Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1998, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998
17
gölf
Betra golf - eftir Arnar Má
Olafsson og Ulfar Jónsson. A
undanförnum árum hefur
áhugi á golfiþróttinni aukist
gífurlega hérlendis og segja
má að golfið sé nú vinsælasta
almenningsíþróttin. Þeir
Arnar Már og Ulfar eru báð-
ir mjög vel þekktir, Arnar
Már sem golfkennari og Ulf-
ar sem afreksmaður í íþrótt-
inni. Alhr kylfingar, hvort
sem þeir eru byrjendur eða ,
lengra komnir, eiga að geta
haft veruleg not af ráðlegg-
ingum höfunda bókarinnar, sem eru jafnt
á hinu tæknilega sviði og hinu sem lýtur að leiknum sjálfum úti á
vellinum. I bókinni er mikill fjöldi ljósmynda í ht, flestar teknar
af hinum kunna ljósmyndara Friðþjófi Helgasyni.
Ráðgáta um rauðanótt r
verðlaunasaga eftir
Ingibjörgu Möller. Þetta
er önnur bamabók Ingi-
bjargar, en fyrri bók
hennar, Grillaðir banan-
ar, hlaut aíbragðsgóðar
viðtökur. Þessi saga
hlaut fyrstu verðlaun í
samkeppni um bama-
bókarhandrit sem
Bandalag kvenna í
Reykjavík efndi til í
tilefni 80 ára afmælis
síns. Aðalsögupersón-
umar em fjórar, tvær stelpur og tveir strákar. Ann-
ar strákurinn er alvarlega veikur og því nokkuð ofvemdað-
ur af foreldrum sínum. Hann fær leyfi til að fara með vin-
um sínum þremur út í Engey þar sem margt ævintýralegt
og óvænt ber við og dularfullir atburðir gerast í neðanjarð-
arbyrgi frá stríðsámnum í eynni.
Eldhúshandbókin eftir
Þráinn Lámsson mat-
reiðslumeistara. Bókin
hefur að geyma fjölþættar
upplýsingar og ráðlegg-
ingar til allra þeirra sem
fást við matreiðslu á
einn eða annan hátt.
Fjallað er um meðferð
og geymslu hráefnis,
suðu- og steikingarað-
ferðir, súpu- og sósu-
gerð, brauðbakstur og
gerð salata og eftirrétta. Ráðlegg-
ingar em um sláturgerð, sérkafli um matreiðslu hráefnis
úr íslenskri náttúm, svo sem sveppa og skelfisks og m.fl.
OMAR RAGNARSSON
r i ■
mm
Ykt eðlilegt eftir Ómar
Ragnarsson. Þetta er
fyrsta unglingabók Ómars
en áður hefur hann sent
frá sér eina skáldsögu og
bækur um eftirminnileg-
ar persónur. Aðalsögu-
hetjur bókarinnar em
tveir reykvískir ungling-
ar sem lenda í slæmum
félagsskap og komast
undir manna hendur.
Þrautalending er að senda þá til dvalar á afskekktum
sveitabæ. Unglingamir koma þar inn í heim sem er þeim
algjörlega framandi. En ævintýrin elta þá og þeir lenda inn
í hringiðu viðburða sem ætla mætti að gætu aðeins hent í
borgarlífinu. Unglingamir verða að takast á við erfið verk-
efni og það reynir vemlega á þá sjálfa við úrlausn þeirra.
J
Almúgamenn eftir Am-
mund Backman. Þetta
er þriðja skáldsaga Am-
mundar og hafði hann ný-
lokið frágangi handrits er
hann lést. Sagan gerist í
sjávarþorpi á fslandi í
byrjun sjötta áratugarins.
Þar þekkja allir alla vita
allt um þá. Mannlífið
mótast af lífsbaráttunni
og þótt persónumar
sem, höfundur leiðir
fram, hafi á yfirborðinu
ólík sjónarmið og skoð-
anir þá svipar hjörtum
þeirra saman, sérstaklega þegar á
reynir. En það em ekki aðeins einstaklingamir, sem em að
berjast fyrir tilvem sinni, heldur þorpið sjálft. í bókinni
skapar höfundur mjög eftirminnilegar og trúverðugar per-
sónur og bregður upp raunsannri mynd af þorpssamfélagi
þessa tíma.
Digitus Sapiens
eftir Þóri S.
Guðbergsson, Krist-
inn R. Þórisson og
Bjama Hinriksson.
Þetta er afar sérstæð
bók þar sem íléttað
er saman frásögn og
myndum. Hún fjallar
um ferðalag tveggja
íslenskra ungmenna
í hulda neðansjávar-
hella. í hellunum - —........— —
hitta þau greindar vemr sem hafa þróast og þroskast f þús-
undir ára - vitibomar vélar, tækniundur með gervigreind. í
bókinni er leitast við að fjalla um ýmislegt það sem skipta
mun miklu máli í þjóðfélagi framtíðarinnar og er framsetn-
ingin ætluð til hvatningar og örvunar sjálfstæðrar hugsun-
A / L> / L C A
A A A / á. A A
LII.
Utisetan eftir Guð-
rúnu Bergmann.
Þetta er fyrsta skáld-
saga höfundarins, sem
áður hefur sent frá sér
viðtalsbók og þýtt
nokkrar bækur. Sagan
gerist í Norður-Nor-
egi og á íslandi á
fyrri hluta níundu
aldar. Þar íléttast
saman tengsl nor-
rænna manna við
Sámi fólkið, sem
býr í nyrsta hluta landsins. Norrænu
mennimir sækjast eftir yfirráðum og sköttum en óttast
krafta sem þeir telja að búi í Sámi fólkinu. Sagan fjallar
um stúlku sem fæðist inn í þessa tvo menningarheima og
útisetu hennar á eyju, langt úti í hafi. Þar tekst hún alein á
við óblíð náttúmöfl, ástir og sorgir en heldur tengslum við
fólk sitt í gegnum seiðferðir.
e«í«ub sr, EmfrgjM
Nóttin lifnar við eftir
metsöluhöfundinn Þor-
grím Þráinsson. Saga þessi
er sjálfstætt framhald verð-
launasögu Þorgríms, Margt
býr í myrkrinu, er út kom
í fyrra. Söguhetjumar em
fjórir unglingar, tveir pilt-
ar og ein stúlka úr
Reykjavík og frönsk
vinkona þeirra. Ung-
lingamir eiga erindi
að Búðum á Snæ-
fellsnesi þar sem
þeir dragast óvart
inn í atburðarás þar
sem þeir geta litlu ráðið um framvindu mála.
Eins og í fyrri unglingabókum sínum tekst Þorgrími einkar
vel að lýsa hugarheimi söguhetja sinna, væntingum þeirra,
vonum og þrám, og ekki síst samskiptum fólks sem er að
vakna til vitundar um kynjahlutverk sitt.
'J'. i_________lía.
Ain mín eftir Eirík St. Eik
ríksson blaðamann. í
bókinni segja kunnir lax-
veiðimenn frá uppá-
haldsveiðiánum sínum. Er
fjallað um Laxá í Kjós,
Langá, Norðurá,
Þverá/Kjarrá, Miðfjarðará
og Hofsá. Viðmælendur
höfundar lýsa ánum, veiði-
stöðum, veiði og staðhátt-
um, segja frá eftirminni-
legum viðburðum, sem
þeir hafa upplifað við
veiðiskapinn, og rifja
upp skemmtilegar veiðisögur.
Snæfinnur snjókarl eftir
Jón Ármann Steinsson
og Jón Hámund Marinós-
son. Litskrúðug saga fyrir
yngstu lesenduma um
hinn kunna Snæfinn snjó-
karl og þau ævintýri og
raunir þær sem slíkir
karlar rata tíðum í.
Verð kr. 1190.-
Góð bðk frá Fróða
mm