Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 13 Fréttir Norðlendingar taka fram skíðin DV, Akureyri: Eftir mikla snjókomu víðs vegar á Norðurlandi að undanfómu eru skíðamenn famir að hugsa sér til hreyfmgs og reyndar riðu Dalvíking- ar á vaðið þegar þeir opnuðu skíða- lyftur í Böggvisstaðafjaninu um síð- ustu helgi. Þar er mjög mikill snjór, sem og á Ólafsfirði, þar sem lyftur verða opnaðar í dag. Haraldur Gunnlaugsson á Ólafs- firði segir að allt sé til reiðu í skíða- brekkimum þar, nægur snjór og búið að gera allt klárt. „Það er geysilega mikill snjór og mjög óvenjulegt að hægt sé að opna allt svæðið á þessum árstima," segir Harald- ur. Skíðasvæðið á Ólafsfirði verður opið daglega, stuttan tíma virka daga en lengri um helgar. Á Siglufirði hefur snjóað tals- vert þótt þar virðist minni snjór en á Ólafsfirði og Dalvík. Guðný Helgadóttir á Siglufirði segir að nægur snjór sé kominn í skiða- brekkumar í Skarðsdal og stefiit sé að því að opna þar um helg- ina. Húsvíkingar og Akureyringar Fannfergi á Norðurlandi. DV-mynd GK verða hins vegar að bíða eitthvað eftir að skíðabrekkur þeirra verði tilbúnar en á þessum stöðum hef- ur snjóað mun minna en á hin- um. Húsvíkingar segjast þurfa snjókomu í viku til þess hægt verði að opna og Kristinn Sig- urðsson, starfsmaður í Hliðar- fjalli við Akureyri, segir að þar vanti mikinn snjó í brekkumar. „Þetta er ekki nema smáföl enn þá hjá okkur og hér hefur snjóað miklu minna en niðri í bæ. Eins og staðan er hjá okkur núna erum við ekki komnir með nema um þriðjung af þeim snjó sem við þurfum til að geta opnað og því virðist langt í opmm hér,“ segir Krist- inn. Hann segir að göngubrautimar í Hlíðarfjalli hafi heldur ekki verið opnaðar. „Það er mikill snjór í Kjamaskógi og upplýstar göngubraut- ir þar. í fjallinu hefúr verið unnið að uppsetningu lýsingar með fram göngubrautum en þær brautir era ekki tilbúnar enn og við þurfum ekki að flýta okkur eins mikið vegna þess hversu ástandið er gott í Kjama- skógi,“ segir Kristinn. -gk Rjúpnaveiðin: Tíðarfarið gott fyrir fuglinn - en ekki fyrir veiðimanninn Það hefur ýmislegt gengið á í ijúpnaveiðinni síðan mátti byrja að skjóta fyrir hálfum mánuði. Veðurfarið hefur verið gott fýrir fuglinn en ekki fyrir veiðimanninn. Fyrstu dagarnir vom góðir og fékkst þá mikið af fugli. Reyndar var fuglinn styggur enda hefur hann vitað af veðurbreyting- unni sem var 1 aðsigi. Mest hefur sést af fugli á Vestfiörðum og á Austfiörð- um en minna á Suðurlandinu. Erfitt er að segja til um fiölda skot- inna fugla en þeir liggja líklega á bil- inu 5-6 þúsund. Mikið er til af ijúpu síðan í fyrra svo ekki verður hátt verð fyrir hana í ár. En við heyrðum aðeins hljóð- ið í skotveiðimönnum í gærkvöld til að sjá hver staðan væri. „Það er frekar lítið að frétta af rjúpnaveiði héma sunnan heiða, enda tala skotveiðimenn minna um aflatölur þegar lítið fæst,“ sagði Jó- hann Vilhjálmsson byssusmiður. „Eitthvað hefúr fengist í Bláfiöllum en ekki mikið. Ég frétti af veiðimönnum sem vom fyrir vestan um daginn og þeir vom að hafa þetta 20-30 fugla eftir daginn. Það var töluvert af fúgli á svæðinu. Ég hef ekki farið enn þá en ætla með Byssuvinafélaginu til rjúpna um næstu helgi. Það gæti orðið góður túr. En slæmt veðurfar hefur líka spilað inn í eins og rjúpnaskyttan sagði mér sem ég heyrði í austur í Þistilfirði í vikunni. Það var ekki hægt að fara til ijúpna vegna veðurs nokkra daga í röð,“ sagði Jóhann enn fremur. Rjúpnaskytta sem við heyrðum í vestur á fiörðum í gærkvöld sagðist hafa farið tvær góðar ferðir, það heföu legið um 70 ijúpur í þessum tveimur ferðum. „En veðurfarið hefur stoppað frekari veiðiskap í bili,“ sagði hann í lokin. Skotveiðimenn sem við ræddum við í gærkvöld sögðu að veðurfarið hefði sett strik í reikninginn í byijun rjúpnatímans. Á þetta við næstum öll svæði landsins nema sunnan heiða. „Það var allt fullt af ijúpnaskyttum í byrjun tímans en svo hefur veðurfarið stoppað veiðiskap- inn. Menn vom að fá eitthvað af fugli,“ sagði Ómar Banine, ferðamálafulltrúi í Austur-Húna- vatnssýslu. Veiðivon G. Bender Veðurfar að undanförnu hefur hentað rjúpunni betur en veiðimönnum Bílasalan Skeifunni 5 liMW 320 1A 97, ek. 24 þús. km, CD, grásans, ssk., 4 d„ saml., toppl., þjófavöm ofl. Verð 2.850.000 BMW 325 þús. km, blásans, 2 d„ sarnl., ssk„ álf„ ABS, toppl, leður, M3 innr. ofl. Verð 2.850.000 BMW 740 iA '93, ek. 64 þús. km, steingrár, ssk„ ABS, toppl., saml., þjófav., leður, hraðast. oú. Verð 3.300.000 Chrysler Sebring LXI '97, ek. 12 þús. km, svartur, 2 d„ CD, saml., leður, sjálfsk. ofl. Verð 2.850.000 Ford Econoline XLT 7,3 D '92, ek. 100 þús. km, 5 d„ blár, 8 m„ ABS, saml., krókur, stigbretti ofl. Verð 1.690.000 Grand Cherokee limited '95, ek. 67 þús. km, 8 cyl„ reykgrár, ABS, saml., ssk„ CD„ toppl. ofl. Verð 3.450.000 Renault Clio S 1400 '93, ek. 80 þús. km, hvítur, bsk„ saml., pluss ákl„ álf„ krókur ofl. Verð 690.000 Toyota Carina E GLI STW 2000 '98, ek. 8 þús. km, vínrauður, ssk„ ABS, saml., þjófav. ofl. Verð 2.090.000 Grand Cherokee limited '96, ek. 35 þús. km, vínrauður, ssk„ CD, ABS.toppl., saml., þjófav. ofl. Verð 3.950.000 Hyundai Sonata GLSI '96, ek. 50 þús. km, grásans, bsk„ saml., þjófavöm, pluss ákl„ álf„ innsp. ofl. Verð 1.250.000 Nissan Patrol GR Dicsel Turbo '91, ek. 122 þús. km, grásans, saml., 31 “ dekk, krókur ofl. Verð 1.600.000 Hyundai Elantra GT 1800 '95, ek. 43 þús. km, rauður, ssk„ saml., álf„ innsp., vindskeið ofl. Verð 1.050.000 Chevrolet Corvette '92, ek. 32 þús. km, rauður, ssk„ CD, saml., þjófavöm, leður ofl. Verð 2.900.000 Ford Mercury Cougar V-8 '94, ek. 212 þús. km, rauðsans, ssk„ saml., álf„ leður, hraðast. ofl. Verð 1.580.000 Volvo S40 '97, ek. 53 þús. km, grænsans, bsk„ ABS, toppl., saml., leður, hraðast., innsp. ofl. Verð 2.250.000 Ford Explorer Sport 4,0 '91, ek. 170 þús. km, svartur, ssk„ CD, toppl., saml., hraðast., álf„ drifl. ofl. Verð 1.440.000 Suzuki Vitara V-6 '96, ek. 37 þús. km, svartur, saml., þjófavöm, innsp., ssk. ofl. Verð 1.910.000 Hyundai Elantra GT 1800'95, ek. 34 þús. km, rauður, bsk„ saml., álfelgur, krókur ofl. Verð 890.000 Vegna mikillar sölu undanfarið vantar allar gerðir bifreiða á skrá og á staðinn. Sími. 568 50 20.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.