Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Qupperneq 45
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998
53
I tengslum við sýninguna í Lista-
safni íslands hafa gjörningalista-
menn komið fram
80/90 Speglar
samtímans
í Listasafni íslands stendur yfir
stærsta yfirlitssýning evrópskrar
og bandarískrar samtimalistar
sem heddin hefur verið hér á
landi. Ber sýningin heitið 80/90
Speglar samtímans. Um er að
ræða úrval verka úr Museet for
Samtidskunst í Ósló en safn þetta
var stofnað 1988 og nær úrval
verka úr eigu safnsins frá síðustu
tveimur áratugum. Á sýningunni
gefur að líta verk eftir f]ölmarga
heimsþekkta listamenn og veitir
sýningin jafnframt gott yflrlit yflr
þann mikla fjölbreytileika sem
einkennt hefur skapandi list síð-
ustu áratuga beggja vegna Atl-
antshafsins.
Sýningar
Á sýningunni eru rýmisverk og
innsetningar áberandi, sem og
ljósmyndir og myndbönd, en
einnig er þar að finna málverk
sem sverja sig í ætt við hand-
verkshefðina en bregða jafnframt
nýrri sýn á málverkið sem list-
miðil. Meðal kunnra listamanna
sem eiga verk á sýningunni eru
Jannis Kounnelis, Pier-Paolo
Calzolari, Miroslaw Balka, Anders
Serrano og Cindy Sherman.
Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurbjörn Bernharðsson ásamt tónskáldinu Þorkeli Sigurbjörnssyni.
Digraneskirkja:
I kvöld halda Sigurbjörn Bern-
harðsson fiðluleikari og Anna Guð-
ný Guðmundsdóttir píanóleikari
tónleika í Digraneskirkju. Þau
munu flytja verk eftir Þorkel Sigur-
bjömsson.
Sigurbjörn Bernharðsson hóf tón-
listamám fimm ára gamall. Hann
lauk einleikaraprófi frá Tónlistar-
háskólanum í Reykjavík 1991,
Bachelor of Music gráðu frá Oberlin
Conservatory of Music 1995 og Mast-
er of Music frá Northem Illinois
University 1998. Sigurbjöm hefur
hlotið fiölmörg verðlaun og styrki á
ferli sínum, meðal annars Linden-
styrkinn 1995. Sigurbjörn hefur
fengið lofsamlega dóma fyrir leik
sinn og hefur hann unnið með með-
limum heimsfrægra kvartetta á
borð við Tokyo-kvartettinn,
Vermeer-kvartettinn og Emerson-
kvartettinn. Fyrsta geislaplata Sig-
urbjörns var gefinn út á íslandi 1995
og hlaut hann frábæra dóma. Sigur-
björn hefur komið víða fram á tón-
leikum víða um heim og leikið í út-
varpi og sjónvarpi bæði í Evrópu og
Ameríku.
Tónleikar
Anna Guðný Guðmundsdóttir út-
skrifaðist frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og stundaði framhalds-
nám við Guildhall School of Music í
London. Hún hefur tekið virkan
þátt í íslensku tónlistarlífi undan-
farin ár við flutning kammertónlist-
ar. Anna Guðný hefur leikið einleik
með Sinfóníuhljómsveit íslands,
Sinfóníuhljómsveit æskunnar og
Kammersveit Reykjavikur. Hún
naut starfslauna úr Listasjóði árið
1995-1996. Anna Guðný er lausráðin
við Sinfóníuhljómsveit íslands og
kennir við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Tónleikarnir hefiast kl.
20.30
Bubbi í Mosfellsbæ
Bubbi Morthens heldur tónleika í
kvöld í Álafoss Föt Bezt í Mosfells-
bæ. hann mun syngja lög af nýju
plötunni sinni, Arfi, og sjálfsagt flýt-
ur með eitthvað af eldra efni. Tón-
leikarnir hefiast kl. 22.
V3°# V 5X>/
• J /
' ’x< * /'...v 4°J 5 1 5 *
Vs^ / L/ %
V • * /
v" * 5°0 V r*/V
V " V y*
Skúrir sunnan-
og vestanlands
í dag verður suðvestankaldi eða
stinningskaldi á landinu. Skúrir
verða sunnan- og vestanlands en
þurrt norðaustan til. Hiti verður á
bilinu 3 til 7 stig.
Veðrið í dag
Sólarlag í Reykjavík: 15.50
Sólarupprás á morgun: 10.45
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.38
Árdegisflóð á morgun: 4.08
Veðrið kl. 12
á hádegi í gaer:
Akureyri skýjað 0
Akurnes hálfskýjaó 1
Bergstaöir Bolungarvík alskýjaö -1
Egilsstaöir -0
Kirkjubœjarkl. skýjaö -2
Keflavíkurflv. alskýjaö -1
Raufarhöfn úrkoma í grennd -1
Reykjavík alskýjaö -2
Stórhöföi alskýjaö -0
Bergen rigning 4
Kaupmhöfn þokumóöa 3
Algarve léttskýjaö 17
Amsterdam rigning og súld 4
Barcelona léttskýjaö 14
Dublin skýjaö 7
Halifax snjóél á síð.kls. -1
Frankfurt alskýjaö 3
Hamborg þokumóöa 2
Jan Mayen rigning 2
London léttskýjað 7
Lúxemborg snjókoma -0
Mallorca rigning 10
Montreal alskýjaó 1
Nuuk heiðrskírt -10
París skýjað 7
Róm hálfskýjað 12
Vín þokumóöa 1
Winnipeg alskýjaö 2
Kristinn
Á myndinni eru þrjú
systkini. Yngsta barnið
heitir Kristinn Sigurður
en systkini hans Haukur
Rúnar og Þórdís Berg-
Barn dagsins
Sigurður
mann. Kristinn Sigurður
fæddist 22. ágúst síðastlið-
inn kl. 23.30. Við fæðingu
var hann 3670 grömm að
þyngd og 52 sentímetra
langur. Foreldrar systkin-
anna eru Lilja Bergmann
Hauksdóttir og Þorvaldur
Rúnarsson.
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8 9
10 11 12
13 14
15 16 17 18
19 20
21
Lárétt: 1 hróðug, 8 árstíð, 9 kven-
dýr, 10 málningarefni, 12 til, 13 hæf-
ar, 15 læsa, 17 fótabúnað, 20 hópur,
21 einkenndi.
Lóðrétt: 1 hæð, 2 hvassviðri, 3 þeg-
ar, 4 hlýja, 5 heitkona, 6 flöktir, 7
nudd, 11 ávani, 13 hest, 14 ágæti, 16
tré, 18 smáfiskur, 19 tón.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 skók, 5 mær, 8 lóð, 9 aura,
10 æran, 11 nam, 13 gortaði, 15 ár, 16
auðir, 18 skæru, 20 ló, 21 taða, 22 ras.
Lóðrétt: 1 slæg, 2 kór, 3 óðara, 4
kantur, 5 munaður, 6 ær, 7 rami, 12 C
aðila, 14 orka, 15 ást, 17 rós, 19 æð.
Dennis Quaid og Natasha Ric-
hardson leika foreldra tvfburanna.
Fjölskyldugildran
Fjölskyldugildran (The Parent
Trap), sem Sam-bíóin sýnir, fiall-
ar um tvíburasystur sem eru að-
skildar stuttu eftir fæðingu þegar
foreldrar þeirra skilja. Alast þær r
siðan upp hvor í sínu lagi, Hallie
á vesturströnd Bandaríkjanna hjá
fóður sínum, vínræktanda, og
Annie hjá móöur sinni, þekktum
fatahönnuði í London. Foreldrar
þeirra hafa ekki látið þær vita
hvor af annarri. Þegar þeim verð-
ur á að senda þær í sömu sumar-
búðirnar í Maine komast þær að
hinu sanna. Báðar vilja þær kynn-
ast því foreldri sem þær hafa ekki
kynnst áður og skipta því um
hlutverk, Annie fer til fóður síns
og Hallie til móður
sinnar. Eins og gef- '/////////
Kvikmyndir
ur að skilja koma upp
mörg vandamálin hjá
tvíburunum, sem halda sambandi,
en ekkert er þó eins aðkallandi til
úrlausnar og þegar faðir þeirra
fellur fyrir ungri og fallegri
stúlku.
Lindsay Lohan heitir leikkonan
sem leikur tviburana. í hlutverk-
um foreldra tvíburanna eru Denn-
is Quaid og Natasha Richardson.
Leikstjóri er Nancy Myers.
Nýjar myndir i kvikmyndahúsum:
Bíóhöllin: A Smile Like Yours m
Bíóborgin: Mulan
HaskolabioTaxi
Háskólabíó: Út úr sýn
Kringlubíó: The Negotiator
Laugarásbíó: Blade
Regnboginn: There's Something
about Mary
Stjörnubíó: Can't Hardly Wait
Gengið
Almennt gengi LÍ 27. 11. 1998 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 70,480 70,840 69,270
Pund 116,880 117,480 116,010
Kan. dollar 45,920 46,200 44,900
Dönsk kr. 10,8800 10,9380 11,0520
Norsk kr 9,3990 9,4510 9,3900
Sænsk kr. 8,6440 8,6920 8,8310
Fi. mark 13,6020 13,6820 13,8110
Fra. franki 12,3370 12,4070 12,5330
Belg. franki 2,0050 2,0170 2,0372
Sviss. franki 50,1200 50,4000 51,8100
Holl. gyllini 36,6800 36,9000 37,2600
Þýskt mark 41,3700 41,5900 42,0200
ít. líra 0,041770 0,04203 0,042500
Aust. sch. 5,8780 5,9140 5,9760
Port. escudo 0,4032 0,4058 0,4100
Spá. peseti 0,4864 0,4894 0,4947
Jap. yen 0,573800 0,57720 0,590400
írskt pund 102,820 103,460 104,610
SDR 97,350000 97,93000 97,510000
ECU 81,3500 81,8300 82,7000
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270