Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Blaðsíða 12
Verzlingar og MH-ingar hafa
lengi þótt vera ólíkt fólk. Um dagana
hafa nemendur í Hamrahlíðinni haft
orð á sér fyrir að vera frjálslegir í
klæðaburði, huga mikið að listum og
kjósa rautt. í nágrannaskólanum
Verzló hefur allt annað verið upp á
teningnum. Þaðan koma hægri-
sinnaðir ungpólitíkusar, viðskipta- og
embættismenn í virðulegum
klæðnaði. Fókusi lék forvitni á að
vita hvort menning þessara skóla
væri virkilega ennþá svona ólík og
vatt sér á vettvang í því skyni að
skoða klæðaburðinn, því fötin
segja svo margt um þann
sem í þeim gengur.
smart.
Líklega
ástæðan
er
sú að
þar eru listatýpumar
en bisnessfólkið er hér í
Verzló."
Þegar Fókus spurði Verzling-
inn Pétur Árna hvernig hann
myndi klæða dæmigerðan MH-
ing, sagði hann:
„MH-ingar eru nú ekki vel til
fara, þannig að ég myndi setja
hann í skræpótta skyrtu, soldið
rifnar og snjáðar gallabuxur og
illa farna íþróttaskó. Þannig
myndi ég aldrei klæða mig sjálf-
ur.“
Yfirborðssnobb
Þá hafa MH-ingar ekki síður
skoðanir á nábúum sínum í
Verzló og eru ekki alltaf hrifnir.
Stelpurnar segja kynsystur sín-
ar í Verzló til dæmis ekki kunna
að mála sig.
„Sumir halda að við hérna í
MH notum ekki snyrtivörur.
Það er ekki rétt. Málið er að við
kunnum að fara með þær og lít-
um eðlilega út. Þær í Verzló
virðast nota verri snyrtivörur og
kunna ekki að mála sig. Þess
vegna sést langar leiðir að þær
eru kafmálaðar," segir Ólöf
Helga úr MH og vinkona hennar
bætir við að það sé rétt að það sé
„I dag er ég í einskonar
tannlæknaaðstoöarkonuskyrtu.
Þetta gæti líka verið prestsskyrta,
kraginn er þannig. En ég veit ekki alveg
hvernig ég eignaðist hana. Hún var bara allt
í einu í fataskápnum mínum,“ segir Ólöf Helga
Arnaldsdóttir, 19 ára MH-ingur. Á nefi hennar eru
stór gleraugu með rauðri plastumgjörö og aðspurð
af hverju hún vilji vera með svo áberandi gler-
augu segir hún: „Það er ekki viljandi.
Spangirnar eru rauðar af því að rauö-
ur er uppáhaids liturinn minn.
Fyrir vikiö verða þau áber-
andi en það er alveg óvart.“ Ólöf
er líka í sokkabuxum og hnésíðu pilsi.
Hún segir að það fari eftir því í hvernig
skapi hún er hvort hún nenni að
hugsa mikiö um hverju hún klæð-
ist. Og í hvernig skapi er hún í
dag? „Ég er í klínkuskapi."
mikill
munur á
stelpum úr
MH og stelpum úr
Verzló.
„Verzlóstelpurnar eru
voða mikið í einfóldum fótum
úr ógeðslega lélegum gerviefn-
um en samt reyna þær að láta
líta út fyrir að þær séu voða fín-
ar. Svo sér maður fotin trosna á
saumunum. Þetta er „simpill",
leiðinlegur og einsleitur klæða-
burður og alls engin gæðavara.
Ef þær væru nú í flottum buxum
úr æðislegum hör eða Merano
peysu, væri þetta í lagi. Þá væri
um alvöru stil að ræða. En þær
ganga bara í einhverjum polyest-
er peysum með verk-
smiðjumunstri. Svo þykjast þær
vera snobbaðar, en þetta er ekki
alvöru snobb.“
MH-ingurinn Máni hafði að-
eins eitt um málið að segja:
„Strákamir i Verzló eru sætir.
Mig langar að koma mér upp
fötum
eins og þeir
eiga, svona
þröngum og eggj-
andi.“
Þeir eru ekki margir
sem viðurkenna að þeir klæði
sig eins og allir hinir í skólan-
um. Hver og einn reynir að
mynda sér sinn eigin persónu-
lega stíl og kærir sig ekki um að
ganga i nákvæmlega eins fotum
og félaginn. Hvað sem því líður
vill enginn stinga í stúf og fyrir
vikið myndast hópur fólks í
keimlíkum fotum, hópeinkennis-
búningum.
-ILK
Flott
Engir
framhaldsskól-
ar liggja eins ná-
lægt hvor öðrum og
Verslunarskóli íslands og
Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Nemendur þessara skóla deila
sjoppum og strætóskýlum, búa á
sama svæðinu og eru á sama
aldri. Þrátt fyrir allt er líklega
hvergi eins mikill munur á nem-
endum tveggja skóla. Að
minnsta kosti hvað varðar lífs-
stíl og fatasmekk. Þetta vita orð-
ið margir, enda hafa MH-ingar
fyrir löngu gerst frægir fyrir
frjálslegan, frumlegan og oft
frekar hippalegan klæðaburð.
Verzlingar, aftur á móti, hafa
lengi birst í hugum fólks sem
ungir uppar í virðulegum fotum.
Hafa fyrir vikið haft orð á sér
fyrir að vera snobbaðir. En það
er eins og við manninn mælt,
unga fólkið raðast sitt hvorum
megin við Kringlumýrarbraut
og eftirleiðis er hægt að sjá á
þeim langar leiðir hvom skól-
ann þau völdu. Liðið er komið í
skólabúninga, hvort sem því lík-
ar betur eða verr.
í þröngu hjá Skattinum
Raunar eru það ekki eingöngu
Verzlingar og MH-ingar sem
koma sér upp slíkum einkennis-
búningum. Þetta gerist víðar og
ekki bara í framhaldsskólum.
Starfsfólk fyrirtækja og stofnana
myndar hópa og klæðir sig á
svipaðan hátt og vinnufélagarnir.
Það er til dæmis útilokað að sjá
þröngt klædda ofurgellu á Skatt-
stofunni eða leðurklæddan mann
með hundaól um hálsinn á aug-
lýsingastofu. í Háskólanum er og
mikill munur á klæðnaði nem-
enda. Fólkið í lagadeild klæðir
sig einfaldlega ekki eins og fólkið
í heimspekideOd og jafnvel er því
haldið fram að þar sjáist utan á
mönnum hvort þeir styðji Vöku
eða Röskvu, séu hægri- eða
vinstrisinnaðir í pólitík.
Hægri-
vinstri
Verzlingar eru
flestir hægrisinnaðir.
í könnunum hefur komið
í ljós að áttatíu prósent þeirra
styðja Sjálfstæðisflokkinn þrátt
fyrir að helmingur nemenda sé
ekki orðinn átján ára og hafi
ekki kosningarétt. Á hinn bóg-
inn virðast MH-ingar margir
hverjir hallast til vinstri. Á
veggjunum í Hamrahlíðinni
hanga ótal kosningaauglýsingar
frá frambjóðendum Samfylking-
arinnar. I Verzló er þeim fleygt í
ruslið jafnóðum og þær koma í
hús. Verzlingurinn Hinrik
kveðst meira að segja vera of
mikOl kapítalisti í sér til að láta
sér detta í hug að klæða sig á
svipaðan hátt og MH-ingur.
Hann er ekki hrifinn af þessum
klæðaburði nágranna sinna og
finnst hátterni þeirra vera yfir-
borðskennt.
„Mér hefur aOtaf fundist flest-
ir MH-ingar vera á fullu við að
reyna að vera öðruvísi en aUir
aðrir. Reyna að vera eitthvað
ekta og gefa sig svo út fyrir að
vera það. Ég vil meina að enginn
sé meira ekta en aðrir.“
Þessi skoðun á MH-ingum er
algeng í Verzló. Þóra segir að
þar snúist allt um að reyna að
vera sem fríkaðastur og frá-
brugðnastur öðrum. „Þannig er
að minnsta kosti hinn dæmi-
gerði MH-ingur, en auðvitað eru
þeir misjafnir. Maður hefur á tO-
flnningunni að flestir vOji að cdl-
ir taki eftir sér og segi: „Vá,
hvað þessi frikaður." í MH eru
menn ekki að hugsa um aö vera
„Ég kaupi flest fötin mín í
Sautján og er byrjaður að fara
svolítið í herrafataversianir.
Ég er að verða stór strákur,"
segir Hinrik Ásgeirsson sem
er 20 ára Verzlingur. Hann seg-
ir líka að það sé mjög breyti-
legt í hverju hann er. Vill
meina að hann sé frekar
óhefðbundinn maður. „í
dag langaði mig að vera
í þægilegum fötum og
fór þess vegna í
íþróttagalla." Hinrik segist
hugsa mikiö um í hverju hann
gengur og þegar hann velur föt
hefur hann helst í huga að litirn-
ir passi saman. „Uppáhaidslit-
irnir mínir eru svartur og hvítur.
Mér finnst auðveldast að vinna
úr þeim. Það gengur ekki að
vera í einhverju rosalega mis-
litu og litríku.“
f Ó k U S 29. janúar 1999
1