Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Page 2
2 MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 Fréttir Stuttar fréttir dv Forsætisráðherra reiður vegna milljarðs útsvarshækkunar borgarinnar: Hirða skattalækkunina Forsætisráðherra, Davíð Odds- son, sagði í samtali við DV í gær- kvöldi að aðgerðir sem Reykjavík- urlistinn gerir tillögur um í frum- varpi að fjárhagsáætlun borgarinn- ar, séu óskammfeilnar. „Ég hef afskaplega miklar áhyggj- ur af þessu vegna þess að þarna er verið að hafa af fólki skattalækkun sem búið var að lofa í þremur áfong- um. Ríkið stendur við hana en það mun ekki koma fram á launaseðlum fólksins vegna þess að borgin ætlar að hirða þessa skattalækkun ríkis- ins,“ sagði Davíð Oddsson. Ætlunin er að skattleggja Reyk- víkinga um 975 milljónir króna með þvi að fara nánast upp í topp með útsvarsprósentuna sem hækkar um 0,75% og verður 11,99%. Þá er lagt til að skuldsetja orkufyrirtækin upp á milljarða. „Skattalækkunin sem ríkið er að framkvæma á að koma til fram- kvæmda 1. janúar. Hana ætlar R- listinn að hirða að fullu upp í eyðslu hjá sér. Það gerir það að verkum að Reykvíkingar missa af skattalækk- uninni og öllum kjarasamningum er teflt í tvísýnu," sagði forsætisráð- herra í gærkvöldi. DV spurði forsætisráðherra um veðsetningu Hitaveitu og Rafmagns- veitu. Ráðherrann sagði að ef eigna- myndunin væri svo mikil í þessum fyrirtækjum þá væri ráðið væntan- Davíð Oddsson forsætisráðherra - hefur miklar áhyggjur þegar samn- ingsbundinn skattafsláttur úr ríkis- sjóði fer rakleiðis í borgarsjóð. lega að lækka gjaldskrárnar. „Ég hef miklar efasemdir um að þetta fái staðist með góðu móti. Það er verið að veðsetja þessi fyrirtæki, ekki til að efla þau, þetta eru einok- unarþjónustufyrirtæki. Að skuld- setja þau með þessum hætti, veð- setja þau og hirða afraksturinn í borgarsjóð í eyðslu er afskaplega sérkennilegt. Það má ekki gleyma því að bæði ríki og borg eru að græða stórkostlega peninga af miklu meiri veltu en áður var í þjóðfélaginu. Ég furða mig á öllum þessum aðgerðum," sagði Davíð. Ráða ekki við fjármáiastjórn „Það er greinilegt að R-listinn hefur gefist upp á fjármálastjóm- inni í Reykjavík. Það er ekki nóg að með þessum hætti sé verið að sækja nærri þúsund milljónir króna til viðbótar í álögum á borgarbúa, heldur er fyrirhugað á næsta ári að skuldsetja nýtt sameinað orkufyrir- tæki um alla vega 4 milljarða króna. Heimildin, sem tillagan gengur út á i borgarráði um niðurfærslu eigin Qár fyrirtækisins, virðist fela í sér heimild til allt að 10 milljarða króna skuldfærslu. Okkur sjálfstæðis- mönnum sýnist það ekki gott vega- nesti fyrir nýtt fyrtæki," sagði Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn, í gær- kvöldi. Inga Jóna sagði að peningamál R- listans væra óskiljanleg. Greinilega væru hlutir látnir ganga sjálfkrafa fyrir sig. Skattahækkanir dynji yfir á hverju kjörtímabili, sorpræsa- gjaldið á síðasta kjörtímabili og núna, hálfu ári eftir kosningar, eru samningsbundnar skattalækkanir reykvískra launþega hirtar um leið og þær eiga að bæta hag fólksins. „Ef einhvers staðar er hægt að láta menn njóta lágmarksálagning- ar, þá á það að vera í stærsta sveit- arfélaginu. En þama er algjör upp- gjöf af hálfu R-listans að takast á við að stjóma borginni miðað við þess- Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálf- stæðismanna - R-listinn ræður ekki við fjármálastjórn, jafnvel ekki í góð- æri. ar forsendur," sagði Inga Jóna Þórð- ardóttir. „Það er góðæri, það eru miklar tekjur og tekjuaukning," segir Inga Jóna. Hún segir að blekkingar séu á ferðinni þegar óþægilegar tölur eru fluttar af borgameikningum til borgarfyrirtækja. Slíkt rugli allan samanburð og gefi ekki sanna mynd. Aukafundur er í borgarstjóm Reykjavíkur í dag. Inga Jóna sagði að fulltrúar sjálfstæðismanna mundu láta heyra vel í sér við það tækifæri. -JBP Það styttist í áramótin og þá er að sjálfsögðu áramótaskaupið sýnt. Mikil leynd hvílir venjulega yfir efni skaupsins en Ijósmyndari DV náði þó þessari mynd við upptökur nýlega. Leikararnir Ingvar Sigurðsson og Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir sjást hér í hlutverkum sínum í skaupinu. Lengst til vinstri sést leikstjórinn, Egill Eðvarðsson. DV-mynd Hilmar Þór Húsfyllir á fundi um verndun hálendisins: Almenningi er ofboðið - segir Birgir Sigurðsson, forsvarsmaður náttúruverndarsinna Besta leiðin - en hún kostar peninga - segir Ingibjörg Sólrún Ríkið hefur ýmist verið að skerða tekjur sveitarfélaga eða koma yfir á þau verkefnum sem kostað hafa um 2 milljarða á ári allt ffá árinu 1990. Þetta kemur fram í skýrslu um samskipti rík- ais og sveitarfé- laga sem var ina. Ingibjörg dóttir borgar- samtali við DV í Ingibjörg gærkvöld að Sólrún þetta hlyti ein- Gísladóttir. hvers staðar að koma niður. “Ef menn vilja sýna ábyrgð í fjármálum sveitarfélaganna þá er ekkert annað að gera en að hækka útsvarið. Við höfum boðið upp á ákveðinn afslátt af útsvar- inu, sömu prósentu og Seltjamar- nes og Garðabær, 11,24%, en höf- um fengið miklu minna á hvem mann,“ sagði Ingibjörg Sólrún. “Reykjavík stóð andspænis þrennu: Að taka lán og velta því á framtíðina. í öðru lagi að skera niður, sem kæmi niður á þjón- ustu við barnafólk, félagslega þjónustu, eða viðhald. Þriðja leið- in er þessi, og hana munum við fara - en hún kostar peninga," sagði Ingibjörg. Hún sagðist reikna með hörðum viðbrögðum á fundinum í kvöld. Um er að ræða 0,7% hækkun á útsvari, sem þýðir 7 þúsund krónur á milljónina. -JBP Sparkað í höfuð Ungur maður hlaut slæma áverka á höfði eftir átök fyrir utan skemmti- staðinn Gauk á Stöng í fyrrinótt. Átök urðu á milli mannsins og annars sem sló hann í jörðina og sparkaði síðan í höfuð hans. Árás- armaðurinn var handtekinn en fóm- arlambið flutt á slysadeild. Áverkar mannsins vom ekki taldir alvarlegir. Árásarmaðurinn hlaut einnig minni háttar áverka í átökunum. -RR Rúmlega þúsund manns mættu á almennan fund um vemdun hálendis- ins sem ýmis náttúruverndarsamtök, útivistarfélög og einstaklingar sem mynda svokallaðan Hálendishóp stóðu fyrir í Háskólabíói á laugardag- inn. Yfirskrift fundarins var „Með hálendinu - gegn náttúruspjöOum" og var meginmarkmið fundarins að efla samstöðu náttúruunnenda um vernd- un miðhálendisins. Að sögn Birgis Sigurðssonar, for- ystumanns hópsins, var mikil stemn- ing á fundinum og greinilegt að fólki var umhugað um þessi mál. „Mér er óhætt að segja að ég hafi sjaldan ver- ið á fundi þar sem stemningin var betri og ályktun okkar um vemdun miðhálendisins var samþykkt með kröftugu lófaklappi." Mikið hitamál Fundarmenn lýstu m.a. yfir ein- dreginni andstöðu við fyrirhugaðar stórvirkjanir á miðhálendinu og mót- mæltu harðlega áformum Landsvirkj- unar um að skerða friðland Þjórsár- vera og sökkva Eyjabökkum undir miðlunarlón eins og það var orðað. „Fólki í landinu er einfaldlega ofboð- ið vegna þessara fyrirhuguðu virkj- unarframkvæmda á miðhálendinu sem munu valda stórtjóni á náttúr- unni og lífríkinu þar. Þetta er mikið hitamál og verður það á meðan hvorki stjórnvöld né Landsvirkjun slá af hugmyndum sínum um virkjan- ir. Þegar ferðamaður stendur við Eyjabakka og horfir yfir þessa miklu gróður- og fugla- paradís óskar hann þess að þetta svæði verði ósnortið um aldur og ævi. En þegar Halldór Ás- grímsson, formaður Framsóknarflokks- ins, stendur á þess- um sama stað telur hann að Eyjabökkum verði að fórna því ávinningurinn sé miklu meira en tapið,“ sagði Birgir Sigurðsson. Landsvirkjun ekki boðið Landsvirkjun óskaði eftir því við fundarmenn að fá að koma sínum sjónarmiðum á framfæri á fundinum í Háskólabíói en því var hafnað. „Mjög margir sem ég hef hitt á fórn- um vegi hafa lýst yfir óánægju sinni með þann einhliða málflutning sem Hálendishópurinn hefur komið ffam með. Það er auðvit- að ekkert við því að segja að sjónarmið- um Landsvirkjunar hafi verið hafnað á þessum fundi en það sýnir hversu einhliða þessi mál- flutningm- er og áhugi forystumanna Hálendishópsins á málefnalegri umræðu lítill,“ segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjóm- arformaður Landsvirkjunar. Að sögn Jóhannesar Geirs verður þessi fundur ræddur innan stjórnar Landsvirkjunar en ekki er búist við beinum viðbrögðum viö honum. Hins vegar megi e.t.v. búast við öflugri kynningu á sjónarmiðum Landsvirkj- unar á næstunni. -GLM Birgir Sigurösson. Jóhannes Geir Sigurgeirsson. Aætlunum breytt? Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra telur að mögulegt sé að breyta áætlun- um um virkjan- ir á hálendinu. Hann segir að dýrari virkjun- armöguleikar sem munu valda minni umhverf- isspjöllum gætu sætt sjónarmið umhverfisverndar- sinna og þeirra sem vUja virkja á hálendinu. Stöð 2 greindi frá. Bærinn vill samstarf Kópavogsbær hefur óskað eftir að fá að vera með í samstarfi um nýtingu jarðvarma og orkusölu. Þar með viU bærinn slást í för með hitaveitum Suðurnesja, Hafnaijarð- arbæjar, Garðabæjar og Bessa- staðahrepps. RÚV greindi frá þessu. Gler deyfir hávaða Hljóðeinangrað gler sem deyfir hávaða frá umferð hefur verið reynt á Akureyri með góðum ár- angri. Ekki hefur slíkt gler verið reynt við MUdubrautina, en mikið hefur verið kvartað yfir umferðar- hávaða við þá götu. Sjónvarpið greindi frá þessu. Ánægð með tillögur Guðrún Agnarsdóttir, yfirlæknh neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisofbeld- is á Sjúkrahúsi Reykjavikur, er ánægð með tíl- lögur réttarfars- nefndar um úr- bætur 1 málefn- um brotaþola í slíkum málum. Hún telur þær vera mikla réttar- farsbót. RÚV sagði frá. Leitað að mygluvíni Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengissölu rUúsins, segir að leitað verði eftir upplýsingum um hvort vín með myglueitri hafi verið keypt tU landsins. Ákveðnir vín- framleiðendur seldu slíkt vín til Finnlands fyrir stuttu. RÚV sagði frá þessu. Fyrsti tónlistarsalurinn Ný veggklæði í Hásölum Hafnar- Uarðarkirkju vora helguð í gær. Hásalir eru fyrsti salurinn á ís- landi sem hannaður er sérstaklega með tónlistarflutning í huga. Nína Salóme vann veggklæðin og vora þau hönnuð í samráði við arkitekta hússins og hljóðsérfræðing. Stöð 2 sagði frá þessu. Lúðvík vill skýrslu Lúðvík Geirsson, oddvita F-list- ans i minnihluta bæjarstjórnar í Hafnarfirði, er farið að lengja eftir skýrslu frá fulltrúum Hafnarfjarð- arbæjar í stjórn Jarðgufufélagsins. Hann telur að bæjarstjórn sé ekki búin að afgreiða útgöngu Hafnfirð- inga úr félaginu. RÚV greindi frá. Munur á heilsu barna Marktækur munur er á heUsu ís- lenskra barna eftir stétt foreldra. Hið sama á við annars staðar á Norðurlöndum. Því lægri sem stétt foreldra er, því verra er hellsufar barna þeirra. Sjónvarpið greindi frá. Barnasprenging Fimmtán böm fæddust á einum degi á fæðingardeUd Landspítalans siðastliðinn miðvikudag. Átta börn fæddust á tveimur klukkustundum og var mikUl handagangur í öskj- unni. Fæðingarmetið á einum sól- arhring er hins vegar 18 börn. Stöð 2 greindi frá. Engin fjölgun á Akureyri Akureyringum hefur ekkert fjölgað síðan fimmtánþúsundasti Akureyringur- inn fæddist fyrir tveimur árum. Kristján Þór Júl- íussbn bæjar- stjóri segir að nauðsynlegt sé að beita handafli til að koma vexti Akureyrar af stað aftur. Stöö 2 greindi frá. -KJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.