Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Page 16
16 enning MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 UV Lesið á eigin ábyrgð Bjarni Bjarnason vakti athygli fyr- ir tveimur árum fyrir skáldsöguna Endurkomu Maríu sem virtist ein- hvern veginn koma úr öðrum stað en aðrar sögur það ár. Á þessum vetri kemur út eftir Bjarna skáldsagan Borgin bak við orðin, ekki síður óvænt og óvenjuleg saga sem gæti átt upptök sín í fornum sagnabrunnum kynslóðanna - og við spyrjum fyrst, svolítið barnalega: Hvaðan kemur þessi saga? Táknmál gullgerðarlistar „Ja,“ segir Bjami hikandi, „frá sjálfum mér. Ég reyndi þegar ég skrifaði hana að skapa heim sem lyti algerlega eigin lögmálum, persónur sem ég hef hvergi séð, nýjan sögu- þráð og sögusvið. Það eina sem ég reyndi ekki að skálda upp voru til- fmningarnar. Ég reyndi að hafa þær sannar. En stílinnblástur sótti ég mér í drauma sem ég hef gert mikið af að skrá og gullgerðarlist." Blaðamaður verður langleitur við þessar upplýsingar og Bjarni útskýr- ir: Bjarni Bjarnason - sækir stílinnblástur í drauma og forna gullgerðarlist. DV-mynd Teitur „Gullgerðarlistin er eldri en kristnin, þetta er dulspeki sem hefur verið við lýði um þúsundir ára en náði há- marksblóma á 16.-17. öld með kristnum dulspekingum. Þeir nota táknmál til að lýsa ákveðnum efnaferlum við að búa til gull eða eilífðarlyf, og það er þetta tákn- mál sem mér finnst svo heillandi. Þeir nota koparstungur til að lýsa list sinni og ímyndunaraflið bak við þær er ótrúlegt. Rýni maður í smáatriðin sér maður hluti sem hvergi sjást annars staðar. Þeg- ar þeir lýsa til dæmis fljót- andi efni sem verður fast þá er fasta efnið ljón og fljót- andi efnið ormur og til að lýsa breytingunni láta þeir ljónið éta orminn. Gullgerðarmennirnir náðu aldrei árangri - þeim tókst aldrei að búa til gull eða eilífð- arlyf - þeir reyndu mikið í Kína að búa til eilífðarlyf handa keisurunum en það hafði bara þau áhrif að keisarar þar voru óvenju skammlífir! - en aldrei misstu gullgerðar- mennimir trú á sinum vísindum þrátt fyr- ir það.“ Borgin bak við orðin gerist í tveimur heimum: í tímalausum goðsagnakenndum heimi og í raunveraleika stórborgar í nú- tímanum. Söguhetjan er drengur sem hafnar á götum þessarar borgar og enginn veit hvaðan hann kemur en þegar fólk spyr segir hann þvi ævintýralegar sögur úr ónefndu konungsríki sem hann fullyrð- ir að séu heimkynni sín. Er hann geðveik- ur? Eða er hann skáld? „Aðalatriðið er að fólkið heillast af sög- unum, finnst þær fallegar," segir Bjarni. En sú spurning verður áleitnari hvort hann sé að skálda eða hvort einhver veruleiki búi á hak við sögurnar hans. Hann trúir því sjálfur að sögumar séu veruleikinn - og kannski er skáldskapurinn eins konar sann- leikur. Svo gæti þetta ríki verið mynd af sálarlífi drengsins." Frelsi staðleysunnar - Af hverju gerist sagan í nafnlausri borg en ekki bara í Reykjavík? „Ég hef skrifað bók sem gerist í Reykjavik en gallinn við það er að þegar lesandinn sér lýsingar á umhverfi sem hann þekkir fer hann ósjálfrátt að bera þær saman við eigin reynslu. Þegar mað- ur býr til alveg nýtt umhverfi þá hverfa þessir mælikvarðar. Það gefur mér svo mikið frelsi. Ég er að reyna að nálgast les- andann meira og með því að nota að hluta annarrar persónu frásögn í sögunni er ég að varpa meiri ábyrgð á hann. „Lesirðu lengra ertu að selja sál þína,“ segi ég strax í byrjun. Ég vii að hann upplifi þetta eins og hann sé sjálfur að segja frá. Að sagan sé hans eigin hugsanir." - Þetta frásagnarform er sjaldgæft í skáldsögum - er það erfitt? „Já, en þegar ég var kominn af stað varð þetta „þú“-orð eins og sláttur í trommu, góður taktur sem skapaði eins konar galdrastemningu. En ég hvíli les- andann með fyrstu persónu frásögn þegar drengurinn er að segja sögurnar sínar." - Heldurðu að sagan gæti plumað sig í útlöndum? „Ég veit ekki. íslenskur veruleiki er nógu framandi fyrir erlendan lesanda. Að lesa bók eftir íslending sem er framandi á annan hátt er kannski einum of langt gengið. Þessar sögur mínar eru ekki það sem fólk býst við af íslenskum höfund- um.“ - Hvað viltu segja við nýjan lesanda sem tekur upp þessa fallegu grænu bók? „Ég segi bara að lesturinn sé alveg á hans ábyrgð! Ég vara hann við í bókar- byrjun og ef hann tekur ekki mark á því er hann á eigin vegum.“ Borgin bak við orðin hlaut bókmennta- verðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár. Vaka-Helgafell gefur hana út. 7 ævidagar Önnur ljóðabók Kjartans Árnasonar heitir 7 ævi- dagar og skiptist í sjö daga eins og vikan. Þetta er skemmtilegt ljóðasafn og þrungið tilfmningum sem að vísu eru oft myrkar en tjáðar á hnyttinn og stund- um ögrandi hátt. Það að við lifum og hvernig við lif- um og lifum jafnvel fleira en einu lífi eru yrkisefni í mörgum ljóðum, og þar er dauðinn, eyðingin, jafnan ' leiðarstef Bjartsýni og svartsýni togast á - til dæmis I í einu besta ljóði bókarinnar sem lýsir eyðingunni á I sterkan myndrænan hátt en ber hið vonglaða nafn ,,- til að byrja upp á nýtt“: fj nafn mitt er aó skrifast af þessari örk - oddurinn tifar frá hœgri til vinstri sýgur upp bugöur og punkta t hvítan eltir :s allar minar athafnir lifast upp á nýtt allar mínar hugsanir u. hugsast upptil agna I og vatniö | sem runniö er til sjávar sogast upp farvegina rís uppá hamrana togast til lindar og brátt mun ég hverfa nafnlaus og án alls til uppsprettu minnar - Kjartan hefur, auk ljóðabókanna, gefið út smásög- ur, örleikrit og skáldsöguna Draumur þinn rætist | tvisvar sem Hljóðbókaklúbburinn hefur einnig gefið út og er hún fyrsta hljóðskreytta skáldsagan sem kemur út hér á landi. Innan skamms er væntanleg barnabók eftir Kjartan á hljóðbók frá Hljóðbóka- I klúbbnum. Örlagið gefur 7 ævidaga út. Jólasveinabók Elsa E. Guðjónsson, textíl- og búningafræðingur, hefur gefið út nýja útfærslu á íslensku jólaveinunum I í dálítilli bók. Hún heitir Jólasveinarnir þrettán á Is- : lensku, en vísurnar um þá hrekkjóttu sveina eru líka ; á dönsku og ensku í bókinni. Þær urðu reyndar fyrst | til á dönsku og voru ortar handa barnabarni Elsu sem j þar býr. Seinna bættust svo hin tungumálin við. Um Gáttaþef yrkir Elsa á þessa leið: Hvis Sprœkkesnuser duft fra fad mœrker, bli’r han altid glad. Roget fár og rádden haj frister mest det gamle kvaj. Doorway Sniffer ‘hind the door awaits the kitchen Yule-odour: he shark well cured enjoys to smell, and mutton smoked he likes as well. Gáttaþefi gríöar nef gefiö var, og allan þef finnur upp í fjöllin há. Felum hangikjötiö. Vá! Eintal sálarinnar Myndimar við vísumar eru sérstæðar; þær hefur | Elsa saumað út meö íslensku ullarbandi, einbandi frá | ístex hf., með gamla íslenska krosssaumnum. í eftir- mála sínum kennir höfundur lesendum að sauma þetta spor á íslensku og ensku og á skýringarmynd, og stuttur fróðleikskafli fylgir um íslensku ullina. Höfundur gefur bókina út. Þórey Sigþórsdóttir og Hilmir Snær Guðnason lesa hér saman úr Sífellum eft- ir Steinunni Sigurðardóttur. Loksins hefur fundist leið til að nota sjónvarp til að miðla ljóðum; það sjáum við í „Ljóði vikunnar" fyr- ir fréttir og í dagskrárlok í Sjónvarpinu á sunnudags- kvöldum. Þórey Sigþórs- dóttir leikkona og Kristín Bogadóttir ljósmyndari eiga heiðurinn af því að hafa kippt ljóðunum ofan af staflinum og flutt þau inn i hversdagslegan veru- leika - jafnvel inn í eldhús og bað, „Okkur langaði til að gera ljóðið persónulegt eins og það er þegar við lesum það i einrúmi," segir Þórey. „Nema burtu milli- liðinn - blaðið eða bókina sem flytjandinn heldur á - og láta hann ná augnsam- bandi við þig sem horfir á. Þá verður ljóðið það eintal sálarinnar sem það upprunalega er - hugsun eins flæðir óhindrað inn í huga annarrar manneskju. Okkur finnst ljóðið koma miklu nær hlustandanum með þessu móti.“ Hugmyndin fæddist þegar Þórey sýndi einleikinn Skilaboð til Dimmu eftir Elísa- betu Jökulsdóttur í Norræna húsinu fyrir fjórum árum. Þá lék Þórey 15 ljóð eftir konur upp á myndband sem var sýnt á eft- ir einleiknum. Þessi fyrstu ljóð eru hluti af ljóðunum 50 sem verða flutt í sjónvarp- inu á næstu mánuðum en fleiri flytjendur hafa bæst við. Ljóðin eru flest tekin úr námsbókum og Námsgagnastofnun hefur keypt allan pakkann til sýninga í skólum. „Þegar ljóðin voru prufukeyrð í skólum upp- veðruðust börnin,“ segir Þórey, „það virkaði mjög hvetjandi á þau að sjá hvernig hægt væri að vinna með ljóð.“ Ljóðin eru tekin upp inni á einkaheimilum. „Þau eiga eftir að verða söguleg heimild um heimili vina minna á þessu timabili," segir Þórey og hlær. Viðbrögð- in hafa verið geysilega góð þessar vikur síðan byrjað var að sýna ljóðin. Nokkur ljóðanna voru sýnd í menningarþætti í sjónvarpi í Svíþjóð og vöktu sterk viðbrögð; einnig þar þótti aðferðin nýstárleg. - En er hægt að leika öll ljóð? „Ég veit það ekki - en held þó að þau henti þessu formi misvel," segir Þórey. „í þessum umgangi völdum við bara ljóð sem kveiktu hjá okkur hugmyndir um leið. Aðalatriðið hjá okkur var þó alltaf að láta formið - tæknina - aldrei yfirgnæfa ljóðið. Það sjálft skiptir mestu máli.“ Sáðmaðurinn Bókin Sáðmaðurinn eftir Harald S. Magnússon geymir rúmlega hálft hundrað ljóða sem ort eru und- ir frjálsum háttum. Yrkisefnin eru náttúran, lífið og tilveran - og ástin á einnig sinn kafla í þessum ljóð- um, bæði sæt og súr. Nokkur ljóðanna sýna að Haraldi er annt um mál- ; leysingjana; til dæmis er meiri samúð með fórnar- lambi en byssumanni í ljóöinu „Rjúpan": I Það marrar í hjarninu, þegar veióimaöurinn greikkar sporið. Vœngbrotin rjúpan berst vonlausri baráttu. Veiöimaöurinn bœtir blóöugri rjúpu á jólaboröiö. Höfundur gefur bókina út sjálfur. Umsjón Silja Aðalstelnsdóttir mmmmmmmummtmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.