Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Qupperneq 3
m g ö m æ 1 i
e f n i
Kynsjúkdómur í
sókn:
Klamedíu-
faraldur
Drifðu þig í menningarskokk um helgina
og læddu þér á opnanir á myndlistarsýn-
Ingum. Einar þrjár verða opnaðar á morg-
un kl. 16; í Nýló, Ásmundarsal og á Kjar-
valsstöðum. Það er yfirleitt enginn að
spá í það hvort þú sért með boðsmiða,
þú færð frítt léttvín - og stundum eitt-
hvað sterkara - og þarft bara að ganga
einn hring um svæðið og segia að þetta
eða hitt sé nú assgoti kraftmikið hjá
stráknum eða að þarna sé nú verulega
vel unnið með rýmið hjá stelpunni. Þarna
hangir allt flottasta liðið; sætustu stelp-
urnar og skemmtilegustu strákarnir, og
það er ástæðulaust annað en að þú sért
í hópnum.
*r
‘’Enga fjárans ofgnótt lengur! Jólin eru
húin, hangiketið og hamborgarhryggirnir
étnir, skitnir og á góðri
siglingu út á Atlantshaf,
svo nú er það bara
gamla og góða ýsan í
öll mál aftur. Hún er
reyndar orðin alltof dýr,
en kannski alveg þess
virði, með kartöflum og
hamsatólg - a la
mamma.
Jíiil Babes
í fangelsum um allan heim er einmana
fólk sem óskar sér einskis frekar en aö
hitta góða manneskju
eins og þig til að deila
jífinu með. Já, þetta
fólk hefur gert sín
mistök, en nú er það
fullt iðrunar og horfir
bjartsýnt fram á veg-
inn. Á slóðinni
yvww.jailbabes.com er stefnumótaþjón-
usta fyrlr kvenfólk í bandarískum fang-
elsum. Þar eru rimlabeibin í hrönnum
með skýringarmynd-
um og haldgóðum
persónuupplýsingum.
Kvenmennirnir eru
flokkaðir eftir litarhafti
og aldri og athygli vek-
ur hve margar stúlkur-
nurvilja bæði kynnast
mónnum eða konum. Ekki kemur fram
fýrir hvað stúlkurnar sitja inni og sjaldan
er vitað hvenær þær sleppa út. Það kost-
ar ekki nema 7 dollara að komast I sam-
‘band við hvert beib - öðru eins hefur nú
verið eytt í veiðimennskuna.
Drum & bass-aðdáendur komast í spik-
feitt á morgun þegar fyrsta Vlrknl-kvöld
ársins fer fram á
Kaffi Thomsen.
Þrír hoppandi
kátir DJ-ar, öl
með miðanúm
og meiri háttar
stemning fram
/ á nótt. Virkni
ætlar sér að vera virk
áfram I að kynna D&B-iö með mánaðar-
legum uppákomum - gott framtak!
Fáðu þér góða skó meö almennilegum
sóla. Þú vilt ekki detta á rassinn og liggja
fótbrotinn f strætinu eins og vitleysingur,
er það? Mannbrodda á línuna, grófa sóla
Tindir hvern skó! Vonum svo bara að það
komi almennilegur vetur með mann-
skæöu svelli. Þá getum við
sýnt hvað í mannbrodd-
unum býr og staulast
um bæinn ofurvar-
kár og hrikalega
örugg með
okkur.
Ektabítillinn Óttar Felix:
Pops er hið
raunverulega
sixtísband!
„Við eram hið raunverulega sixtis-
band,“ segir Óttar Felix Hauksson,
einn af þremur gítarleikurum hins sí-
endurvakta unglingabands Pops, „við
erum ðe ríl þing“. Bandið starfaði á
tímabilinu 1966 til ‘70, spilaði aðallega
stuðlög eftir aðra og gaf ekki út ann-
að en litla plötu með Flosa Ólafssyni,
„Það er svo geggjað að geta hneggj-
og Björgvin Gíslason á gítar, Jón
Ólafsson er á bassa, Ólafur Sigurðs-
son á trommur en Pétur Kristjánsson
sér um söng og almennt stuð. „Það
átti bara að vera eitt gigg á Hótel ís-
landi, en þau urðu fjögur fyrir troð-
fullu húsi. Upp úr því höfðu for-
sprakkar ‘68 kynslóðarinnar sam-
band og báðu okkur um að spila á
að.“ „Menn komu og fóra og það hafa
líklega komið einir tuttugu við sögu í
Pops,“ segir Óttar. „Þegar við ákváð-
um að koma saman í tilefhi af tuttugu
og fimm ára afmælinu ‘92 valdist
þessi hópur og Pops hefur verið
svona síðan.“
Auk Óttars spila Birgir Hrafnsson
Hótel Sögu á nýárskvöld ‘93. Eftir
ballið ‘95 var ánægjan orðin slík að
við voram fastráðnir til aldamóta."
Það hefur lika orðið að sið að Pops
spili næsta laugardag eftir nýárs-
kvöld og því verður Pops-ball annað
kvöld á Hótel Sögu. Óttar segir undir-
búninginn vera kominn í fastj
skorður: „Við byrjum að æfa í byrjun
nóvember, komum saman vikulega
og rifjum upp formatið. Síðan
komumst við í rafmagn á annan í jól-
um og þá eru keyrðar tvær æfingar á
dag fram að ballinu.“
Pops að gefa út plötu
Óttar segir að Pops ráði yfir 70-80
lögum, en alltaf sé hent og „ný“ lög
tekin inn. „Kjarninn er Stóns,
Kinks, Bítlarnir, Spencer Davis,
Animals, Manfred Man - enska
bylgjan - en amerískt í bland, engin
íslensk, nema einstaka sinnum lög
sem Pétur gerði fræg seinna."
Gítarleikarinn er ekki í neinum
vafa um að Pops eru sífellt að batna.
„Þetta er miklu betra band en í
gamla daga, við eram eldri og reynd-
ari og það er meiri skilningur á lög-
unum. Við höfum jafnvel verið að
ræða um að gefa út plötu með úrvali
af prógramminu, teljum okkur vera
orðna það góða. Við gætum spilað
miklu meira en bara í kringum ára-
mótin, en Óli trommari býr í Dan-
mörku og það var heiðursmanna-
samkomulag okkar á milli að enginn
annar trommari yrði í Pops.“
Þó gamla bítlarokkið eigi alltaf
mest pláss í rokkhjarta Óttars segist
hann þó hlusta á allt: „Klassík og ný
bönd eins og Smashing Pumpkins og
Pavement. Dóttir mín spilar á bassa
og kemur oft með eitthvað nýtt i
hús. Ég er að vísu lítið í hási og
hipp-hoppi, er bara ekki nógu hrif-
inn, en rokkarfleifðin lifir góðu lífi
og þar finn ég mig.“ -glh
Thor’s Hammer
verðmætusty ph
i fj
lo
Fyrir tuttugu áram vora nokkrir
strákar í unglingavinnunni í Kópa-
vogi. Þéir voru að mála grindverk í
vesturbænum þegar þeir leituðu
skjóls undan rigningarskúr í yfir-
gefnu húsi. í einu hominu rákust
þeir á lítinn pappakassa sem í reynd-
íust vera nokkur óspiluð eintök af
jtvöfaldri smáskífu Thor’s Hammer
j(Hljóma), „Umbarumbamba“. Strák-
amir skiptu plötunum á milli sin og
ifóru með þær heim til sín eftir
vinnu. Á þessum tuttugu áram era
þeir allir búnir að týna plötunum
sínum, enda eru litlar vinyl-plötur
sjaldan álitnar verðmæti.
En strákarnir hefðu átt að passa
betur upp á plöturnar sínar því í
seinni tíð hefur „Umbarumbamba"
orðið vinsæl meðal þeirra sem safna
vinyl-plötum frá sjöunda áratugnum.
I nýjasta hefði plötusafnarabiblíunn-
ar Record Collector er birtur listi
yfir verðmætustu plötur rokksög-
unnar og þar er hráa rokkplatan sem
Gunnar Þórðar, Rúnar Júl og hinir
strákamir gerðu 1966 í 41. sa
innan um önnur stórmeni
rokksins. Platan er metin á 81
pund, eða rúmlega 100 þúsun
kall. Hér er auðvitað verið i
tala um gott eintak í uppranale
um pakkningum, en plöturn;
voru tvær og pakkað í tvegg,
vasa umslag. Þessi verðmæta tónlist
Thor’s Hammer var nýlega endurút-
gefín á geisladisk og hafa pantanir
að utan ekki látið standa á sér.
Næstverðmætasta plata íslands-
sögunnar er barnaplata Bjarkar,
sem hún gerði 1977, en fyrir hana má
fá í kringum 30 þúsund-kall, sem þó
er ekki nóg til að koma henni á lista
Record Collector.
Arnaldur Máni
skoðar
mannlífið
heima og D
vestan hafs
New York -
Reykjavík
íslenska þjóðin vakin
Kristján Hreinsson talar m.a.
um geisladisk sem
hundurinn hans gaf út '
Hver á hvaða
kúk?
—Þú er það sem þú
borðar
Vetvangsferð í Ölver:
Alþýðusöngvarar í
karaoke 8-9
Mark E. Smith í The Fall:
Hljómsveit 10
skrifstofublókanna
Einn af gleymdu
snillingum
tónlistarsögunnar:
Raftónlist fýrir
reifabörn
Menn aldar-
innar 12-13
Hverjir skara
framúr á tuttugustu
öldinni?
Drum & Bass á
Thomsen
■ Erlendir plötusnúðar fluttir
inn til „trúboðunnar"
Ekki með
Ijótt typpi
Rætt við Olaf
Einarsson,
safnarabúðar-
kaupmann
Vampírur
- Nýjasta
mynd Johns
Carpenters
frumsýnd í dag
• 21
Hvað er að gerast?
Veitingahús ................6
Myndlist....................7
Leikhús ....................8
Popp.......................11
Klassík....................14
Sjónvarp................15-18
Bíó.....................2Ó-21
Hverjir voru hvar..........22
F 6 k u s
fm fylgir DV á
^ föstudögum
Forsíðumyndina tók
Einar Ólason af Ólafi Einarssyni.
8. janúar 1999 f Ókus