Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1998, Page 5
MIÐVnfl
SteingrÍTnur
„heldur spennu
og flugi út í gegn"
- segir Össur Skarphéðinsson i DV
Opinská og einlæg ævisaga Steingríms
Hermannssonar hefur hlotið afar
góðan hljómgrunn meðal lesenda
og gagnrýnenda.
í dómi sínum um bókina í DV segir
ÖssurSkarphéðinsson: „Dagur
Eggertsson fjötrar karakter
stjórnmálamannsins Steingríms
Hermannssonar svo vel í texta ævisögu
hansaðstundumerengu líkaraen
hannstígi sjálfur af blöðunum fram á
stofugólfið;';.. Dagurog Steingrímur
færa lesandanum mikla skemmtan.
Bókin heldur spennu og flugi
útígegn..."
/Evisaga Steingríms hefur vermt efstu
sæti metsölulista hinna ýmsu fjölmiðla
að undanförnu. Fyrsta prentun
bókarinnar seldist upp á tíu dögum en
ný prentun kom í verslanir í byrjun
vikunnar.
„Skemmtilegasta
lesning ársins”
segir Kobrún Bergþórsdóttir
um smásögur Þórarins
Gagnrýnendurfjölmiðla hafa keppst
við að lofa smásagnasafn Þórarins
Eldjárns, Sérðu það sem ég sé.
Kolbrún Bergþórsdóttir sagði til dæmis
á Bylgjunni að þetta væri
„skemmtilegasta lesning ársins".
Ástráður Eysteinsson sagði í þættinum
Mósaík í Sjónvarpinu að í safninu væru
„mjög fínar smásögur" og tiltók
sérstaklega söguna Arnsúg sem væri
„alveg einstaklega vel skrifuð". Hann
klykkti síðan út með þeim orðum að
Þórarinn væri „á mikilli siglingu um
þessar mundir".
Cuðríður er
„leynivopn Islendinga"
- að mati páfans og forseta íslands
í opinberri heimsókn Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta íslands, í
Vatikanið til Jóhannesar Páls páfa II.
núna í nóvember ræddu þeir meðal
annars um víðförlustu konu miðalda,
Guðríði Þorbjarnardóttur, og töldu
hana vera „leynivopn íslendinga"
varðandi afmæli landafunda og
kristnitöku árið 2000.
Vaka-Helgafell hefur nú gefið út
skáldsögu um „leynivopnið", ævi og
örlög þessarar merku konu sem fór til
Grænlands, Ameríku og Rómar um árið
1000. Bókin er eftir Jónas Kristjánsson
og nefnist Veröld víð.
Guðríður Þorbjarnardóttir var kona
Þorfinns karlsefnis og fæddi fyrsta
hvíta barnið í Ameríku,
Snorra Þorfinnsson.
Saga hennar er afar viðburðarík.
Sögulegir atburðir, mannleg reynsla og
tilfinningar setja svip á þessa miklu og
magnþrungnu bók.
Lík ungrar, óþekktrar stúlku finnst á leiði
Jóns Sigurðssonar. Þannig hefst þessi nýja skáldsaga
Arnalds Indriðasonar sem er ósvikin spennusaga, þéttofin
og grípandi; atburðarásin er hröð og myndræn og persónur
dregnar skörpum dráttum.
Bók sem enginn unnandi góðra spennu-
og sakamálasagna ætti að láta framhjá
sér fara!
VAKA-HELGAFELL
SÍÐUMÚLA 6, 108 REYKJAVÍK,
SÍMI SSO 3000.
Heillandi saga sem gerist í Egyptalandi hinu forna og
hefur notið gríðarlegra vinsælda víða um lönd.
Höfundur skapar einkar trúverðuga og spennandi sögu
úr fjarlægri fortíð, sögu um átök, ástir, svik og
valdabaráttu á bökkum Nílar. Þetta er áhrifarík bók
sem heldur lesandanum föngnum frá upphafi til enda.
MaJUANNE FKEDtUKSSON
Anna, Hanna
& JÓHANNA
Anna, Hanna og Jóhanna segir frá þtemur kynslóðum
kvenna og gerist á miklum umbrotatimum, frá síðari hluta
19. aldar til okkar daga. Þetta er töfrandi verk, ástar- og
harmsaga þar sem saman fer sterk persónusköpun og
hrífandi frásögn. Sagan hefur verið metsölubók víða um
lönd og komið út á um þrjátíu tungumálum. Hún var
meðal tíu mest seldu bóka heims 1997.
Ný skáldsaga
eftir höfund
Hestahvíslarans
Ný skáldsaga eftir Nicholas Evans sem vakti heimsathygli
með fyrstu bók sinni, Hestahvíslaranum. Þetta er
áhrifamikil, vel skrifuð og heillandi saga þar sem barátta
mannsins við náttúruna er í forgrunni. Hættulegar
ástríður og frelsandi ást krauma undir yfirborðinu og
spennan stigmagnast allt til enda.