Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 18
34
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 JLlV
hús og húsbúnaður
Bólstrarinn:
Mikil handavinna að gera
upp antikhúsgögn
Bólstrun er löggilt iðngrein og fyrir
um það bil mánuði síðan hélt Meist-
arafélag bólstrara sýninguna „Hús-
gögn vaxa ekki á tijám“ í Perlunni.
Þar var margt að sjá og á sýningunni
voru eingöngu íslenskar framleiðslu-
vörur. íslenskur húsgagna- og bólstur-
iðnaður er í mikilli sókn um þessar
mundir. Meðal sýningaratriða voru
ýmis verðlaunahúsgögn; ráðherra-
stóll, fyrsta sveinsstykki sem gert var
á íslandi, rókókóstólar, skólahúsgögn
Eftir.
og rúm svo eitthvað sé nefnt. Yfir-
skrift sýningarinnar var eins og áður
segir Húsgögn vaxa ekki á trjánum.
Þar er vísað til þess að almenningur
gerir sér kannski ekki grein fyrir því
hversu mikið islenskur húsgagnaiön-
aður hefur vaxið og þróast. Húsgagna-
framleiðsla er i mikilli sókn bæði hjá
stórum og smáum fyrirtækjum.
„Ég starfa eingöngu við bólstrun
húsgagna og það er nóg að gera í því.
Þá er um að ræða antíkhúsgögn sem
fólk vill láta gera upp svo dæmi séu
tekin. Auk þess er orðið algengt að
fólk sé að gera upp húsgögn sem eru
gömul en hafa ekki náð því að verða
antik. Áklæðið á þessum nýrri hús-
gögnum er oft ekkert sérstakt," segir
Hafsteinn Gunnarsson í Bólstraran-
um.
Að sögn Hafsteins er mikil handa-
vinna við að gera upp antikhúsgögn-
in. Yfirleitt er fljótlegra að bólstra og
vinna nýrri húsgögnin því oft er hægt
að gera þau upp í vélum. Annars er
þetta mismunandi eftir því hvernig
húsgögn eiga í hlut.
„Ég hef tekið eftir því að það er
meiri ásókn í gamla hluti heldur en
áður fyrr. Við fáum til okkar fleiri
gömul sófasett sem fólk viU láta
bólstra. Unga fólkið hefur einnig mik-
inn áhuga á þessum húsgögnum. Auk
þess erum við farin að sjá tekkhús-
gögn frá 1960. Sumum finnst þau mjög
falleg. Það er yfirleitt mjög mikill
áhugi fyrir gömlum húsgögnum.
Fólk velur síðan yfirleitt áklæði
sem passar hverjum stíl. Það er mjög
misjafnt eins og fólkið er margt hvað
því finnst fallegt. Við höfum mikið úr-
val áklæða en þau eru öll sérpöntuð
erlendis frá. Gerðir áklæðisins og lita-
tónar verða að hæfa húsgagninu.
Áklæðið verður að passa stílnum. Við
erum með stórar prufubækur sem við
lánum heim. Þá getur fólk skoðað ná-
kvæmlega og borið saman viö hús-
gagnið. Það tekur ekki nema nokkra
daga að fá áklæðið þótt það sé sér-
pantað," segir Hafsteinn. -em
Eftir.
Hér sést hvernig sófinn var útleikinn fyrir bólstrunina.
Gömul húsgögn
frá Skotlandi
og skrautlegir
speglar
Valdís Ragnarsdóttir rekur Forn-
sölu Fornleifs á homi Laugavegar
og Klapparstígs. Hún flytur aðallega
inn skosk húsgögn. Þau segir hún
vera talsvert frábrugðin þeim
dönsku sem algengt er að seld séu á
íslandi.
„Skosku húsgögnin eru talsvert
ódýrari en þau dönsku en þau em
auðvitað ekkert lík þeim. Það er um
að ræða húsgögn frá því fyrir alda-
mót og allt fram til 1930-40. Þetta er
allt öðruvísi lína heldur en sú
danska en sum þeirra eru útskor-
in,“ segir Valdís.
Valdís segist auk þess vera með
skrautlega spegla með gylltum
römmum sem hafa verið mjög vin-
sælir að undanfornu. Nýlega fékk
hún inn spegla frá Portúgal sem
hún segir sérlega fallega. Speglamir
em mjög viðamiklir að sjá og glæsi-
legir. Einnig er hægt að fá þá með
silfurrömmum fyrir þá sem em
hrifnari af því.
„Ég er líka með Tiffany-ljósin og
Valdís Ragnarsdóttir rekur Fornsölu Fornleifs en þar kennir margra grasa, meðal annars flytur hún inn húsgögn frá
Skotlandi.
lampana en þau eru úr handblásnu
gleri með málmþræöi. Þau era sér-
staklega falleg en ekkert sérstaklega
ódýr þar sem þau era handblásin."
-em