Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 19 Sviðsljós Ástralska leikkonan Kimberly Davies, sem aliajafna hengir hatt sinn í Los Angeles, er heima í Ástralíu þessa dagana til að leggja aðstandendum tísku- vikunnar í Melbourne lið. Það gengur áreiðanlega vel. Stefanía prinsessa: Flytur í Alpana Stefanía prinsessa af Mónakó er farin að undirbúa flutning sinn frá Monte Carlo til að hefja nýtt líf, ef marka má frásögn breska slúður- blaðsins The Express. Er prinsessan sögð ætla aö ala upp bömin sín í Auron sem er bær í frönsku ölpun- um. Þar ætlar Stefanía að leggja niður prinsessutitilinn og gerast venjuleg vinnandi kona. Stefanía hefur þegar leigt út villuna sína í Mónakó og leigir nú sjálf ibúð. Þeir sem kunn- ugir eru fyrirætlunum prinsessunn- ar segja að hún ætli til fjallaþorps- ins í lok þessa árs. Stefanía sést æ sjaldnar í verslun- inni sem hún setti á laggimar heima í furstadæminu. í Auron mun hún ætla að stofna bamafata- verslun. Stefanía prinsessa er sögð vera búin að fá nóg af niðurlægingu, sorg og einsemd í Mónakó. Nú vill hún hverfa þaðan. Prinsessan hefur þó enn áhyggjur af Jean Raymond sem hún eignaðist nýlega barn með. Hann sagði upp lífvarðarstöðu sinni vegna ástar á Stefaníu en hún yfir- gaf hann á meðan hún var enn barnshafandi. Jean er sagður illa haldinn af ástarsorg. Víst þykir að prinsessan hafi litlar áhyggjur af öðrum lífverði í lifi hennar, fyrrver- andi eiginmanninum Daniel Ducru- et, sem sveik hana. Flett ofan af leyndarmálumim: Eva Herzigova var ekkert augnayndi Nú detta mér allar dauðar lýs úr höfði. Ofurfyrirsætan Eva Herzigova þótti víst ekkert augna- yndi þegar hún var unglingur. Svo segir hún að minnsta kosti sjálf, heldur því fram að strákarnir hafi ekki haft á henni neinn áhuga. „Ég var ekki beint draumadis karlpeningsins. Fram að sextán ára aldri var ég grindhoruð og átti alls ekki upp á pallborðið hjá strákun- um sem vom hrifnir af stelpum með rass til að klípa í,“ segir Eva. En svo varð öldin önnur. Eva skaust upp á stjörnuhvolf tísku- heimsins þegar hún gerðist tals- kona ofurbrjóstahaldsins Wonder- bra og veggspjöld af henni vom sett upp um allan heim. Nú þykir hún með fegurstu konum. GFA Varmaskiptar fyrir heimili og iðnað Tæknileg ráðgjöf um val UP firatveitfcCftlif. Borgartúni 28, sími 562 2901 og 562 2900. www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR Miðvikudaginn 2. desember mun hin érlega jólagjafahandbók fylgja DV í 18. sinn. Jólagjafahandbók DV er fyrir löngu búin aö festa sér sess í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar aö finna hundruö hugmynda aö gjöfum fyrir jólin. í fýrsta sinn veröur jólagjafahandbókin prentuð á hvítari og vandaðri pappír sem veröur til þess aö allar auglýsingar og myndir skila sér mun betur. Lögö veröur áhersla á skemmtilega umfjöllun um jólaundirbúning, hugmyndir aö föndri, uppskriftir og margt fleira. Auglýsendur, athugið aö skilafrestur auglýsinga ertil 20. nóvember en meö tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á aö hafa samband viö Selmu Rut Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, sem allra fýrst í síma 550 5720 svo unnt reynist aö veita öllum sem besta þjónustu. Ath. Bréfsími auglýsingadeildar > »ifJ er 550 5727.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.