Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Islenskur saltfiskur að hverfa af borðum Spánverja:
Velja norskan fisk í
stað þess íslenska
- íslenski fiskurinn er miklu betri en alltof dýr, segja fiskkaupmenn
DV, Barcelona:
„íslenski fiskurinn er einfaldlega
orðinn of dýr og verðið virðist hækka
jafnt og þétt. Fólk velur heldur aðra
matvöru en fiskinn frá íslandi. Það
eina sem við getum gert til að inæta
þessari samkeppni er að reyna að nálg-
ast ódýrari saltfisk. Hann fáum við frá
Noregi," segir Hans Fernandez, saltfisk-
kaupmaður á Spáni, í samtali við DV.
Hans Femandez rekur keðju sér-
verslana með saltfisk undir nafhinu
La casa del bacalao. Þar er eingöngu
seldur úrvalsfiskur frá íslandi og
Færeyjum og eru búðimar þekktar
um allan Spán fyrir gæðavöra. Sjálfur
kallar kaupmaðurinn verslanir sínar
„paradís saltfisksunnenda“.
„Gengisþróunin hefur verið ís-
lenska fiskinum óhagstæð og svo virð-
ist líka sem íslensku framleiðendum-
ir vilji stöðugt fá meira fyrir hann. Á
endanum kaupir fólk ekki þennan
fisk þótt hann sé bestur," sagöi Hans
sem eins og nafnið bendir til á ættir
að rekja til Danmerkur.
í verslunum La casa del bacalao
em bestu og þykkustu stykkin af ís-
lenskum saltfiski seld á 2.450 peseta
eða um 1.200 íslenskar krónur kílóið.
Þetta þykir spænskum kaupendum af-
arverð, sérstaklega þegar haft er í
huga að dýrasta nautakjöt á markaðn-
um er á 1.600 peseta eða um 800 ís-
lenskar krónur.
„Norski fiskurinn er ekki eins hvít-
ur og góður og sá íslenski eða fær-
eyski en verðiö er komið upp úr öllu
valdi þannig að ekki er annað að gera
en að taka inn norska fiskinn," sagði
Hans Femandez. Hann hefur höfuð-
stöðvar sínar í Pamplona en rekur
verslanir víða um Spán.
í Barcelona er íslenski fiskurinn
auglýstur á öllum matvörumörkuðum
og annaðhvort er fiskurinn sagður ís-
lenskur eða ekki er getið um uppruna
hans. Veitingamenn í borginni bjóða
þennan fisk líka sérstaklega og tala
um að hann sé hvítari og betri en ann-
ar saltfískur.
„Það er engin spuming um að
Spánveijar vilja helst íslenska fiskinn
en þeir verða þá líka aö hafa efni á að
kaupa hann,“ sagði Femandez. -GK
Tölvuvandræði um aldamótin:
Búist við vandræð-
um með bílana
- FÍB spyr bílaumboðin hvað muni gerast
FÍB hefur sent öllum bílaumboð-
um landsins bréf. í bréfmu er spurt
um 2000-vandamálið í sambandi viö
bíla, hvort tölvur bílanna stöðvist
þegar árið 2000 gengur í garð.
Ástæða þess að bilar kunna að
stöðvast er sú að nútímabílar em
meira eða minna tölvustýrðir. Ör-
gjörvar hafa þar tO á aifra siðustu
árum verið með innbyggðum klukk-
um sem telja árin í tveimur tölum í
stað fjögurra. Þegar árið 2000 gengur
í garð telja tölvur með þessum ör-
gjörvum að áriö 00 sé ranniö upp,
skynja það sem heimsendi og hætta
að ganga.
FÍB spyr umboðin hvort búast
megi við 2000-vanda í bílum viðkom-
andi umboða. Sé vandinn til staðar
er spurt hvemig umboðið og fram-
leiðandi bUsins muni bregðast við.
Enn fremur er spurt hvað geti gerst
í bUunum og um hvaða árgerðir sé
að ræða, hvaö eigendur þeirra geti
gert og hvað umboðin hyggist gera
til að firra bUeigenduma vandræð-
um 1. janúar árið 2000.
Runólfúr Ólafsson, ffamkvæmda-
stjóri FÍB, sagði í samtali við DV að
aUt að 100 örgjörvar væru i nútíma
bUum og verið gæti að margs konar
truflanir komi ffarn í rafkerfum
þeirra á nýársdag árið 2000, aUt frá
smávægUegum truflunum upp í það
að bUlinn hreinlega gangi ekki eða
að dymar opnist ekki. Búast megi
við vandamálum i bUum sem ffam-
leiddir vora upp úr 1980. -SÁ
Á matvörumörkuðunum er íslenskur saltfiskur auglýstur sem sérstök gæðavara. í
Barcelona heitlr flskurinn á katalónsku Bacalla D'lslandia. DV-mynd Gísli Kristjánsson
Pakki Hlífar Garðarsdóttur:
í hraðsendingu
til Danmerkur
- fyrir tilstuðlan íslandspósts
Sjómannafélag Reykjavíkur stóð f aðgerðum í fyrrinótt til að stöðva uppskipun og útskipun úr hinu „fjölþjóðlega"
hentifánaskipi Hanseduo í Straumsvíkurhöfn. Vinnuveitendasamband Islands krafðist lögbanns á aðgerðirnar og
fékk samþykkt. Nú hyggst Sjómannasambandið áfrýja málinu til Hæstaréttar. DV-mynd Hilmar Þór
„Yfirmaöur böggladeildar ís-
landspósts hringdi í mig í fyrra-
kvöld og bað mig afsökunar á þessu
uppistandi með pakkann. Hann
bauðst til lpess að láta TMT hrað-
flutninga sjá til að pakkinn kæmist
á næsta sólarhring til Danmerkur
og hann yrði afhentur mágkonu
minni í Horsens persónulega. í gær
kom maður frá TMT hraðflutning-
um og sótti pakkann til mín þannig
að ég geri ráð fyrir að hann komist
til Horsens á næsta sólarhring," seg-
ir Hlíf Garðarsdóttir sem hefur stað-
ið í ströngu við að reyna að koma
pakka til Danmerkur eins og fram
kom í DV á mánudag.
Pakkinn hafði þvælst á milli ís-
lands og Dcmmerkur í tvo mánuði
án þess að mágkona Hlífar i Hor-
sens fengi hann í hendur. í pakkan-
um var trúlofunargjöf sem Hlíf ætl-
aði að gefa mágkonu sinni og teikn-
ing frá syni Hlífar. Hlíf var mjög
ósátt með vinnubrögð íslandspósts í
málinu en segist vera mjög ánægö
með þá kurteisi og þjónustu sem yf-
irmaður böggladeildar íslandspósts
hefur nú sýnt henni.
„Ég er vissulega mjög ánægð með
vinnubrögð þessa manns miðað við
það sem á undan er gengið," segir
Hlíf. -RR
Lögreglan harmar
Stjóm Lögreglufélags Reykjavik-
ur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar
sem neikvæð umfjöllun um lög-
reglustjóraembættið í Reykjavík er
hörmuð. RÚV sagði frá.
Velgjörðarsendiherra
Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrr-
verandi forseti
íslands, verður á
morgun velgjörð-
arsendiherra hjá
UNESCO, menn-
ingarstofnun
Sameinuðu þjóð-
anna. RÚV sagði frá.
Sömdu við kennara
Bæjaryfirvöld í Dalvíkurbyggð
hafa samið við grunnskólakennara
og leiðbeinendur um kjarabætur.
Kjarabætumar era svipaðar þeim
sem samið var um við kennara á
Akureyri í haust. RÚV sagði frá.
Öflugri línur
Fyrirtækið INTIS-Intemet á ís-
landi, sem rekur Intemetsamband
til útlanda og selur fyrirtækjum og
stofnunum á íslandi, hefur boðað
viðbót fyrir Intemetsamband tU
Norður-Ameriku og Evrópu. Með
þessari stækkun hefur útlandasam-
band INTIS þrefaldast á einu og
hálfu ári.
VSÍ vill ekki iækka
Þórarinn V.
Þórarinsson,
framkvæmda-
sfjóri Vinnuveit-
endasambands-
ins, hefur tU-
kynnt fjármála-
ráðherra að VSÍ
leggist gegn því
að lækka atvinnutryggingargjald,
eins og gert er ráð fyrir í fjárlaga-
ffumvarpinu.
Jarðadeild gagnrýnd
Ríkisendurskoðun gagnrýnfr al-
varlega meöferð jarðadeUdar land-
húnaðarráðuneytisins á ríkisjörð-
um. Skráning sé ófullnægjandi,
ekki nærri aUar jarðir sem losna úr
ábúð séu auglýstar og annmarkar
séu á sölu þefrra og leiga svo lág að
ábúð á ríkisjörð jafngUdi styrk tU
ábúanda.
Sveigjanlegir
Verslanir og önnur þjónustufyr-
irtæki eiga þess nú kost að færa út-
tektartímabU Eurocard-kreditkorta
ffarn um ema viku í nóvember
næstkomandi.
Vilja umhverfismat
Hreppsnefnd Fljótsdalshrepps
vUl að Fljótsdalsvirkjun fari í lög-
formlegt umhverfismat og hefur
sent stjórnvöldum og Landsvirkjun
samþykkt um það efhi. Ef Jökulsá á
Fljótsdal verður virkjuð vUl hrepps-
nefndin að virkjunin verði í
hreppnum. Dagur sagði ffá.
Þvottabjörn í nuddpottum
Þvottabjöm fannst í gær í gámi
fúUum af nuddpottum frá Toronto í
Kanada. Hann hafði verið tæpan
mánuð í gámnum og var ipjög das-
aður af þorsta og hungri. Hann var
aflífaður.
Brunabót keypti
Eignarhaldsfé-
lag Brunabótafé-
lagsins stóð að
baki tilboði VU-
hjálms Bjama-
sonar viðskipta-
ffæðings í hluta-
bréf I Lands-
bankanum fyrir
128 mUljónir. Nafiivirði bréfanna
var 50 mUljónir. Félagið er talið
hafa greitt alls upp undir 350 miUj-
ónir fyrfr bréf í Landsbankanum að
sögn Viðskiptablaðsins.
Blaðamaður stefnir
Garðar Öm Úlfarsson, blaðamað-
ur ViðskiptablaösUis, hefur stefnt ís-
lenska ríkinu tU að fá hnekkt úr-
skurði Úrskurðamefndar um upplýs-
ingamál. Nefndin úrskurðaði að ut-
anrfidsráðuneytinu væri heúnUt að
neita um upplýsingar um eigna-
skiptasamninga eigenda íslenskra
aðalverktaka. Viðskiptablaðið sagði
ffá.
-SÁ