Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Side 14
myndlist
Opnanir
Gallerí Geyslr: Stefán Slgvaldl Krlstlnsson,
fjölfatlaöur myndlistarmaður, opnar sýningu
slna á morgun kl. 16. Sýningin er opin virka
daga frá kl. 8-22, föstudaga 8-19 og laugar-
daga 12-18.
Gallerí Sævars Karls: Vonarstjarnan Gabríela
Frlðrlksdöttlr opnar sýningu á morgun kl. 14.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg: Guðmundur Oddur
Magnússon opnar sýningu á morgun kl. 15
(sjá nánar bls. 22). Opið daglega frá 14-18.
Llstasafn ASÍ. Á morgun kl. 15 opnar Guð-
björg Lind Jónsdóttlr sýningu á málverkum
sínum sem eru unnin I olíu, ýmist á striga eða
tré. Sýningin er opin frá kl. 14-18 alla daga
nema mánudaga.
Síðustu forvöð
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14: Samsýning 15
listamanna I baksal. Sýningin ber nafnið
Frost og funi. Sýningunni lýkur á sunnudag-
inn.
Menningarmiöstööin Gerðuberg: Sýning á lit-
rikum málverkum Bretans Alans James á
neðri hæðinni. Sýningunni lýkur á sunnudag-
inn.
Nýlistasafnlð, Vatnsstíg 3B, Reykjavík: Fysta
sýning Nýlistasafnsins á árinu er samsýning
fimm þýskra listamanna og eins listamanns
frá Frakklandi. Sýningin ber yfirskriftina Nord
Sud fahrt eða Norðurleið - Suöurleið. Sýning-
in er opin daglega fram á sunnudag.
Aðrar sýningar
Norræna húslð: Listasýningin „GEAIDIT" -
Sjónhverfingar. Fimm samiskar llstakonur. I
anddyri: „Samar í byrjun aldarinnar", Ijós-
myndir eftir Niis Thomasson. Samískur list-
iðnaður.
Gallerí Ingólfsstræti 8: Sýning á verkum Ás-
gerðar Búadóttur. Sýningin er opin fimmtu-
daga til sunnudaga kl. 14-18.
Kjarvalsstaðlr,
Flókagötu: Kjarvals-
sýningin „Af trönum
meistarans“, með
verk frá síðari æviár-
um Kjarvals. Mál-
verkiö „Sjón er sögu
rikari', sem er I eigu
danska ríkisins, er á
sýningunni. Á Kjar-
valsstööum sýnir
Einar Garlbaldl
einnig verk tengd
Imynd Kjarvals og
Brltt Selvær sýnir
textílverk.
Kringlan: Sýning á grafik og grafikvlnnu-
brögðum. Sýningin verður I sýningarrými Gall-
eri Foldar og Kringlunnar á annarri hæð,
gegnt Hagkaupi.
Mokka: Sýning á verkum Haraldar Karlsson-
ar. Hann sýnir kristallaðar hveramyndir unnar
úr islenskum hveraefnum. Á sýningunni er
einnig að finna hljóðverk sem unnið er út frá
hveramyndunum og hlusta má á I heyrnartól-
um.
Hallgrímsklrkja: Þorbjörg Höskuldsdóttlr er
með sýningu I anddyri kirkjunnar.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15: Svelnbjörn
Halldórsson sýnir ollumálverk og skúlptúra
sem hann kallar Tré og uppsprettur.
Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn-
arfjarðar: Sýning á útsaumi Kaffe Fassett.
Gallerí, Skólavörðustíg 8: Ásgeir Lárusson
hefur opnað vinnustofu og gallerí og mun
hann vinna þar að myndlist fram á vor en þá
verður húsnæðið rifið. Opið verður alla daga
frá kl. 13-18.
Kafflstofan Lóuhrelðrlnu, Laugavegi 59:
Bessl Bjarnason er með sýningu. Á sýning-
unni eru 12 vatnslitamyndir og ein akrýl. Sýn-
ingin er opin frá kl. 9-18 virka daga en kl.
10-16 á laugardögum.
Imexzra. á.)
www.visir.is
ÆMriíi liífW&M
Það var mikið að gerast í ís-
lensku músiklífi í byrjun febrúar
1965. Sunnudaginn 7. kom Louis
Armstrong og hélt vel sótta tón-
leika með tíu manna sveit og dag-
inn eftir lenti fyrsta erlenda bítla-
sveitin á Keflavíkurflugvelli, The
Swinging Blue Jeans. Þeir fengu
stórkostlegar viðtökur á íslandi
og æstir krakkar þustu út á völl
með „Welcome to Iceland" borða.
Bandið var þó á fallandi flugi
heima fyrir í Bretlandi, hafði sleg-
ið í gegn með „Hippy hippy
shake“, en Bítlamir vom hrein-
lega að valta yfir þá i vinsældum,
eins og flestar aðrar hljómsveitir.
Bítlþyrst íslensk ungmenni gerðu
sér þó mat úr „bláu sveiflubuxun-
um“ og fullt var á sex tónleika
þeirra í Austurbæjarbíói 9. til 11.
febrúar. Á þessum tímum settu
menn ekki fyrir sig að spila í
akkorði og því voru tveir tónleik-
ar á kvöldi, sem hófust kl. 7 og
11.15. Haukur Morthens kynnti
á tónleikunum, en Hljómar og
Tempó hituðu upp.
Sáu enga eskimóa
í mars komu bítlamir í The
Searchers og gekk vel. Hljómar
voru að spila með og meðlimum
Searchers leist vel á þá og sérstak-
lega lagið Bláu augun þín. Vildu
þeir kaupa lagið með húð og hári
af Gunnari Þórðarssyni, en hann
hafði vaðið fyrir neðan sig og sagði
nei takk. Um haustið komu Brian
Poole and The Tremeloes og spil-
uðu á þrennum tónleikum í Há-
skólabíói. Spenningur æskunnar
var þó takmarkaður, enda var von
á einum stærstu stjömunum tveim
vikum síðar, sjálfum stórstjömun-
um í The Kinks. Vísir taldi þó The
Tremeloes hafa gersigrað áhorf-
endur með, „fjömgum „beat“ lög-
um og eldheitum trúarsöngvum".
StrákEirnir vom dregnir á sinfóníu-
æfmgu og þar sagði Dave Munden
trommuleikari að eflaust væri til
fólk sem hefði gaman af „svona
tónlist". Félögunum fannst leitt að
hafa ekki séð neina eskimóa hér á
landi, en ætluðu í staðinn að taka
með sér tvö hreindýr og færa
dýragarðinum í London að gjöf.
Tónlistarmenn íslenskir voru
hrifnir af leik Tremeloes-strák-
anna, m.a. lét Pétur Östlund, þá
trommari Hljóma, hafa eftir sér
að þetta væri „fyrsta erlenda
hljómsveitin sem ég hef heyrt og
ekki orðið fyrir neinum vonbrigð-
um með.“
arinnar á Norðurlöndunum, en
verslunin Þöll auglýsti að The
Kinks-veifurnar væm senn á þrot-
um - „Tryggið ykkur veifur áður
en það verður of seint.“
The Kinks lentu seint á mánu-
deginum og reytingur af bítlum tók
á móti þeim með borða. Bandinu
var smyglað „með stíl“ niður á
Hótel Borg og strákarnir fóru
snemma að sofa, dauðþreyttir eftir
ferðina og lætin. Morg-
uninn eftir var blaða-
maður Vísis mættur á
Borgina og hitti fyrir
bassaleikarann Pete
Quaife, sem var að eta
þorsk með umboðs-
manninum (kallaður
,,pabbi“). Þeir töluðu
um frægðina og lætin í
kringum bandið - „I
Svíþjóð urðum við að
hætta eftir fyrstu fjögur
lögin,“ rifjaði Pete upp
- en svo komu íslenskir
bítlar og fóru að liggja á
rúðunum; „Litlir lubbar
börðu á gluggann“, seg-
ir Vísir, „Pete setti totu
á munninn og hristi á
sér hárið. Svo fór hann
út og gaf lubbunum eig-
inhandaráritun."
Bláar sveiflubuxur: fyrstir
erlendra bítlasveita á ís-
landi.
Lubbum gefin
eiginhandar-
áritun
Spenningurinn fór
stigmagnandi fyrir
Kinks-tónleikana, en
bandið átti að lenda mánudaginn
13. september. Blöðin mæltu með
að íslenskir unglingar yrðu ekki
með læti og sögðu frá slösuðum
tónleikagestum sem höfðu troðist
undir i ruðningi á tónleikum sveit-
Á þessum árum kunnu popparar að klæða sig: The Kinks í Austurbæjarbíói 1965.
Móttökunefnd unglinga á Keflavík-
urflugvelli.
Fyrsta súperbandið
á ísiandi
The Kinks héldu átta tónleika á
Islandi, alla í Austurbæjarbíói (nú
Bíóborgin), tvo á kvöldi (kl. 7 og 11).
Smápollamir í Bravó frá Akureyri
og unglingasveitin Tempó hituðu
upp. Eftir hvert kvöld myndaðist
tryllt stemming fyrir utan bíóið þeg-
ar ferja átti Kinks niður á hótel.
Lubbamir lágu á rútunni æpandi og
gólandi í geðshræringu og lögreglan
átti fullt í fangi með að halda vemd-
arhendi yfir Kinks og koma þeim
órifnum í rútuna. Yngri og uppburð-
arminni krakkar foldu sig skjálf-
andi á bakvið grindverk róluvallar
neðan við bíóið, skíthræddir við
lætin og lögguna.
Baldvin Jónsson flutti Kinks
inn: „Ég flutti Herman’s Hermits
inn líka, en Kinks var hápunktur-
Það hefur hellingur
af erlendum popp-
urum tyllt niður fæti ^
á íslandi og tekið
iagið fyrir æskuna. <
Fyrsta bítiahljóm-
sveitin sem kom var
The Swinging Blue
Jeans. Hún kom í
febrúar 1965. Nær
ósiitið síðan hafa
erlendir popparar
mætt á klakann, i
spilað, dottið í það
og reynt við
íslenskar steipur. (
Hér - og í næstu
blöðum - tekur
Fókus vísindalega á
málunum, rekur
söguna og spyr:
Hvernig var
stemningin og *
hvað gerðu popp- (
ararnir á íslandi?
•**•*•*•** i
inn á þessu. Eg réði þá sex mánuði
fram í tímann svo þeir voru orðnir
heitasta bandið í Englandi þegar
þeir komu hingað. Svo munaði
tveim dögum að Rolling Stones
kæmu líka, en við misstum af þeim
af því að þeir fengu tilboð frá Amer-
íku. Það varð uppselt á Kinks á
þremur dögum því á þessum tíma
var ekkert að gerast, ekkert sjón-
varp eða annað sem truflaði. Aust-
urbæjarbíó tók ekki nema um 800
manns svo það var útilokað að ná I
inn nægum tekjum með einum tón-
leikum á kvöldi. Ég fór því fram á
það við Kinks að þeir spiluðu (
tvisvar í 45 mínútur í stað einna 90
mínútna tónleika á kvöldi. Það var
dýrast að leigja bíóið á níu sýningu
svo við héldum tónleikana kl. 7 og
11 og svo var græjunum bara rótað
út fyrir bíósýninguna kl. 9 og aftur
inn þegar henni lauk. Þetta voru
14
f Ó k U S 29. janúar 1999