Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Page 13
myndlist
39,-
TiLBOÐ
s ú k k u I a ð i
TiLBOÐ 39,-
5ú,-
TiLBOÐ 189,-
ii' £ö9r
Leigan I þirtu hverfl
Opnanir
Ustasafn íslands. Annaö kvöld kl. 20 veröur
opnuö sýningin „Ég“ en það eru Ijósmyndir
hollensku listakonunnar Inez Van Lamsweer-
de. Farandsýningin á norrænni málaralist,
sem haldin er á vegum Carnegie-fjárfestingar-
bankans I Svíþjóö, hangir enn uppi í sal 1 og
3. Safniö er opið frá kl. 11-17 alla daga nema
mánudaga.
Gallerí Homlö, Hafnarstræti 15. Á morgun
milli kl. 16 og 18 veröur opnuð sýning Alans
James á olíumálverkum og verkum unnum
með blandaðri tækni. Sýningin veröur opin
alla daga kl. 11-24 en sérinngangur verður þó
aðeins opinn kl. 14-18.
Hafnarborg. Sænska textíllistakonan Gun Jo-
hansson opnar sýningu á verkum sínum á
morgun kl. 16. Á sama tíma veröur opnuð sýn-
ing á tréristum Slgurlaugs Elíassonar í
Sverrissal. Opið er frá 12-18 alla daga, utan
þriðjudaga, en þá er lokað.
Síðustu forvöð:
Kafflstofan Lóuhrelðrlnu, Laugavegi 59. Sýn-
ing Bessa Bjarnasonar verður tekin niður eftir
morgundaginn. Opin erfrá kl. 9-18 virka daga
en 10-16 á laugardögum.
Gallerí Geyslr. Stefán Slgvaldl Krlstlnsson er
með sýningu sem lýkur á sunnudaginn. Opið
föstudag kl. 8-19 og laugardag kl. 12-18.
Listasafn ASÍ. Sýningu Guðbjargar Llndar
Jónsdóttur á málverkum sem eru unnin í olíu,
ýmist á striga eða tré, lýkur á sunnudaginn.
Opiö er frá kl. 14-18 þar til.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg. Guðmundur Oddur
Magnússon tekur niður sýningu sína á af-
byggðum listamönnum og húsum á sunnudag-
inn. Opið daglega frá kl. 14-18.
Hallgrímsklrkja. Verk Þorbjargar Höskulds-
dóttur í anddyri kirkjunnar verða tekin niður
næstkomandi fimmtudag.
Aðrar sýningar:
Nýllstasafnlð, Vatnsstíg 3b. 4 einkasýningar og
ein safnsýning. í Forsal safnsins er Kristján
Stelngrímur. ! Gryfjunni Helga Þórsdóttlr. i
Bjarta sal Gunnar Straunland.! Svarta sal Jón
Sæmundur Auðarson og í Súmsalnum verða
sýnd verk úr eigu Nýlistarsafnsins. Sýningin er
opin daglega nema mánudaga frá kl. 14-18.
o d d n ýf Ensími
Um hver jól kemur fram hópur af ungu fólki. Nýjum stjörnum sem setja mark sitt á allt þjóðlífið. Yfirleitt og
kannski alltaf tengist þetta unga fólk útgáfu á bókum og geisladiskum. Þetta unga fólk fær sín getið í Fókusi og slær
kannski í gegn. Það sem okkur lék forvitni á að vita var: Hvar er þetta fólk núna, í febrúar? Er það enn að berjast í
meikinu, heima að slappa af, á hraðri leið inn í hversdagsleikann eða bara skítsama um allt þetta umstang?
Nefin göngum við með framan á okkur hvert og
eitt með sínu nefí; feit, nett, klofin, bólgin,
oddhvöss, klessuleg. En skipta nefin máli?
Getum við tengt nef við þjóðþekktar persónur?
Vitum við lengra en nefíð nær?
'JSJIH UJH :9-H 'uossSjoa jngjoqQng :j-g ‘d Epun =trd ‘'iJOfB
epiV 'L-3 ‘uossjopnBH ujASjofa :T-0 ‘J!MopJBQjn3|S buubq
-of :g-o 'jbhsq ll?d :8fl ‘Jbuibjs ujwuBJd :e-V :J°as n?8
Varöstu fyrir spennufalli
nú eftir jólin?
„Jú. Ég er ekki frá því að
janúar var alveg limp. Við
tókum okkur langt frí eftir
jólatömina. En er það ekki
alltaf þannig hvort sem mað-
ur er að gefa út plötu, bók
eða að halda jól fyrir fimm
manna fjölskyldu?"
En var eitthvaö viö þessa
törn sem kom þér á óvart?
„Það kom mér aðallega á
óvart að maður var að hugsa
um sölu og hvemig þetta
gengi allt. Við héldum að við
væmm hara svona „gerðum
okkar besta“-týpur en það
var nú öðm nær. Kannski er
það líka það sem gerir mann
að manneskju. Maður á voða
erfitt með að láta manni
standa á sama.“
Og ertu búin aö jafna þig?
„Já. Nú er þetta allt að
koma en þá kemur upp önn-
ur stemning sem er verð-
launastemningin. Það eru
einhverjar verðlaunaafhend-
ingar fram undan og fólk er
því farið að spyrja hvort við
væntum einhvers af þeim.
Það er svona nýtt jólastress.“
Hvaö með viötökurnar?
„Þær voru ótrúlega góðar.
Fólk er líka alltaf duglegra
að láta vita ef það fílar eitt-
hvað en þegar það gerir það
ekki. Við fengum annars
mjög góða spilun í útvarpi
og það var ánægjulegt. En
það voru náttúrlega ein-
hverjir sem sögðust ekki
vera að fíla það sem við
erum að gera.“
Þaö eru sem sagt mikil viö-
brigöi aö vera laus úr jóla-
diskaflóöinu?
„Já. Það er nett þynnka í
gangi núna. Sem er fínt. Við
vomm öll búin að snúa upp
á hendur á vinnuveitendum
og skólinn fór fyrir ofan garð
og neðan. Svo það er fínt að
fá smá pásu til að koma
reglu á þessa hluti.“
Eitthvaö fram undan?
„Já. Það er verið að semja
og koma hljómsveitinni aft-
ur saman. Þetta er búinn að
vera einn og hálfur mánuður
af rólegheitum og kominn
tími til að byrja aftur. Það er
líka að byrja svona skóla-fé-
lagsmiðstöðvartöm. Sá vett-
vangur varð svolítið út und-
an í jólatraffíkinni og nú á
að sinna honum.“
Fókus spyr:
Hver á
hvaða nef
oim
Auð mw
M JéirisdétUr
Er líf eftir
jólabóka/
diska- rokkari
ar
Ertu búin að jafna þig
eftir að hafa sent þína
fyrstu bók út í jólabókaflóð-
ið?
„Ég hef það mjög fínt en
ég samt mjög glöð yfir því
að það er kominn rólegri
tími. Ég veit samt ekki
hvort ég er alveg marktæk
þar sem ég var að vinna í
bókabúð fyrir jólin og það
var náttúrlega allt brjálað
að gera þar.“
Fylgdi því ekki samt
stress að gefa út bók?
„Jú. Þetta var svolítil
stressbomba og mikið um
að vera en ég skemmti mér
samt mjög vel.“
Var þetta eins og þú
hafðir búist við?
„Ég bjóst eiginlega ekki
við neinu og því var þetta
hara ágætis upplifelsi hvað
mig varðar."
Þú hefur sem sagt ekki
verið í losti eftir flóðið?
„Nei. Ég fór líka út í
byrjim janúar og var á lífs-
greddudóli um England og
Frakkland. Það var fínt að
skreppa svona út fyrir
landhelgina."
Hvað með viðtökurnar,
hvernig lögðust þær í þig?
„Bara ágætlega. Ég veit
það samt ekki. En það var
gaman að hvers kyns við-
brögðum og þau eru ennþá
að skríða fram. Það er líka
gaman þegar lesendur
segja mér hvað þeim
fannst. Þá er helsta og
skemmtilegasta kommentið
að fólk segist hafa hætt að
borða rækjur eftir lestur
bókarinnar."
Hvernig líöur þér núna eft-
ir aö þú ert búinn aö gefa út
geisladisk?
„Bara, ekkert öðruvísi."
Voru þetta engin viöbrigöi?
„Nei, í rauninni ekki. Ég
er búinn að vera að semja og
spila fyrir sjálfan mig svo
lengi að þetta var ekkert
öðruvísi."
En viötökurnar, hvernig
voru þær?
„Ég veit það eiginlega
ekki. Ég er náttúrlega svolít-
ið ungur og fólk tekur því
Var mikiö spennufall eftir jóla-
bókaflóöiö?
„Ég varð ekkert var við mikla
þörf fyrir prozac eftir jól. En auðvit-
að var maður létt lúinn en það gæti
líka bara verið allt jólasukkið."
Fylgdi ekkert stress því aö vera í
hringiöu flóösins?
„Maður reynir að koma sér upp
stáltaugum og gera þetta vel. Ég var
til dæmis að lesa upp á 30-40 stöðum
víðsvegar um landið og lét ekkert
stoppa mig í því. Þetta er bara
spuming um í hvað maður vill eyða
orkunni. Ég vildi eyða henni í að
kynna bókina fyrir væntanlegum
lesendum og það olli mér engum
andvökimóttmn. En þetta er að sjálf-
sögðu vertíð og ekkert vit 1 að taka
á þessu nema sem sjómaður. Maður
þarf að standa sína vakt og klára
túrinn.“
Freysson
•^Wfunjju.
En gekk bókin þín vel?
„Já, eins og blautur draumur.
Hún var uppseld hjá forlaginu
tveimur dögum fyrir jól. Strákarnir
hjá útgáfunni þurftu meira að segja
að keyra út bókunum sem þeir
höfðu sett í gluggaútstillingu í búð-
inni sinni.“
Bjóstu viö svona góöum viötökum?
„Ég renndi alveg blint í flóðið
enda er ómögulegt að vita hvernig
það verður. Ég held líka að það sem
ráði sölu á bókum sé fyrst og fremst
sálarástand þjóðarinnar á hverjmn
tíma. Það var lfka sérstaklega gam-
an að fá viðbrögð ánægðra lesenda.“
Skipta dómar engu máli?
„Ég held að áhrif gagnrýnenda
fari dvínandi. Orðsporið er farið að
skipta mestu máli. Gagnrýnin birt-
ist hvort eð er bara á fjórum stöð-
um: í DV, Morgunblaðinu, á Bylgj-
unni og Rás eitt. Þetta er ekki mikið
sé miðað við þá fjölmiðlaflóru sem
er hér á landi.“
viiii §
í 200 Þúsund nagl-I
Var mikiö að gera viö aö kynna
diskinn fyrir jólin?
„Já, jú, jú. En ég held samt að við
höfum sett íslandsmet í að fylgja
plötunni illa eftir. En núna erum
að spila alveg eins og hálfvitar um
hverja helgi.“
Svo þú ert ekki í einhverju
spennufalli eftir jólaplötuflóöió?
„Eiginlega ekki.“
En hvernig voru viötökurnar?
„Frábærar. Við fengum alveg
meiri háttar dóma og platan seldist
vel.“
Þú hefur ekki fundiö fyrir neinni
spéhrœöslu viö aö gefa út geisla-
disk?
„Jú, sennilega. En við hugsuðum
ekkert út i það. Við gerðum plöt-
una bara og gáfum hana út. Hugs-
uðum ekkert um það hvort hún
væri stór hluti af sjálfum okkur
eða ekki.“
Og þiö eruö enn þá á Akureyri?
„Já, enn þá. Flytjum kannski í
bæinn í sumar eða í haust. Það er
annars mjög fínt að vera hérna fyr-
ir norðan. Er nokkuð um að vera í
Reykjavík?"
kannski minna mark á mér.
En annars var þetta mjög
fínt.“
Ekkert stress?
„Nei. Þetta var ekkert of
mikið en það var samt meira
að gera hjá mér en vanalega
og það vara bara fínt.“
Þú ert sem sagt ekki fastur
í einhverju spennufalli?
„Nei. Nú er maður á fullu
að semja á næstu plötu. Ég
ligg bara með gítarinn minn
og geri mig tilbúinn fyrir
næstu plötu.“
Hvaö meö samkeppnina?
Hvaö stendur upp úr?
„Botnleðja er náttúrlega
frábær og þau í Ensími mjög
fín. Ég held að íslenskar
hljómsveitir séu á góðri leið
hvað gæðin varðar."
meira á.
www.visir.is
12. febrúar 1999 f Ókus
f Ó k U S 12. febrúar 1999
12
13