Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 14
Á þriðja hundrað Víetnama býr á íslandi. Orðum þetta rétt: Á þriðja hundrað Víetnam-Íslendinga býr hér á landi. í fyrra komu til dæmis 30 manns hingað frá Víetnam. Allflestir þeirra eru ættingjar fólks sem hefur búið hér í nokkur ár. Fókus kannaði hvernig önnur kynslóð nýbúa spjarar sig. * 1 spyr mig muni eftir Opnun Galleri Horniö, Hafnarstræti 15. Á morgun kl. 16-18 opnar Svelnbj'örn Halldörsson sýningu á olíumálverkum og skúlptúrum sem hann kallar Tré og uppsprettur. Síðustu forvöð Gallerí Sævars Karls. Listamennirnir Hlynur Hallsson og Hlynur Helgason taka niður sam- sýningu sína á fimmtudaginn næsta. Á henni reyna nafnarnir, jafnaldrarnir og skólabræð- urnir Hlynir Halls- og Helgason að aðgreina sig hvor frá öðrum - en þeim félögum hefur oftsinnis verið ruglað saman. Llstasafn Kópavogs, Geröarsafn. Þremur sýn- ingum lýkur á sunnudagskvöld. í vestursal: Lýsing ‘99, olíumálverk og þrívíð verk eftir Nobuyasu Yamagata. Á neðri hæð safnsins lýkur sýningu Sigríðar Rutar Hreinsdóttur á þrettán olíumálverkum og i austursal skúlpt- úrsýningu Hauks Haröarsonar sem nefnist Frelsi og fjötrar. Sýningarnar eru opnar alla daga frá 12-18. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41: Öllum sýning- um lýkur á sunnudagskvöld. Helga Egilsdótt- Ir er með sýningu í Ásmundarsal. Einar Már Guðvaröarson sýnir Ijósmyndir og höggmyndir i steini í Gryfju. Ný aðföng Listasafns ASÍ eru sýnd í Arinstofu. Safnið er opið kl. 14-18. Gallerí Geysir, Hinu Húslnu v/lngólfstorg. „Merkúríus" tekur niður sína fyrstu einka/samsýningu á sunnudagskvöld. Hópur- inn „Merkúrius" samanstendur af fjórum stúlkum. Sýningin er opin föstudag 8-19 og um helgina frá kl. 13-18. Aðrar sýningar Gallerí Ingólfsstræti 8, Reykjavík. Sýning á verkum Ásgeröar Búadóttur. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18. Kaffistofan Lóuhreiörinu, Laugavegi 59. Bessi Bjarnason er með sýningu. Á sýning- unni er 12 vatnslitamyndir og ein acrýl. Sýn- ingin er opin frá kl. 9-18 virka daga en kl. 10-16 á laugardögum. Kringlan. Sýning á grafík og grafíkvinnubrögö- um. Sýingin verður í sýningariými Gallerís Foldar og Kringlunnar á annarri hæð gegnt Hagkaupi. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14. Samsýning 15 listamanna í baksal. Sýningin ber nafnið Frost og funi. Mennlngarmiöstöðin Geröuberg. Sýning á lit- rikum málverkum Bretans Alans James á neðri hæðinni. Mokka. Sýning á verkum Haraldar Karlsson- ar. Hann sýnir kristallaðar hveramyndir unnar úr íslenskum hveraefnum. Á sýningunni er einnig að finna hljóðverk sem unnið er út frá hveramyndunum og hlusta má í heyrnartól- um. Hallgrímskirkja. Þorbjörg Hóskuldsdóttir er með sýningu í anddyri kirkjunnar. KJarvalsstaölr, Flókagötu. Kjarvaissýningin „Af trönum meistarans" með verk frá síðari æviárum Kjarvals. Málverkið „Sjón er sögu ríkari", sem er í eigu danska rikisins, er á sýn- ingunni. Á Kjarvalsstöðum sýnir Einar Gari- baldi einnig verk tengd ímynd Kjarvals og Britt Selvær sýnir textllverk. Hafnarborg, Menningar- og listastofnun Haf- arflarðar: Sýning á útsaumi Kaffe Fassett. Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6: Margrét Guöna- dóttlr er með sýningu sem er opin daglega frá kl. 14-18. Nýlistasafnið, Vatnsstlg 3B, Reykjavlk: Fyrsta sýning Nýlistasafnsins á árinu er samsýning fimm þýskra listamanna og eins listamanns frá Frakklandi. Sýningin ber yfirskriftina Nord Sud fahrt eða Norðurleið - Suðurleið. Sýning- in er opin daglega nema mánudaga frá kl. 14-18. | meira átj www.visir.is Á meðan krakkarnir á íslandi voru að væla í mömmu og pabba um að fá He-Man - það var trend- ið í kringum ‘86 - var Jens Van Hung að sigla frá Norður-Ví- etnam til Hong Kong. „Við flúðum frá Víetnam þegar ég var sex ára,“ segir Jens sem er á átjánda ári og hefur búið hér á landi frá því hann var á því ní- unda. „Þá fórum við í flótta- mannabúðir í Hong Kong. Þar bjuggum við í risastórum sal - þetta var eiginlega fyrrum verk- smiðja - ásamt ótal öðrum fjöl- skyldum. Okkur var úthlutað koj- um og við borðuðum í mötuneyti með öllum hinum.“ Var þaö ekki erfitt? „Nei, það var fínt. Meiri háttar 5ör. Við krakkamir lékum okkur allan daginn og eitthvað af fúU- orðna fólkinu fékk vinnu en ann- ars var þetta bara leikur." Lára Thuan kom til Islands þegar hún var átta ára gömul. Nú er hún orðin sextán ára og er á viðskiptabraut í Fjölbrautaskól- anum við Ármúla. Hún flúði líka frá Norður-Víetnam til Hong Kong og hún og Jens eru frændsystkin. „Við fórum til Hong Kong með pínulitlum bát,“ segir Lára. „Vor- um eitthvað um þrjátíu í honum að mig minnir. Ég var á sjötta ári þegar ég kom til Hong Kong ásamt mömmu og pabba í leit að nýju lífi.“ Var þetta ekki löng sigling? „Við vorum mánuð á leiðinni. Sigldum á daginn og fórum í land á nóttunni." Og gekk siglingin vel? „Ja, við flúðum náttúrlega og þurftum að fara í felur og ails kon- ar á leiðinni. Þetta var ekkert öðruvísi en að strjúka úr fangelsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.