Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 5 DV Vestfirskur skelfiskur hf. og tryggingafélag hafna bótakröfu í Æsumálinu: Mun höfða dómsmál á hendur útgerðinni - segir Kolbrún Sverrisdóttir og telur að málið þoli illa dagsljós Vestfirskur skelfiskur hf., útgerð- araðili skelfiskskipsins Æsu, og tryggingafélagið Samábyrgð íslands hafa hafnað bótakröfu Kolbrúnar Sverrisdóttur persónulega og fyrir hönd ófjárráða bama hennar. Kolbrún fór fram á skaðabætm- við útgerð Æsu vegna fráfalls Harð- ar Bjamasonar, eiginmanns hennar og framfæranda hennar og bama þeirra. Hörður var skipstjóri á Æsu og fórst þegar skipið sökk á Arnar- firði 25. júlí 1996. í bréfi frá lögmönnum trygginga- félagsins er vitnað í niðurstöðu Rannsóknarnefndar sjóslysa og að þau atriði sem þar em nefnd séu þess eðlis að skipstjóri Æsu hafi borið ábyrgð á slysinu samkvæmt 6. og 7. grein siglingalaga. „Þessi niðurstaða kemur mér í sjáifu sér ekki á óvart. Ábyrgð skip- stjóra er orðin mjög víðtæk sam- kvæmt lögum þegar skipstjórinn er farinn að bera ábyrgð á útgerðar- manninum og jafnvel nokkrum áram áður en hann ræður sig í skipsrúm hjá honum. Ég mun höfða dómsmál á hendur útgerðinni og ganga eins langt og ég þarf. Ég ætla m.a. að sækja um gjafsókn. Mér finnst fráleitt að útgerðin geti þvegið hendur sínar af þeirri ábyrgð sem hún hlýtur að bera gagnvart þeim breytingum sem hún lét gera í leyfisleysi á skipinu og búnaði þess. Þannig breyttist allur stöðugleiki skipsins og það var Koibrún Sverrisdóttir mun óska eftir Æsumálinu. löngu fyrir tíð Harðar sem skip- stjóra skipsins," segir Kolbrún Sverrisdóttir aðspurð um málið. „Fyrst útgerðin tekur svona á málinu mun ég láta fara alveg ofan í kjölinn á þessu öllu og þar er ég hrædd um að sé margt sem þolir illa dagsljósið, bæði hvað varðar útgerð- ina, reksturinn á skip- inu og skoðunarþátt Siglingastofnunar rík- isins. Til að mynda myndi ég viija fá svör við því hver gaf út bráðabirgðahaffæri- skirteini á Æsuna. Það er enginn sem skrifar undir það og á því er eingöngu stimp- ill Siglingastofnunar. Hver bar ábyrgð á ol- íubirgðum skipsins, eða öllu heldur olíu- leysi, björgunarbátn- um, sem var í landi, og svo mætti lengi telja? Það er opinbert leyndarmál innan ís- lensku sjómannastétt- arinnar að menn em að fara á illa búnum skipum til sjós og fari þeir fram á úrbætur er þeim bent á að taka pokann sinn því það sé nógur mannskapur um plássið. Ég mun láta á það reyna fyrir dómi hvort útgerðarmenn beri yfir- leitt enga ábyrgð. Þetta mál er ekki eingöngu hagsmunamál fyrir mig og böm mín heldur snertir þetta sjómannastéttina í landinu í heild sinni,“ segir Kolbrún. -RR gjafsókn í Fréttir Allt á kafi í snjó í Ólafsfirði. DV-mynd Helgi Snjórinn kostar peninga DV, Ólafsfirði: Mikið hefur snjóað í Ólafsfirði undanfama daga og hefur verið nóg að gera hjá starfsmönnum bæjarins við að moka snjó og ryðja og hreinsa götur. Reyndar hefur fann- fergið verið svo mikið að þeir hafa ekki haft undan og því hefur þurft að kaupa til þjónustu frá verktökum í bænum. Að sögn Hálfdáns Kristjánssonar bæjarstjóra getur kostnaður við snjómokstur numið allt að 600 þús- und krónum á dag þegar öll tæki em í gangi. Á fjárhagsáætlun fyrir 1998 er gert ráð fyrir 5 milljónum króna í snjómokstur og var tæplega helmingur af þeirri ijárhæð notaður í fyrravetur. Ef svona heldur áfram aukast líkurnar á að aukafjárveit- ingu þurfi til snjómoksturs. -HJ * f Höfum alltaf betrl vörur og enií' b^tra verð Cortina Sport I Skólauörflustíg20-Sími5521555| i Verð nú 290.000, Ford Ranger 1987, ekinn 168 þús., 5 gíra. Toyota Corolla árg 1998 ekinn 13 þús, ssk, rafdr. rúður, samlæs. Volkswgen Passat station árg. 1996, dísil, ekinn 120 þús. Dodge Intrepit árg 1994, ekinn 95 þús., ssk., rafdr. rúður, samlæsing. Uerðaður 2.450.000 EyysALÁribiii. SÍU\SALAN bitj. Verð nú 1.950.000,- Mercedes Bens 220 E, 1994, ekinn 180 þús., ssk„ toppl., allt rafdr. Verð nú 1.350.000. Oldsmobile Cuttlas Sierra, árg. 1993. Verð nú 300.000,- BMW 320 I, árg. 1987, ekinn 165 þús., 4 dyra, 5 gíra, leður. Isuzu Trooper, 2.6 bensín, 7 manna, árg. 1992, ekinn 120 þús., ssk., allt rafdr. Ford Econoline 250 XL, 6 cyl., ekinn 150 þús., 12 manna, læst drif að aftan. Toyota Touring árg. 1994, ekinn 80 þús., allt rafdr., samlæsingar. LASALAN <€it'Sson rsson einsson Bílasalan bíll.is Malarhöfða 2 Sími: 577 3777 FaK: 577 3770 Netfang: bill@bill.is Heimasíða: uvuuin/.bill.is I ISII.AS.U 1 „II ,v(l jverðáður 1.150.000,- Verð áður 1.750.000,- verð áður 1.290.000,- Verð áður 1.360.000,- m Verð nú 900.000,- Nissan King cap V6, ssk., 1 árg. 1992, ekinn 120 þús. Verð nú 1.450.000,- Nissan Patrol 1992, ekinn 180 þús., svartur. Verð nú 1.000.000,- Masda 626 árg. 1993, ekinn 60 þús., ssk., rafdr. rúður, samlæs. Verð nú 1.100.000,- Toyota Hilux Double Cab árg. s 1993, ekinn 120 þús. Góður bíll, einn eigandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.