Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Qupperneq 24
24 MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 Fréttir Landbúnaðarmál í brennidepli - á fundi í Sævangi við Hólmavík á Ströndum DV, Hólmavík: Horfur eru á aö tekjur sauðfjár- bænda lækki og hagur þeirra versni miðaö við síðasta ár. Veldur því lækkun á verði ullar og nánast verðhrun á gæruverði vegna efna- hagsástands í Rússlandi og kreppu í viðskiptalöndum í nokkrum Asíu- löndum. Horfur varðandi kjötsölu eru aftur á móti betri en verið hef- ur lengi, vandi vegna kjötbirgða varla eða ekki til staðar og horfur á að skilaverð til bænda vegna út- flutnings verði betra en verið hefur. Þetta kom fram á fundi um land- búnaðarmál á Sævangi nýverið en þrír úr framvarðarsveit bænda voru þar frummælendur. Guðmundur Stefánsson hagfræð- ingur sagði að hlutfall kindakjöts í innanlandssölu hefði minnkað und- anfarin ár, búum fækkað en þrátt fyrir nokkra stækkun þeirra hefði afkoma bænda ekki batnað. Minnka þyrfti framleiðslukostnað. Hann sagði að undanfarin ár hefði mjólk- urstöðvum fækkað úr 17 í 12 og slát- urhúsum um 40%, væru nú 19. Hann benti á mikilvægi afurða- stöðva í þessu kerfi, þær þyrfti að reka vel. Samkeppnin væri nægjan- leg en fara þyrfti varlega í að byggja upp nýjar stöðvar. Gunnar Sæmundsson vakti at- hygli á einum þætti þessa máls. Hann sagði að 2 manneskjur, hjón, gætu nokkuð auðveldlega sinnt vel yfir vetrartímann 800-1000 fjár. Þó nægir sumarhagar væru til staðar kæmu annmarkarnir fram vor og haust þegar féð væri heima við bæi. Þá væri mikil hætta á og þess dæmi að land yrði að flagi. Það væri and- stætt góðum búskaparháttum. Eng- inn hefði rétt til að fara þannig með landið. Georg Jón Jónsson, bóndi á Kjörseyri, tók undir þetta og sagði að þessi stærðarhagkvæmni ætti sér veruleg takmörk. Ari Teitsson, form. bændasam- takanna, benti á mikilvægi þess að bændur nytu velvildar ísl. neytenda sem keyptu meginhluta framleiðsl- unnar. Þó ekki af gærunum eða ull. Hann telur að á síðustu árum hafi bændum tekist vel að framleiða góð- ar landbúnaðarvörur. „En það er fleira en verð og gæði sem hefur áhrif á ímyndina. Við þurfum að huga að ýmsu í um- gengni við landið." Margir bændur hefðu reynt að bæta ásýnd landsins með því að hreinsa fjörur, fjarlægja ónýtar girðingar og fegra umhverf- ið. Þeirri vinnu þyrfti að halda áfram. Það sem nú þyrfti líka og jafnvel frekar að beina kröftum að væri að fækka stöðum þar sem Ari Teitsson var meðal frummælenda í Sævangi. búfé og einkum sauðfé væri við og á vegum. Alltof víða væri áberandi að sauðfé væri vegamegin við veggirðingar. Það væri óheppilegt og mætti ekki láta afskiptalaust. Þar sem óhjákvæmilegt væri að sauðfé væri við vegi yrðu settar viðvaranir. „Þetta skiptir miklu máli í sambandi við ímyndina, við getum ekki látið þetta afskipta- laust,“ sagði Ari. Bændur sóttu fundinn allvel en fram komu athugasemdir um fund á miðjum degi og of marga frummæl- endur. Sumir fundarmanna voru komnir heim til verka þegar fyrir- spurnum þeirra var svarað af frum- mælendum. -Guðfinnur 3 GÓÐIR FYRIR VETURINN! BMW 525 IX (4x4), ek. 98.000, Beinskiptur. árg.'95. m. leðri o.fl. Verð 2.680.000. Mercedez Benz 300 E 4matic. árg. '91, ek. 105.000, sjálfskiptur, topplúga , Rafdr. í sætum o.fl. Verð, 2.090.000. Toyota LandCruiser VX, árg.'90, ek. 142.000, beinskiptur. 2 eigendur frá upphafi. Bíll sem fékk fyrsm einkunn í söluskoðun (26/11 98). Verð, 1.690.000. Upplýsingar veittar í síma 898 5202. Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kynnti forráðamönnum Árbæjarskóla nýlega nýtt námsefni í neytendafræðslu fyrir grunnskóla. Námsefnið á meðal annars að efla skilning barna á fjármálum, réttindum og skyldum neytenda og áhrifum auglýsinga. DV-mynd GVA. Snjólaus Steingrímsfjarðarheiði: Fá hríðarskot vestra DV, Hólmavik: „Það hefur nánast ekkert þurft að ryðja snjó af Steingrímsfjarðarheiði það sem af er vetri. Við höfum í nokkur skipti farið með tæki á krapað svell og ísingu,“ segir Jón Hörður Elíasson, um- dæmisstjóri Vegagerðarinnar á Hólma- vík. Hann segir nokki’u öðru máli gegna með leiðina norður i Árneshrepp. Á þeirri leið hafi fest mun meiri snjó í þessum fáu hríðarskotum sem komið hafa. Veðurhæð þar hefur líka oftast verið mun meiri en sunnar í sýslunni. Fyrr i þessum mánuði var leiðin noröur opnuð. Það var þó nokkurt verk en síðan hefur ekki lagt mikinn snjó. Leið- in norður verður opnuð, gerist þess þörf, af og til fram til jóla að minnsta kosti. Það fer þó eftir veðri og umfangi þess verkefnis hvaöa daga eða hve oft það verður. Mokstursvél, sem er við Gjögurflugvöll, mun ryöja leiðina suður þegar þess gerist þörf á móti tækjum sem koma frá Hólmavik, svo sem verið hefur. -Guðfinnur Langur jólalaugardagur í miðborg Reykjavíkur Kaupmenn, veifingamenn og aðrir þjónustuaðilar í miðborginni, athugið: Næsti langi laugardagur er 5. desember. Jólalaugardagar eru 12. og 19. desember. Þeim sem vilja tryggja sér pláss fyrir auglýsingu í DV föstudaginn 4. desember er bent á aö hafa samband vió Sigurb Hannesson sem fyrst í síma 550 5728 eba 550 5000. Skil í langan laugardag 5. desember: Auglýsinga- pantanir þurfa að berast fyrir kl. 16 mánudaginn 30. nóvember, auglýsingum ber að skila fyrir kl. 16 þriðjudaginn 1. desember. v.t . . Aukablöð um jóla- aga vei tudagana 11. esember. a i uy 1:1 l I ■. f| WBm ÍÍÍMIII 1 fy H

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.