmönnum
breska framleiðslufyrirtækisins Café
Productions. Hún hafði eiginlega ver-
ið hætt við verkefnið vegna lítilla við-
bragða sjónvarpsstöðva hér á landi en
forsvarsmenn breska fyrirtækisins
ýttu þessu aftur af stað þar sem þeir
eru spenntir fyrir að gera myndina."
Helgi segir að forsvarsmenn breska
fyrirtækisins geri miklar kröfur um
að ekki sé verið að hampa íslenskri
erfðagreiningu heldur að' verið sé að
þjóna áhorfendum.
Tökur hefjast í næsta mánuði og er
búist við að myndin, sem verður um
25 mínútur að lengd, verði tObúin til
sýninga næsta vor. Café Productions
framleiðir myndir fyrir stærstu sjón-
varpsstöðvar í heimi s.s. BBC, ITV,
Chanel 4 og Discovery. Það má því bú-
ast við að myndin um íslenskar erfða-
rannsóknir eigi eftir að verða sýnd
víða um heim. -SJ
Gestir á héraðsmóti framsóknarmanna í Skagafirði skemmtu sér hið besta.
DV-mynd Magnús
9Ö**°
Á öllum okkar námskeiöum
leiðbeina kennarar
með réttindi frá
DUNCAN. Nýjir
litir, nýjar
a ð f e r ð i r.
S k r á n i n g
hafin.
Við erum flutt!
Ný og stærri verslun í
Skeifunni 3a. Landsins mesta
úrval af keramiki og öllu því
sem þarf til að fullgera
keramik. Öll vara á
verksmlðjuverði.
Listasmiðjunnar
Hjá Listasmiðjunni starfa tveir
sérmenntaðir leiðbeinendur
frá DUNCAN í Banda-
ríkjunum allt árið um kring.
w Fagntennska i Jyrirrúmi
éwListasmiðjan ,
Keramikliús
l 'erksrnitijii - I ’crslmi
Skeifau 5a
l()«S Kcvkjavík
Sími: 588 2108
l ax: 588 2109
Kynnstu leyndardómum
Tae Kwon Do
bardagalistarinnar!
. *
,Vvit * Binbeiting . ,V()
Einstök íþrótt
fyrir fólk sem vill
eitthvað meira!
• Byrjendanámskeið eru að hefjast!
• Fyrsta vikan ókeypis!
• Aðgangur að tækjasal!
• Fyrir bæði kynin!
Frekari upplýsingar í síma: 557-5586
Yfirþjálfari: Sverrir Tryggvason 1. Dan
Tae Kwon Do- deild HK Digranesi