Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Page 8
8
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Ocalan til að
koma fyrir al-
þjóðadómstól
Lamberto Dini, utanrikisráð-
herra Ítalíu, kom til Moskvu í
gær til viðræðna við þarlend
stjórnvöld. Talið
er að þar muni
bera hæst mál
kúrdíska skæru-
liðaforingjans
Abdulahs Öcal-
ans, sem kom til
Ítalíu frá
Moskvu fyrr í
mánuðinum. Dini sagði fyrir
brottförina að hann mundi reyna
að fá skýringar hjá Rússum á
þeim atburðum sem leiddu til
komu Öcalans til Rómar.
Lögfræðingur Öcalans sagði í
gær að skæruliðaforinginn væri
reiðubúinn til að láta rétta yfir
sér fyrir alþjóðlegum dómstóli.
Hann telur sig geta sannað sak-
leysi sitt fyrir slíkum dómstóli.
Tyrknesk stjómvöld vilja fá
Öcalan en ítalir neita að fram-
selja hann þangað þar sem hann á
yfir höfði sér dauöadóm.
Þjóðþekktir
Danir undir eft-
irliti Kananna
Bandarísk stjórnvöld söfnuðu í
áratugi viðkvæmum upplýsingum
um persónulega hagi og stjóm-
málaskoðanir margra þjóð-
þekktra Dana, svo og stjórnmála-
manna bæði til hægri og vinstri.
Blaðamenn danska blaðsins
Jyllands-Posten fundu gögn um
njósnir þessar i bandaríska þjóð-
skjalasafninu. Blaðið skýrði frá
þessu í gær.
í skjölunum kemur fram að
bandaríska sendiráðið í Kaup-
mannahöfh hafi sent yfirboðurum
sínum í Washington upplýsingar
í stríðum straumum um meðal
annars vinstrisinnaða náms-
menn, efasemdarmenn um ágæti
NATO og um samkynhneigða.
Jens Otto Krag, sem var forsæt-
isráðherra Danmerkur í sjö ár,
var efni fjölda skýrsla bandarísku
njósnaranna og árið 1953 var
hann meðal annars kallaður tæki-
færissinni sem gæti reynst hættu-
legur.
Svisslendingar
á móti lögleið-
ingu fíkniefna
Kjósendur í Sviss höfnuðu í
gær með yfirgnæfandi meirihluta
tillögu sem gerði ráð fyrir að allir
18 ára og eldri gætu keypt þau
fikniefni sem þeir helst 'óskuðu
sér í ríkisreknum verslunum.
Fylgismenn sögðu að samþykkt
tillögunnar mundi útrýma eitur-
lyfjamafiunni. Andstæðingar vör-
uöu hins vegar við því að landið
yrði þar með griðland eiturlyfja-
neyslu.
Ný stjórnarkreppa yfirvofandi í Noregi vegna Schengen:
Stjórnarliðarnir
eru ekki sáttir
DV, Ósló:
Ný stjómarkreppa er nú yfirvof-
andi í Noregi vegna Schengen-
samningsins sem gerður var á fostu-
daginn milli Evrópusambandsins,
íslands og Noregs. Áhrifamiklir
stjórnarliðar í Noregi eru á móti
þessum samningi og leggja til að
ríkisstjórn séra Kjell Magne
Bondevik hafni honum.
„Þessi Schengen-samningur er
brot á stjómarsáttmála ríkisstjóm-
arinnar og þess vegna ber að hafna
honum. Það var einmitt samstarf af
þessu tagi sem Norðmenn höfnuðu í
þjóðaratkvæðagreiðslunni um Evr-
ópusambandsaðild fyrir íjórum ár-
um,“ segir Per Olaf Lundteigen,
framkvæmdastjóri og helsti hug-
myndasmiður norska Miðflokksins.
Vitað er að Miðflokksmenn eru
almennt á sama máli og fram-
kvæmdastjórinn enda felur samn-
ingurinn í sér að Noregur lendir
innan sameiginlegra landamæra
Evrópusambandsins og það vOja
Miðflokksmenn ekki. Sömu sögu er
Kjell Magne Bondevik, forsætisráð-
herra Noregs, er í vanda staddur.
reyndar að segja um marga stuðn-
ingsmenn Kristilega þjóðarflokks-
ins, flokks séra Kjell Magne forsæt-
isráðherra.
Séra Kjell Magne neitar að tjá sig
um stöðuna sem upp er komin en
svo gæti farið að Stórþingið sam-
þykkti þennan samning ríkisstjóm-
arinnar gegn vilja stjórnarinnar.
Talsmaður Verkamannaflokksins
segir að ástandið í ríkisstjóminni sé
orðið „fáránlegt".
Öruggur þingmeirihluti er fyrir
Schengen-samningnum sem felur í
sér niðurfellingu á landamæraeftir-
liti milli íslands, Noregs og ríkja
Evrópusambandsins, annarra en
Bretlands og írlands. Hitt er annað
mál hvort norska ríkisstjómin lifir
þessa samningsgerð af.
Miðflokksmenn una nú æ verr
sínum hag í stjóminni. Þeir hafa
orðið að sætta sig við fjárlagafrum-
varp, sem í öllum höfuðdráttum er
andstætt stefnu flokksins. Þó fer
Miðflokkurinn með fjármálin í rík-
isstjóminni. Margir Miðflokksmenn
taka því undir með þeim sem segja
að þessi stjórnarseta sé orðin fárán-
leg. Hugsanleg lausn er að séra Kjell
Magne skipti Miðflokknum út og
taki inn Hægri flokkinn.
-GK
Norsk jólatré eru ómissandi þáttur jólahátíðarinnar víðar en f henni Reykjavík. Ljósin voru tendruð á myndarlegu
norsku tré við hið fornfræga Brandenborgarhlið í Berlfn í gær. Brandenborgartréð er átján metra hátt og kemur frá
norska bænum Drobeck. Sfmamynd Reuter
Danskir kjós-
endur snúa baki
við krötunum
Jafnaðarmannaflokkurinn í
Danmörku hefur ekki notið
minna fylgis
kjósenda i aldar-
fjóröung, ef
marka má skoð-
anakönnun sem
danska blaðið
Jyllands-Posten
lét gera fyrir
sig. Ef gengið
yrði til kosninga nú myndi flokk-
ur Pouls Nyrups Rasmussens for-
sætisráðherra missa 22 þingsæti.
Helsta ástæða óvinsælda jafn-
aðarmanna nú eru fjárlög stjóm-
arinnar. Jafnaðarmenn fengju
22,5 prósent atkvæða væri kosið
nú og 41 þingmann. Venstre yrði
stærsti flokkurinn með 34,4 pró-
sent atkvæða og 62 þingmenn.
Fréttir bornar til baka:
Ekkert samkomulag um
að láta Pinochet lausan
Stjómvöld í Bretlandi og Chile
bára í gær til baka fregnir um að
samkomulag hefði tekist um aö
sleppa Augusto Pinochet, fyrrum
einræðisherra i Chile, úr stofufang-
elsi í Bretlandi gegn loforði um að
hann yrði sóttur til saka i heima-
landinu.
„Það er ekkert samkomulag,"
sagði talsmaður bresku ríkisstjóm-
arinnar í gær eftir að tvö sunnu-
dagsblöð birtu frétt um að sam-
komulag hefði tekist um hvað gera
skyldi við einræðisherrann fyrrver-
andi.
Talsmaðurinn sagði að Jack
Straw, innanríkisráðherra Bret-
lands, mundi taka ákvörðun um
T
José Miguel Insulza, utanrfkisráð-
herra Chile, segir að best sé að rétta
yfir Augusto Pinochet heima.
hvort framsalsbeiöni spænskra
dómara verði tekin fyrir.
José Miguel Insulza, utanríkis-
ráðherra Chile, vísaði einnig öllum
fréttum um samkomulag á bug.
Insulza er í Bretlandi til að reyna
að tryggja lausn Pinochets. Einræð-
isherrann fyrrverandi var handtek-
inn 16. október siðastliðinn að
beiðni tveggja spænskra dómara
sem vilja rétta yfir honum fyrir
þjóðarmorð, pyntingar og fleiri
glæpi á valdatíma sínum.
Pinochet dvelur nú undir lög-
regluvemd á sjúkrahúsi í Lundún-
um en heimildir herma að hann
verði fluttur í aðrar vistarverur
einhvem tíma i vikunni.
A móti auglýsingum
Helmingur Dana vill láta banna
sjónvarpsauglýsingar sem beint
er sérstaklega til bama, segir í
könnun sem gerð var fyrir blaðið
Politiken.
Jeltsín innandyra
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
er á batavegi en
læknar hafa
ráðlagt honum
að dvelja áfram
á sjúkrahúsi til
að jafna sig að
fullu af lungna-
bólgu sem hefur
hrjáð hann und-
anfarið. Aðal-
talsmaður Kremlarstjómar
skýrði frá þessu í gær.
Petersen dæmdur
John Petersen, sjávarútvegs-
ráðherra Færeyja, var dæmdur í
tíu mánaða fangelsi á föstudag
fyrir að nauðga 17 ára stúlku fyr-
ir þremur áram. Hann var einnig
dæmdur til að greiða stúlkunni
skaðabætur. Petersen neitar að
hafa nauðgað stúlkunni.
Vín í launa staö
Konur sem starfa fyrir rúss-
neskt byggingafyrirtæki vora
ekki ánægðar þegar forráðamenn
fyrh-tækisins létu starfsmenn fá
vín í stað vangoldinna launa.
Verkfall á lestum
Jámbrautasamgöngur í Frakk-
landi fóra úr skorðum í gær
vegna verkfalla, þriðja daginn í
röð, og farþegar eiga heldur ekki
von á góðu í dag.
Ekki samræmda skatta
Bresk stjómvöld ítrekuðu í gær
að þau mundu koma í veg fyrir áð
skattar yrðu samræmdir innan
Evrópusambandsins.
Bróðir Saddams heim
Barzan Al-Tikriti, hálfbróðir
Saddams Husseins íraksforseta,
flaug til Amman í Jórdaníu í gær
á leið sinni heim til Bagdad. Sam-
band hans við hinn valdamikla
Uday, bróðurson sinn, ku ekki
vera gott.
Mannþröng í Köben
Mikil mannijöldi safnaðist sam-
an á Ráðhústorginu í Kaup-
mannahöfn í gær þegar ljósin á
jólatrénu þar voru tendrað.
Barist við smyglara
Júgóslavneskir landamæra-
verðir hafa lent í átökum við Al-
bani sem reyndu að smygla vopn-
um inn í Kosovohérað.
Daufleg þjóðhátíð
Heldm- dauflegt var yfir Rúm-
enum í gær þegar þeir héldu upp
á þjóðhátíðardag sinn. Efnahags-
þrengingar eru miklar í landinu
og kvörtuðu landsmenn við for-
seta sinn um hungur.
Á leið á suðurpólinn
Þrír menn sem ætla að reyna
að ganga á suðurpólinn hafa lagt
að baki rúma 300 kílómetra. Leiö-
in er 1000 kílómetrar og vonast
göngugarpar til að komast á leið-
arenda á jóladag.
Jagger í vanda
Breski rokkarinn Mick Jagger
er kominn í hin mestu vandræði,
að sögn breskra
fjölmiðla.
Hjónaband hans
og fyrirsætunn-
ar Jetry Hall er
í miklu upp-
námi, einu
sinni sem oftar,
eftir að brasil-
ísk fyrirsæta sagðist bera bam
Jaggers undir belti.
Skjálfti í Indónesíu
Að minnsta kosti fjórir létu líf-
ið þegar jarðskjálfti, sem mældist
7,6 stig á Richter, skók afskekktar
eyjar í austurhluta Indónesíu
seint í gærkvöld, að staðartíma.
Algjör ringulreið rikti á eyjunum
í kjölfar skjálftans.