Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 Fréttir Mörg skip að hætta rækjuveiðum vegna hruns stofnsins: Við verðum að fá fyrir möndlu í jólagrautinn - segir Gísli Skarphéðinsson, skipstjóri á Framnesi, sem stundar nú þorskveiðar lithafsrækja Hrun rækjuveiða no,oö ' 'iT'í . , il.il Tölur í kg/togtíma jan.-apr. maí-Ág. sept.-nóv. „Þetta efnahagsbandalag sem stjórnar þessum flskveiðum og sig- aði mönnum út í þessar veiðar fær nú að sjá afleiðingarnar svart á hvítu. Það eru komin tvö ár síðan við sjómenn sáum þau teikn á lofti að stofninn gæti farið að láta und- an. Þá byrjaði að veiðast mun smærri rækja og nú er komið á daginn að hrun hefur orðið. Fiski- fræðingar vissu af þessu en ekkert var að gert og nú er hrun veiða komið á daginn," segir Gísli Skarphéðinsson, skipstjóri á togar- anum Framnesi ÍS, sem stundað hefur veiðar á úthafsrækju undan- farin ár. Hrun hefur orðið í rækju- veiðum svo sem DV hefur greint frá. Þannig er afli á klukkustund aðeins þriðjungur þess sem hann var fyrir tveimur árum. Sam- kvæmt upplýsingum Hafrann- sóknastofnunar var rækjuafli á klukkustund að meðaltali 200 kíló á tímabili árið 1996 en er nú kom- inn niður í 67 kíló. Gísli segir að þeir á Framnesi hafi gefist upp á þessum veiðiskap og séu nú að veiða kola og ann- an skrapfisk á grunnslóð. Hann segir marga fleiri í þeirri stöðu að hætta rækju- veiðum. „Það var ekkert annað að gera en hætta þessu. Maður verður að þéna fyrir möndl- unni i jólagrautinn. Þetta er í ráun alveg skelfilegt ástand. Fjöldinn af skipum veiðir ekki einu sinni fyrir olíu. Ég held að þetta eigi eftir að fara enn þá meira niður. Ég sé ekki að það sé neitt til ráða úr því sem komið er. Það hefur enga þýðingu að skera niður kvóta því aflinn fellur bara sjálfkrafa, hverju svo sem úthlutað er á pappírunum," segir Gísli. „Það standa margir í þeim spor- um að veiðarnar standa ekki undir sér. Ég hef ekki heyrt eins mikla svartsýni hjá mönnum og nú er. Fjöldi skipa er líka að hætta núna, það er ekkert um annað að ræða,“ segir hann. Margir vilja kenna þorskinum um það hrun sem blasir við í bæði úthafsrækju og innfjaröarækju. Þannig hafi offriðun á þorski orðið til þess að nú sé rækjan í uppnámi. Gísli vill ekki taka undir þessi sjón- armið. „Ég held að þetta snúist fyrst og fremst um ofveiði á rækju og ekki sé hægt að kenna mikilli þorsk- gengd um. Ég er orðinn það gamall að ég man eftir mikið meiri þorsk- gengd á íslandsmiðum. Að þorskur- inn sé offriðaður vil ég ekki taka undir,“ segir Gísli. -rt Formaður Læknafélagsins um gagnagrunnsfrumvarpið: Undir þingræði komið - segir Guðmundur Björnsson - afstaða Læknafélagsins óbreytt „Við teljum okkur hafa lagt spil- in á borðið. Stefna og grundvall- arafstaða okkur eru óbreytt og skýr. Við teljum að frumvarpið sé óásættanlegt í þeirri mynd sem það er núna. Það þarf frekari breytingar til að svo verði. Nú er þetta undir þingræði komið. Al- þingismenn þurfa að skoða málið mjög vandlega því það er mikið undir,“ segir Guðmundur Björns- son, formaður Læknafélags ís- lands, aðspurður um stöðuna í gagnagrunnsmálinu. Heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis klofnaði sem kunnugt er í afstöðu sinni til gagnagrunnsfrum- varpsins á föstudag. Lengi getur vont batnað „Nokkur atriði eins og vísinda- siðanefnd eru jákvæð. En það eru samt grundvallaratriði eins og um persónuvernd sem eru óásættanleg. Til þess að fullnægja okkar kröfum og skoðunum er líklegt að ekki dugi neitt minna til en upplýst samþykki sjúklinga, þ.e. þeir skrifi upp á það að þeir séu tilbúnir að láta sjúkra- gögn af hendi,“ segir Guðmundur. Guðmundur bætti enn fremur við: „Það sagði einn kollegi minn um daginn þegar við vorum að ræða gagnagrunnsfrumvarpið að lengi getur vont batnað án þess að vera nokkurn tímann gott.“ -RR Frá fundi í heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis á föstudag. Klofningur varð í nefndinni. DV-mynd S Af Bárði og öðrum aulabárðum Tveir stjórnmála- flokkar voru stofnaðir í síðustu viku. Báðir frjálslyndir enda eru vinstri flokkarnir að sameinast í einn flokk og þess vegna hörgull orðinn á flokkum fyrir frjálslynt fólk. Enda kom fljótt í ljós að ekki var pláss fyrir allt frjálslynt fólk í einum frjálslyndum flokki sem varð til þess að tveir flokkar voru stofnaðir. Tveir flokkar voru nauðsynlegir þó ekki væri fyrir annað en að tveir valinkunnir menn vildu báðir verða formenn og auðvitað er ekki hægt að hafa tvo formenn í einum flokki og þess vegna var miklu skynsamlegra að stofna tvo flokka til að báðir gætu orðið formenn. Annar frjálslyndi flokkurinn er fasistaflokkur eftir þvl sem annar formaðurinn segir um þann flokkinn sem er fasistaflokkur. Það sýnir auðvit- að frjálslyndi frjálslyndra að þeir skuli stofna fas- istaflokk fyrir frjálslynda fasista og þannig hefur það sannast enn og aftur að frjálslyndi byggist á þeirri víðsýni að umbera fasista, jafnvel þótt þeir séu frjálslyndir. Og kannske einmitt vegna þess að þeir eru frjálslyndir. Þessi mikla undiralda í þjóðfélaginu í frjáls- lyndisátt á rætur sínar að rekja til þess að frjáls- lyndir menn una því ekki að kvótinn sé í hönd- um fárra útvaldra. Þjóðin á kvótann segja frjáls- lyndir, sem er alveg satt. En þó að þjóðin eigi kvótann er ekki sama hver eigi flokkana og þá sérstaklega þegar frjálslyndir þegnar þessa þjóðfélags taka höndum saman um að stofna flokka fyrir frjálslynt fólk sem er á móti kvótanum. Kvótinn er þjóðareign en flokkarnir eru ekki fyrir hvern sem er. Sverrir á Frjálslynda flokkinn og Bárður á Frjálslynda lýðræðisflokk- inn og til að útkljá þetta deilumál skiptu þeir kvótanum af frjálslyndu fólki á milli sín. Sverrir á þá sem tilheyra fjölskyldu hans og fyrrum sam- starfsmenn. Bárður á þá sem ekki vilja Sverri og aðra aulabárða, sem eru svo frjálslyndir að þeir þola ekki einn flokk frjálslyndra. Enda er fjöld- inn svo mikill að hann rúmast ekki á einum fundi og í einum fundarsal og allur þessi griðar- legi fjöldi frjálslyndra í landinu þolir heldur ekki að vera innan um aðra frjálslynda, sem er senni- lega glöggasta dæmið um það hvað það er erfitt að vera frjálslyndur innan um annað frjálslynt fólk. En þetta gengur glatt fyrir sig og íslenskir kjós- endur geta hrósað happi yfir þeim dáðadrengjum sem eru tilbúnir til að fórna sér fyrir málstaðinn með því að fóma málstaðnum til að fleiri en einn flokkur bjóði sig fram í þágu málstaðarins. Nú er kvótanum skipt á milli flokkanna og nú er bara að snúa sér að hinum kvótanum sem er sameiginlegt baráttumál þeirra flokka sem ekki geta komið sér saman um sinn eigin kvóta. Dagfari Stuttar fréttir i>v Páll Óskar ásakar Arna Páll Óskar Hjálmtýsson ásakar Áma Johnsen þingmann um aö hafa lagt hendur á ást- mann sinn á Þjóðhátíð í Eyj- um ‘96 í viðtali við tímaritið Testament. Páll Óskar fer ekki fögrum orðum um Áma í viðtalinu. Lánasjóðurinn noröur? Búnaðarsamband Eyjafjarðar vill Lánasjóð landbúnaðarins norður á Akureyri og hefur boð- ið sjóðnum húsnæði ef af flutn- ingnum verður. Dagur skýrði frá. Geislavirkni mæld Mælingar á hinu geislavirka efni Teknesíum-99 munu hefjast við strendur íslands á næsta ári. Þetta efni hefúr greinst í auknum mæli við Noreg i sumar og talið er að efnið geti borist með haf- straumum hingað á skömmum tíma. Mbl greindi frá. Mikil sala á hlutabréfum Síðastliðinn föstudagur var metdagur á Verðbréfaþingi ís- lands. Þá fóru fram mestu við- skipti með hluta- bréf eins félags á einum degi. Þetta voru við- skipti upp á 334 milljónir króna með hlutabréf í Éjárfestingarbanka atvinnulífs- ins. Dagur greindi frá. Löggan í eltingaleik Aðfaranótt laugardags lenti lög- reglan í Reykjavík í eltingaleik við ökumann um miðbæ Reykja- víkur. Hann reyndi að stinga lög- regluna af og ók við það utan í gangandi vegfaranda og rakst á fjóra bíla. Hann náðist að lokum og er talinn hafa verið ölvaður undir stýri. Skólaútgjöld hækka Útgjöld sveitarfélaganna vegna skólareksturs hækkuðu úr 7 millj- örðum í 17 milljarða á ánmum 1995 til 1997. Þetta eru árin sem sveitarfélögin tóku við rekstri grunnskólans. Dagur greindi frá þessu. Ekkert ótryggt rafmagn Landsvirkjun hefur tilkynnt al- menningsveitum að afhendingu á ótryggu rafmagni til kaupenda verði hætt frá 3. desember. Jafn- framt verður skerðing á afhend- ingu afgangsorku til stóriðju áfram í gildi eftir áramót. Verkamannasambandið fundar Forysta Verkamannasam- bands íslands hefur undanfarið átt fundi með ríkisstjórninni og samtökum atvinnurekenda. Sambandið undirbýr næstu kjarasamningaviðræður og vifl skýra viðhorf sín um þróun mála á vinnumarkaði og það mikla misgengi sem það telur hafa átt sér stað í launa-, kjara- og réttindamálum frá 1997. Þjónustusamningar undirritaðir Ingibjörg Pálmadóttir, heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra, undinlt- aði á föstudag þjónustusamn- inga við Dvalar- og hjúkrunar- heimilin Huldu- hlíð á Eskifirði og Naust, Þórs- höfn. Hulduhlíð fær tæpar 52 milljónir á ári en Naust tæpar 22 milljónir. -KJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.