Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Síða 15
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998
15
Óttinn viö þögnina
Mengun 1 veröldinni
vex hröðum skrefum
eftir því sem mannkyni
flölgar og borgir
stækka, einkanlega þó
eftir því sem tæknin
leggur undir sig stærri
geira mannlífsins.
Margir íslendingar
hugga sig við, að fóstur-
jörðin hafi sloppið til-
tölulega vel við þennan
alþjóðlega vágest, og
víst má til sanns vegar
færa að loftmengun sé
hér minni en í þéttbýl-
um iðnríkjum, þó óðum
sígi á ógæfuhliðina með
fjölgandi stóriðjuverum
og skefjalausum inn-
flutningi ökutækja.
Loftmengun á Reykja-
víkursvæðinu er orðin geigvænleg
og hennar gætir í vaxandi mæli á
öðrum þéttbýlissvæðum. Um land-
eyðingu og sjávarmengun er þarf-
laust að fjölyrða.
ískyggileg hljóðmengun
Ein tegund mengunar, sem
næsta lítill gaumur hefur verið
gefinn, er sívaxandi og yfirþyrm-
andi hljóðmengun þéttbýlissvæða.
Þar erum við síst eftirbátar ann-
arra þjóða. Heill tugur útvarps-
stöðva lætur daginn langan - í
mörgum tilvikum líka næturlangt
- dynja á landslýðnum linnulaus-
an hávaða, mestanpart poppglymj-
anda; flestir vinnustaðir eru und-
irlagðir sama glamri; drunurnar
standa útúr verslunum þegar
gengið er um göturnar; skarkalinn
á flestum veitingastöðum er því-
líkur að varla heyrist mannsins
mál og magnast eftir því sem á
kvöldið líður; skólastofur eru
margar orðnar hreinustu víti há-
reysti og skarkala. Kannski eru
vasadiskóin, sem
margir ganga með
um göturnar, vörn
gegn hávaða um-
hverfisins: þar er
ein tegund hávaða
útilokuð með
annarri skárri. Er
engu líkara en ótt-
inn við þögnina sé
bráðsmitandi og
breiðist út einsog
landfarsótt.
Ekki er vitað með
neinni vissu hversu
djúptæk eða víðtæk
áhrif hávaða eru á
heilsufar manna.
Hávaði hefur að
sjálfsögðu fylgt
manninum frá örófi
alda, en aldrei fyrr
í sögunni hefur hann verið svo
einskær, yfirþyrmandi, marg-
breytilegur og umfangsmikill.
Ekki er til neitt öruggt eða ótví-
rætt mat á þvl, hve mikinn hávaða
maðurinn þolir sér að skaðlausu,
þó miðað sé við ákveðið hámark í
hljóðstyrk á hávaðasömum vinnu-
stöðum.
Óbein áhrif hávaða er torvelt að
greina, en þau eru
talin vera alvar-
legri en bein lík-
amleg áhrif.
Rannsóknir benda
til að menn sem
verða fyrir lang-
vinnum hávaða
verði uppstökkir
og andfélagslegir í
daglegu hátterni.
Starfsmenn í há-
vaðasömu um-
hverfi eru einatt þrasgjarnir bæði
á vinnustað og heimili, miklu
fremur en menn sem vinna i hljóð-
látu umhverfi.
Lúmskasti þátturinn
Vísindalegar rannsóknir á
áhrifum hávaða hafa leitt í ljós
ákveðnar líkamlegar breytingar.
Þegar menn verða fyrir miklum
hávaða hefiir það bæði áhrif á
starfsemi hjartans og blóðrásina.
Ákveðnir kirtlar og önnur líffæri
tengd taugakerfinu verða líka fyr-
ir skaðvænum áhrifum.
Kannski er lúmskasti þátturinn
í viðbrögðum okkar við hávaða
Kjallarinn
Sigurður A.
Magnússon
rithöfundur
„Sú áleitna spurníng hlýtur því
að vakna, hvort við kjósum held-
ur að láta átrúnaðinn á tæknina,
sem við höfum ánetjast, breyta
lífi okkar í glymjandi martröð eða
breyta tækninni okkur í hag.“
„Kannski eru vasadiskóin, sem margir ganga með um göturnar, vörn
gegn hávaða umhverfisins: þar er ein tegund hávaða útilokuð með
annarri skárri."
og þeirri ónáttúrlegu streitu sem
nútímatækni leggur á okkur sá,
að við virðumst aðlagast ástand-
inu. Óþægilegan hljóðstyrk má
einatt þurrka útúr vitundinni, sé
hann nógu langvinnur. En sú
staðreynd að við getum, ef svo ber
undir, útilokað hávaða og ýmis
önnur óþægileg áreiti, merkir
enganveginn að við bregðumst
ekki við þeim. Meðan áreitið var-
ir er afleiðingin einhverskonar
streita.
Hávaði er eitt þeirra margvis-
legu fyrirbæra nútímalífs sem
valda bæði meðvitaðri og ómeðvit-
aðri streitu. Hann stuðlar að flótta
manna frá sjálfum sér og öðrum.
Hann grefur tvímælalaust undan
þeim lifsgæðum, sem hver einstak-
lingur sækist eftir, og getur þegar
verst lætur leitt til geðtruflana eða
annars verra. Sú áleitna spuming
hlýtur því að vakna, hvort við
kjósum heldur að láta átrúnaðinn
á tæknina, sem við höfum ánetj-
ast, breyta lífi okkar í glymjandi
martröð eða breyta tækninni okk-
ur í hag.
Sigurður A. Magnússon
Eyvindar koma af fjöllum
Nú er staðfest að umhyggja
Framsóknar fyrir Fjalla-Eyvindi
og Höllu kemur frá hjartanu.
Varðinn sem Frammarar reistu
útlögunum tveim í búri á Hvera-
völlum í sumar er sjálfsmynd
Framsóknarflokksins í næstu
kosningum og heitir Eyðimerkur-
gangan í Kjörklefanum. Framsókn
kemst ekki nær kjósendum sínum
en til Hveravalla eftir að dagblað-
ið Tíminn var sameinað vikulegri
sjónvarpsdagskrá norður í landi.
En það er nú önnur Ella.
Duttlungar á öræfum
Helstu Fjalla-Eyvindar Fram-
sóknar hafa ekki látið deigan síga
að undanfómu og einn og átta
ofan komu af fjöllunum. I haust
kom til byggða landbúnaðarráð-
herrann i umhverfisráðuneytinu
og er það ekki í fyrsta skiptið sem
ráðherrann kemur af fjöllum í
ráðuneytinu.
Reykvíkingum er í fersku minni
þegar ráðherrann flutti Landmæl-
ingar íslands hreppaflutningum
upp á Akranes með Akraborginni
og skildi starfsmenn eftir atvinnu-
lausa í höfuðborginni. En slíkir
em duttlungar örlaganna og öræf-
anna að sami ráðherra flúði
skömmu seinna á náðir íbúðalána-
sjóðs í Reykjavík.
Höllustaðir um
Hvalfjarðargöng
Ekki hafði atvinnulaust starfs-
fólk Landmæl-
inga fyrr skálað
fyrir að fá gamla
ráðherrann sinn
á launaskrá í ná-
grenninu þegar
sjálfur félags-
málaráðherra tók
enn til sinna
ráða. Leysti nú
upp veðdeild
Landsbanka ís-
lands og holaði
svo hálfum íbúða-
lánasjóði niður í
túnfótinn heima á Höllustöðum
norður og framan við nefið á tár-
votum Húsvíkingum.
Svona umgengst
Framsóknarflokkur-
inn vinnandi fólk í
þéttbýli og við flutn-
ingana fjölgar enn at-
vinnulausum í
Reykjavík enda eru
refirnir til þess
skomir. Flutningarn-
ir staðfesta líka að al-
ræmt Reykjavíkur-
vaidið er ekki í hönd-
um Reykvíkinga
heldur pólitískra ný-
búa á sauðskinns-
skóm.
Eyvindar
alheimsins
Dómari nokkur í
Reykjavík undi ekki
að gamall fangelsis-
málastjóri væri tekinn fram yfir
hana í embætti ríkislögreglu-
stjóra. Dómarinn átti hins vegar
óhægt um vik að höfða mál gegn
dómsvaldinu því aðrir dómarar
heíðu orðið að víkja úr dómi
vegna tengsla þeirra við þennan
kollega sinn.
Á sama tíma skipa Fjafla-Ey-
vindar Framsóknar hverjir aðra í
feit embætti. Eiga aðrir og betri
siðir að gilda fyrir dómara lands-
ins en þingmenn Framsóknar-
flokksins?
Skoðanakönnvm í
sumar sýndi að kjós-
endur treysta Al-
þingi síst af öllum
stofnunum ríkisins
til að gegna hlut-
verki sínu. Þing-
menn Framsóknar
halda hins vegar
áfram að treysta
hver öðrum fyrir
betri embættum og
betur en þeir treysta
kjósendum.
DV er smá-
auglýsingablaðið
Af hverju ljúka
þingmenn ekki kjör-
tímabili sínu með
pompi og prakt og
leita svo að starfi
eins og annað fólk? Auglýsa til að
mynda eftir vinnu í smáauglýsing-
um DV. Eða finnst þeim kjörbréfið
á Alþingi vera ævilangur starfs-
mannapassi að betri embættum
þjóðarinnar? Af hverju freista til
dæmis Fjalla-Eyvindar ekki gæf-
unnar á vinnumarkaði eins og
þeir þorðu þó að gefa kost á sér í
pólitík? - Og hvaða embætti í
Reykjavík bíður svo eftir Fjalla-
Eyvindinum frá Höllustöðum að
lokinni þingsetu?
Ásgeir Hannes Eiríksson
„Skoðanakönnun í sumar sýndi að
kjósendur treysta Alþingi síst af
öllum stofnunum ríkisins til að
gegna hlutverki sínu. Þingmenn
Framsóknar halda hins vegar
áfram að treysta hver öðrum fyrir
betri embættum og betur en þeir
treysta kjósendum.“
Kjallarinn
Ásgeir Hannes
Eiríksson
verslunarmaður
Með og
á móti
Hannes H. Sigurös-
son hjá Vinnuveit-
endasambandi ís-
lands.
Eiga trúnaðarlæknar
fyrirtækja rétt á sér?
Trúnaðarlæknar
hluti af heilsu-
verndinni
„Heilsuvernd starfsmanna á
vinnustöðum snýr að sérstökum
aðstæðum í starfsumhverfinu
sem áhrif geta haft á ákveðna
heilsufarsþætti starfsmanna og er
fyrst og fremst
fýrirbyggjandi.
Trúnaðarlækn-
ir getur verið
hluti af heilsu-
verndinni en
hún snýr að
mun fleiri þátt-
um en læknis-
fræðilegum.
Þar er um að
ræða fjölmarga
tæknilega
þætti sem lúta
að því að koma í veg fyrir skaðleg
áhrif umhverfisins og fyrirbyggja
þannig að starfsmenn hljóti skaða
af. Mörg stærri fyrirtæki hafa
kosið að koma sér upp trúnaðar-
lækni, umfram skyldu, sem gjör-
þekkir aðstæður í viðkomandi
fyrirtæki. Verkefhi hans er m.a.
að sinna ráðgjöf um áhættuþætti
og heilsufarslegar afleiðingar
þeirra. Það er algengur misskiln-
ingur að í hugtakinu heilsuvemd
starfsmanna felist almenn heilsu-
gæsla þeirra en svo er ekki held-
ur snýst hún um fyrirbyggjandi
aðgerðir gegn atvinnutengdum
sjúkdómum. Þar hafa læknar
hlutverki að gegna ásamt fleiri
sérfræðingum um vinnuvernd.
Það að fyrirtæki kjósi að leita til
tiltekins læknis sem gjörþekkir
innra umhverfi fyrirtækisins
fremur en t.d. opinberrar heilsu-
gæslustöðvar hlýtur að vera skil-
virkara í fyrirbyggjandi starfi."
Siðspillt kerfi
„Það hefur verið mikil umræða
um gagnagrunninn hans Kára en
frestað hefur verið að leggja fram
frumvarp um hann vegna þess að
það er hætta á að persónulegar
upplýsingar
leki út. Það
sem er að ger-
ast i þessu máli
með heilsu-
vernd launa-
fólks, sem ég
hef barist
manna mest
fyrir, er að nú
er þrýst enn
meira á að lög
frá 1980 um það
að læknisskoð-
un starfsmanna skuli fara fram á
sjúkrahúsi eða heilsugæslustöð
taki gildi.
Jafnvitlaust og það er var trún-
aðarlæknum fyrirtækja falið að
sjá um þessa skoðun.
Trúnaðarlæknamir geta jafn-
vel skipaö starfsmönnum, og hafa
gert þaö, að mæta hjá sér, að við-
lögðu því að þeim verði sagt upp
ef þeir mæta ekki. Síðan fer fram
þessí hefðbundna læknisskoðun
og trúnaðarlæknarnir leyfa at-
vinnurekendum að hafa aðgang
að þessum gögnum. Þetta er svo
siðspiflt kerfi að það er ótrúlegt.
Ég hef barist fyrir breytingum
á þessu kerfi í þrettán ár innan
verkalýðshreyfingarinnar en for-
ystumenn verkalýðshreyfingar-
innar eru bara nývaknaðir til
meðvitundar um hversu alvarlegt
þetta mál er.“ -GLM
Siguröur T. Sig-
urösson, formaöur
verkamannafélags-
ins Hlífar.
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
greinum í blaðið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á Netinu.
Netfang ritstjórnar er:
dvritst@centrum.is