Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998
35
vefur og
Eldri borgarar læra á tölvur
- styrktir af heilbrigðisráðuneyti og þremur bönkum
Síðastliðinn miðvikudag skrifuðu
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra og forráðamenn Lands-
bankans, Búnaðarbankans og ís-
landsbanka undir samstarfssamn-
ing um tilraunaverkefni á sviði
tölvukennslu fyrir eldra fólk.
Lagt er af stað í þetta verkefni í
tilefni árs aldraðra sem hefst um
næstu áramót. Þegar er hafin
kennsla við Viðskipta- og tölvuskól-
ann i tilraunahópum og mun henni
ljúka í janúar. Ef vel tekst til mun
að öllum líkindum verða haldið
áfram á sömu braut og kennslan
þróuð enn frekar.
Við undirritun samningsins
sögðu bankastjórar allra bankanna
að notkun eldra fólks á þjónustu-
heimasíðum bankanna væri mjög
mikil. Að mati þeirra er nauðsyn-
legt að kenna eldra fólki að nýta sér
tölvutæknina, bæði vegna þess hve
2000-vandinn
í vélbúnaði
í öllum tölvum er kubbur sem
kallast Rauntímaklukka. Þar
leynist hluti 2000-vandans.
Rauntímaklukkan
notar litla rafhlöðu
tll að skrá tlma og
dagsetningu, þó
tölvunni.
Rauntímaklukkan sýnir tugi með
tvenndarkerfi, notar einfalt Já-Nei, Af-Á,
1-0kerfi til að skrá tölustafi.
Biti al upplýsinpum Bæti (8 Bitar)
B'fö[ö[e[c[ö[c[€
80 40 20 10 8 4 2 1
Gildi bætis (dæmið sýnir 19)
Hvert bæti getur aðeins sýnt
takmarkaða upphæð, þannig að skipta
þarf ártölum milli tveggja bæta.
Möguleikinn á ýmsum skemmdum af
völdum 2000-vandans byggir á því hve
flóknar og hraðvirkar nútímatölvur eru.
Öld k Öld
Á meöan á biötímanum, ótilteknum tíma
sem líöur milli þess aö tala aldarinnar og
ársins breytist, getur tölvan leitaö upptýs-
inga hjá rauntímaklukkunni milljón sinn-
um og valdið þar með miklum skaöa.
■ fh Heimild: Computer Experts (UK) Ltd.
www.computerexperts.com
Hópur eldra fólks lærir nú um galdra tölvu-
tækninnar við Viðskipta- og tölvuskólann í
Reykjavík. DV-mynd Teitur
mikilvæg hún er almennt í dag og
svo einfaldlega vegna þess hve mjög
hún getur sparað sporin. í stað þess
t.d. að hanga í biðröðum í
bönkum við hver mánaða-
mót er nú hægt að afgreiða
reikninga mánaðarins með
tölvunni heima í stofu.
Ingibjörg Pálmadóttir tók
undir þetta og benti jafn-
framt á þá afþreyingu sem
tölvan getur veitt. í stað
þess að sitja með hendur í
skauti getur fólk nú spilað
bridge við kollega sina í
Kína eða hvar sem er.
í heimi þar sem tölvan
verður sífellt mikilvægari
er gífurlega mikilvægt að
þeir sem uxu úr grasi áður
en tölvubyltingin varð geti
tileinkað sér helstu mögu-
leika tölvutækninnar. Hér
er því gott framtak á ferð-
inni og óskandi að vel takist
til svo að flestir eldri borgarar geti
lært um galdra tölvutækninnar.
L#iki@iiieltir
Flótti frá lon Storm
Þaö er orðið Ijóst aö fyrirtækiö lon
Storm á í miklum erfiöleikum þessa
dagana. Fyrirtækið er í eigu hins
goðsagnakennda
John Romero, sem
m.a. átti stærstan
þátt í að búa tií
Doom á sínum
tíma. Fyrsti leikur
fyrirtækisins, Dom-
inion, fékk hræði-
legar viötökur og í
síöustu viku sögðu
hvorki meira né
minna en níu starfsmenn upp hjá
fyrirtækinu. Flestir höföu þeir unn-
iö viö leikinn Daikatana sem beö-
iö hefur veriö eftir lengur en elstu
menn muna. Romero og þeir sem
eftir eru hjá lon Storm vilja þó meina
að Daikatana muni ekki, teQast mik-
iö vegna þessa og koma út snemipa
á næsta ári.
Veiðar í Afríku
í kjölfar gífurlegra vinsælda veiði-
leikja eins og Deer Hunter hefur GT
Interactive nú gefið út leikinn Afric-
an Safari Trophy Hunter 3D. Þar
geta spilarar flakkaö um Afríku og
veitt Ijón, fíla, sebrahesta, krókó-
díla og margt fleira. Það er Wizard
Works fyrirtækiö sem hannar leik-
inn og segja menn þar á bæ aö þrí-
víddargrafík leiksins muni koma
þessari grein tölvuleikja skrefi fram-
ar en þekkst hefur hingaö til. Veiöi-
menn geta valið á milii langdrægs
riffils meö kíki og stórrartvíhleyptr-
ar haglabyssu.
Besti leikur ársins?
Lengi hefur veriö beöiö eftir leikn-
um Half-Life, en heilt ár er síðan
hann átti upphaflega að koma út.
En nú er hann
hins vegar tilbú-
inn og kemur í
verslanir innan
skamms. Eriend
tölvutímarit hafa
verið aö prófa
leikinn og cru
dómar famir aö
birtást víða um
þessar mundir.
Þeir eru allir mjögjákvæöir, svo ekki
sé meira sagt, og vilja margir meina
að þarna sé kominn besti leikur
ársins. I Half-life þykir loksins hafa
tekist aö koma spennandi sögu-
þræöi inn í fyrstu persónu skotleik
auk þess sem gervigreind andstæö-
inganna er meö eindæmum vei unn-
in.
Voodoo 3 kynnt
Á Comdex-ráðstefnunni í Las Veg-
as kynnti 3Dfx Interactive nýja kyn-
slóö þrívíddarkorta sem heita skulu
því frumlega nafni Voodoo 3. Þau
byggjast á Voodoo Banshee 2D/3D
þrtvíddarkortunum en eru mun þró-
aðri. Þau vinna allt aö helmingi hraö-
ar en þau kort sem þekkjast í dag
og geta unnið meö mun flóknari
bakgrunna, Vegna aukins yinnslu-
hraöa geta kortin unniö meö allt aö
2048/1536 skjáupplausn.
Nýjustu hljómtækjastæðurnar frá SHARP
CDC-421
• 2X20W • RMS-Surround
• 3ja diska geislaspilari
• Útvarp meö 20 stöðva minni
• RDS-tvöfalt segulband • Surround
hátalarar fylgja.
CDC-471
Heimabíóhljómtæki
• 2X40W eða 4X40W • RMS-Dolby pro logic magnari
• Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari
• Útvarp með 20 stöðva minni
• RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja.
CDC5H
Heimabíóhljómtæki
• 2X100W eða 4X50W *RMS
• Dolby prologic magnari • Stafrænt tengi
fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari
• Utvarp með 20 stöðva minni
• RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja.
Hlustaðu d alvöru hljómgæði
U R N I R
0