Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Page 8
1 e i k h ú s
Nóbelsdraumar verfia frumsýndir í Mögulelk-
húsinu viö Hlemm annaö kvöld. Sýningin er á
vegum Hugleiks en þaö er Áhugamannaleikfé-
lag Reykvíkinga. Sýningin hefst klukkan hálf-
níu og sýning númer tvö verður svo á sunnu-
dagskvöldið.
Hlnn fullkomnl Jafnlngl er sýndur í íslensku
óperunnl. Leikhópurinn Á senunni sér um
stykkið en höfundur og leikari er hinni geö-
þekki Felix Bergsson. Nú fer sýningum að
fækka og eins gott aö drifa sig ef maður vill
ekki missa af verkinu. Þaö er til dæmis hægt
aö fara f kvöld klukkan átta og líka á sunnu-
daginn.
I kvöld verður sýnt leikritiö Mávahlátur í Borg-
arlelkhúslnu. Verkið verður kynnt fyrst á Leyni-
barnum klukkan sjö.
Rommí veröur
ekki sýnt fyrr en á
fimmtudaginn í
lönó þar sem far-
ið verður með
sýninguna eins
og hún leggur sig
til Akureyrar um
helgina.
Þjónn I súpunni er hins vegar á sínum stað í
Iðnó f kvöld, klukkan átta, og enn eru nokkur
sæti laus. Síminn þar er 530 3030.
Mýs og menn veröur sýnt f Loftkastalanum á
sunnudagskvöldið, klukkan hálfníu. Örfá sæti
eru laus og sfminn er 552 3000.
Á stóra sviði ÞJóöleikhússins verður Brúöu-
helmlllö sýnt á sunnudaginn, klukkan átta, en
þá mun vera uppselt. Á sýninguna á fimmtu-
daginn má hins vegar enn fá sæti. Sfminn er
551 1200.
Tölvupopplelkur-
Inn Vírus er f
Hafnarfjarðar-
leikhúslnu. Hann
verður sýndur f
kvöld, klukkan
átta, og þaö eru
einhver sæti
laus. Sfminn í
Rrðinum er 555
0553.
Sex í sveit í Borgarlelkhúslnu er alltaf jafnvin-
sælt og uppselt er á sýninguna annað kvöld
en það er víst hægt að skrá sig á biðlista. Svo
er Ifka hægt að reyna að komast á fimmtu-
dagssýninguna. Enn eru nokkur sæti laus á
hana. Sfminn er 568 8000.
Búa saga er sýnd á lltla svlöi Borgarlelkhúss-
Ins. Næsta sýning verður á sunnudaginn,
klukkan átta.
Á Smiðaverkstæöinu í Þjóðleikhúsinu er leik-
ritið Maöur í mlslltum sokkum sýnt um þess-
ar mundir. í kvöld er uppselt og Ifka annað
kvöld og meira að segia Ifka næsta fimmtu-
dag. Ef einhver sæti skyldu losna er gott að
kunna símanúmerið 5511200.
Tvelr tvöfaldlr i
Þjóðleikhúsinu
verða sýndir f
kvöld og annað
kvöld og örfá
sæti eru laus.
Á lltla svlöl
ÞJóölelkhúss-
ins er veriö að
sýna Abel snor-
ko býr elnn og
nokkur sæti eru laus á sýningarnar f kvöld og
annað kvöld. Sfminn f Þjóðleikhúsinu er 551
1200.
Frú Klein veröur sýnd á sunnudaginn klukkan
átta f lönó og nokkur sæti munu vera laus.
Síminn í Iðnó er 530 3030.
íslenska óperan. Þar
ræöur Helllsbúlnn
rikjum og er uppselt á
allar sýningarnar um
helgina. Bjarni Hauk-
ur er jú ekkert smá
fyndinn.
Horft frá brúnnl var
frumsýnt á Stóra
svlöl Borgarleikhúss-
Ins um síðustu helgi og hefur fengiö ágætar
viðtökur. Klukkan átta á sunnudaginn veröur
sýning númer tvö. Sfminn er 568 8000.
Linda Sigurjónsdóttir
er ekki einstæð
móðir heldur
sjálfstæð móðir,
Linda Sigurjónsdóttir
er ekki bara tveggja
barna móðir, hún er
líka einstæð móðir;
sjálfstæð móðir,
ásamt því sem hún
vinnur í GK, leikur í
auglýsingum, situr
fyrir, sýnir föt og er
fastur gestur - aðra
hverja helgi - í
Hverjir voru hvar-
dálkinum. Fókus
ákvað að forvitnast
aðeins um hver þessi
sæta stelpa er
eiginlega.
Svo viö byrjum á því sem lífiö
fjallar aö hluta til um: Hvert feröu
út aó skemmta þér?
„í augnablikinu fer ég aðallega
á Skuggabar, Astró og Kaffi-
brennsluna. Þetta eru svona stað-
irnir sem vinkonur mínar fara á
en annars hef ég gaman af því að
prófa eitthvað nýtt,“ segir Linda
Sigurjónsdóttir verslunarkona.
En hvernig er þetta skemmtana-
líf í Reykjavík?
„Það er alltaf eins og breytist
lítið sem ekkert. Að fara út að
skemmta sér í Reykjavík snýst
bara um hvemig þér líður sjálfri
þegar þú ferð út. En það skilur
svosem ekkert eftir sig.“
Þetta eru ekki bara menn og
konur aö leita sér aö einhverjum
eöa einhverri til aö sofa hjá?
„Nei, ekki bara. En það getur
samt verið lítill friður til að
spjalla í góðum félagsskap.
Skemmtanalífið fjallar auðvitað
svoldið um að reyna við fólk og
það getur verið óþolandi, sérstak-
lega fyrir stelpur.“
Þú ert einstœö móöir . . . ?
„Nú ætti ég að segja; sjálfstæð
rnóðir," grípur Linda frammí og
hlær.
Já, fyrirgeföu. En er ekki samt
þessi „einstœö móöir“-stimpill enn-
þá í gangi?
„Jú. Sérstaklega hjá eldra fólki.
Það flnnur til með manni. En ég
er ofsalega ánægð með mína stöðu
þó sumu fólki finnist einstæð
móðir vera eitthvert ástand sem
þurfi að laga.“
Er þaö ekki bara þannig?
„Ekki hjá mér. Ekki ennþá, alla
vega. Og það er heldur ekkert
tengt því að vera einstæð móðir.
Það fjallar miklu frekar um að
vera manneskja og vilja finna sér
lífsforunaut."
Módelið og mamman
Þú ert eitthvaö aö módelast,
dreymdi þig aldrei um aö fara út?
„Nei. Ég byrjaði í þessu ‘92, hjá
Elite, og það var eitthvað verið að
nefna við mig um að fara út en ég
hafði ekki áhuga. Mér fannst
þetta módel-líf ekkert spennandi
þá.“
Hefur þaö breyst?
„Jú, að einhverju leyti. Ég var
til dæmis ekki tilbúin að módelast
héma heima fyrr en síðasta sum-
ar og núna fyrst finn ég að ég er
nógu þroskuð til að geta tekist á
við módelstörf erlendis. En þá er
maður kannski orðin of gömul
fyrir markaðinn."
Og búin aö eignast börn. Er þaö
ekki flókiö í þjóöfélagi sem er upp-
fullt af umrœöuþáttum um aö for-
eldrar beri ábyrgö á börnum en
kennarar séu mest meö þeim?
„Jú,“ segir Linda og hugsar sig
aðeins um. „Þetta er svoldið mik-
ið þannig í þjóðfélaginu að for-
eldrar þurfa að vinna visst mikið
til að ná endum saman og á með-
an eru bömin til dæmis á leik-
skólanum. Leikskólinn er þá
nokkurs konar geymslupláss en
svo er verið að reyna að sannfæra
mann um að það sé beinlínis gott
ef ekki nauðsynlegt fyrir þroska
barnsins að vera á leikskóla. Þá
kemur upp þessi krísa um af
hverju bamið sé á leikskóla. Er
það á honum vegna þess að það er
baminu fyrir bestu eða vegna
þess að foreldrarnir hafa ekki efni
á að vera með þau heima? Ég tel
samt að við, foreldramir, berum
ábyrgð á börnunum þó að skólar
og leikskólar séu uppalendur yfir
daginn. En þá verður starfsfólkið
þar auðvitað að standa sig og
halda uppi aga og sinna uppeldis-
skyldunni þann tíma sem það er
með börnunum."
Er þetta ekki sérstaklega erfitt
hjá einstœöum foreldrum?
„Nei. Við eram náttúrlega með
forgang og fáum vissa fyrir-
greiðslu. Mér finnst ég til dæmis
hafa meiri tíma og peninga á milli
handanna núna en þegar ég var í
sambúð. Og í kringum mig sýnist
mér það fólk vinna mest sem er í
sambúð. Því er gert erfiðara fyrir
og beinlínis refsað fyrir að vera
saman. Fólk í sambúð hefur það
hreinlega verra en einstæðir for-
eldrar."
Minnisleysi
Eitt það skringilegasta sem
komið hefur fyrir Lindu er að hún
lenti í árekstri fyrir rúmlega fjór-
um árum. Þetta var ekkert merki-
legur árekstur í sjálfu sér. Hún
missti ekki fót eða hönd eða þurfti
að vera í hjólastól. Hún fór ekki
einu sinni á slysó heldur bara
heim til sín og hélt jól, þetta var á
aðfangadag. Seinna um kvöldið
fór hún að vísu að finna fyrir verk
í hálsi og það varð ljóst að hún
hafði fengið hnykk á hálsinn. I
eitt og hálft ár var hún svo með
djúpan hausverk og slæmt minni.
Eftir læknisrannsóknir var ljóst
að hún hafði fengið högg á mænu-
kylfuna og virkilegan hálshnykk.
Það rosalegan að hún man ekki
neitt eftir þessu eina og hálfa ári.
Nú er allt komið í lag og Lindu
þykir ekkert rosalega gaman að
ræða um þetta þar sem fólk á oft
erfitt með að skilja að í þetta eitt
og hálft ár var hún, þó hún muni
ekki eftir því, ósköp venjuleg.
Hún sá um börnin sín, hitti gamla
bekkjarfélaga úti í búð, eignaðist
dóttur og var bara svona eins og
íslendingar eru yfirleitt. Það
breytir samt ekki þeirri staðreynd
að það vantar eitt og hálft ár í
minni hennar.
„Lífið mitt breyttist mikið eftir
þessa upplifun. Hún hefur áhrif á
það hvemig maður nýtir lífið,“
segir Linda og bætir því við að
hún fái alltaf í magann þegar hún
heyri í fréttum að árekstur hafi
orðið á Hringbraut eða einhvers
staðar og enginn hafi slasast. „Eft-
ir þetta hafa aðrir erfileikar ekki
fengið neitt á mig. Þessi reynsla
var erfiðara en nokkuð annað sem
ég hef upplifað og gerir flest að
smámunum."
En varstu ekki líka áberandi
íþróttakona á sínum tíma?
„Jú. Ég var í frjálsum og þá að-
allega í hástökki."
Einhver verölaun?
„Já, já,“ svara Linda og virðist
ekki alveg tilbúin í að gaspra neitt
um það.
Mörg?
„Já, já. Þegar ég keppti gekk
mér mjög vel. Ég varð Islands-
meistari í hástökki og eitthvað
svona. En þetta var áður en ég
eignaðist böm og ég hef eiginlega
ekki hreyft mig síðan ég eignaðist
þau. En núna er ég mikið á skaut-
um því sonur minn er með ís-
hokkí-æði.“
Það verða lokaorð þessarar
sjálfstæðu móður sem stundar ís-
hokkí. -MT
8
f Ó k U S 29. janúar 1999