Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Síða 14
f
t
Á laugardaginn kl. 16 verða fyrstu tónleikar
Styrktarfélags íslensku óperunnar á þessum
vetri. Fram koma Björg Þórhallsdóttir sópran,
Keith Reed baríton og Gerrit Schull píanóleik-
ari.
Francls Poulenc verður fastur gestur á þriðju-
dögum í Iðnó út þennan mánuð og hefjast
tónleikar hans kl. 20.30.
Innan þess sem kallað hefur
verið „danstónlist" eru margar
stefnur, og ein sú nýjasta og mest
spennandi er „drum & bass“ fyr-
irbærið. Eftir hraða uppsveiflu
er það komið til að vera og nú
hefur það eignast stuðningsaðila
á íslandi því félagsskapurinn
Virkni ætlar að vera með trúboð
einu sinni í mánuði og fá útlenda
d&b snillinga til að koma og
spila. Annað kvöld, laugardags-
kvöld, fer fyrsta Virkni-kvöld
ársins fram með því að þrír
kappar frá Bretlandi - Deep
Blue, Rhodesy og DJ Indicia -
taka snúðabúrið i Kaffi Thomsen
í sínar hendur. Tveir þeir fyrst
nefndu eru að koma hingað í
annað sinn; þeir gerðu allt vit-
laust á Bíóbarnum í ágúst sl.
Þeir eru nátengdir Partisan-út-
gáfunni sem var stofnuð í fyrra
út frá One Little Indian (sem gef-
ur út Björk) og hefur verið að
þróast í eitt besta útgáfufyrir-
tækið í d&b geiranum. Það fékk
mikla athyglina á árinu: „Partis-
an er að verða stórveldi í drum &
bass“ (Mixmag); „Frábært merki,
Partisan flýgur fram úr sam-
keppninni (Knowledge).
Deep Blue er starfandi lista-
maður á merkinu og stefnir að
stórri plötu á árinu en Rhodesy
er titlaður framleiðslustjóri. Báð-
ir eru þeir plötusnúðar, líkt og
DJ Indicia, sem i vinnunni snýr
plötum hjá Rude FM, einni vin-
sælustu dansútvarpsstöðinni í
London.
Rhodesy, eða Paul Rhodes
eins og foreldrar létu hann heita,
segir að uppgangur Partisan hafi
verið hraður. „Þegar við stofnuð-
um merkið höfðum við víðsýni
að leiðarljósi og vildum fá eins
Útsalan
byrjar í dag
Laugarvegur II
s.551 6811
plötudómur
Lewis Parker
- Masquerades & Silhouettes: ★★★'i
DSj
VJJJ jjJ
2x16” pizzur m/2 áleggsteg.
2I. gos og stór franskar í kaupbæti 2090
Fáð’ana heim
Höfuöpaurar Partisan:
Þingvellir í gær, Thomsen á morgun.
mikla athygli og við gátum. Út-
gáfan gekk frábærlega í fyrra,
það komu út sautján smáskífur
og þrjár safnplötur og við höfum
stór plön á þessu ári. Eftir síð-
asta ár veit fólk hvers merkið er
megnugt og við erum í viðræð-
um við aðila í Bandaríkjunum
um samstarf. Markmiðið er að
koma d&b-inu í eyru stærri
hlustendahóps, enda hafa vin-
sældir stefnunnar verið bundnar
við jaðarinn og sumir halda að
Goldie og Roni Size séu þeir
einu sem eru að gera eitthvað af
viti.“
Hverjir eru helsti smellir
Partisan-útgáfunnar?
„Þetta hefur allt gengið mjög
vel innan d&b-senunnar, en lagið
„Risk“ með Foul Play hefur
m.a.s. verið að heyrast á stóru
ríkisstöðvunum, svo kannski er
það helsti smellurinn. Drum &
bass er þó ekki tónlist sem fer
mikið inn á almenna vinsældar-
lista enn sem komið er, en það
gæti breyst.“
Aó hverju stefnir þú þegar þú
snúöast?
„Helsti draumur hvers plötu-
snúðs er einfaldlega að sjá hóp-
inn fara á hreyfingu. Mín per-
sónulega heimspeki i þessu er að
koma alltaf með eitthvað óvænt
inn í prógrammið, ekki hanga of
mikið í sama gírnum heldur gera
tilraunir á fólkinu. Allt of marg-
ir snúðar finnst mér vera of ein-
hæfir í því sem þeir spila.“
Hvernig eru íslenskir áheyrend-
ur miöað við þá í London?
„Það er miklu skemmtilegra
að spila fyrir íslendinga, finnst
mér. Það var frábært í sumar. Á
íslandi er hugsunin sú aðallega
að skemmta sér, en bæði í
London og New York, þar sem
við höfum líka spilað, er fólk allt
of upptekið við að sýnast svalt,
það er einum of hrætt við að
missa stjórn á sér. Við getum
varla beðið að koma aftur til Is-
lands, þetta ætti að verða alveg
frábært!"
Deep Blue byrjar stundvíslega
kl. 22 með létt og djassað pró-
gramm, en Rhodesy fylgir á eftir
með harðari takti. DJ Indicia
kemur svo einnig fram, en hann
er einn af frumkvöðliun d&b-ins
í útvarpsmannastétt. Það er ljóst
að Virkni-félagsskapurinn er
veruleg vítamínsprauta í ört
stækkandi d&b-senuna á íslandi
og fram undan eru DJ-kvöld með
Justice frá Modem Urban Jazz
og Klute frá Certificate 18. -glh
— TILBOÐ
Takt’ana heim
14 16” pizzuveisla aðeins 990
m/4 áleggsteg.
1 Þú kaupir eina pizzu og hvítlauksbrauð
og færð aðra pizzu í kaupbæti
15 Heimsend fjölskylduveisla
Oftar en ekki hef ég lent í því
á ævinni að sjá utan á einhvern
disk og hugsa með mér: „Hvaða
kjaftæði er nú þetta?“ Það var
eitthvað í þeim dúr sem mér datt
í hug þegar ég fékk disk Lewis
Parkers í hendurnar. Einhver
gaur að labba niður i fjöru með
skóna sína í höndunum. Þetta
leit síður en svo út fyrir að vera
eitthvað með viti. En hvað eftir
annað hefur manni verið sagt að
dæma fólk ekki eftir útlitinu og
það á einkar vel við um Lewis
Parker því þetta er einstaklega
góður diskur.
Lewis Parker er ekki svona
þessi venjulegi rappari, það sést
strax á umslaginu. Hann er ekki
að reyna að vera eitthvað, hann
er bara hann sjálfur og gerir það
sem honum sýnist. Það kemur
mjög vel út og er skemmtileg til-
breyting frá öllum gaurunum
með dollaramerkin í augunum.
Vinnslan á útliti disksins er að
sama skapi frábrugðin öllu hinu
dótinu. Bara eitt blað með lág-
marksupplýsingum og varla það.
Lögin á diskinum eru öll frek-
ar í rólegri kanntinum með flott-
um og oftar en ekki seiðandi
sömplum, dálítið svona maður
að labba á strönd... Það er eng-
inn frægur náungi viðriðinn
neitt af lögunum, að minnsta
kosti kannast ég ekki við neinn,
ekki einu sinni útgáfufyrirtækið
Melankolic. Þetta er sem sagt
neðanjarðarútgáfa sem hefur
samt náð til landsins og sem
flestir ættu að setja í geisla-
spilarana.
Guðmundur H.
Guðmundsson
16 16”pizzam/2áleggsteg.
2I. gos og mið franskar í kaupbæti 1390
II 16” pizza m/3 áleggsteg.
og 12“ hvítlauksbrauð 1590
Tveir staðir
Austurveri Háaleltlsbraut 68
Arnarbakki Brelðholtl
drum &
ba
Thomse
Slnfóníuhljómsveltln verður meó létta Vínar-
tónleika I Laugardalshölllnni I kvöld kl. 20 og
mun þar svífa í gegnum Strauss-ættina og
aðra valsakónga sem drottnuðu yfir veröld
sem var. Á morgun kl. 17 endurtekur sveitin
síðan leikinn í Höllinni og á sunnudaginn verð-
ur hún mætt á Egilsstaði þar sem hún mun
leika Vínartónlist fyrir Héraðsþúa kl. 16. Ein-
söngvari á tónleikunum er Izabela Labuda en
stjórnandinn heitir Peter Guth.
14
f Ó k U S 8. janúar 1999