Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Side 3
Kauptu þér hlut í KR, Fram, bönkunum
öllum saman, segðu þig úr gagnagrunn-
inum (þú vilt ekki að Kári, þessi með
hreiminn, viti öll þín leyndarmál) og
sæktu svo um kvóta. Vertu athafnamaö-
ur á nýju ári og gefðu roluháttinn upp á
bátinn. Viö getum öll orðið milljónamær-
ingar!
Halltu þig innan dyra á gamlárskvöld. Þú
hefur ekkert að gera út. Vertu heima hjá
þér. Það er biðröð á alla staðina, skíta-
kuldi, hálka, slagsmál niðri f bæ og allir
alveg geðveikt mikið að skemmta sér.
Fólk ætlar að skemmta sér svo mikið og
vel og kveðja árið með svo miklum stæl
að það endar með ósköpum. Hin venju-
legasta húsmóðir hagar sér eins og útúr-
spíttaður unglingur á áramótum. Það er
því ekkert annað að gera en að loka sig
inni yfir áramótin.
í S Kúbanskir vindlar er
I það sem blffur á ára-
ekki kommi þá segistu bara vera frjáls-
lyndur anarkisti og þeim leyfist vfst að
versla við ólýðræðislegan Kastró.
Thunder King tertan. Hún skýtur einu
skoti f einu, er tuttugu og fimm skota og
það leynast nokkrir góðir hvellir f henni.
Hún dreifir líka litum og verðið á henni er
undir þúsund kalli.
Taktu árið 1999
stormi. Lækkaðu i
sjónvarpinu þegar þeir
spila Nú árið er liðið
og settu Metallica f
geislaspilarann. Lagið
sem byrjar á þessa
leið: „I got something
to say, I raped your
mother to day" ætti
að peppa þig upþ f
að þola enn eitt helvftisárið í þessu ban-
analýðveldi.
Bestu kaupin felast I Blossom after
Thundering. Þetta er góð sjötfu skota
kaka. Það ýlir í þessu og gefur hvell, litar
uþp himininn og skotin eru andskoti
langdræg. Nágranni þinn finnur til öfund-
ar og sérstaklega þar sem hann veit ekki
aö verðið er undir tvö þúsund kalli.
Farðu á brennu. Það er ekkert eins gam-
an eins og að vera heitt að framan og
kalt að aftan. Til að ná hita f afturendann
dugir ekkert annað en að taka pela með
og fyrir alkana er bara að setjast á log-
andi stjörnuljós eða að leyfa rassinum
bara að kæla sig eftir alla hátíðarsetuna.
Hljóö- og myndlistarmaðurinn Finnbogi
Pétursson fékk þá frábæru hugmynd að
setja hljóðnema út á svalirnar hjá sér
síðasta gamlárskvöld og taka upp flug-
eldalætin i vesturbænum frá kl. 23.45 til
0.45. Útkoman kom út á disknum
„Firework“ nýlega sem Smekkleysa gef-
ur út. Verkið stigmagnast og nær glæstu
flugi eftir kortér, sfðan dregur úr látunum
og undir lokin heyrist bara annað slagið I
einmana ýlum. Notkunargildi þessa
disks er ómælt. Gæludýraeigendur geta
notað hann til að venja dýrin við áramóta-
geðveikina með því að byrja að spila
diskinn á lágum styrk í byrjun desember
og auka svo hávaðann jafnt og þétt. Er-
lendir feröamenn eiga eflaust eftir að
kauþa diskinn mikið og íslendingar er-
lendis geta spilað diskinn til að kreista
fram heimþrá eftir íslensku gamlárs-
kvöldi. Diskinn má þvf nota á margan
hátt og hann er eiginlega bara ónothæf-
ur í einn dag á ári. Og það er á morgun.
Nema auðvitað að fólk sé fjarri manna-
byggðum eða vilji
njóta áramótanna
með heddfóni.
Hl-Fly rakettan er
nánast sú
dýrasta á mark-
, - aðinum. Kostar
þrjú þúsund og fimm hundruð kall. Fer al-
veg ótrúlega hátt og dugir f heilar fjórtán
sekúndur. Hún góö til að sýna sig og ein
af þessum stóru sem gefur karlinum á
heimilinu aukiö sjálfstraust.
Sumum finnst mikilvægara að gera
eitthvað stórkostlegt og frábært en að
græða peninga. Slíkir menn taka
gamanið fram yfir allt annað, vilja
lifa lífinu lifandi og leyfa sem flestum
að skemmta sér með. Agnar Tr.
Le’macks er einn af þessum mönn-
um. Hann og frmm aðrir náungar
mynda hóp sem einhverjir eru farnir
að kalla Skjálftahóp. Það er vegna
þess að um verslunarmannahelgina
stóð þessi hópur fyrir rosalegu fjöri
sem kallaðist Skjálfti og var haldið
fyrir norðan. Allir helstu plötusnúð-
arnir þeyttu skífur og þetta þótti
takast mjög vel. Nú ætlar þessi sami
hópur að standa fyrir ægilegu ára-
mótateiti í Þórscafé. Náungarnir
fimm sem eru með Agnari í liði eru
allir nafntogaðir í tónlistar-, nætur-
lífs- og skemmtanabransanum og
heita ísleifur Birgir Þórhallsson,
„ísi“, Margeir Ingólfsson, „Dj Mar-
geir“, Árni Einar, „Dj Árni E“, Helgi
Már Bjarnason, „Party Zone maður“
og Þórhallur Arnórsson, „Tóti“.
„Þetta verður alveg rosalegt. Við
erum með alla bestu plötusnúða
landsins og einn frá New York. Hljóð-
kerfið er svakalega gott og ljósakerfið
líka. Samt er þetta með ódýrari ára-
mótateitum sem í boði eru, kostar að-
eins tvö þúsund kall inn,“ segir Agn-
ar.
Ætliöi sem sagt ekkert aö grœða á
þessu?
„Nja, við viljum frekar hafa þetta
kúl og gera sem flestum kleift að
sletta úr klaufunum. Kannski fáum
við einhverja smáaura ef mætingin
verður almennileg," svarar Agnar af
hógværð.
Það hefur lengi viljað loða við ára-
mót ógurleg eftirvænting til gamlárs-
Þetta er hluti aðstandenda og plötusnúða áramóta-Skjálftans. Frá vinstri: Robbi
Chronic, Agnar Tr., Tóti, ísi, Margeir, Árni E., Andrés og Heigi Már.
kvölds og mikið ráðabrugg um
skemmtun sem á að slá öll met. Allir
ætla að skemmta sér betur en
nokkurn tíma áður. Djamma alla
nóttina og upplifa eitthvað „geð-
veikt“. Svo kemur á daginn að kvöld-
ið var ekkert sérstakt, jafnvel klénara
en flest önnur kvöld ársins. Vonlaust
að fá leigubíl, útilokað að fá eitthvað
að borða og troðningur, olnbogaskot,
sígarettugöt, sull og sviti á skemmti-
stöðunum. Finu fotin ónýt. Veröur
þetta ekki bara enn eitt svona teitiö?
„Nei, einmitt ekki. Við erum að
halda almennilegt og skipulagt teiti
en ekki eitthvað stjórnlaust rugl og
vitleysu. Þetta verður til dæmis á all-
an hátt öðruvísi en það sem var á
Astró í fyrra þegar auglýst var að þar
yrði Playboy-kvöld og stelpurnar sem
sátu fyrir í tímaritinu yrðu allar á
staðnum. Þeir sem mættu urðu fyrir
miklum vonbrigðum þegar ekkert var
að sjá nema þrjár stelpur frá Eskimo
Models í bolum sem stóð á Playboy,“
segir Agnar og bætir við að Skjálfta-
menn leggi áherslu á að vera frumleg-
ir. Þeir velji staði sem eru óvenjuleg-
ir og hafi uppákomurnar óhefðbundn-
ar. Eins og þegar hefur komið fram
verður Skjálfti á Þórscafé þessi ára-
mótin en Agnar vill meina að sá forni
staður sé eitt best geymda leyndar-
málið í íslensku næturlífi. -ILK
■ _ ————— -
Páll Oskar og Arni Johnsen verða í sama húsi,
annar á gamlárskvöld og hinn á nýárskvöld.
Hótel Island flaggar ofur
hommanum og sjálfri
A Hótel Islandi, Broadway, verður
Páll Óskar Hjálmtýsson í
eðalklúbbastuði. Það verður
ekkert rugl því Óli Lauf er
enginn Árni Johnsen. Hans
skemmtikraftar fá að haga
sér eins og þeim sýnist bak-
sviðs og þess vegna verður
Palli í góðu skapi (ekki
sköpum eins og Paparnir
forðum) með félögum sinum í Casino.
Þeir spila alla þessa slagara sem þejr
eru vægast sagt vel þekktir fyrir. Á eft-
ir þeim spilar popphljómsveitin Sól-
dögg sem er víst að meika það i Bæj-
aralandi (já, það er í Þýskalandi). Sól-
daggarmenn gefa Palla örugg-
lega ekkert eftir hvað stuð,
sprell og áramótafjör varðar.
Húsið verður annars opnað
klukkan ellefu og hljómsveitim-
ar eiga að vera farnar af sviðinu
klukkan fjögur. En það er bara
að vona að það breytist eitthvað.
Á nýárskvöld býður Óli Lauf svo
upp á Vinardansleik ásamt íslensku
óperunni. Húsið verður opnað kl. 19 og
hefst að sjálfsögðu með stórkostlegri
máltíð. Síðan
mæta þeir Árni
Johnsen (sem
betur fer einu
kvöldi á eftir
Páli Óskari) og Geir H. Haarde (við
skulum vona að hann gefi samt ekki út
sólóplötu á nýju ári). Óperusöngvar-
arnir Þóra Einarsdóttir og Björn
Jónsson syngja síðan ásamt kór ís-
lensku óperunnar. Að lokum leikur
Sinfóníuhljómsveit íslands fyrir
dansi, hvorki meira né minna. Þetta er
sjóvið sem amma og afi flla.
Gamla Amma Lú:
H-rHJJJUJ:!!-
Íll:JjJlli)lJ/íjJjJ
Spænska diskótekakeðjan Ku
verður á Infernó, gömlu ömmu Lú
undir Kringlunni. Þar verður
spönsk klúbbastemning í algleym-
ingi. Ekkert nema allsberar yngis-
meyjar, stæltir folar og jafnvel slatti
af dragdrottningum. Plötusnúðamir
Arnar, Frímann, Grétar, Bjössi,
Reynir og Robbi Rampage þeyta
skifum og kvöldið mun enda með
því að fara út yfir öll velsæmis-
mörk. Þeir vita hvernig fór sem
mættu síðast, nú í haust, þegar Ku
mætti á klakann til að hrista upp í
víkingablóðinu. Heitt mætir köldu á
Ku á gamlárskvöld.
Súlnasalur Hótel Sögu á Nýárskvöld:
‘68 kynslóðin og
Kári Stefánsson
Á gamlárskvöld ætla Skjálftamenn að halda óvenjulegt
tímamótateiti á einu best geymda leyndarmáli íslensks næturlífs,
hinum ævaforna og nýuppgerða skemmtistað Þórscafé. Þeir
ætla að hafa þetta kúl og láta aðgangsmiðana kosta lítið.
alvöru
m mmm
teiti
Hvernig var
árið?
- rætt við forsíðu-
efni Fókuss
m
Burtflognir
Islendingar
sem hafa það
bara gott:
Úr fjötrum
1 í frelsi 5
Kápumyndina teiknaði
Þórarinn Leifsson.
Hið árlega partí ‘68 kynslóðar- hlýða á ræðumann kvöldsins sem
innar verður haldið í
Súlnasal í blábyrjun árs.
Á nýársdag verður svaka
dinner og dansiball með
föngulegum gestum og
ekta hippasukki fram eft-
ir morgni. Það er að vísu
uppselt í matinn og búið
að vera nánast frá þvi í
fyrra. Enda segir sagan að
það sé fastur kjarni sem
sæki þessa skemmtun. I ár
er matargestum boðið að
er enginn annar en ‘68
kynslóðar ofurgaurinn
Kári Stefánsson. Hipp-
arnir breyttu heiminum
og uppskáru Kára,
ásamt öllum hinum.
Hann hlýtur að verða í
góðu skapi á nýju ári
j ^ jaam þar sem þetta sem nú
Kári Stefánsson er er að ljúka gekk upp
ræfcumabur ‘68 hjá honum. Svo verð-
kvnslóðarinnar. ur HeUisbúinn þarna
1 með útjaskað pró-
gramm sem hann
heimfærir að vísu r
upp á kvöldið. son r°kkar aö
Systkinin Ellen hætti h'PPa.
Kristjáns og KK
taka lagið en fyrir dansi leikur
Pétur Kristjáns ásamt hljóm-
sveitinni Pops. Það verður því
kynngimagnað stuð hjá gömlu
gerpunum öllum saman. Matur
og ball kostar 5.700 krónur en
ballið skitnar 2.000 og húsið verð-
ur opnað klukkan hálftólf fyrir
ballgesti.
Hvað finnst
fyndnasta
manni landsins
um árið?
Drepfýndið ár
Bestu
plöturnar
Átta
poppfræðingar
6 velja poppplötur
ársins.
1998 í tölum:
1850
íslendingar
dóu á árinu
7
Heimsfrægð
Frægðarspor
• / Islendinga í
' útlöndum.
Völvuspá
Allt um kvótann,
lögguna, Keikó
og Hussein 1999.
8-9
Menn ársins
Itarleg úttekt á
hetjudáðum og
glapræðum.
10-15
Ár Skítamórals
Meikdraumar
og léttpopp.
30. desember 1998 f Ókus
3