Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 21
Lifid t'ítir vmnu
r
1 e i k h ú s
Maður í mlslitum sokkum eftir Arnmund
Backman er á Smíöaverkstæöi Þjóöleikhúss-
ins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur og
því er uppselt í kvöld. Enn eitt gangstykkið
með .gömlu leikurunum" - að þessu sinni
Þóru Friðriksdóttur, Bessa Bjarnasyni og
Guörúnu Þ. Stephensen. Sími 551 1200 tyrir
þá sem vilja panta miða á sýningu einhvern
tíma í framtíðinni.
Þrír einþáttungar Ber-
tolts Brecht úr seinna
stríði verða fluttir i
Skemmtihúsinu við Lauf-
ásveg kl. 20. Hjalti
Rógnvaldsson leikurí öll-
um þáttunum og Erlingur
Gíslason leikstýrir. Sími
530 3030.
Leikfélag eldri borgara, Snúöur og Snælda,
leikur í Mörgulelkhúsinu kl. 16. Símar 588
2111 og 551 0730.
f yr i
Borgarlelkl-
húsiö: Pétur
Pan er á stóra
sviðinu kl. 14
og skemmtir
þar ungum
sem öldnum.
Krókur kapteinn er þó miklu skemmtilegri,
eins og vondra manna er siður. Indíánar, haf-
meyjar, krókódill, draumar og ævintýri. Sími
568 8000.
lönó. Leikfélaglð Tíu fingur sýnir Ketils sógu
flatnefs, eftir Helgu Arnalds, kl. 15. Sýningin
fjallar um fyrstu kynni Ketils flatnefs og Yng-
vildar frá Hringariki og er það sögusmettan
ísafold sem leiðir áhorfendur að innsta eðli
þessa sambands. Leikstjóri sýningarinnar er
Þórhallur Sigurösson en Petr Matásek gerði
leikmynd. Síminn í Iðnó er 530 3030.
Á stóra sviöi Þjóðlelk-
hússlns verður Bróöir
mlnn Ijónshjarta, eftir
Astrid Lindgren, leikinn
kl. 14. Ævintýri fyrir böm,
endurupplifun fýrir full-
orðna. Sími 5511200.
Möguleikhúsiö sýnir
Hafrúnu, leikverk unnið
upp úr íslenskum þjóð-
sögum, kl. 14. Vala Þórsdóttir leikur en Krist-
ján Eldjárn leikur á gítar. Sími 562 5060.
Tvær sýningar eru á barnasöngleiknum
Ávaxtakörfunni eftir Kristlaugu Maríu Sigurö-
ardóttur í íslensku óperunnl, kl. 14 og kl.
16.30. Kennsluleikur um einelti. Ávextir eru
meðal annarra Andrea Gylfadóttlr, Hlnrik
Ólafsson og Margrét Kr. Pétursdóttir. Sími
551 1475.
í Norræna húsinu verður kvikmyndasýning fyr-
ir börn kl. 14. Þetta er liður í dagskrá hússins
til minningar um ævintýramanninn H.C. Ander-
sen. Tvær myndir verða sýndar: Fyrtejet og
Hvordan det videre glk den grimme ælling,
báðar með dönsku tali. Aðgangur er ókeypis.
100 ára afmælishátíð KFUM og K verður
framhaldið f Perlunni kl. 14. Byrjaö á messu
með predikun í leikritaformi, en léttlr tónlelk-
ar hefjast kl. 15.30 (Þorvaldur Halldórsson og
fleiri sanntrúaðir tónlistarmenn).
námskeiö
íslandsdeild EPTA (Evrópusamband píanó-
kennara) mun standa fyrir námskeiðl í píanó-
lelk fyrlr byrjendur og lengra komna í Menn-
ingarmlðstööinni Geröubergi, laugardag og
sunnudag. í dag verður námskeiö frá kl.
10-17 fyrir efri stig í píanóleik. Leiöbeinandi
er Peter Máté. Þátttökugjald fýrir þennan hluta
er kr. 1000.
isport
íslandsmót barnaskólasveita i skák veröur
haldíð í húsnæöi Taflfélagslns Hellls að
Þönglabakka 1 og byrjar ki. 13. Framhald frá
gærdeginum.
Mánudaguh
15. mars
•klassík
Jóhann Smárl Sævarsson bassi og Helga
Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari halda tón-
leika í Sal Tónlistarhússins i Kópavogi kl.
20.30. Tónleikarnir eru styrktir af Germanlu
og listamennirnir launa þaö eflaust meö þýsk-
um áhrifum á efnisskránna.
•kabarett
Þórarinn Hjartarson og Ragnheiöur Ólafsdótt-
ir flytja gestum Listaklúbbsins söngdagskrá
meö Páli skáldi Ólafsynl. Páll, sem var bóndi
á Héraði á 19. öld, var hagmæltur með af-
brigðum og fýndinn, og tækifæriskveðskapur
hans varð landsfleygur, ekki hvað síst drykkju-
visurnar. Vinsæl urðu einnig kvæði hans um
sumarið og fuglana, en Ingl T. Lárusson hefur
gert nokkur þeirra að þjóðareign með lögum
sínum. Fá íslenskt skáld eru jafn persónuleg í
Ijóðum sínum og Páll, enda orti hann ekki til
birtingar. Gleði sína og sorgir tjáöi hann króka-
veitingahús
Ódýrl og gotl
í hádeginu
Hádegiö frá mánudegi til fóstudags
er hagkvæmasti tíminn til að fara
út að borða, ef fólk getur komið því
við fyrir önnum. Þá gilda allt önnur
verð en aðra daga, sumpart gjaf-
verð, til dæmis á sumum af beztu
veitingahúsum landsins, svo sem í
Listasafninu á Holti, Humarhúsinu,
Primavera og Þremur Frökkum.
Þetta truflar að vísu lífsstílinn, ef
fólk er vant að borða almennilega á
morgnana og kvöldin og að fá sér
aðeins snarl á hlaupum í hádeginu.
Viðskiptamálsverðir, sem voru vin-
sælir fyrr á árum, eru vegna tíma-
skorts að mestu úr sögunni. Þetta
kann að vera skýringin á, hversu
illa veitingahús eru sótt í hádeginu
og hversu langt þau ganga mörg
hver í tilboðum sínum.
Listasafnið í Holti við Berg-
staðastræti býður úrvals þjónustu
og breytilegan þriggja rétta matseð-
il með vali í öllum þáttum fyrir tæp-
ar 1800 krónur. Fyrir þetta verð er
boðin matreiðsla, sem að gæðum
gefur ekki eftir því, sem boðið er á
kvöldin, landsins bezta matreiðsla
um þessar mundir, frönsk cuisine
nouvelle með ferskum hráefnum,
nettum eldunartímum, lítilli fitu og
engu hveiti, áherzlu á fisk og græn-
meti.
Þriggja rétta matseðill með vali í
öllum þáttum er einnig í boði á
Primavera við Austurstræti fyrir
1350 krónur. Þar er eldað upp á eins
konar ítalska cucina novella, sem er
svipuð þeirri frönsku, en einfaldari
í sniðum. Primavera er þó ekki eins
stílhreint í matargerðarlist og
Listasafnið og rambar stundum út
af línunni.
Jómfrúin við Lækjargötu er in-
dælt afturhvarf til fortíðar og býð-
ur nokkra rétti dagsins að hætti
gamaldags danskra frokost-veit-
ingahúsa á tæpar 900 krónur að
meðtaltali og enn fjölskrúðugra úr-
val smurbrauðsneiða að hætti Idu
Davidsen á 750 krónur heilar og 475
krónur hálfar.
Aðrir góðir matreiðslustaðir hafa
minna úrval í hádegistilboðinu.
Þrír Frakkar, í notalegum húsa-
kynnum við Baldursgötu, bjóða
ágæta og tæra súpu og fjölbreytt val
af vel matreiddum fiskréttum á tæp-
ar 1000 krónur að meðtali.
Humarhúsið við Lækjargötu er í
þessum flokki með góða og tæra
súpu og val milli nokkurra aðal-
rétta á tæpar 1200 krónur að meðal-
tali. Staðurinn sameinar góða og
stílhreina matreiðslu og þægileg og
stílhrein húsakynni.
Lækjarbrekka í sömu húsaröð
við Lækjargötu býður þykka hveiti-
súpu að íslenzkum hætti og fjöl-
breytt val misjafnt eldaðra aðalrétta
á tæpar 1100 krónur. Þótt elda-
mennska sé brokkgeng, er þjónusta
góð og aðstæður notalegar.
Tilveran við Linnetstíg í Hafnar-
firði býður svipaðan kost, þykka
hveitisúpu og nokkra aðalrétti á
tæpar 900 krónur að meðaltali.
Laugaás við Laugarásveg var á
svipuðum nótum í stíl og gæðum,
en hefur því miður ekki borið sitt
laust. Mesta sérstöðu hefur ástarkveðskapur
hans til Ragnhildar Björnsdóttur, ástkonu hans
og síðar eiginkonu, og skipta þau ijóð hundruð-
um. Hluti þeirra birtist árið 1971, 66 árum eft-
ir dauða skáldsins. Ragnheiður og Þórarinn
syng'a og kveða ástina, gleðina, ellina og sorg-
ina í ijóðum skáldsins, en flytja gestum einnig
tækifærískveðskap. Mörg ný lög verða flutt, ým-
ist með eða án gítarleiks, og eru þau fléttuö
saman við lífssögu skáldsins. Höfundar laga
eru m.a. Ingi T. Lárusson, Hróðmar Ingi Sigur-
björnsson, Ragnheiður Ólafsdóttir og Hörður
Torfason. Þórarinn Hjartarson er plötusmiður
og sagnfræðingur á Akureyri en Ragnheiður
Ólafsdóttir er Borgnesingur og kennari að
mennt. Húsnæði Listaklúbbsins í Þjóðleikhús-
kjallaranum opnar kl. 19.30, en dagskrá kvöids-
ins hefst kl. 20.30. Miðaverð er kr. 800.
•fundir
Félagiö Ísland-Ungverjaland gengst fyrir ferð tll
Ungverjalands dagana 22.-29.mai nk. fyrir fé-
lagsmenn og gesti þeirra. Fararstjóri í ferðinni
verður Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður, en
hann stundaöi nám I Ungverjalandi til fjögurra
ára. Dvalist verður í höfuðborginni Búdapest í tvo
daga og síðan ferðast um landiö. Áhersla verður
lögð á ungverska menningu, bæði til munns og
handa. Ferðin verður kynnt á fundi mánudaginn
15. mars kl. 20.30 á veitingahúsinu Vlð tjörn-
ina, Templarasundi 3, uppi á lofti. Fundurinn er
jafnframt aðalfundur félagsins.
Þriðjudagu^,
16. mars
• krár
Eyjólfur Krlstjánsson er snillingur þótt fáir séu
til að viðurkenna það. Hann sýnir það og sann-
ar á Kaffi Reykjavík í kvöld að snilligáfa getur
sprottið fram þar sem síst skyldi. Það eru til
snillingar á öllum sviðum. Líka í því að vera
Eyvi Kristjáns.
•klassík
Samkór Kópavogs heldur vortónleika sína I
Sal Tónllstarhússlns í Kópavogl kl. 20.30. Á
efnisskránni eru verk eftir Valgeir Guðjóns-
son, Josef Strauss, Irving Berlin, Andrew
Loyd Webber, Tryggva Baldursson og fleiri.
Meðal textahöfunda eru Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi, Jóhannes úr Kötlum og Jón frá
Ljárskógum. Sungin veröa lög úr Porgy og
Bess, My Fair Lady og Cavalleria Rusticana.
Stjórnandi er Dagrún Hjartardóttir, einsögn-
vari Svava Krlstín HJartardóttir og undirleikari
Claudio Rlzzl.
út aö boröa
AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333.
„Erfitt er að spá fyrirfram í matreiðsluna, sem er
upp og ofan." Opiö í hádeginu virka daga
11.30- 14.00, kvöldin mán.-fim. 17.30-22.30,
fös.-sun. 17.30-23.30. Barinn er opinn til 1 á
virkum dögum en til 3 um helgar.
AUSTUR INDÍAFÉLAGIÐ ★★★★ Hverfis-
götu 56, s. 552 1630. „Bezti matstaöur
austrænnar matargerðar hér á landi.“ Opiö
kl. 18-22 virka daga og til kl. 23 um helgar.
ARGENTÍNA ★★ Baróns-
stíg lla, s. 551 9555.
„Bæjarins besta steikhús
hefur dalað." Opiö
18-23.30 v.d., 18-3 um
helgar.
ASÍA ★ Laugavegi 10, s.
562 6210. Opiö virka
daga 11.30-22 en 12-23
um helgar.
CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499.
CARPE DIEM Rauðarárstlg 18, s. 552 4555.
CARUSO ★★★ Þingholtsstr. 1, s. 562 7335.
„Þvert á íslenska veitingahefð hefur hin rustalega
notalegi Caruso batnað með aldrinum." Opiö
11.30- 14.00 og 18.00-23.00 virka daga.
Föstudaga 11.30-14.00 og 18.00-24.00,
laugard. 11.30-24.00 ogsunnud. 18.00-24.00.
CREOLE MEX ****
Laugavegi 178, s. 553
4020. „Formúlan er líkleg
til árangurs, tveir eigendur,
annar í eldhúsi og hinn í
sal.“ Opiö 11.30-14 og
18-22 á virkum dögum en
18-23 um helgar.
EINAR BEN Veltusundi 1.
5115 090. Opiö 18-22.
GRILLIÐ ★★★★ Hótel Sögu v/Hagatorg, s.
5252 9960. „Glæsilegur útsýnissalur milliklassa-
hótels með virðulegri og alúðlegri þjónustu,
samfara einum allra dýrasta matseðli landsins."
Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga,
12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga.
HARD ROCK CAFÉ ★★ Kringlunni, s. 568
9888.
Hornið ★★★,
Hafnarstræti
15, s. 551
3340. „Þetta
rólega og litla
(talíuhorn er
hvorki betra né
verra en áður. Eldhúsiö er opiö kl. 11-22 en til
kl. 23 um helgar.
Þetta truflar að vísu lífsstílinn, effólk er vant að borða al-
mennilega á morgnana og kvöldin og að fá sér aðeins
snarl á hlaupum í hádeginu.
barr að undanfornu. Þar kostar
súpa og val milli aðalrétta 1300
krónur að meðaltali.
Kínamúrinn við Hlemmtorg hef-
ur léttari matreiðslu og býður súpu
og val milli nokkurra aðalrétta á
tæpar 600 krónur. Lægra verður
tæpast komizt í verðlagi. Kínverska
matreiðslan er raunar betri i Kína-
húsinu við Lækjargötu, þar sem er
boðinn fastur rækjuréttur á tæpar
600 króntir.
Af stöðum með engu eða þröngu
vali í hádeginu ber fremsta að nefna
Tjörnina við Templarasund, þar
sem súpa og fiskur dagsins fást á
1000 krónur. Þamæst Rex við Aust-
urstræti, þar sem val milli tveggja
rétta kostar 1200 krónur. Síðan
Iðnó við Tjörnina, þar sem súpa og
fiskur dagsins kosta 1600 krónur.
Creole Mex efst við Laugaveg
býður súpu dagsins, og val milli
nokkurra aðalrétta á tæpar 800
krónur. Caruso við Bankastræti er
með tvenns konar val tvíréttað á
tæpar 800 krónur. Ítalía við Lauga-
veg og Hard Rock í Kringlunni
bjóða súpu og aðalrétt á 750 krónur.
í Madonnu við Rauðarárstíg kosta
súpa og aðalréttur tæpar 800 krónur
og á Amigos við Tryggvagötu tæp-
ar 900 krónur.
Góð salatborð eru á nokkrum
stöðum, einkum hjá Eika við
Fákafen og Pósthússtræti og á Aski
við Suðurlandsbraut á tæpar 800
krónur, Pottinum og pönnunni
við Nóatún á tæpar 900 krónur.
Yfirleitt eru þetta staöir, sem
hafa fengiö jákvæða umsögn í veit-
ingarýni DV á undanfómum mán-
uðum. Fleiri staðir era á lágum nót-
um í hádegisverði, en státa ekki af
svo frambærilegri matreiðslu, að
hægt sé að mæla með þeim.
Jónas Kristjánsson
HÓTEL HOLT
★ ★★★★ Berg-
staðastræti 37, s.
552 5700. „Lista-
safnið á Hótel Holti ber
í matargeröarlist af öðr-
um veitingastofum lands- *
ins." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga,
12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga.
HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ V/Óðinstorg, s. 552
5224. „Stundum góöur matur og stundum ekki,
jafnvel í einni og sömu máltíö." Opiö 12-15 og
18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og
laugardaga.
HUMARHÚSIÐ ★★★★ Amtmannsstig 1, s.
5613303. „Löngum og hugmyndarikum matseðli
fýlgir matreiðsla í hæsta gæðaflokki hér á landi"
Opiö frá 12-14.30 og 18-23.
IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700.
„Matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóðir,
en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var
að neinu leyti misheppnaöur, en fáir minnisstæð-
ir.“ Opiö frá 12-14.30 og 18-23.
ÍTALÍA ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630.
JÓMFRÚIN ★★★★★ Lækjargötu 4, s. 551
0100. „Eftir margra áratuga eyðimerkurgöngu
íslendinga getum við nú aftur fengið danskan
frokost I Reykjavík og andað að okkur ilminum
úr Store-Kongensgade.“ Opiö kl. 11-18 alla
daga.
KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551
1014. „Kínahúsið er ein af helztu matarvinjum
miðbæjarins." Opiö 11.30-14.00 og 17.30-
22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22 á
sunnudögum.
KÍNAMÚRINN ★★★ Uugavegi 126, s. 562
2258
LAUGA-ÁS ★★★★★
Uugarásvegi 1, s. 553
1620. „Franskt bistró að
íslenskum hætti sem dreg-
ur til sín hverfisbúa, sem
nenna ekki að elda í kvöld,
barnafjölskyldur utan úr
bæ og ferðamenn utan af
landi og frá útlöndum."
Op iö 11-22 og 11-21 um
helgar.
LÆKJARBREKKA ★ Bankastræti 2, s. 551
4430.
MADONNA ★★★ Rauðarárstíg 27-29, s. 893
4523 „Notaleg og næstum rómantísk veitinga-
stofa með góðri þjónustu og frambærilegum ítal-
íumat fýrir lægsta verð, sem þekkist hér á landi."
Opiö virka daga 11.30-14.00 og 18.00- 23.00
og 17-23.30
um helgar.
MIRABELLE
★★★ Smlðju-
stíg 6, s. 552
2333. „Gamal-
frönsk mat-
reiðsla alla leið
yfir í profiteroles og créme brulée." Opiö
18-22.30.
PASTA BASTA ★★★ Kiapparstíg 38, s. 561
3131. „Ljúfir hrisgrjónaréttir og óteljandi tilbrigöi
af góöum pöstum en lítt skólað og of uppáþrengj-
andi þjónustufólk." Opiö 11.30-23 virka daga og
11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka
daga og til 3 um helgar.
PERLAN ★★★★ Öskjuhlíð, s. 562 0200.
„Dýrasti og glæsilegasti veitingasalur landsins
býður vandaöa, en gerilsneydda matreiðslu* Opiö
18.00-22.30 virka daga og til 23 um helgar.
POTTURINN OG PANNAN, ★*-** Brautar-
holtl 22, s. 551 1690. „Einn af ódýrustu al-
vörustöðum borgarinnar býður eitt bezta og
ferskasta salatborðiö." Opiö 11.30-22.
RAUÐARÁ Rauðarárstíg 37, s.
562 6766.
REX ★★★★
Austurstrætl S, s. 511
9111. „Rex kom mér á
óvart með góðri, fjölbreyttri
og oftast vandaðri mat-
reiðslu, með áherzlu á einföld
og falleg salöt, misjafnt eldaðar
pöstur og hæfilega eldaða fiskrétti." Opiö
11.30-22.30.
SHANGHÆ ★ Laugavegi 28b, s. 551 6513.
Opiö virka daga 11.30-22 en 12-23 um helgar.
SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiöslan er fögur og fin, vönduð og létt, en
dálítið frosin." Opiö frá kl. 18 alla daga.
TILVERAN ★★★★★ Llnnetsstíg 1, s. 565
5250. „Það eru einmitt svona staðir, sem við
þurfum fleiri af til að fá almenning tii að lyfta
smekk sínum af
skyndibitaplani
yfir á fýrstu þrep
almennilegs-
mataræðis."
Opiö 12-22
sunnudag til
fimmtudags og 12-23 föstudag og laugardag.
VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s.
5518666. „Tjörnin gerir oftast vel, en ekki alltaf
og mistekst raunar stundum." Opiö 12-23.
ÞRÍR FRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14, s.
552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum is-
4.
12. mars 1999 f Ó k U S
21
4