Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
★
*,
*
- ★
hús og húsbúnaður
r**
27
Guðbjartur Lárusson segir að það
sé hundrað ára hefð fyrir afsýringu
á húsgögnum á íslandi.
Gróf en fín
húsgögn vin-
sælust í dag
„Gróf en fín húsgögn eru vinsælust
í dag þegar við erum að tala um við-
ar- og borðstofuhúsgögn. Þessi klass-
íski gamli góði stíll er síðan alltaf á
svipuðu róli og gengur alltaf vel. Efhi
í áklæði eins og dinamica og alcant-
ara eru óvenjulega vinsæl núna,“ seg-
ir Pétur ívarsson, verslunarstjóri i
húsgagnaversluninni Öndvegi.
„Mér finnst fólk vanda sig meira
við val á húsgögnum heldur en það
gerði áður. Fólk leggur meira upp úr
gæðum og gefur sér lengri tíma held-
ur en áður til þess að velja sér innbú.
Við fínnum töluverða breytingu þar á.
Þar kemur góðærið tiL íslendingar
hafa lifað við talsverða kreppu í nokk-
ur ár. Það kemur fram í þessu
mynstri að fólk er fremur en áður til-
búið til þess að borga aðeins meira ef
það sannfærist um að varan sé aðeins
betri. Fyrir tveimur árum gekk þetta
ekki upp. Þetta er ekki eins og áður
þegar maður heillaði eingöngu með
verðinu einu saman," segir Pétur.
Útlit og þægindi
Pétur segir einstaklingsbundið
hvaða kröfur fólk gerir til húsgagn-
anna sinna. Sumir leggja allt upp úr
þægindum en aðrir útliti. Enn aðrir
vilja bæði en núna er einmitt algeng-
ara að fólk velji bæði útlit og þægindi.
„Við höfum framleitt húsgögn í ell-
efu ár. Okkar framleiðsla er meira en
fyllilega samkeppnishæf við erlendar
vörur. Okkur íslendingum hættir til
að vera alltaf í hæsta gæðaflokki í
grindum og innmat og öllu slíku. Það
er ekki hægt að bera okkar vöru sam-
an við einhverjar millivörur í inn-
flutningi. íslensk fagvinna er á gríðar-
lega háu plani.“
í Öndvegi er víða komið við. Þar
eru írsk, ensk, ítölsk, hollensk og ís-
lensk húsgögn á boðstólum. Aftur á
móti er sama og ekkert tekið frá Am-
eríku. Pétur segir að fáir íslendingar
átti sig á því að það sem kallast amer-
ískur still er í raun meira og minna
upprunninn frá Bretlandi. Ensk gæði
samanborin við amerísk eru ódýrari í
Bretlandi segir hann. í lægstu gæða-
flokkunum eru aftur á móti amerísk
húsgögn ódýrari. -em
Afsýrir húsgögn svo þau
fá gamaldags áferð
Guðbjartur Lárusson smiður
hefur um árabil afsýrt gömul hús-
gögn heima hjá sér. Afsýringin
felst meðal annars í því að öll
málning og bæs er hreinsað af
gömlum húsgögnum með sýru-
meðferð. Algengt er að hann fái til
sín húsgögn í meðferð sem á eru
mörg málningarlög. Að sögn hans
er 100 ára hefð fyrir þessari með-
ferð á húsgögnum og aukast vin-
sældir þess sífellt. Eftir meðferðina
kemur þessi lútaða gamaldags áferð
sem margir íslendingar eru svo
hrifnir af. Eftir að afsýringunni er
lokið eru húsgögnin síðan olíuborin
eða vaxborin allt eftir þvi hvaða
smekk eigandinn hefúr.
„Algengustu húsgögnin eru
kommóður, kistur, skápar og rúm.
Fólk heldur oft á tíðum að húsgögn-
in séu ónýt en svo er þó oftast ekki.
Oftast er um fúruhúsgögn að ræða
en furan er þeirri náttúru gædd að
hún þrútnar og fyllir oft upp í
skemmdir sem voru á húsgögnun-
um við böðunina," segir Guðbjart-
ur. Að sögn Guðbjartar afsýrir hann
auk þess gamlar fulningahurðir.
Hann segir að margar hverjar séu
þær málaðar mörgmn sinnum og þá
verði áferðin á þeim frekar
óskemmtileg. Sumir vilja mála þær
aftur eftir afsýringuna en aörir vilja
halda lútuðu áferðinni.
„Þetta hefur verið tóm-
stundagaman hjá mér til margra
ára en nú er orðið svo mikið að gera
hjá mér að ég er búinn að fá mér
sérhúsnæði sem ég fer aö flytja í.
Þetta hefur stigmagnast með ánm-
um,“ segir Guðbjartur. Þess má geta
að fólk getur náð i Guðbjart í síma
8975484. -em