Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Side 9
Wimmeband í öllu sínu veldi.
Jojkið kemur af
sjalfu sér
En hvað er jojk? Líkt og jóðl
er aðalstuðið í Ölpunum er jojk-
ið aðalstuðið hjá Sömunum. Og
þar er litið alvarlegum augum á
jojkið - „Jojk er ekkert djók,“
segir Wimme, grafalvarlegur.
„Þetta er ákaflega tilfmninga-
þrunginn söngur og sérhverjum
hluta hans er ekki beinlínis
stjómað heldur kemur jojkið af
sjálfu sér.“ Jojk er yfirleitt
framið án hljóðfæra en framúr-
stefnu-jojk Wimmes er svo
smekklega samtengt hljóðfæra-
leiknum að jafnvel fólk sem ekki
veit hvað jojk er getur náð því
og notið þess.
Éins og svo margir Samar var
Wimme búinn að gleyma upp-
mna sínum. Hann hafði flust til
Helsinki og vann þar hjá ríkisút-
varpinu. „Þar fann ég spólur
með hefðbundnu jojki, m.a. ann-
ars með náfrændum mínurn."
Þetta var árið 1986 en fyrsta
skref Wimmes á útgáfubrautinni
var stigið með plötunni
„Wimme" árið 1995. Hann varð
strax óskapoppari blaðamanna
og hefur verið linnulítið á tón-
leikaferðalagi síðan, um alla
Evrópu, í Bandarikjunum og er
vinsæll í S-Afríku. Fyrir sóló-
plötuna hafði Wimme sungið á
plötu Hectors Zazou, „Songs
From the Cold Seas“ (þar söng
Björk einnig „Vísur Vatnsenda-
Rósu“) og hann hafði verið í
samstarfi með sænska þjóðlaga-
bandinu Hedningama á tveim
plötum. Þá hafa finnsku böndin
RinneRadio (spilar teknódjass)
og Waltari (spilar hart rokk) not-
að rödd hans í eigin tónlist. Önn-
ur sólóplata Wimmes heitir
„Gierran" og kom út 1997. Þar
nýtur hann aðstoðar meðlima
Rinneradio og þrír hljóðfæra-
leikarar úr þeirri grúppu verða
með honum á tónleikunum í
Norræna húsinu.
Óhætt er að mæla með tón-
leikum Wimmes á laugardaginn
því samískt tekknó-jojk er ekki
beinlínis á boðstólum á hverjum
degi og þetta er seiðandi og
spennandi tónlist. Hér er á ferð
óhefðbundinn samruni hins
gamla og nýja sem tekknó-bolt-
ar, ambient-lið, heimstónlistar-
fólk og rokkrumar ættu að geta
notið saman. Tónleikarnir byrja
kl. 20.30. -glh
Samíska stórstjarnan Wimme
Saari á íslandi:
Jojk er
srl djó
Það hafa staðið yfir Samadag-
ar í Norræna húsinu og annaö
kvöld getur fólk fengið nokkuð
ferskan smjörþef af menningu
Sama því frægasti poppari Sam-
anna mætir ásamt hljómsveit og
heldur tónleika i Norræna hús-
inu. Hér ræðir um
s ö n g v a r -
ann/jojkarann
Wimme Saari
og hand hans,
Wimmeband,
sem blandar
s a m a n
hefð-
Wimme Saari
tekknó-jojkar I
hefðbundnum
Samabúningi.
bundinni jojk-menningu Sam-
anna, spuna og rafrænni til-
raunamennsku í spennandi
graut sem kannski mætti kalla
einhvers konar heimstónlistar-
tekknó.
Wimme er fertugur og fæddist
í bænum Kelottijárvi í norðvest-
urhluta finnska hluta Lapp-
lands. Hann hefur þróað hinn
hefðbundna jojk-söng Samanna í
nýjar áttir og segist vera undir
jafnmiklum áhrifum af hljóð-
inu í flugvélarhreyfli eða
utanborðsmótor og af
gnauði vindsins. „í
jojki mínu eru áhrif af
hefðbundnu jojki,“
segir Wimme. „Það
er sama raddtækni
og hálsbeiting en
tónlistin sem fylgir
með er af allt öðr-
um meiði. Litir og
mynstur birtast í
mér uppi á
sviði og ég læt það
leiða mig áfram. Á mín-
um heimaslóðum segir
að ég hafi komið
fram með nýjan jojk-stíl.
Ungt fólk kann vitaskuld
best að meta þennan stíl
en eldra fólk kemur
líka oft til mín og
þakkar mér fyrir
það sem ég er að
gera.“
GEISLAPLÖTUR • MYNDBÖND • TÖLVULEIKIR
Metalllca - Garage Inc.
2 geislaplötur^Sö9-WT
Tilboð 1.599 kr.
í Perlunni 28. janúar til 7. febrúar. Opið al
Tilboð dagsins!
Fatboy Slim - You ve Conte a Long Way, Baby
Geislaplata 2J099*r
Tilboð 1.399 kr.
Titanlc- myndbandið
Myndband 2^99dffT
Tilboð 999 kr.
P E R L A N
Sími 552 1859
30.000 titlar á frábæru verði!
Gífurlegt úrval af klassískrí tónlist
29. janúar 1999 f Ókus
9