Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Blaðsíða 44
52 MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 nn Ummæli Menn ráða hverju þeir trúa „Staðreyndin er sú aö ég lét ekki falla í samtali við hina sænsku ; blaðakonu þau ummæli, sem hún j hefur eftir mér um Bonn og Washington. Ég | veit hvað ég sagði, en ef menn kjósa frekar aö trúa henni, þá er það þeirra ákvörðun.“ Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti íslands, í Morgunblaðinu. Óþarfa slettirekuskapur „í raun finnst mér hann vera með óþarfa slettirekuskap, ef svo má að orði komast, því ég sé ekki að hlutverk forsetans sé að vera með fréttaskýringar um hvernig litið er á okkar ut- anríkisstefnu í Bonn eða Was- hington." Ólafur Hannibalsson vara- þingmaður, í Degi. Blundar í okkur að bæta heiminn „Það blundar held ég í öllum rithöfundum að vilja bæta heiminn f og kannski komast þeir næst því þeg-5 ar þeir skrifa fyr- ir krakka." Steinunn Sigurð- ardóttir rithöfund- ur, í DV. íþróttin að kljúfa flokka „Að kljúfa flokka af því menn missa af einhverjum parti valda sinna er nýkil \ íþrótt á íslandi en aö kljúfa; flokk sem ekki er enn þá búið að stofna ber annaðhvort vitni um áður óþekkt hugmyndaflug eða áður óþekkta valda- græðgi.“ lliugi Jökulsson, á rás 2 Útvarpsleikir og rólegheit „Það eru allir orönir þreyttir á stuðinu og leikj- unum þar sem þrjár pitsur og fimm kók eru í verðlaun. Þjóðin er ekkert í stuði. Við erum bara venjulegt fölk | og viljum vera í rólegheitum.“ Anna Kristine Magnúsdóttir, dagskrárgerðarmaður, í Fók- Hafa þingmenn vit á málinu? „Hvaða þýðingu hefur hin svokallaöa dulkóðun? Hvaða skerðing verður á gagnsemi grunnsins? Hver getur fjallað um þetta flókna mál í hinni virðulegu stofnun?" Jónas Bjarnason efnaverk- fræðingur, í DV. Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Kenjarnar Francisco Goya er einn mesti myndlistarmaður Spánverja fyrr og síðar. Á tímum hnignunar og ein- ræðis dró hann upp óvægilegar myndir af draugum hindurvitna, grimmdar og afturhalds og alla tíð síðan hefur hann með ögrun sinni og aðferð haft gifurleg áhrif á lista- menn heimsins - ekki síst á okkar öld. Kenjarnar eða Los Caprichos eru safn áttatíu ætinga sem Goya lauk við rétt fyrir aldamótin 1800. Skemmtanir Guðbergur Bergsson mun sýna gestum Listaklúbbsins skyggnur af ætingunum og túlka þetta magnaða verk og fjalla um hverja einstaka mynd af frumleika og innsæi sem fáum er gefið. Auk þess sem hann segir frá Goya og rekur nokkra þætti í sköpunarsögu Kenjanna. Gagnrýnandi Morgunblaðsins, Bragi Ásgeirsson, segir í ritdómi um bók Guðbergs um Kenjamar sem kom út hjá Forlaginu nú á haustdögum „Einn af snjöllustu pennum samtíðarinnar stendur að baki lestri og túlkun myndanna, kafar djúpt og skefur ekkert af hlut- unum frekar venju um safaríka og merkingarfulla kaldhæðni." Inn í dagskrána fléttar Pétur Jón- asson spánskri tónlist. Hann stund- Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík: Fæst mál eru óleysanleg DV, Suðurnesjum: Sparisjóðurinn í Keflavík varð 90 ára á síðasta ári. Fyrri helming starfstíma síns var hann eina inn- lánsstofnunin á Suðurnesjum en síð- an breyttist það á skömmum tíma og fleiri bættust við. Þrátt fyrir það er markaðshiutdeild sjóðsins sterk á OiiAnvmnníiiwi A« j»wi CCO/ iiííl/il „Með grundvallarbreytingum á fjármálamarkaði hefur starf spari- sjóðsstjóra einnig breyst í grundvall- aratriðum. Starf sem áður fólst að mestu í að sinna lánveitingum er nú fyrst og fremst stjórnunarstarf þar sem stjórnandinn ber fulla ábyrgð á daglegum rekstri sem hann sinnir Eins og sjá má er starfið fjölbreytt og oftast skemmtilegt þótt vinnutím- inn sé stundum æðilangur." Geirmundur er fæddur og uppalinn í Keflavík. Hann hefur verið virkur þátttak- andi í félagsmálum, sérstaklega þó þeim sem snerta hvers konar íþróttir, fyrst sem keppandi og síðan í félags- gróska hefur verið í allri starfsemi Sparisjóðsins á þessu ári og allt kapp verið lagt á það að ná fram auknu hagræði í rekstrinum og bæta þjón- ustuna við viðskiptavini. í rekstraráætlun Sparisjóðsins fyrir árið 1998 var gert ráð fyrir verulegum afkomubata frá árinu á undan og sam- kvæmt því uppgjöri sem nú liggur fyr- ir standast þær áætlanir fyllilega. í fyrsta sinn í 24 ár er nú starfandi einn sparisjóðsstjóri, Geirmundur Kristinsson, við Sparisjóðinn í Kefla- vík. Hann var ráðinn til starfa árið 1993, þá annar tveggja sparisjóðs- stjóra, en hefur verið einn frá síðustu áramótum. „Hluti af þeirri ímynd sem Spari- sjóðurinn hefur byggt upp er þátttaka hans í öflugu félagsstarfi á Suðurnesj- um en Sparisjóðurinn hefur lagt áherslu á að styðja við bakið á allri menningar- og tómstundastarfsemi. Þar að auki hefur Sparisjóðurinn alla tíð staðið þétt við bakið á unglinga- starfinu. í dag er Sparisjóðurinn m.a. aðal- styrktaraðili meistaraflokks karla í knattspyrnu í Keflavík og meistara- flokks karla í Njarðvik í körfubolta." En hvert er starfssvið spari- Geirmundur Kristinsson. sjóðsstjóra? DV-mynd Arnheiður Maður dagsíns fyrst og fremst með því að leitast við að hafa sem besta yfirsýn með innra og ytra umhverfi fyrirtækisins, ásamt því að sinna markaðs- og stefnumót- unarvinnu í stöðugt meira mæli. Þessu er náð fram með góðu sam- starfi bæöi við samstarfsfólk og viðskiptavini. Meiri hagsmuna- gæsla, meira öryggi og betri af- koma eru nokkur lykilatriði í slíkum rekstri. Einnig koma upp á borðið erfið vandamál einstaklinga og fyrir- tækja sem takast verður á við. Fæst mál eru óleysanleg og það gefur manni hvað mest í þessu starfi að geta aðstoðað samborgar- ana við að komast út úr tíma- bundn- um erf- iðleik- um. „Þrátt fyrir mörg áhugamál hafa flest orðið að víkja fyrir starfinu, að minnsta kosti um sinn. Þó reyni ég að stunda sundið og líkamsræktina nokkuð reglulega, enda nauðsynlegt fyrir starfið. Síðan er að sjálfsögðu tíminn með fjölskyldrmni dýr- mætur.” sagði Geir- ; mundur að lokum. Geirmundur er 1 kvæntur Vallý Sverr- isdóttur og eiga þau þrjú uppkomin böm. -A.G. Fuglar f slands og Kanada Á fundi á vegum Vináttu- félags íslands og Kanada og Fuglavemdarfélags íslands mun Guðmundur A. Guð- mundsson, dýravistfræðing- ur fjalla um ferðir fugla milli íslands og Kanada í máli og myndum í Lög- bergi, stofu 102, í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Umhverfis- breytingar í kvöld verður annar fræðslufyrirlestur HÍN á þessum vetri í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Há- skólans. Á fundinum flytur Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðingur erindi sem hann nefnir Umhverfisbreyting- ar, fiskstofnar og stjórn fiskveiða. Jólafundur Jólafundur Safnaðarfé- lags Grafarvogskirkju verð- ur haldinn í kvöld kl. 20. Frú Ebba Sigurðardóttir biskupsfrú flytur jólahug- vekju. Sönghópurinn Kanga mun flytja lög frá Afríku. Samkomur Félag eldri borg- ara í Reykjavík Gylfi Gröndal kemur í Þorrasel kl. 15 í dag og les upp úr bók sinni um Þor- vald í Síld og fisk. Myndgátan Lausn á gátu nr. 2268: /, /y/i l i ± •'.... ••• , ... , '•■ / Or>v- ^ .. - ^'•<~/cO~ // Vi'* -/ * ° HyþÓR- Svarti sauðurinn í fjölskyldunni Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Pétur Jónasson og Guðbergur Bergsson verða á suðrænum slóðum í kvöld. aði framhaldsnám hjá Manuel López Ramos í Mexíkóborg og Jóse Luis González á Spáni. Pétur hefur haldið fjölda einleikstónleika á Norðurlöndunum, Bretlandi, megin- landi Evrópu, í Norður-Ameriku, Eyjaálfu og Austurlöndum fjær. Haffdór Lax- ness. Þjóð- kunnir menn munu lesa úr bókum hans. Uppáhaldskaflinn, gamansögur og leikþættir Vika tileinkuð Halldóri Kiljan Laxness hófst á laugardaginn í kaffihúsinu í túninu heima, Þver- holti 2, Mosfellsbæ. Frá mánudegi til fóstudags mifli kl. 17 og 18 er „orðið laust“. Eru þá Mosfellingar og aðrir góðir gestir velkomnir í ræðupúlt til að lesa uppá- haldskaflann sinn, uppáhaldsljóð, segja gamansögur af skáldinu eða annað skemmtilegt. Þekktir Mos- fellingar hefja lestur öll kvöldin, Bókmenntir meðal annars Salóme Þorkelsdótt- ir, Sigríður Anna Þórðardóttir, Jón M. Guðmundsson á Reykjum, Magnús Sigsteinsson, oddvitar stjórnmálaflokkana og formenn íþróttahreyfinganna. Kl.17.30 afla dagana munu unglingar úr Gagn- fræðaskólanum í Mosfellsbæ stíga í púlt og sýna snilli sína. Vikan endar 5. desember með leikþáttum úr verkum skáldsins sem Leikfélag Mosfellsbæjar flyt- ur. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Bridge Það er ekki auðvelt fyrir austur að finna réttu vömina í þessu spili og óvíst að margir hefðu fundið hana við borðið. Spilið kom fyrir í úrslitakeppni sveita um meistaratit- il Bridgefélags Reykjavíkur fyrir fjórum áratugum síðan og sagnir NS voru í harðara lagi. Á öðra borð- anna hafði suður opnað á þremur gröndum og það varð lokasamning- urinn. Á hinu borðinu var Gunnar Pálsson, þekktur kappi á þeim árum, í sæti suðurs. Hann var ekk- ert að tvínóna við hlutina og hóf sagnir á kóngaspurningu. Norður gjafari og enginn á hættu: ♦ G9753 •* G542 ♦ 84 ♦ D3 * K642 V D983 ♦ 62 * K85 N * D108 * K7 * 53 * G109764 * A V Á106 * ÁKDG1097 * Á2 Norður pass 6 * Austur pass pass Suður 5 grönd 6 ♦ Vestur pass p/h Óvíst er að viðlíka sagnir eins og þessar myndu sjást við borðið nú á dögum en í þessu tilfelli borguðu þær sig. Vestur ákvað að hefja leik- inn á því að spila út spaðafjarka. Sagnhafi átti slaginn heima á ásinn, tók tigulásinn og spilaði sig inn í blindan á tíguláttu. Þessu næst kom lítið hjarta úr blindum. Austur setti sjöuna, sagnhafi tí- una og var þar með búinn að vinna spilið. Það var al- veg sama hvað vestur gerði. Ef hann drepur á drottninguna, verð- ur hjartagosinn ell- efti slagur sagnhafa og vestur lend- ir síðan í þvingun í hjarta og laufi. Það dugar vestri lítt að gefa sagn- hafa slag á hjartatíuna því sagnhafi nær upp svipaðri stöðu með þving- un á vestur í hjarta og laufi. Hann leggur niður ásinn í hjarta og spilar síðan trompunum í botn. Austur gat hins vegar hnekkt spilinu með því að setja hjartakónginn þegar hjarta var spilað úr blindum en erfitt að koma auga á þá vörn. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.