Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Side 12
12 MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 Spurningin Lesendur Hvað finnst þér skemmti- legast að gera á jólunum? Konráð Vignir Sigurðsson, 13 ára: Opna pakkana. Pétur Gunnarsson nemi: Vera með f]ölskyldunni. Heimir Hermannsson dagskrár- gerðarmaður: Vera með fjölskyld- unni og borða góðan mat. Lóa Bára Magnúsdóttir, 14 ára: Opna pakkana. Hildur Kristjánsdóttir, 14 ára: Opna pakkana. Ingibjörg Anna Ingadóttir: Undir- búa jólin. Babtistakirkja varn- arliðsins í Njarðvík Skarphéðinn Einarsson skrifar: Síðastliðin fimm ár hafa varnar- liðsmenn og konur þeirra verið að byggja bænahús og safnaðarheimili við Fitjar í Njarðvík í Reykjanesbæ. Þeir fengu lóð á sínum tíma utan vamarsvæðisins á Fitjum, nálægt gatnamótum Reykjanesbrautar, þar sem hún liggur til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og vegarins að aðalhliði flotastöðvarinnar. Þeir fluttu inn stálgrindarhús af Butler-gerð frá Bandaríkjunum. Slíkar skemmur nýtast sem flugskýli og verslunar- miðstöðvar víða í Ameríku og Bret- landi. Vamarliðsmönnum hefur gengið afar illa að ljúka framkvæmdum við þessa félagsmiðstöð sína. Ástæðan er sú að söfnuðurinn fjármagnar sjálfur þessa framkvæmd. Varnar- liðið leggur ekki fé i þetta hús og ástæðan er sú að í Bandaríkjunum er trúfrelsi og ríkið leggur ekki fé né styrki til trúfélaga og mismunar þar af leiðandi ekki söfnuðum. Stað- arvalið, þ.e. að byggja utan varnar- svæðis, kemur til af því að breyttist ástandið í flotastöðinni töpuðust þessir fjármunir sem lagðir hafa verið í þessa trúarmiðstöð en í Njarðvík er hægt um vik að selja eignina undir aðra starfsemi. Það er leitt að ekki skuli vera hægt að ljúka framkvæmdum þarna. - Mér finnst persónulega og svo er um fleiri sem ég hef rætt við að verktakafyrirtæki íslensk, svo Félags- og trúarmiðstöð babtista í Njarðvík sem enn er ekki lokið. Geta verk- takar endurgoldið fyrir afrakstur af varnarliðsframkvæmdum með því að Ijúka verkinu? sem íslenskir aðalverktakar, Kefla- víkurverktakar eða aðrir smærri verktakar, sem hafa rakað saman fjármunum við varnarliðsfram- kvæmdir sl. 40 ár, ættu að ljúka þessu félagsheimili að innan og utan í sjálfboðavinnu, gera bíla- stæði, koma fyrir ljósastaurum og fallegri grasflöt þama. Gaman væri ef varnarliðsmenn og fjölskyldur þeirra gætu vígt þessa félagsmiðstöð sína um næstu jól. Aðalverktakar hafa rakað saman fjármunum á veflinum og safnað miklum auðæfum. Sama má segja um Keflavíkurverktaka. Með því að aðstoða þennan litla söfnuð varnar- liðsmanna myndu þeir þakka fyrir aflan gróðann sem er upprunninn frá almennum skattborgurum í Bandaríkjunum. GSM-símar og talhólfsþjónusta - upplýsingar frá Landssíma íslands Ólafur Þ. Stephensen forstöðum. upplýsinga- og kynningarmála Landssíma íslands skrifar: Vegna bréfs frá „Steina" í DV mánudaginn 23. nóvember vill Landssími íslands hf. koma eftirfar- andi á framfæri: í lesendabréfi „Steina" í DV mánudaginn 23. nóvember var spurt hvort ekki mætti koma skila- boðum til GSM-notanda, sem bæri síma sem væri slökkt á eða utan þjónustusvæðis, í stað þess að þurfa að hlusta á tflkynningu þess efnis. Landssími íslands býður GSM-not- endum og öðrum símnotendum talh- ólfsþjónustu fyrir aðeins 50 króna gjald á mánuði. Talhólfið virkar eins og símsvari og þar má skilja eftir skilaboð til viðkomandi. Hægt er að flytja símtöl í talhólfið ef GSM-sim- inn er upptekinn, slökkt á honum eða hann utan þjónustusvæðis. Auðvelt er að flytja símtöl í tal- hólfið úr öllum tegundum síma og getur því sama talhólfíð nýst bæði fyrir heimilissímann og farsímann. - í nýrri þjónustu Landssímans, GSM-frelsi, sem boðin verður frá 1. desember, verður talhólf innifalið. Frekari upplýsingar er að finna í símaskránni, á www.simi.is eða í sima 800 7000. Samkeppni um stækkun - opið bréf til stjórnar Arkitektafélags íslands um Leifsstöð Enn verður Flugstöð Leifs Eiríkssonar bitbein framkvæmdaaðila vegna stækkunar og endurbóta. Örn Sigurðsson arkitekt skrifar: Undanfarið hefur á vinnustofu minni verið unnið að tillögu í sam- keppni um stækkun Leifsstöðvar. Þann 19. nóvember bárust nánari upplýsingar frá dómnefnd sam- keppninnar, þar á meðal afrit af bréfi stjórnar Arkitektafélags Is- lands til Garðar Halldórssonar arki- tekts FAÍ, þar sem staðfest er að honum sé heimil þátttaka í ofan- greindri samkeppni. Garðar Halldórsson tók þátt í hönnun Leifsstöðvar í launuðu starfi sem húsameistari ríkisins. Teiknistofa Garðars undirbjó og gaf út verulegan hluta þeirra sam- keppnisgagna sem keppendum voru látin i té. Ljóst er að teiknistofa Garðars býr yfir tölvutækum upp- lýsingum sem aðrir keppendur fá ekki aðgang að. Óhugsandi er ann- að en að Garðar og samstarfsmenn hans hafi haft persónulegt samband við einn eða fleiri dómnefndarmenn ÍUÍ^IÍMfM þjónusta allan sólarhringiiinAS ....... - eða hringið í síma 5000 Mmi'lli kl. 14 og 16 og aðra ráðgjafa dómnefndar í tengslum við þessa samkeppni. Með hliðsjón af þessari yfirburða- stöðu teiknistofu Garðars, höfum við ákveðið að hætta nú þegar þátt- töku í keppninni og afhenda stjóm Arkitektafélags íslands öll sam- keppnisgögn til eignar. Þeir sem þekkja til samkeppni í einhverri mynd skilja að þátttaka þessa aðila er fullkomlega óhæf og ákvörðun stjómar Arkitektafélags íslands fer i bága við siðareglur og starfshætti samkeppnisnefndar fé- lagsins og starfsreglur dómnefndar- manna á vegum þess. Það er von min að stjórn Arki- tektafélags íslands muni í framtíð- inni sinna betur þeirri grundvallar- skyldu að tryggja jafnræði meðal fé- lagsmanna sinna og gæta sóma arkitektastéttarinnar. Tekið skal fram að afrit af bréfi þessu eru send til utanríkisráðu- neytisins, svo og til Framkvæmda- sýslu ríkisins. Ole Kock og Stórsveitin Ragnar skrifar: Það var ánægjulegt að hlusta á Stórsveit Reykjavíkur sl. mið- vikudagskvöld í Ráðhúsinu. Þetta kvöld leysti danskur djassleikari og lagasmiður, Ole Kock Hansen, Sæbjörn Jónsson af og fékk hljómsveitarmenn til að blása einkar hugljúfum norrænum anda yfir salinn. Bæði þekktri al- þýðutónlist í útsetningu stjóm- anda og lögum eftir hann sjálfan. Án þess að rekja tónleikana frek- ar var þessum danska snillingi tekið með fognuði og hljómsveitin var samhæfð og lét „brassiö" njóta sín eins og best gerist. Það er skemmtilegt að eiga svona góða hljómsveit sem er tilbúin tfl átaka meö hvaða góðum gesti sem getur gengið inn í verk Sæbjöms sem á auðvitað aflan heiðm- af tfl- urð og hæfni Stórsveitarinnar. Óþarfa við- kvæmni vegna forseta Magnús hringdi: Ég furða mig á þeim sifellda óróa sem gýs upp þegar forseti landsins hefur tjáð sig í mæltu máli. Eins og núna á ferðalagi sinu tO Svíþjóðar. Allir vita að Ólafur Ragnar hefur áhuga á stjórnmálum, sem eru jú einu sinni uppistaða þjóðfélags okkar að meira og minna leyti. Það er ekki eðlOegt að þessi viðkvæmni gegn forseta skuli skjóta upp kofl- inum, eins og t.d. i forystugrein Mbl. sl. fimmtudag. Hvað er eðli- legra en forseti landsins tjái sig um þessi mál? Það er alveg óþarfi að hefta málfrelsi forsetans, hon- um er alveg treystandi tO að fara nægOega með löndum, að mínu mati, í orðræðum við erlenda ráðamenn. Annað er hvað blaða- menn hafa svo eftir honum, ýmist misskilið eða kryddað á ýmsa vegu. Kratar ættu að rífa sig lausa Sveinbjörn hringdi: Mér finnst ástæða tO að vara Alþýðuflokkinn við, einmitt þessa dagana þegar maðm’ verður þess áskynja að þetta samfylkingar- framboð ætlar að mistakast gjör- samlega. Ég tel heppOegt fyrir krata að rífa sig lausa og bjóða bara fram sitt fólk eins og áðm'. Ég held að fylgi krata myndi aukast verulega við sjálfstætt framboð. Alþýðubandalagið er búið að véra, tel ég, og þeir sem það kusu sem vinstrimenn kjósa nú framþoð þeirra Ögmundar, Steingríms og Hjörleifs. Ég sem kjósandi krata um langa hríö skora á forystu þeirra að hugsa alvarlega sinn gang. HlV-smit á leikskóla? Guðbjörg skrifar: Það er ekki furða þótt eitthvað vefjist fyrir fjölmiölum að greina frá hvar blessað bamið með HIV- smitiö hefur smitast og hvaða leikskóli það er sem barnið var á. Úr því á annað borð var greint frá því að HlV-smitað barn hefði komið af leikskóla, ber fjölmiðl- um skylda tO að greina frá því hvaða stofnun er um að ræða. Ekki þarf mikið tO svo að bamið heföi getað smitað önnm' böm, bara skrámu á fingri eða annars staðar sem önnur böm hefðu komið við. En er það ekki alltaf svona? Ef eitthvert ólán ber að garði, hvort sem um lús eða eyðni er að ræða þá má ekki tala hreint út um málið, heldur reynt að fela aðstæður sem mest menn mega. Auðvitað á að gefa upp nafnið á lúsaskólum og HlV-leikskóla. Þetta er alvörmnál, en ekki felu- mál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.