Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Side 26
34 MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 Ííj^ vi) -iSJiyiJÆ ■ Sigur Rós Hin frábæra hljómsveit, Sigur Rós, heldur úti ágætri heimasiðu á slóðinni http://www.fortu- necity. com/tinpan/flo wer- ed/85/index.html Það eina sem vantar á hana eru nýjustu fréttir af piltunum. Breska músíkpressan Hið gamalgróna breska vikurit, New Musical Express, NME, fær- ir manni allt það nýjasta úr tón- listarheiminum á slóðinni http://www.nme.com/ Ys og þys íslenska útvarpsfélagið veitir upplýsingar um allar sjónvarps- og útvarpsstöðvar sínar á heima- siðunni http://www.ys.is/ Herra Baun Aðdáendur leikarans breska, Rowans Atkinson, geta fengið ýmsar upplýsingar um kappann á heimasíðunni http://www.dream- states.net/movies/rowan/ Víraðir Á heimasíðunni http://www.wired.com/ má lesa um allt það nýjasta sem er að gerast í tölvuheiminum í dag og reyndar margt annað. Islensk netfangaskrá Ert þú að leita að netfangi ein- hvers? Þá er tilvalið að leita á slóðinni http://www.netfang.is/ og skrá netfang sitt í leiðinni. Tónlistarmyndbönd Á heimasíðunni http://www.musicvideos.com/ er hægt að sjá fjöldann allan af tónlistarmyndböndum fyrir ná- kvæmlega 0 kr. List- sýn- ingar Eitt af ijölmörg- um lista- söfnum á Netinu er að fmna á slóð- inni http://www.cybera- genz.com/museum/ Þar eru sýnd listaverk sem gerð eru á tölvur. Microsoft fær loksins verðuga samkeppni: Nýr risi fæðist á tölvumarkaðinum - AOL, Netscape og Sun Microsystems í eina sæng í síðustu viku var tilkynnt að risafyrirtækið America Online, AOL, myndi kaupa Netscape vafra- fyrirtækið fyrir nær 300 milljarða íslenskra króna og fyrir dyrum stæði samvinna við Sun Microsy- stems. Þar með hafa gengið í eina sæng þrír af helstu andstæðingum Microsoft-risans sem margir hafa talið að sé að gleypa tölvuheiminn með húð og hári um þessar mundir. AOL er langstærsta fyrirtækið í Bandaríkjunum sem býður al- menningi upp á aðgang að Netinu en rúmlega 14 milljónir manna kaupa þjónustu fyrirtækisins. Keppni Netscape og Microsoft á vaframarkaðinum er vel þekkt en þar hefur baráttan verið hörð og er um þessar mundir eitt aðalefni málaferla Bandaríkjastjómar gegn Microsoft. Sun Microsystems er höfundur Java forritunarmálsins sem talið er vera stærsta ógnunin við yfirburði Microsoft á hugbún- aðarmarkaðinum, auk þess að framleiða og selja vélbúnað i mikl- um mæli. Það er því ljóst að hér er um risasamruna að ræða og eftir hann verður Microsoft búið að eignast skæðan keppinaut. Hætt við málarekstur? í kjölfar tilkynningar um sam- runann fóru lögmenn Microsoft fram á það við ríkisstjórn Banda- ríkjanna að hætt yrði við málarekst- urinn gegn fyrirtækinu. Að þeirra mati ber samruninn þess vitni að samkeppnin á tölvumarkaðnum sé mikil og eðlileg og þvi sé það regin- firra að Microsoft einoki markaðinn og hindri með því framfarir. „Það er mál að linni,“ sagði John Warden, aðallögfræðingur Microsoft. „Þessi fyrirtæki, sem eru í samkeppni við Microsoft, eru ekki á undanhaldi. Þau eru sterk og berjast gegn okkur af fullum krafti.“ Réttarhöldin yfir Microsoft eru nú í fullum gangi og búið að yfirheyra helming þeirra 12 sem bera munu vitni í málinu. David Boies, sem er aðalsaksókn- ari fyrir hönd Bandarikjastjórnar, segir þó að þetta muni engin áhrif hafa á réttarhöldin. Að hans mati sýnir samruninn frekar að aðgerðir Microsoft til að klekkja á Netscape hafi neytt fyrirtækið út af markaðn- um. James Barksdale, forstjóri Netscape, hefur ástæðu til að brosa um þessar mundir. AOL hefur keypt fyrirtæki hans og mun þar með verða hluti af nýj- um tölvurisa sem ætti að geta veitt Microsoft nokkra samkeppni. Mörg sóknarfæri En hvað er það eiginlega sem þessi þrenning getur boðið upp á í slagnum við risann? Aðalstyrkur- inn liggur í að fyrirtækin hafa mikla reynslu hvert á sínu sviði. AOL hefur lítið lagt upp úr við- skiptum við fyrirtæki og einbeitt sér að mestu að þjónustu við neyt- endur. Það hefur skilað sér í gríð- arstórum hópi áskrifenda að þjón- ustu fyrirtækisins. Netscape hefur hins vegar aðallega átt viðskipti við önnur fyrirtæki á meðan það hefur troðið marvaðann 1 slagnum við Microsoft. Sennilega er þó þáttur Sun Microsystems hvað forvitnilegast- ur í samstarfinu. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í sölu vél- og hugbúnað- ar til fyrirtækja og stendur vel að vígi á þeim vígstöðvum með her sölufólks og góð sambönd á mark- aðnum. Fyrirtækið mun því auka möguleika Netscape og AOL á að eiga viðskipti við önnur fyrirtæki. í staðinn mun það nú geta boðið upp á fjölbreyttan hugbúnað frá Netscape og netaðgang frá AOL sem mun styrkja sess þess enn meir. Sá vettvangur sem mun senni- lega veita nýja tölvurisanum einna mestu sóknarfærin er sala á heild- arlausnum, þ.e. hugbúnaði, vél- búnaði og þjónustu, til fyrirtækja sem vilja hefja verslun á Netinu. Nú getur samsteypan nefnilega selt fyrirtækjum af öllum stærðum net- verslun með öllu tilheyrandi á einu bretti. Það er ljóst að slíkur pakki mun freista margra fyrir- tækja sem vilja komast inn á hinn sívaxandi markað á Netinu en hafa ekki næga þekkingu eða búnað til að byggja slíka verslun frá grunni. Það eru því spennandi tímar fram undan og ljóst að samkeppn- in verður gríðarleg á þessum markaði næstu mánuðina. Þó svo enn eigi eftir að sannfæra marga um að Microsoft hafi loks fengið verðugan keppinaut eygja and- stæðingar fyrirtækisins nú í fyrsta skipti í langan tíma örlitla vonar- glætu um að hægt sé að standa uppi í hárinu á Bill Gates og félög- um. -KJA Samkeppni á Islenska menntanetinu: Nemendur búa til rafræn jólakort Á íslenska menntanetinu stendur nú yfir athyglisverð samkeppni. Þar er grunnskólanemum boðið að senda inn eigin jólakort á tölvu- tæku formi. Öll innsend kort eru sýnd á heimasíðu íslenska mennta- netsins á slóðinni http://www.is- mennt.is/ Valin verða 10 fallegustu kortin og verða þau gerð að opin- berum jólakortum íslenska mennta- netsins. En þar með er ekki allt gamanið búið. Keppninni sjálfri lýkur þann 11. desember, en eftir það getur al- menningur sent þessi rafrænu jóla- kort til vina og ættingja um allan heim. Hægt verður að senda öll inn- send kort sem jólakort, óháð því hvernig þeim gekk í keppninni. Þegar eru farin að streyma inn kort enda framtakið gott. Algengt er að börnin fái aðstoð í skólanum við að búa kortin til og senda þau til ís- lenska menntanetsins. Þannig geta heilu bekkirnir tekið sig til í sam- ráði við kennara sína og tekið þátt í jólakortaleiknum. Öll kort sem send eru til íslenska menntanetsins birtast á heimasíðu þess daginn eftir að þau berast. Gagnvirkt sjónvarp Breskir sjónvarpsgláparar geta far- iö að hlakka til að þurfa aldrei fram- ar aö stiga upp úr sófanum. BSkyB- sjónvarpsrisinn hyggst nefnilega fara af staö meö gagnvirkt sjónvarp þar I landi á næsta ári. Áskrifendur aö Sky gervihnattasjónvarpinu munu geta nýtt sér þjónustuna sem verö- ur mjög fjölbreytt. Hægt veröur aö versla gegnum sjónvarpið, stunda bankaviöskipti, senda tölvupóst, nálgast ýmsar upp- lýsingar og spila tölvuleiki. Microsoft gegn 2000-vandanum Microsoft mun I desember setja á markaöinn vörur sem ætlaöar eru til lausnar á 2000- vandanum margumtalaða. Aö auki mun fyrirtækið bjóöa upp á þjónustu og kennslu þessu samfara. Lausn- irnar eru margþættar og taka bæöi til vél- og hugbúnaðar. Eins og venj- an er þegar Microsoft á í hlut eru menn misánægðir meö þaö sem fyr- irtækið ætlar aö bjóöa upp á. Marg- ir vilja meina að þessar lausnir komi of seint, því flest fyrirtæki séu þeg- ar komin vel á veg meö aö leysa vandann án hjálpar Microsoft. Metsaia á tölvum fyrirjólin Nýleg könnun í Bandaríkjunum gef- ur til kynna aö tölvukaup þar í landi muni ná sögulegu hámarki fýrir þessi jól. Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna aö allt aö 5 milljónir einka- tölva muni seljast í Bandarikjunum frá 1. nóvember fram til 31. desem- ber á þessu ári. Ein ástæöa auk- inna tölvukaupa fyrir þessi jól er sú aö eldri borgarar veröa duglegri viö tölvukaupin en áöur hefur þekkst. Jafnframt kemur fram aö nær helm- ingur þeirra sem ætla aö kaupa tölvu nú sé aö kaupa tölvu í fyrsta skipti á æv- inni. Alþjóðlegt tölvu- mál Yfir 120 tölvu- og tungumálasérfræö- ingarvinna nú aö þvf aö hanna tölvutungumál. Ætlunin er aö tungumáliö muni geta gert fólki kleift aö hafa samskipti á móöurmálinu viö fólk sem talar önn- ur tungumál. Ólíkt því sem gerist í öörum þýðingarforritum þegar eitt tungumál er þýtt yfir á annað þá mun þetta kerfi virka þannig aö fyrst er þaö sem skrifað er þýtt yfir á tölvutungumáliö og síöan þýtt yfir á tungumál viðtakandans. Aö sögn þeirra sem aö verkefninu vinna mun það sérstaklega koma sér vel fyrir þá sem tala óalgeng tungumál. Áriö 2005 er vonast til þess aö allar þær 185 þjóðir sem eru meðlimir í Sam- einuöu þjóöunum geti nýtt sér þessa þýðingartækni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.