Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 7
,c7/tir//ð/i MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 7 Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni og felur ekki i sér tilboð um sölu hlutabréfa. ÞÁTTTAKA í ÍSLENSKU ATVINNULÍFI Nú er að hefjast stærsta einkavæðing íslensks fyrirtækis frá upphafi. Ríkissjóður selur 49% hlut sinn í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, að nafnverði 3.332 milljónir króna. Einstaklingum og lögaðilum býðst að skrá sig fyrir allt að 3 milljónum króna að nafnverði. Hlutabréf að söluvirði 4.7 milljarðar króna Nú geta allir, sem þess óska, keypt hlut í FBA og tekið þannig þátt í að byggja upp sterkt og framsækið viðskiptaumhverfi sem gera mun ísland hæfara í samkeppni við önnur lönd. Ef þú hefur áhuga á að kynna þér þetta tækifæri betur, bendum við þér á að snúa þér til bankans þíns, verðbréfafyrirtækja eða heimsækja vefsíðu okkar: www.fba.is Hlutverk og stefna Hlutverk Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. er að veita íslensku atvinnulífi víðtæka þjónustu við öflun, stýringu og hreyfingu á fjármagni. Bankinn sérhæfir sig í þjónustu við íslenskt atvinnulíf og veitir viðskiptavinum sérsniðnar heildarlausnir við fjármögnun og áhættustýringu. Bankinn stefnir að því að vera leiðandi afl í íslenskri fjármálaþjónustu. Sérstaða og samkeppnisstyrkur FBA Einn helsti styrkur FBA felst í sérhæfingu bankans. Allt skipulag bankans miðar að því að veita atvinnulífinu sem besta þjónustu með sérhæfingu og hagkvæmum rekstri. Lykilþættir í samkeppnishæfni FBA eru þekking og reynsla starfsmanna, hraði og sveigjanleiki sem næst með einföldu skipulagi, öflug áhættustýring, kröftug upplýsingakerfi og afkomutenging launa. Viðskiptavinir FBA: • Fyrirtæki • Opinberir aðilar • Sveitarfélög • Veitustofnanir • Fjármálafyrirtæki • Lífeyrissjóðir • Tryggingafélög • Aðrir fagfjárfestar Lykiltölur úr árshlutareikningi 3Q.júni 1998 • Flreinar vaxtatekjur ’ 558 milljónir króna • Hagnaður 349 milljónir króna • Heildareignir 64.167 milljónir króna • Eigið fé 8.474 milljónir króna Þú getur nálgast skráningarlýsingu og skráð þig fyrir hlut í útboðinu: hjá öllum bönkum og verðbréfafyrirtækjum á internetinu: www.fba.is hjá FBA, Ármúla 13a, Reykjavík FJÁRFESTINGARBANKI ATVINNULÍFSINS HF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.