Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Síða 12
OPIN OG ÓKEYPIS DAGSKRÁ FYRIR ALLAl!
f Ó k U S 12. mars 1999
&
APS
skjár
Nú er runnin upp sú tíð að her manna hefur skyndilega breyst í frambjóðendur.
Það er sama hvert maður fer - á leiksýningu, í strætó eða sprangar niður í bæ
- alls staðar sér maður þetta fólk á vappi. Það þekkist á því að það vill líta út fyrir að vera
ákveðið og mjúkt, frjálslegt og traust, gamait og ungt. Og sá sem lendir í að tala við
þetta fólk kemst að því að það vill bæði auka útgjöld ríkissjóðs og lækka skatta,
það er þjóðlega sinnað en samt alþjóðlegt, það vill gæta íhaldssemi í flestum málum
en er samt fýlgjandi róttækum breytingum. Þetta fólk er að reyna það ómögulega
- að gera öllum til hæfis. Þeim til aðstoðar og öðrum til glöggvunar birtum við hér
minnispunkta sem ættu að vera á ískápshurðinni hjá hverjum frambjóðanda. ,
Ikóhól er snúlð vandamáHyrir frambjóðanda. Hann má
hvergi sjást fullur en hann verður hins vegar að vera alls
staðar þar sem vín er haft um hönd - nema helst á nekt-
arbúllunum. Og hann má heldur ekki drekka kók þegar aðrír
drekka vín því drukknu fólki finnst alltaf eins og þeir sem eru
edrú séu að spæja um sig. Frambjóðandinn verður því að drekka
án þess að verða drukkinn. Ólafur Ragnar gerði það með þvi að
bera glösin upp að vörunum, halla þeim en opna aldrei munninn.
Að verða fullur. Frambjóðandi má aldrei biðja
barþjón að kjósa sig.
frambjóðandans
indi. „Segðu það með bindinu" er viska sem reyndir stjórnmálamenn hafa komist
að. Einlitt dökkt bindi getur gefið til kynna of mikla íhaldssemi. Skræpótt bindi með blóma-
eða drekamynstri bendir til ístöðuleysis og eyðslusemi. Galdurinn er að velja milliveginn:
Glaðlegt bindi sem er ekki gáskafullt, klassískt bindi sem er ekki þunglamalegt.
Pegar menn dvelja langdvölum frá elginkonunni eiga þeir það til að velja illa saman
bindi og skyrtu. Eins geta menn úr bindisfríum atvinnugreinum átt það til að missa bindið
ofan í súpudiskinn eða jafnvel kaffibollann sinn. Stefán Valgeirsson átti við þetta hvort
tveggja að strfða. Fólk fann tll með konunni hans þegar hann birtist I ræðupúlti Alþingis f
bleikri skyrtu með skærgult bindi og með eggjarauðu í naflasiað.
raumar. Á sjöunda áratugnum var þetta lykilorð f
stjórnmálum. Martin Luther King átti sér draum
um jafnræði manna og Kennedy átti sér draum
um að fólk spyrði sig hvað það gæti gert fyrír Ameríku
áður en það velti fyrir sér hvað Ameríka gæti gert fyrir sig.
Og draumar hafa enn góð áhrif í pólitík. En draumsýnimar
verða aö vera óljósar. Kjósandinn má ekki fá á tilfinning-
una að verið sé að troða upp á hann nýju, skýrt skil-
greindu samfélagi. Reglan er sú að hann kýs frekar það
sem er - þótt það sé vont - en minnstu óvissu. Hafið
draumana því þokukennda. Sátt og samlyndi, ást og
kærleikur, uppgangur og vöxtur - eitthvað í þá áttina.
Ómerkileg draumsýn. „Ég á mér þann draum að
sjá átta akreinar upp Ártúnsbrekkuna" er ekki gott.
Þeim sem dreymir leiðinlega er ekki viðbjargandi.
Ililffeyrisjjegar. Frambjóðandi skyldi lofa elli-
Irfeyrisþegum öllu sem þeir biðja um. Freku
eftirstríðsárakynslóðirnar eru orönar gamlar og
þær sætta sig ekki við minna en allt. _Það
er snúið að skjalla gamalt fólk. Það er ekki fólkið
sem landíð erfir, það er varia mannauður og þegar
minnst er á að þær hafi skapað þjóðfélagið sem
yngri kynslóðir erfa er verið að minna það á að
þess tími er liðinn.
ryrkjar eru f tísku. Stjórnmálamaður skyldi aldrei gleyma að minnast á þá í ræð-
um og lofa þeim stórbættum kjörum. Hann skyldi þó varast að taka dæmi af heildar-
kostnaði ríkissjóðs við kjarabæturnar. Það hljómar illa f eyrum þeirra sem enn eru ekki
orðnir öryrkjar. Hann skyldi sömuleiðis sneiða hjá þvf að tilgreina hversu mikið bætur
hvers öryrkja ættu að hækka, þvi bæði kunna mótframbjóðendur hans að reikna og
eins finnst öryrkjunum alltaf of Iftið að gert og vllja meira. Ekki leika „lch bin
ein Berliner" eftir John F. Kennedy. „Ég er öryrki“ hljómar ekki vel.
ttarnöfn þykja enn bera með sér
. vissa fágun, jafnvel rétt til valda.
<L/adtís/ Hafstein, Thors, Mathiesen - allt
eru þetta traust nöfn. Haardc, Olrích og Am-
alds eru líka fullboðleg. Qase hefur ver-
ið reynt en gekk ekki. Hassan og önnur arabísk
nöfn eru ekki góð. Al er algjörlega ónothæft
nglingar er kjósendur framtfðar-
innar. Innan um þá eru Ifka alltaf
elnhverjir seinþroska sem hafa
kosningarétt. Stjórnmálamaður verður
því að láta sig gossa á svo sem eina
rokktónleika. :vr Aldrei að þiggja
smók eða sopa.
jóðerni. Það kemst enginn áfram í stjórnmálum á Islandi án
þess að vera uppbelgdur af þjóðernisstolti. Frambjóðendur ættu
því að mæta á landsleiki, minnast reglulega á Völu og Jón Amar,
Björk og strákana í Oz, brýna fyrir fólki mikilvægi lands, tungu,
sögu og þjóðar og vitna ríkulega í Ijóð þjóðskáldanna. Eina leiðin
til að halda fram alþjóðlegum sjónarmiðum á fslandi er að dulbúa
þau. Til dæmis: Rödd fslands þarf að heyrast i Evrópubandalaginu.
Eða: íslendingar hafa margt fram að færa til Kosovo-deilunnar.
Eða: Islenskt hugvit getur komið sér vel á hungursvæðum Afríku.
Þjóðsöngurinn. Reynið aldiei að syngja hann upphátt.
Hreyfið aðeins varirnar og horfið dreymin út f buskann.
rú. Þótt Guð sé ekki beint í tísku þá eru þeir sem á
hann trúa harðir á sínu. Frambjóðanda ber því að
finna sinn Guð eða f það minnsta að leita hans.
Best er að gera það í kirkju þar sem aðrir sjá til. Þetta er
tiltölulega áhættulaust og markhittið þar sem enginn sér
frambjóðandann nema jjeir sem trúa. Óvant fólk
á erfrtt með læra hvenær á að standa og hvenær að sitja
undir messum en vant fólk er fljótt að koma auga á þá
sem mlsstfga sig. Frambjóðandinn ætti þvl að taka með
sér einhvern trúaðan sem hnippir í hann á réttum stöð-
um. Mesta hættan er þó sú að frambjóðandinn finni
Guð, fari að trúa á hann og tala um hann á framboðs-
fundum. Fólk treystir engum verr en heittrúuðum manni,
það hefur alltaf á tilfinningunni að hann taki hagsmuni
Guðs fram yfir hagsmuni grænmetisbænda.
addbeiting getur skipt sköpum fyrir stjórn-
málamann. Margareth Thatcher var
C- skrækróma en leitaði til talmeinasérfræðings
og æfði sig að tala tveimur áttundum neðar. Hún varð for-
maður Ihaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands
stuttu síðar. Jóhanna Sigurðardóttír hefur nú auðheyri-
lega farið að dæmi Margrétar enda hefur það staðið frama
hennarfyrir þrifum að ræður hennar hafa hljómað eins og
hún væri úrvinda af þreytu að kalla á krakkana sfna f
kvöldmatinn. Hæt Það má ekki fréttast að stjórnmála-
maður læri að tala upp á nýtt til að ganga f eyrun á kjós-
endum. Það minnir um of á úlfinn sem át krít til að komast
að grfslingunum.
inir. Stjómmálamaður verður að eiga vini, annað ber merki um ein-
angrun, ómannblendni eða ómennska stffni. Ef stjórnmálamaður á
ekki vini getur hann kallað hvern sem er vin sinn. Það mun enginn bera
það til baka, enda er það ekki til siðs að sverja af sér vináttu manna. Það
hefur til dæmis enginn þingmaður dregið til baka að hann sé vinur Össur-
ar Skarphéðinssonar þótt hann hafi í gegnum tíðina sagt alla sextíu og
þrjá þingmennina stórvini sfna. Þótt stjórnmálamaður gæti sfn og
velji vel þá sem hann nefnir vina sína hefur hann ekkert með það að gera
hvað meintur vinur teklur upp að orðinu slepptu. Hann gæti verið hand-
tekinn fýrir að glápa inn um svefnherbergisglugga I Hlfðunum nóttina eftir.
iagorð vega þungt Stjómmálamenn geta jafnvel
komist ótrúlega langt á slagorðinu einu - eins og Albert
Guðmundsson með vin litla mannsins. Stuðluð slagorð
em almennt betri en óstuðluð. Finnur Ingólfsson hefði
til dæmis aldrei náð fyrsta sæti Framsóknar f Reykjavík
ef hann héti Böðvar - Böðvar f fyrsta sæti er allt annað
en Finnur f fyrsta sæti. Slagorð sem hægt er að
snúa út úr. Kosningabarátta sjátfstæðismanna 1979 undir
slagorðinu Leiftursókn gegn verðbólgu var skotin niður
með Leiftursókn gegn Iffskjömm. Eins getur veríð vara-
samt ef hægt er að lesa annað en ætlaða merkingu út úr
slagorðinu eins og þegar Drífa Sigfúsdóttir stefndi á
fyrsta sæti Framsóknar í Reykjanesi með: Drrfa Sig. í
fyrsta sæti.
1
eningar. Helst þarf frambjóðandi að hafa
unnið i lottói án |jess að nokkur viti af.
Hann þarf nefnilega helling af peningum en
hann má samt ekki vera ríkur, ekki hafa gifst til
fjár, ekki hafa erft stórar fjárhæðir, ekki hafa þegið
fé af fjársterkum aðilum, ekki... Listinn er enda-
laus. Hann þarf hins vegar að geta keypt sér aug-
lýsingar og aðra athygli - til dæmis með þvf að
bjóða mönnum í glas. Algengasta aðferðin er að
selja sig hverjum sem viil og lýsa þvf yfir að endur-
skoðaðir reikningar framboðsins verði birtir eftir
kosningar - og svíkja það síðan. fæfií: Ekki fara
í framboð á meðan mál þfn em til meðferðar hjá
skattrannsóknarstjóra. Ef þú gerír það hrannast
vandamálin upp.
fbeldi er nauðsynlegt i pólitik. Frambjóð-
andi verður að hafa andstæðinga sfna
undir, hann verður að vera tilbúinn að
hakka þá og mala, valta yfir þá og svínbeygja,
ganga frá þeim, velta þeim upp úr skftnum, grafa
undan þeim, koma aftan að þeim, reka rýting í
bakið á þeim og snúa hnffnum (sárinu. Því öfga-
fyllri sem frambjóðandinn er f ofbeldinu, því meira
fylgi fær hann. (Róm róuðu stjórnmálamenn al-
menning með leikjum skylmingaþræla. f dag em
þeir skylmingaþrælarnir. Lfkamlegt ofbeldi
hefur orðið illa séð á seinni ámm. Ámi Johnsen
kemst reyndar upp með það en hann er ekki ís-
lenskur þingmaður. Hann er vestmannaeyskur.
yndni. Stjómmálamaður sem hefur húmor á að
flagga honum en sá sem hefur engan á að þykjast
hafa hann. Húmor er nefniiega bæði hlýlegur og stórmann-
legur. Húmorslaus stjórnmálamaður má þó alls ekki segja
brandara heldur ber honum að hlæja bæði dátt og lengi að
annarra manna bröndumm. Hann skyldi [jó varast að hafa
nokkurt fmmkvæði þar um heldur einvörðungu hlæja þeg-
ar aðrir em byrjaðir. Bæði Ólafur Ragnar og Ámi Sigfús-
son náði mikilli leikni f þessari fþrótt og em almennt álitnir
miklir húmoristar. jæ Húmor er eðlilegast að brjótast
fram. Ef menn em of meðvitaðir um að virka hressir geta
þeir lent f því sama og Þorsteinn Þálsson þegar hann vaV
forsætisráðherra. Þá sagði hann brandara með Buster
Keaton-svip en brosti striðnisiega þegar hann tilkynnti um
150 þúsund tonna niðurskurð á þorskafla.
lott Öfugt við það sem margir frambjóðendur telja þá ættu
þeir að varast það eins og heitan eldinn að lenda I þrætum við and-
stæðinga sína. Ákaflega fáir em svo liðugir um kjálkana að þeir geti
unnið afgerandi sigur á andstæðingum sínum í kappræðum. Deilur
stjómmálamanna virka þvf vanalega á venjulegt fólk sem pex, kftur,
gjamm pour la gjamm. Frambjóðendur ættu því að venja sig á það
að sítja þegjandi undir vaðli andstæðinganna en glotta út í annað -
jafnvel hrista höfuðið létt annað slagið. Glottið má ekki frjósa
á andlitinu - það heitir Sólheimaglott
undar. Ekkert gefur betur til kynna að frambjóðandinn
sé traustur fjölskyldumaður en eldri hundur. Þótt böm séu
góðra gjalda verð bera þau ekki með sér sönn fjölskyldugildi.
Baaði er að enginn þolir annarra manna böm og eins myndast
böm illa; þau em annaðhvort með einhvern hrekk í svipnum
(óstýrilæti = agaleysi) eða þá með fýlusvip (skammast sín fyrir
bröltið í leiðinlegum foreldmm). Hundar em hins vegar blíðleg-
ir og það efast enginn um að þeir standi fast að baki eiganda
sfnum. Eins góðir og hundar geta reynst stjómmála-
manni þá geta þeir rústað ferilinn ef þeir láta ekki að stjórn,
urra að fréttamönnum eða pissa á teppið í sjónvarpsviðtali.
Eins getur sá stjórnmálamaður sem er staðinn að því að berja
hundinn sinn gleymt öllum frama - það er verra en að löðr-
unga barnið sitt í vitna viðurvist þvi innst inni er flest fólk ráð-
þrota gagnvart frekjunni í börnum í dag.
nnilegheit Frambjóðendur þurfa að
temja sér innilegan svip en jafn-
framt gæta (jess að segja aldrei
neitt sem gefur tilefni til þessa svips.
Þetta er þröngt einstigi en frambjóð-
andinn verður að fóta sig eftir því.
Kjósandinn vill að hann sé innilegur
en hann þolir hins vegar ekki að heyra
neitt innilegt- svo sem upprifjun á
mistökum, útleggingar á persónugöll-
um, lýsingar á eftirsjá. Þegar
menn hafa tamið sé innilega fram-
komu kemur fyrir að þeir fara að trúa
því að þeir séu innilegir í raun og veru
og eins getur samstarfsfólki fundist
sem innilegheitin beinist að því per-
sónulega. Slfkt kallast tilfinningarugl;
það er að fólk ruglar saman innileg-
heitum og ástleitni - samanber Clint-
on og Lewinski.
á. í raun þarf frambjóð-
andinn ekki að búa yfir
meiri orðaforða. Hann
segir já við öllu. Ef hann tekur
leigubil og bílstjórinn hellir sér
yfir hann vegna gegndariauss
innflutnings á flóttamönnum
sem fá allt frítt og ræna sóma-
kært fólk atvinnu er aðeins til
eitt svar: „Já.“ Hugsanlegt er að
bæta við „athyglisvert" eða
„einmitt" en ekki meiru.
„En.“ Þetta er vont orð, sérstak-
lega á eftir jái. „Kúnninn hefur
alltaf rétt fyrir sér" gildir í pólitfk
sem annars staðar. Ef hann fær
ekki möglunarlausa þjónustu
snýr hann sér annað.
ikótfn. Ef stjórnmálamenn ætla sér einhvem frama skulu þeir aldrei láta mynda sig með sígarettu. Þeim
er hins vegar guðvelkomið að reykja - flestir stjómmálamenn gera það. En þeir mega ekki sjást reykj-
andi í sjónvarpi eða á sfðum dagblaðanna. Og það er lítið mál að fyrirbyggja það. Vigdfs Finnbogadótt-
Ir reykti til dæmis alla sfna forsetatfð en sást aldrei reykjandi á prenti. Þegar stórreykingakonan Margrét Dana-
drottning kom f heimsókn létu fslenskir fjölmiðlar það meira að segja eftir forsetanum sínum að velta fyrir sér
hvar hún ætti að drepa í á Bessastöðum. Ekki hætta. Stjórnmálamaður sem lýsir þvf yfír að hann sé
hættur að reykja en fellur sfðan á bindindinu hefur gert sjálfan sig að aumingja, fstöðulitlum flautaþyrli.
enntun. Frambjóðendur skyldu þráfaldlega halda á
lofti menntun og skólalærdómi og láta það ekki á sig
fá þótt allir aðrir frambjóðendur geri það líka. Menn
skulu því taka undir þaö að framtíð Islands ráðist á því hversu
stór hluti þjóðarinnar hefur háskólamenntun þótt þeir viti betur.
Menntun er nefnilega það eina sem sumir eiga, f hana sækja
þeir sjálfsmynd sína og allar væntingar um hamingjusamt Iff.
.Segist aldrei ætla að snúa ykkur að akademískum
störfum. Það bendir ekki til menntunar heldur snobbs.
esbfur og hommar. Stjómmálamaður skyldi fara varlega f
að lýsa yfir stuðningi sínum við samkynhneigða. Þrátt fyr-
ir að réttmæti alira krafna þessa fólks sé gagnsætt og skýrt,
þá er snúið að taka undir þær kröfur. Ef menn vilja gera vel
við samkynhneigða missa jjeir stuðning stifkristnu hægri-
mannanna og ef þeir taka ekki nógsamlega undir kröfumar
ná þeir ekki stuðningi hinna samkynhneigöu en fá eftir sem
áður hina stífkristnu á móti sér. Menn ættu því alltaf að fela
samkynhneigða innan um aðra minnihlutahópa: „Mérfinnst
eðlilegt að skoða gaumgæfilega réttindamál allra þeirra er
búa við óvenjulegar fjölskylduaðstæður" er ein leiðin.
„Sumir vina minna eru hommar" er vond setning.
Það má leggja í hana of margbreytilegan skilning.
yn. Það er miklu betra fyrir frambjóðanda að
vera kona. Það er ómögulegt að flagga því að vera kari-
maður. „Kariar þurfa að auka áhrif sfn á Alþingi“ gengur til
dæmis ekki. Hins vegar er yfirieitt verra fyrir stjómmáia-
menn að vera konur. Þær komast sfður til valda. Drauma-
frambjóðandinn er þvf kart sem er kona á kosningafund-
um. Það er alveg sama hvað frambjóöandinn gerir
eða segin helmingur kjósenda er af vitlausu kyni.
Myndskreyting Þórarinn Leifsson
Canon Ixus M-l
O 23 mm linsa með Ijósopi 4,8
OVegur aðeins 115 gr
O Sjálfvirkur fókus og auðveld filmuísetning
Ö Möguleiki á dagsetningu og texta aftan á rrynd
O Sjálfvirkt, innbyggt flass með vörn gegn rauðum
augum
Fermingartilboð
M
M
T
U
D
A
G
A
KL.22:00
og
LAUGADAGA KL.16:00
ÍSLENSKUR
KVIKMYNDAÞÁTTUR!!
^NÁMSKEID
► FVLGIR myndavél!
Haní Petemen
STOFMAÐ i 907 - G <€ D I ERU OKKUR HUGLEHCIK
'BAK VIÐ TJ0LDIN'
MEÐ VÖLU MATT