Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Qupperneq 19
pdranold | qrcari&k vlnnu&fofd
fyrir börn
meira á|l
www.v'isir, i s
Sævar Karl er frægur fyrir að velja aðeins það
besta. Nú er hann farinn að styðja við bakið á
hljómsveit sem heitir í svörtum fötum. Sveitin sú
gefur sig út fyrir að vera best klædda hljómsveit
á landinu. Þar er snyrtimennskan ávallt
höfð í fyrirrúmi og meðlimirnir segja að tónlistin
sem þeir spila sé sú besta og skemmtilegasta
sem völ er á. Enda velur Sævar Karl
aðeins það besta.
Pétur Pan vill ekki
verða stór og
flögrar um
sviðið í Borgar-
leikhúsinu í
föngulegum
hópi auka-aðal-
persóna. Friðrik
Frlðriksson er frábær Pan og brellurnar
þykja fínar. Þessi uppfærsla er mun betri
skemmtun en myndin „Hook", sem Steven
Spielberg gerði eftir sömu sögu fyrir
nokkrum árum. Sýnt er á stóra sviðinu kl.
13 um helgina og enn eru örfá sæti laus á
þær sýningar. Sími miðasölunnar er 568-
8000.
í Þjóðleikhúsinu er verið að sýna Bróður
mlnn Ijónshjarta, hádramatíska barnasögu
eftir Astrid Lindgren. Hilmir Snær og ungir
vinir hans fara á kostum og salurinn grætur
og hlær á víxl. Næsta sýning er á sunnudag-
inn kl. 14 og panta má eitthvað af lausu
sætunum í síma 551-1200.
Iðnó sýnir Dimmallmm eftir Mugg kl. 16. á
sunnudaginn. Fallegt leikrit um prinsessu,
svan og ævintýraheim bernskunnar. Sími
530-3030.
Ávaxtakarfan er stútfull af ævintýrum og
ávaxtagríni í íslensku óperunni. Uppselt er
á sýninguna á sunnudaginn og ekki seinna
vænna en aö panta miöa á næstu sýningu,
sunnudaginn 31. Síminn er 551-1475.
Húsdýragarðurinn er kjörin leið til aö sýna
börnunum íslenskan fjölbreytileika náttúr-
unnar. Þrátt fyrir
veðurharðindi eru
dýrin í góðu stuði
og sinna sínum
daglegu þörfum;
að éta og sofa.
Þau eru til sýnis á milli klukkan 10 og 17
um helgina og lofað er góðri sýningu. Litli
kópurinn með kýliö var skorinn upp og los-
að úr kýlinu. Hann er enn í einangrun en
jafnvel má búast við að hann komi ferskur
inn í selalaugina ef hann nær fullum bati.
Áfram Snorri!
í Náttúrugripasafninu við Hlemm er opiö
milli 13.30 og 16. Þar eru dýrin dauð og því
ekki eins hress og í Húsdýragarðinum. Þar
eru þó alls konar furðuskepnur sem gleðja
augað þó sum séu farin að grána.
og viðskiptafræði-
nemi, en hann tekur líka þátt í
Abba-sjóinu á Broadway.
Á stuttum tíma hafa svart-
klæddu strákarnir náð mikilli at-
hygli. Allir hafa piltarnir fiktað
við hljóðfæri og tónlist í mörg ár
en hljómsveitin, í þeirri mynd
sem hún er núna, byrjaði ekki
fyrr en í sumar.
Eruó þið aó vonast eftir frœgð
og frama?
„Jah. Þetta gengur eiginlega fá-
ránlega vel hjá okkur þótt við
séum enn að mótast. Kannski
verðum við ofboðslega frægir ein-
hvern tíma. Markmið okkar er
samt hara eitt
og það er að spila skemmtilega
tónlist. Það er staðreynd að við
erum með skemmtilegustu og
bestu tónlistina," segir Hrafnkell.
Eru grúbbpíurnar byrjaðar að
œsast?
„Við kjósum að taka ekki eftir
því. Við erum nefnilega flestir
lofaðir. En það er rétt að vekja at-
hygli á að Einar er á lausu. Vett-
vangur grúbbpía er þess vegna
ekki alveg glataður."
Eitthvaö aó lokum?
„Garantít stuð.“ -ILK
Þeir vöktu fyrst athygli í des-
ember. Stóðu þá bísperrtir, upp-
strílaðir og að sjálfsögðu svart-
klæddir í verslun Sævars Karls
og spiluðu jólalög með bros á vör,
viðskiptavinum og starfsfólki til
óblandinnar ánægju. Síðan hafa
þeir ekki fengið frið. Þeir eru
pantaðir langt fram í tímann til
að spila á árshátíðum, í brúð-
kaupum, afmælum og á dans-
leikjum. Þeir spiluðu í gær á
Astró og þar að auki eru þeir
bókaðir næstu tvo mánuðina á
Kaffi Reykjavík.
Fókus hafði samband við einn
þessara svartklæddu manna,
Hrafnkel Pálmarsson gítarleik-
ara, og spurði meðal annars
hvort það væri ekki ömurlegt að
vera ungur tónlistarmaður að
spila fyrir gamalt fólk á Kaffi
Reykjavík. Þá sagði Hrafnkell:
„Nei, alls ekki, og þvert á móti.
Tónlistin sem við spilum er eitt-
hvað sem allir fíla. Okkur er vel
tekið hvar sem við erum enda
eru öll gömlu, góðu og skemmti-
legu soul-lögin meginuppistaðan
í prógramminu. Það er alltaf stuð
þar sem við erum.“
Hinir náungarnir í hljómsveit-
inni eru Sveinn Áki Sveinsson,
bassaleikari og tónlistarnemi,
Einar Örn Jónsson, píanóleik-
ari og viðskiptafræðinemi, Sig-
fús Höskuldsson, trommari sem
kennir einnig á slagverk i Lúðra-
sveitinni í Breiðholti, og Jón
Jósep Snæbjörnsson, söngvari
Kjósum að
tsks. ekki eftir
grúbbpíunu
Fyrirsætu-& framkomunámskeið
9 vikna námskeiS hefjast 25. Janúar
• Innwn í fyrirsætustörf
• Föroun
• Umhirða húöar & hárs
• Undirbúningur fyrir myndatöku
• Tískusýningarganga
• Myndataka (18 myndir sv/hv)
• Fíkniefnafræosla
• Vídeomyndir
• Starfanai fyrirsætur koma í heimsókn
• Fylgst með gerð auglýsingar
• Tjánina
• Gengio kynnir fjármálaráögjöf
• Námskeiöiö enaar meö stórri
tískusýningu kringlunni
• aliir nemendur fá eskimo models boli, kynningarmöppu,
viöurkenninaarskjal og óvæntan glaöning frá SEBASTIANog WEUA
auk þess ao komast á skrá fyrir sjónvarpsauglýsingar.
• Starfsfólk Eskimo models veröa í Kringlunni 22-23 janúar.
Gengisfélagar fá 5% afslátt af námskeiöi hjá Eskimo models.
Föstudag og Laugardag munu fyrirsætur frá Eskimo sýna
föt frá Fantasíu.
• Leiöbeinandi er Brynja X Vífilsdóttir auk gestakennara.
• Verö kr. 13,900.
skráning er hafin í síma 552-8012
■BBSS919
22. janúar 1999 f Ókus