Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Side 29
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998
37
Alþjóðlega geimstöðin:
Mikilvægur áfangi á leiðinni til Mars
Alþjóðlega geimstöðin er eitt skref í langri ferð mannkynsins til annarra sólkerfa.
Fyrsta hluta alþjóðlegrar geim-
stöðvar var komið á sporbaug um
jörðu fyrir skömmu, eins og sagt
hefur verið frá hér á tæknisíðunum.
Geimstöðin hefur þó ekki náð að
vekja jafnmikla athygli og umfjöll-
un til jafns við mannaðar feröir til
tunglsins eða ferðir ómannaðra far-
artækja til Mars.
Ein ástæða þessa er sennilega
skortur á ákveðnu takmarki fyrir
hina nýju geimstöð.
Geimfarinn Michael Foale, sem
starfar við Johnson Space Center í
Houston og hefur m.a. dvalið um
borð í geimstöðinni Mír, vill þó
meina að vissulega séu markmiðin
fyrir hendi. „Grunnástæðan fyrir
því að mannkynið leggur af stað út
í geiminn er að við erum forvitnar
verur. Margar og mikilvægar rann-
sóknir verður hægt að stunda í
geimstöðinni og munu þær koma
sér vel fyrir vísindasamfélagið,"
segir hann.
„En í undirliggjandi er þrá sem
er miklu sterkari en bara að fram-
kvæma rannsóknir í geimnum.
Rannsóknirnar eru í sjálfu sér ekki
markmið geimstöðvarinnar. Frekar
má segja að hún sé áfangastaður
okkar á leiðinni enn þá lengra út í
geim.“
Að hans mati mun mannkynið
aldrei komast til Mars án þess að
vinna að verkefnum eins og alþjóð-
legu geimstöðinni. En Mars er held-
ur ekkert lokatakmark að hans
mati. „Við erum á leiðinni í langt
ferðalag til að rannsaka alheiminn
utan okkar heimkynna. Mars er
bara eitt skref og nýlenda á plánet-
unni er hluti þessa skrefs. Síðan
mun taka við námuvinnsla í loft-
steinabeltum. Komið verður upp
stöðvum við endamörk sólkerfisins
og að endingu munum við senda
geimskip af stað í átt að öðrum sól-
kerfum," segir Foale.
Upphafsstafir þínir
á bílinn, ókeypis!
Viðarlíki
gullfallegt, sett á
mælaborðið með
hitaaðferð. Hagstætt verð.
Dökkar filmur
á rúðurnar, settar
á með hitaaðferð.
• Klæðum sætin
með áklæði.
• Gerum lakkið næstum
eins og nýtt.
• Setjum upphafsstafina
þína á bílinn.
Bíllinn verður sem nýr -
fallegur og seljanlegri.
Dalbrekku 22, Kóp.
S. 544 5770 / 544 5990
-«
t
Nýjar uppgötvanir varðandi þróun lífvera:
„Dómsdagsgen" geta breytt lífvemm á örfáum árum
Urðu apar að mönnum á einungis nokkrum áratugum? Nei,
ekki er það nú svo en vísindamenn hafa þó fundið vísbend-
ingar um að þróun geti átt sér stað á stuttum tíma.
Ef hitastig á jörðinni hækkar
snögglega er liklegt að líkamar
manna og margra dýra þurfi aö
þreytast svo þau geti lifað af. Mann-
fólkið gæti t.d. átt meiri möguleika
með öðrum húðlit eða hala sem
myndi auðvelda því að ferðast um
regnskógana sem myndu spretta
upp um allan heim.
Ef vísindamenn við Chicagohá-
skóla hafa rétt fyrir sé er mögulegt
aö viö berum nú þegar í okkur gen
sem gætu valdið slíkum breyting-
um. Þeir hafa verið að rannsaka
bananaflugur og telja sig hafa fund-
ið út að lífverur búa yfir ákveðnu
„neyðarkerfi" sem tekur til starfa ef
umhverfið breytist snögglega. Þegar
flugunum var talin trú um að um-
hverfið væri að breytast urðu af-
kvæmi þeirra sífellt undarlegri,
fæddust t.d. með skrýtna útlimi og
aðrar tegundir vængja. Ekki þurfti
nema örfáar kynslóðir flugnanna til
að þessar miklu breytingar ættu sér
stað á lífveru sem hafði litið eins út
í mörg hundruð ár.
Þróun á stuttum tíma
Ályktanir vísindamannanna eftir
þessar rannsóknir eru að í lífverum
séu falin ákveðin „dómsdagsgen"
sem fara einungis að virka þegar
umhverfi lífverunnar breytist veru-
lega. Dómsdagsgenin valda stökk-
breytingum í lífverunum og valda
því að „þróun“, svipuð þeirri sem
almennt er talið að taki milljónir
ára, á sér stað á einungis nokkrum
árum eða áratugum.
Stein-
gervingar
benda til
þess að
jafnan eigi
þróun sér
stað á löng-
um tíma.
Það er þó
ekki algilt.
Sem dæmi
má nefna
að spendýr
og aðrar
lífverur
urðu alls-
ráðandi á
jörðinni í
kjölfar loft-
steina-
hraps fyrir
65 milljón
árum en
risaeðlumar dóu út. Leiða má lík-
um að því að dómsdagsgen hafí
stuðlað að velgengni þeirra sem
lifðu hamfarirnar af. Vísindamenn
sem rannsakað hafa þessa hluti
lengi segjast jafnframt geta talið
upp fjölda tilvika þar sem mikil
breyting hafi orðið á lífverum á
stuttum tíma.
%/ Klossar l/ Festingasett ý Borðar
\/ Diskar i/ Handbr barkar |/ Skálar
✓ Slöngur rnmmmmmmm ^ Dælur
iHKffk'lJT/i
skálar og diska, allar stærðir. Allar álímingar.
©
ÁLÍMINGAR
Smiðjuvegi 20 (græn gata)
Sími 567 0505
Ert þú að missa hárið?
APOLLO hefur þróað frábæra meðferð við hárlosi.
Megaderm meðferðin dregur úr hárlosi eða stöðvar það alveg.
Það hafa verið reyndar margar aðferðir, með misjöfnum árangri.
En með þessari meðferð næst sýnilegur árangur eftir aðeins lmánuð.
Ókeypis ráðgjöf. Fullur trúnaður.
An skuldbindinga.
APOLLO
Hárstúdíó
Hringbraut 119 - Sími 552 2099
<
v
Volkswagen Polo 1400, 3 d. '98,
hvítur, ek.12 þ. km. V. 1.040.000.
Grand Cherokee Laredo 4000, 5
d. ssk., '97, beis, ek. 16 þ. km,
leöur, ABS, tölvur, of.l. V. 3.800.000.
Mercedes Benz 230E, 4 d., ssk.,
'92, blár ek.132 þj km, ABS. álf.,
sóll. o.fl. V. 2.050.000.
Galloper 2500 DTI, 5 d., ssk.,
'98, hvítur, ek.10 þ. km, ABS, álf.,
CD, spoil. V. 2.390.000.
MMC Pajero 2500 DTI, 3 d ., '96,
grænn, ek. 42 þ. km, álf., 31 “,
spoil. V. 1.990.000.
fnÍLASAUNN:
Gott urval bíla á skrá ■fr
og á staönum Holdur
Opið virka daga 10-12 og 13-18. Laugardaga 13-17.
B I L A S A L A
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020-461 3019
MMC Pajero 2800 DTI, 5 d.,
ssk., '95, steingr., ek. 69 þ. km,
álf., 31 “, spoil. o.fi. V. 2.550.000.
Volkswagen Caravelle 4x4 dísil
'96, vínr., ek. 57 þ. km, 10
manna. V. 2.150.000.
r