Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Page 20
b í ó
Helen Hunt hefur ekki leikið í
kvikmynd í tæp tvö ár eða allt frá
því hún lauk leik í As Good as It
Gets. Fyrir leik sinn í þeirri kvik-
mynd hlaut hún óskarsverðlaunin
sem besta leikkonan í aðalhlut-
verki. Hunt hefur látið nægja að
leika í hinni vinsælu sjónvarpsser-
íu Mad About You (sýnd á Stöð 2
undir heitinu Ástir og átök) en
segja má að þessi margverðlaunaða
sjónvarpssería hafi skotið henni
upp á stjörnuhimininn. Nú er talið
öruggt að Helen Hunt hætti að leika
i seríunni, sem mun þá af sjálfsdáð-
um líða undir lok, og taka að fullu
til við kvikmyndaleik. Eina myndin
Með Chrís Columbus við stjórnvölinn og Juliu Roberts og Susan Sarandon í aðalhlutverkum
má segja að myndin hafi verið gulltryggð þrátt fyrir að ekki færri
en fimm handritshöfundar komi nálægt myndinni.
Stjörnubíó og Laugarásbíó
frumsýna í dag Stepmom, nýja
bandaríska gamanmynd sem fjall-
ar um fjölskyldulíf í nútímasamfé-
lagi. Um er að ræða gamansama
mynd með dramatísku ívafi sem
leikstýrt er af Chris Columbus,
þess hins sama sem gerði hinar
vinsælu kvikmyndir Home Alone
og Mrs. Doubtfire.
í Stepmom segir frá Luke (Ed
Harris) sem áður var giftur bóka-
útgefandanum Jackie (Susan Sar-
andon) en er nú farinn að búa
með atvinnuljósmyndaranum Isa-
bellu (Julia Roberts). Börn
Lukes frá hjónabandi hans og
Jackie, Anna, 12 ára, og Ben, 7
ára, eiga erfitt með að sætta sig
við stjúpmömmuna eins og oft vill
verða. Isabelle er öll af vilja gerð
en á margt ólært í móðurhlut-
verkinu. Hún vinnur fullan
vinnudag og á það til að gleyma
hvenær á að sækja börnin úr
skóla. Hún reynir þó allt sem hún
getur en hefur ekkert að segja í
hina einu sönnu mömmu. Ekki
bætir það úr að Jackie og Isabellu
kemur illa saman og er Jackie í
raun afbrýðisöm út í sér yngri
konu og gerir í því að gera henni
erfitt fyrir. Þrátt fyrir að börnin
fari í taugarnar á Isabellu er hún
ekkert á því að gefast upp. Á
ýmsu gengur en með þrjóskunni
og viljanum fara börnin að meta
Isabellu en þá skellur reiðarslagið
yfir...
Julia Roberts er í dag hæst
>*’'
i HiBlMlui
Fyrrum eiginkonan og sambýliskonan. Susan Sarandon og Julia Roberts í hlutverkum sínum í Stepmom.
launaða leikkonan í Hollywood og
getur valið um öll bitastæðustu
hlutverkin þar í borg. Það þarf oft
meira til en góð hlutverk til að fá
hana til að leika í kvikmynd og til
að tryggja hana fyrir Stepmom
var henni boðið að vera einn
Ed Harris leikur fööurinn sem er klemmdur milli tveggja kvenna.
framleiðandi myndarinnar og
þáði hún það. Susan Sarandon,
sem einnig er í hópi virtustu og
vinsælustu leikkvenna, var í kjöl-
farið einnig boðið að eiga hlut í
myndinni og má því segja að það
hafi verið þeim stöllum báðum
mestur hagur í að vel til tækist og
varla hafa þær orðið fyrir von-
brigðum. Myndin var frumsýnd í
Bandaríkjunum í desember og
hefur notið stöðugra vinsælda.
Með Chris Columbus við stjórn-
völinn og Juliu Roberts og Susan
Sarandon í aðalhlutverkum má
segja að myndin hafi verið gull-
tryggð þrátt fyrir að ekki færri en
fimm handritshöfundar komi ná-
lægt myndinni. Slíkur fjöldi boðar
yflrleitt ekki góð tíðindi og má
ætla að leikkonumar hafi haft
eitthvað um þetta að segja. En
Chris Columbus er reynslumikill
og hæfileikaríkur leikstjóri og er
ekki annað að sjá en að hann hafi
skapað heilsteypt verk úr þess
samkrulli hand-
ritshöfundanna
enda sjálfur vanur handritshöf-
undur og byrjaði feril sinn sem
slíkur. Fyrsta handritið skrifaði
hann um reynslu sína sem verk-
smiðjuverkamaður í Ohio og var
það tekið til kvikmyndunar og
gefið nafnið Reckless. Myndinni
leikstýrði James Foley með
Darryl Hannah og Aidan Quinn
í aðalhlutverkum. Meðal handrita
sem Columbus skrifaði i kjölfarið
má nefna Gremlins, Goonies og
Young Sherlock Holmes. Eftir að
hafa hjádpað Steven Spielberg
við að skrifa handritið að Indiana
Jones and the Last Crusade fékk
hann tækifæri til að leikstýra
Home Alone sem í dag er ein vin-
sælasta kvikmynd sem gerð hefur
verið. Aðrar kvikmyndir hans eru
Only the Lonely, Home Alone 2:
Lost in New York, Mrs. Doubtfire
og Nine Months. -HK
Sunnudagurí
Regnboganum
Eini dagurinn á Kvikmyndahá- IdÍOteme
sem hún hefur samþykkt að leika í
enn sem komið er er Cast Away
sem Robert Zemeckis mun leik-
stýra. Telja má víst að Helen Hunt
hafi þar veðjað á réttan hest hvað
varðar vinsældir því í þessari
mynd starfa þeir saman aftir Zem-
eckis og Tom Hanks en þeir gerðu
Forrest Gump sællar minningar.
Ekki kemur Helen Hunt til að fá út-
nefningu til óskarsverðlauna fyrir
aðalhlutverk því hlutverk hennar
er frekar lítið. Fjallar myndin um
mann (Tom Hanks) sem verður
strandaglópur á eyju. Helen Hunt
leikur unnustu hans sem finnst
hann lítill bógur.
tið sem var ófrágenginn dag-
skrárlega séð var sunnudagur-
inn í Regnboganum en þá á að
sýna þær myndir sem nutu hvað
mestrar aðsóknar. Það var úr
vöndu að ráða þar sem nánast
allar myndirnar í bíóinu voru
vel sóttar og mikið hefur verið
hringt á skrifstofu Kvikmynda-
hátíðar til að biðja um fleiri
sýningar. Niðurstaðan er þvi sú
að eftirtaldar kvikmyndir verða
að öllum líkindum sýndar í
Regnboganum á sunnudag:
Úr Idioterne.
Nýjasta kvik-
mynd Lars Von Trier og er
hún tekin með Dogma 95 að-
ferðinni eins og vinsælasta kvik-
myndin á Kvikmyndahátíðinni,
Festen. Fjallar hún um ungt fólk
sem leikur geðveikt fólk innan um
almenning.
Funny Games
Austurrísk verðlaunamynd sem á
yflrborðinu er sakamálamynd með
klassískri fléttu en hefur sterkan si-
ferðislegan undirtón.
The General
Nýjasta kvikmynd
Johns Boormans
og hefur honum
ekki tekist betur
upp í langan tima.
Fjallar myndin
um írskan glæpa-
kóng sem átti
miklum vinsæld-
um að fagna með-
an hann lifði, var
nokkurs konar
nútíma Hrói hött-
ur.
Gabbeh
Irönsk kvikmynd í leikstjórn
Mohsen Makhmalbaf sem fjallar
um gamla konu sem er að viðra
teppi (Gabbeh) sem hún hafði ofíð
fyrir mörgum árum. Hún byrjar að
riQa upp sögu sína frá því hún beið
þess að tilvonandi eiginmaður
hennar tæki hana burt.
Salem Cinema
Einn þriggja íranskra kvikmynda
Mohsen Makmalnaf sem sýnd er á
Kvikmyndahátíð í Reykjavík. Segir
þar frá leikstjóra sem ætlar að gera
kvikmynd um aldarafmæli kvik-
myndarinnar og auglýsir eftir fólki,
þarf' hann þrjú hundruð en fær
fimm þúsund umsóknir.
Karakter
Hollensk kvikmynd sem hlaut ósk-
arsverðlaun sem besta erlenda
kvikmyndin í fyrra. Um er að ræða
fjölskyldudrama um föður sem
reynir að gera son sinn að manni
og reynist það honum dýrkeypt.
Bíóborgin
Enemy of the State
*** Virkilega vel
gerð spennumynd
þar sem persðnur
verða nánast auka-
númer við hliðina á
njósnatækni nútím-
ans. Það er gífurlegur
hraði í myndinni sem
gefur henni vissan
trúverðugleika þegar
njósnatæknin er höfð
í huga og þessi hraði
gerir það líka aö verkum að minna áberandi verður
tilviljanakennt handritið þar sem samtölin þera oft
þcss merki að til að „plottið" gangi upp verði að
fara ýmsar vafasamar leiðir. -HK
Bíóhöllin/Saga-bíó
Practical Magic *** Bullock og Kidman hafa,
held ég, aldrei verið eins góðar og njóta sín vel í
þessum klikkuðu hlutverkum og Wiest og Channing
skemmta sér greinilega konunglega sem miðaldra
nornamömmur. Practical Magic tekur sig aldrei of
alvarlega og það er það sem gerir hana að þeirri
ánægjulegu skemmtun sem hún er. -úd
Holy Man *i Hvað Eddie Murphy hefur séð viö
hlutverk hins „heilaga manns“ er erfitt að koma
auga á. Kannski hefur hann hugsað sem svo að
þarna væri tækifæri fyrir hann að losna úr ýktum
gamanhlutverkum. Murphy hefur samt ekki erindi
sem erfiði, þrátt fyrir að hann beiti kjaftinum lítið.
Til þess er persónan of veikburða og Murphy ekki
nógu sterkur á svellinu. -HK
Star Kid *i
Vonda skrímslið í j
Star Kid er eins j
konar klóni úr
Predator og ein-
hverju kunnug-
legu úr eldri
geimmyndum. I
Einhvern veginn varð boðskapurinn sögunni ofviða
og þegar 1001. heilræðið sveif yfir skjáinn fðr ég að
geispa. Ef það er eitthvað sem drepur barnamyndir
þó er það ofhlæði áróðurs sem gengur yfirleitt út á
eiuhvern borgaralegan heilagleika samfara hefð-
bundnum kynhlutverkaskiptingum. -úd
llrban Legend ***
Ui ban Legend er ekkert meistarastykki en hún er
hiklaust þriggja stjörnu hrylla. Byrjunin var virkilega
smart og lokasenan vísar hamingjusamlega og al-
gerlega óskammfeilið I möguleikann á heilii syrpu
af Urban Legends. -úd
Háskólabíó
Egypski prinsinn ***i The
Prince of Egypt er tækniundur
og sannkallað augnakonfekt.
Ef hægt er að tala um epíska
teiknimynd þá er þetta slík
mynd. Með The Prince of Eg-
ypt má segja að teiknimyndir
sem gerðar eru sem fjölskylduskemmtun taki breyt-
ingum. Ekki er verið að beina sérstaklega augunum
að börnum heldur einnig komið á móts við þá sem
eldri eru og þroskaðri. -HK
Tímaþjófurlnn **i Bullock og Kidman hafa held
ég aldrei verið eins góðar og njóta sín vel í þessum
klikkuðu hlutverkum og Wiest og Channing
skemmta sér greinilega konunglega sem miðaldra
nornamömmur. Practical Magic tekur sig aldrei of
alvarlega og það er það sem gerir hana að þeirri
ánægjulegu skemmtun sem hún er.
What Dreams May Come **i What Dreams May
Come er sérstök kvikmynd sem er á yfirborðinu
mjög falleg og gefandi og Robin Williams og Anna-
bella Sciorra innileg og sannfærandi í leik sínum en
myndin nær aldrei almennilegri festu heldur verður
kvikmynd með mörgum fallegum og vel gerðum at-
riðum. -HK
f Ó k U S 22. janúar 1999