Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Page 9
ardóttur „Á meðan nóttin líður“.
Kvikmyndin, sem mun fá titilinn
„Operation Ground Zero“, verður
að vísu um margt frábrugðin bók-
inni en aðalpersónurnar skarta
engu að síður íslenskum nöfnum
smnar hverjar. í aðalhlutverkum
verða: Bruce Willis, Chuck
Norris og Pamela Anderson
Lee.
Popp
Fjórar nýjar hljómsveitir koma
fram á árinu. Þær munu heita
„Mannaskítur að morgni", „Slím-
himnubólga", „200.000 sár á lík-
amanum" og „Með í eyrunum".
Hljómsveitin Botnleðja flytur
sig um set til London og gerir al-
vöru úr því að meika það, einkum
eftir að hljómsveitin leggur niður
gamla nafnið og breytir því í „The
Trixiebells."
Talsverð fjölgun verður í hljóm-
sveitinni Bang Gang sem við það
breytir einnig um nafn og verður
Gang Bang.
Hljómsveit allra landsmanna,
Stuðmenn, mun alfarið snúa sér
að skógrækt á komandi ári og
mun einungis gefa út plöntur í
framtiðinni.
Miklar breytingar verða á ís-
lensku popp-landslagi þegar hinn
kunni popp-skríbent Morgun-
blaðsins, Árni Matthíasson,
verður fyrir hugljómun í þriggja
vikna sumarleyfisferð um Suður-
ríki Bandaríkjanna og kemur til
baka sem „Born Again Christian
Country Fan“ og skrifar upp frá
því eingöngu um kristilega kán-
trý-tónlist.
Fjölmiðlar
Tímaritið vinsæla „Séð og
heyrt“ mun ráðast í sjónvarps-
rekstur á árinu og mun stöðin,
sem fá mun nafnið „Gróa“, ein-
göngu verða með beinar útsend-
ingar. Einkum verður sjónvarpað
frá brúðkaupum, afmælum í
veislusölum og heimahúsum og
allskyns kokteilpartíum. Miklar
deilur mun vekja vikulegur þátt-
ur á stöðinni sem fjallar um nýj-
ustu hjónaskilnaði og bera mun
nafnið „Hvað klikkaði?"
Sjónvarp
Sjónvarpsdagskráin verður að
mestu með hefðbundnu móti á
komandi ári. Framhaldsmynda-
flokkurinn „Nýi presturinn" mun
þó klárast um miðjan
febrúar. Líklegt er að
inn fyrir hann komi
ástralskur mynda-
flokkur um sam-
band feðga sem reka
sundlaug í Wakiki-
þjóðgarðinum.
Fréttir ríkis-
sjónvarpsins
verða með hefð-
bundnu sniði á
næsta ári en þó
munu þær breyting
ar verða í byrjun
vetrardagskrár að
fréttastjórinn Helgi
H. Jónsson mun
mæta skegglaus til
leiks.
Fótbolti
íslenska landsliðið
í fótbolta gerir góða
hluti á árinu, einkum
eftir að það upp-
götvast óvænt að
Guðjón Þórðar-
son á fjóra upp-
komna syni í Hollandi. KSI býðst
til að greiða upp gamlar meðlags-
skuldir með því skilyrði að Uvi,
Markus, Ruud og Edgar gerist
íslenskir ríkisborgarar þegar í
stað. Einnig bætist íslenska land-
liðinu óvæntur liðsauki þegar
Ryan Giggs gengur að eiga Ragn-
heiði Clausen sjónvarps-
þulu, eftir snöggleg
kynni á diskóteki í Car-
diff, og ákveður að flytja
heim og gerast íslensk-
ur ríkisborgari.
Gengi KR-liðsins
verður rokkandi fram
eftir árinu, einkum á
hlutafjármarkaði, en
tekur að skána þegar
tekið verður upp á því
að skrá gengið í mörk-
um.
Roskinn Eskfirðingur
vinnur stóran vinning í
Víkinga-lottóinu um
miðjan apríl og ákveður
að gera gott fyrir heima-
byggð sina og kaupir
breska knattspyrnumanninn
Paul Gascoigne sem leika mun
með KVA næsta sumar við mikla
velgengni þar til „Gazza“ verður
handtekinn ofurölvi á
„Neistaflugi" á Norðfirði
um verslunarmannahelg-
ina fyrir að hafa nauðgað
tveimur kærustum leik-
manna KVA auk eigin-
konu þjálfarans.
Keikó
Keikó verður sleppt úr
kví sinni í lok júni. Hann
verður skömmu siðar hand-
tekinn í Panama-skurðin-
um verandi á heimleið vest-
ur til Oregon.
Eriendir gestir
Margir frægir gestir munu
heimsækja landið á komandi
ári. Einkum tengjast þessir gestir
Kaffibarnum á einn eða annan
hátt. Það mun valda miklum usla
þegar popp-söngkonan Madonna
birtist þar óvænt ásamt friðu
foruneyti eitt föstudagskvöld í lok
ágúst. Hún mun fá sér tvo hot-
shot á barnum niðri, ræða þar
stuttlega við Ingvar Þórðarson
og fara síðan upp og reyna þcn
geðveikt við Erik Hirt.
Fleiri stjörnur munu heim-
sækja Kaffibarinn á árinu og má
þar nefna meðal annarra: Cher,
Tony Morrison, Jack Nichol-
son, Antonio Bandeiras, Aqua-
flokkinn, Gerhard Schröder,
Charles Dickens Jr., Dr. Spock
og Captain Kirk (sem verða hér-
lendis við tökur á Star Trek 17 í
Kapelluhrauni í 3 vikur), Alanis
Morissette, Beck, Jennifer
Lopez, Seal og Red Hot Chili
Peppers.
Reyndar verður ánauðin slík að
það óhapp verður í lok nóvember
að irska stór-
sveitin U2 kemst ekki inn á Kaffi-
barinn og kemst Villi dyravörður
í heimsfréttirnar fyrir vikið. Það
sem í upphafi virtist ætla að
verða hneisa fyrir Reykjavíkur-
borg snýst hinsvegar upp í þá
mestu landkynningu sem ísland
hefur fengið í heimspressunni
með fyrirsögnum á við: „You too!“
og „Rockers on ice in Iceland".
Eftir viðtal við Villa á CNN fær
hann boð um að gerast dyravörð-
ur á „No Stars Allowed-klúbbn-
um“ í London.
Tony Blair mun fljúga yfir
landið á leið til Japan. Talsverðar
líkur eru á því að hann líti niður
á okkur útum flugvél-
argluggann.
Þá mun bandaríska
kvikmyndastjarnan
Julia Roberts hug-
leiða það alvarlega að
koma til landsins. Af
því verður þó ekki.
Kristján Jóhanns-
son mun gera stuttan
stans í Leifsstöð á Þor-
láksmessu þar sem
þrjú þúsund manns
hafa safnast fyrir til að
hylla söngvarann.
Þrátt fyrir að vera
vansvefta eftir 18 tíma
flug frá Sidney í Ástral-
íu og annað eins
framundan, lætur hann
til leiðast og tekur lagið
fyrir fólkið. Vegna mannfjöldans
verður Kristján látinn syngja í
kallkerfi stöðvarinnar sem verður
til þess að það springur, auk þess
sem hálft flugstjórnarsvæði Kefla-
víkurflugvallar dett-
ur út af radar í
flugtumi. Af þess-
um sökum verður
Kristján innlyksa
hér á landi yfir
jólin þar sem
ekki verður
flogið til né frá
landinu í tæpa
viku.
Rolling Sto-
nes munu loksins
heimsækja landið
og halda hér tón-
leika í lok júní.
Hinsvegar
munu þeir ekki
verða haldnir í
Sundahöfn
eins og til stóð
þar sem undan-
þága frá hávaða-
reglugerð
Reykjavíkur-
borgar fæst
ekki sam-
þykkt í borgarráði og
munu Rollingarnir í staðinn
leika á Ytri höfninni.
Landinn meikar það
Margir íslendingar munu gera
það gott á erlendri grund á kom-
andi ári.
Miklar væringar verða í
gusgus-hópnum þegar söngvara
hljómsveitarinnar, Daníel Ágúst
Haraldssyni, berst óvænt tilboð
um að syngja dúett með Celine
Dion í lagi við nýja teiknimynd
frá Disney-fyrirtækinu.
Árni Johnsen og Geir
H. Haarde verða framlag
íslendinga til
Eurovision-keppninnar
næsta vor. í stað þess
að syngja mun fjár-
málaráðherra greiða
framlagið, sem nemur
120 milljónum króna,
út i hönd.
Mikla athygli vekxm
þegar þekktur breskur
plötusnúður endurgerir
gamla „Ljóma-lagið“ með
Ríó Tríó í jungle-trip-
hop-stíl og lagið slær í gegn
á klúbbum víðsvegar um Bret-
landseyjar. í tilefni þessa ákveða
þeir Ríó-menn að koma saman aft-
ur og fara í tónleikaferðalag um
Bretland. Sú ferð mun ganga mjög
vel þar til kemur að laginu „Bæ-
jabba-babba-bæ“.
Pör ársins
Ragnheiður Clausen og Ryan
Giggs verða gefin saman í byrjun
september í Bústaðakirkju af séra
Pálma Matthíassyni og mun ís-
lenska landsliðið leika knatt-
spyrnu undir athöfninni.
Myndlistarkonan Sjöfn Har
mun taka saman við myndlistar-
gagnrýnandann Braga Ásgeirs-
son. Heimili þeirra hjóna mun
verða í Listhúsinu i Laugardal.
Logi Bergmann og Elín Hirst
munu óvænt kyssast í lok eins
fréttatíma um miðjan maí og
verða óaðskiljanleg upp frá því.
Til dæmis munu þau sitja þétt
upp að hvoru öðru þegar þau lesa
fréttirnar og haldast hönd í hönd.
Mikið verður fjallað um þetta í
blöðum og útvarpi fram eftir
sumri, einkum í Þjóðarsálinni.
Smám saman mun þjóðin þó venj-
ast þessu og taka nýja fréttaparið
í sátt.
Bryndís Hlöðversdóttir og
Svavar Gestsson. Sameiningar-
málin taka óvænta stefnu rétt fyr-
ir prófkjör í Reykjavík þegar
Svavar og Bryndís byrja SAMAN
og sækjast SAMAN eftir 1. sætinu
í Reykjavík. Miklar deilur spretta
af þessari hugmynd og verður
einkmn deilt um þau orð Svavars
að hann ætli að „sitja undir
henni“ á þingi. Nýjung þessi mun
þó síðan vinna sér sess innan
Samfylkingarinnar, þar sem þetta
þykir sýna góðan samhug vinstri-
manna og samvinnu kynjanna í
nýju ljósi, og innan raða hennar
munu þrjú önnur pör verða kosin
á þing í sama sætið.
umm<£ 1 i
a r s i n s
W
„Að sjálfsögðu verður
þessu máll haldið áfram
meðan Sverrir gegnir
stöðu þriðja ritstjóra
Morgunblaðsins eins og
hann hefur gert undan-
farið.“ Daviö Oddsson
forsætisráðherra um
framboðsmál Sverris
Hermannssonar.
„Ég væri tilbúinn að gera bandalag viö sjálf-
an skrattann í því skyni að afnema kvóta-
kerfið og koma á heilbrigöu fyrirkomulagi við
fiskveiöar. Sverrir er vélbyssukjaftur sem við
þurfum á að halda í þessari baráttu.'1 Reynir
Torfason hafnarvörður.
„Ég sé mig starfa í bakvarðasveit sjálfstæð-
ismanna og sinna því en ég verð ekki í fram-
varðasveitnni." Árni Sigfússon borgarfulltrúi
fyrir D-lista, en hann lagði pólitíska stöðu sína
undir fyrir kosningarnar sem enduðu þannig
að R-listinn fór með sigur af hólmi.
„Það er algerlega ólíð-
andi að menn komist
upp með það að míga á
Alþingishúsið óáreittir.
Fyrir svoleiðis verða
menn nú teknir og kærð-
ir.“ Georg Kr. Lárusson,
settur lögreglustjóri, en
hann þótti leggja áherslu
á önnur atriði í löggæsL
unni en forveri hans.
„Ég hef verið mjög siösamur í allri mlnni kvik-
myndagerð og það sama er að segja um
þessa mynd. Þetta er bara lítil hugmynd sem
varð, eins og Hilmar Örn segir, aö gargandi
meistarastykki.“ Friðrik Þór Friðriksson kvik-
myndaleikstjóri um erótíska stuttmynd sfna.
„Mér til undrunar hefur Dagur haldið áfram
aö koma út eftir kosningar, ólíkt öörum kosn-
ingablööum, sem ég hef séö til.“ Hannes
Hólmsteinn Gissurarson.
„Maður er meira að segja viss um að Árni
Johnsen fer til hans og blður um leyfi áður en
hann gefur út hljómplötu." Guðmundur Andri
Thorsson rithöfundur um stöðu Davíðs Odds-
sonar f Sjálfstæðisflokknum.
„Ekki ég - ekki benda á mig, segja ráðherrar
og vísa á undirmenn sem vísa á aðra undlr-
menn og svo koll af kolli þar
til ræstingakonan fer að
velta því fyrir sér hvort hún
hafi brugðist.“ Kristín Hall-
dórsdóttir alþingismaður.
„Árni er einfaldlega dæmd-
ur af verkum sínum. Þeir
sem eru virkir, kjósa ekki
Árna.“ Dagný Jónsdóttir, f
varstjórn FUF, um formann-
inn Árna Gunnarsson.
„Mér finnst skrýtið að
menn séu farnir að líta á
mig sem frumkvöðul i við-
skiptum. Ég hef alltaf litið
á mig sem fyrst og fremst
vísindamann, í annan stað
lækni og í þriðja stað held-
ur lélegt skáld.“ Kári Stef-
ánsson hjá íslenskri erföa-
greiningu.
„Við sem vorum á móti sameiningunni hérna
höfum sagt að það hafi alltaf staðiö tll að
Keikó kæmi til Eskifjarðar. Þangað til Banda-
ríkjamennirnlr fréttu að kommúnistar væru
komnir hér til valda. Þá hættu þeir við.“ Aðal-
steinn Jónsson (Alli riki).
„Reiðin sem sýður á fólki um allt land út af
ranglæti og óöryggi kvótakerfisins er slík að
ekki dugar að setja pottlok yfir. Stjórnmála-
hreyfing, sem ætlar sér aö boða áfram
„besta kvótakerfi í heimi“, ættl aö velja sér
aðra þjóð.“ Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður.
„Svo segja menn „Frjáls Willy". Hann verður
bara sperrtur inni í fangelsi. Ég veit hvað
vakir fyrlr þessum mönnum. Þetta er veiði-
mennska. Menn eru að veiða peninga." Hilm-
ar Sigurbjörnsson trillukarl.
„Komi fram tlllaga um
sameiginlegt framboð nú
í vor eða snemmsumars
er það ávísun á eitt og
aðeins eitt - átök og
klofning Alþýðubanda-
lagsins.“ Steingrímur J.
Sigfússon alþingismaður.
„Við höldum að þetta komi ekki til með að
draga úr hagvexti. Ef eitthvað er þá eflir HM
bara keppnlsandann." Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, um hvort vinnu-
stundir tapist meðan HM stendur yfir.
30. desember 1998 f Ókll