Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
l0ÚS_ og húsbúnaður
Draumasófasettið frá pabba ásamt stofuklukku og saumaborði frá aldamótum:
Skárum út nöfnin okkar í borðið
„Pabbi tilkynnti okkur mjög
smekklega aö við gætum kippt með
okkur sófasettinu hans því þau ætl-
uðu að fá sér nýtt. Mig hafði dreymt
um að eignast þetta sófasett í mörg
ár og hafði árangurslaust leitað að
einhverju samsvarandi," segir Soff-
ía Valdimarsdóttir sem ásamt eigin-
manni sínum, Jóni Ara Ingólfssyni,
fékk gefins sófasett frá 1942 frá fóð-
ur Soffiu, Valdimar Jóhannssyni.
Sófasettið var flutt nýtt til lands-
ins frá Noregi árið 1942 og var það
afi Soffiu sem keypti það af Krist-
jáni Siggeirssyni sem þá var hús-
gagnainnflytjandi. Kristján flutti
einungis inn tvö sett frá Noregi.
Hann bjóst ekki við því að geta selt
fleiri þar sem sófasettið var fokdýrt.
Þegar sófasettið var nýtt var það
með rústrauðu áklæði og ljósum út-
skornum viði.
Notað sem hoppkastali
„Ég man vel eftir þessu sófasetti
því þegar afi dó erfði pabbi það. Þá
var þetta fallega sófasett í algerri
niðumíðslu og við systkinin lékum
okkur að því að skera út nöfnin
okkar í borðið. Sennilega hefur það
ekki veriö alveg ljóst frá upphafi en
það var búið að skrapa það allt.
Þetta var hoppkastalinn heima hjá
mér, aldrei betra sófasettið. Fyrir
um ellefu árum ákvað pabbi að gera
það upp. Þá var það svo illa farið að
það var marga mánuði í bólstrun á
Akranesi. Pabbi valdi þetta dökk-
bláa áklæði á settið en bólstrarinn
sagði að það væri alger tjörupappi
og nær ómögulegt að setja það utan-
um. Mesta verkið var samt að laga
borðið því það var brotið upp úr því
í einu hominu, auk þess sem við
Postulínskrónan sem Soffía fann á
uppboði f Svíþjóð.
höfðum skorið út í það. Þegar
bólstrarinn var búinn að laga borð-
ið vissi hann ekki einu sinni hvar
hefði brotnað upp úr. Það sést ekki
lengur. Að því búnu var viðurinn
bæsaður i þessum dökka lit.
Mig fór að langa í þetta sófasett
þegar búið var að gera það upp. Þá
sá ég hvað það er fallegt. Síðan fór
Ara, manninn minn, líka að langa í
það. Við vorum dugleg að láta stelp-
umar ekki sulla niður í það til þess
að það yröi áfram jalhfallegt. Ég
vissi þó aldrei að ég myndi fá sófa-
settið á endanum. Þaö kom mér al-
veg að óvörum. Við vomm þó búin
að reyna að narra það út úr pabba í
sjö ár en það gekk ekkert."
Brúðargjafir langömmu
og langafa
Að sögn Soffíu var það ómeðvit-
að að þau hjónin keyptu sér ekki
sófasett. Þau fundu ekkert sem
þeim líkaði og vora með lánssófa
undir það síðasta. Þau leituðu dyr-
um og dyngjum að sófasetti í svip-
uðum stil en fundu ekkert. Soffía
hafði þó á undanfömum árum
unnið að því að búa til umgjörð
fyrir draumasófasettið sitt. Hún
byrjaði á því að kaupa litla postu-
línsljósakrónu á uppboði í Svíþjóð.
„Saumaborðið og klukkan voru brúðargjafir langafa og langömmu sem giftu
sig um aldamótin," segir Soffía.
„Pabbi tilkynnti okkur mjög smekklega að við gætum kippt með okkur sófa-
settinu hans því þau ætluðu að fá sér nýtt,“ segir Soffía.
’* > ,f tf tf er jjr &,
’riflf tf tf íf Cf íf
V tf tf tf tf tf ar sý 4*
ifififífitif ijr i*
& if if iV.
Næst keypti
hún veggljós,
einnig á upp-
boði í Svíþjóð.
Einn og einn
kertastjaki
fylgdi með og
nú er stofan
eins og hönnuð
fyrir gamla
sófasettið.
„Pabbi gaf
okkur síðan
klukku og
saumaborð frá
aldamótum í Veggljósin voru lika keypt á uppboði í Svíþjóð.
srnnar, á sama
tíma og við fengum sófasettið.
Hann bað okkur fyrst að geyma
hana fyrir fimm árum þar sem
hann og konan hans vora flutt til
Svíþjóðar og vildu ekki flytja hana
með sér. Þá ákváðum við að hafa
hana áfram í geymslu þar sem við
myndum flytja von bráðar úr því
húsnæði sem við bjuggum þá í.
Það er svo mikið rask að flytja
svona stórar og þungar klukkur.
Saumaborðið og klukkan voru
brúðargjafir langafa og langömmu
sem giftu sig um aldamótin. Soffia
amma og Jóhann afi áttu síðan
þessa hluti en saumaborðið var í
miklu uppáhaldi hjá ömmu minni.
Þessir hlutir vora aðskildir um
áratugaskeið þar sem saumaborðið
var hjá pabba í Svíþjóð en klukkan
lá ónotuö í geymslu í mörg ár. Nú
er aftur búið að sameina þessa
hluti.“
„Mig hafði dreymt um að eignast þetta sófasett í mörg ár og hafði árangurs-
laust leitað að einhverju samsvarandi," segir Soffía.