Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Side 23
MANUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998
23
Fréttir
Gamla kirkjan Stykkishólmi:
Fjölmenni við vígsluna
DV, Vesturlandi:
Vígsla gömlu kirkjunnar í
Stykkishólmi fór fram 22. nóvem-
ber. Fjölmenni var við athöfnina,
gestir víða að ásamt prestum sem
þjónað hafa í Stykkishólmspresta-
kalli.
Um vígsluna sá biskupinn yfir
íslandi, herra Karl Sigurbjörns-
son. Athöfnin var mjög hátíðleg.
Börn úr Tónlistarskóla Stykkis-
hólms og sóknarnefnd tóku virkan
þátt í henni. Lárus Kr. Jónsson tók
að sér að hringja kirkjuklukkun-
um en hann var hringjari í Stykk-
ishólmskirkju í 40 ár.
í ræðu formanns endurbygging-
arnefndar, Rakelar Olsen, kom
fram að endurbyggingarnefnd
hefði tekið við verkinu fyrir rúmu
ári. Kostnaður var þá kominn í 5,7
milljónir króna og þá í vanskilum
lán í Búnaðarbanka upp á 3 millj-
ónir. Framlag Stykkishólmsbæjar,
3 milljónir, fór i að greiða það lán.
Nefndin borgaði reikninga - 8,8
milljónir fyrir efni, þjónustu og
vinnu. Gjafafé nam verulegum
upphæðum. Sagði Rakel að ákveð-
ið hefði verið að hafa hljótt um
gefendur en þeim færðar alúðar-
þakkir. Stuðningur þeirra væri
ómetanlegur. Verkinu var skilað
skuldlausu og sóknarnefnd hefur
nú tekið við kirkjunni aftur. Jón
Nordsteien sá um verkið.
Auk hans komu margir þar að
og rétt að geta þeirra Baldurs Þor-
leifssonar yfirsmiðs, Sigurðar
Þórs Lárussonar og Jóns Svans
Péturssonar málarameistara.
-DVÓ/ÓJ
;
.
Jimny er alvöru ieppi byggður
sjálfstæðri grind og með
«*3««
Alvöru Suzuki jeppi
á verði smábílsl
hátt og lágt drif.
Flottur í bæ, seigur á fjöllum
Suzuki Jimny er sterkbyggður og öflugur sportjeppi,
byggður á sjálfstæðri grind og með hátt og lágt drif. Það
er sama hvort þú ætlar með vinina í fjallaferð eða á
rúntinn niður í bæ, Jimny er rétti bíllinn!
1.379.000;- beinskiptur
1.499.000,- sjálfskiptur
JIMNY er nýr jeppi, framleiddur í Japan og
frumsýndur í októberbyrjun í Reykjavík og París.
$ SUZUKI
nHC-
SUZUKt SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ölafsson, Garðabraut 2, sími 4B1 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásgútu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: SIJ7IJKT RTT AR HF
Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjöröur: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði,
sími 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan,Grófinni 8,sími421 12 00.Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5,simi 482 37 00. Skeirunni 17. Sími 568 51 00.
Hvammstanga:Bila-og búvélasalan, Melavegi 17,sími451 26 17. Heimasíða: www.suzukibilar.is
1/2 lítri
kraftmikM! orkudry'kkur
L.eigan í þínu hverfl