Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1998, Blaðsíða 43
‘Joíajjafafiandbol{ ‘lYld 43
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998
Skeifunni 6 sími: 3
Uppskrift að ggg
jólasmákökum
— Ijúffengt meðlæti um jólin
^T^árgir taka sig til um jólin og
tyfíl^ baka smákökur. Mörgum finnst
mjög Ijúft aö bragða á gómsætum
smákökum og súpa á heitu kakói í
góöum félagsskap. Hérna er uppskrift
að góðum smákökum sem nefndar
eru kornflögutoppar.
Fyrir kornflögutoppa þarf:
2 eggjahvítur
1 bolla sykur
2 bolla kornflögur
1/2 bolla saxaðar hnetur
1/2 tsk. vanilludropa
150 g saxað suðusúkkulaði.
'Aðferð:
Stífþeytið eggjahvíturnar. Þeytið
sykurinn smám saman saman viö.
Blandið muldum kornflögum og söxuö-
um hnetunum varlega út í eggjaþykkn-
ið ásamt vanilludropum og súkkulaði.
Setjið deigið á smuröa plötu eða bök-
unarpappír meö tveimur teskeiðum.
Bakið við 175 gráður þar til kökurnar
eru orðnar Ijósbrúnar. Einnig er hægt
að nota sömu uppskrift og setja tvo og
hálfan bolla af kókosmjöli í staðinn fyr-
ir kornfleks og möndlur.
Vinsælt jólaglögg
— gott fyrir gesti og gangandi
r* ífellt fleiri íslendingar
L/ njóta þess aó fá sér sopa af
Ijúfu jólaglöggi þegar jólin
standa sem hœst. Fjöldamörg fyr-
irtœki bjóóa starfsmönnum sin-
um í jólaglögg og stöðugt fleiri
einstaklingar bjóða vinum og
vandamönnum i heita glögg og
smákökur.
Hér er uppskrift að vinsælu
jólaglöggi:
150 g rúsínur
2 dl portvín
safi og börkur af 3 appelsínum
5 dl vatn
150-200 g sykur
1 stk. kanill (heill)
10 negulnaglar (heilir)
2 lítrar rauðvín
100-150 g möndlur
Leggið rúsínurnar í bleyti í portvínið
I u.þ.b. eina klukkustund. Setjið börk-
inn af appelsínunum (rifinn), appel-
sínusafann, vatn, sykur, kanil og neg-
ulnagla í pott og látið suðuna koma
upp. Látiö blönduna malla við vægan
hita i 5-10 mínútur. Takið appelsínu-
börkinn upp úr. Blandið rauðvíni, rúsín-
um og brytjuöum möndlum saman við.
Hitiö þartil suðan kemur upp og berið
fram heitt.
•Eftir einn ei aki neinn
Þessu jólaglöggi fylgir sú kvöð að
þeir sem smakka mega ekki keyra
þegar búið er að fá sér. Hugmyndin er
sú aö þegar fólk hittist í jólaskapi geti
það átt notalega samverustund og
sótt hlýju í þetta bragðgóða glögg.
68 7733
www
Gott verd
falleg hönnun
og sérviska Evjólfs
Grand Crúvínáhöld
frá Rosendahl:
Tappi, tappatogari, skenkir og skeri
Herra skór
frá kr. 6.690
Jakkar og úlpur
frá kr. 11.990
Draktir
frá kr. 14.990
Zinda stígvél
frá kr. 9.990
Dömubuxur
frá kr. 4.490
Zinda dömuskór
frá kr. 3.990 ,
Anorakkar
frá kr. 5.990
Jakkaföt
frá kr. 14.990
Herra jakkar
frá kr. 9.990
Herra buxur
frá kr. 5.990
Art dömu
og herraskór
frá kr. 9.990
Sendum i póstkröfu 1-------------1---1
hvert á land sem er! Kringlunni sími 568 9995
Laugavegi 67 simi 551 2880