Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Qupperneq 6
1
GSM
viötaliö
Stefán Karl
Stefánsson
leiklistarnemi
Stefán: „Já.“
Fókus: „Stefán?"
S: „Já.“
F: „Já, blessaður. Þetta er Fókus
héma."
S: „Já. Heyrðu, bíddu aðeins.“
Smábið.
S: „Jæja, nú heyri ég betur í þér.“
F: „Nú? Hvað varstu að gera?“
S: „Ég var að hækka í símanum mín-
um?“
F: „Áttu svona fínan GSM-sima að það
er hægt að hækka í honum?"
S: „Já, hann er ágætur.“
F: „Já. Ég er ekkert að trufla þig, er
það?“
S: „Þú ert ekkert aö trufla mig, nei. Ég
var bara að koma af æfingu."
F: „Og hvar ertu núna?“
S: „Ég er staddur héma fyrir utan
sjoppu á leiðinni í simaskrána."
F: „Á leiðinni hvert?"
S: „Ég rata ekkert i Reykjavík."
F: „Ég get kannski hjálpað þér?“
S: „Nú, jæja. Bílasala Reykjavikur,
hvar er hún?“
F: „Ég held hún sé í Skeifunni.“
S: „Skeifunni?“
F: „Jaaaaá.“
S: „Jaaaaá."
F: „Athugaðu það bara.“
S: „Já, ég þarf að tékka á þvi.“
F: „Já, ég er ekki alveg viss heldur."
S: „Það er allt í lagi.“
F: „Jæja, hvenær útskrifastu annars?“
S: „Ég útskrifast núna í vor. Það eru
tveir og hálfur mánuður, hva sjötiu
og, ætli það séu ekki sjötiu dagar?"
F: „Sjötiu dagar, já. Ertu farinn að
hlakka svolitið til?“
S: „Ég er farinn að hlakka svo til að ég
er farinn að telja niöur.“
F: „En þér finnst gaman í Leiklistar-
skólanum?"
S: „Rosalega gaman. Ég hlakka bara
svo til að komast út og fara að leika
með öðru fólki. Þetta er svo leiðin-
legt liö sem ég er með í bekk . Neih,
hva, þetta eru allt yndisleg böm.“
F: (Hlær) „Er það ekki?“
S: „Jú, þetta er frábær bekkur sem ég
er í.“
F: „Heyrðu já, veistu símann hjá
Nönnu?“
S: „Já.“
F: „Já? Og kanntu hann utan að?“
S: „Ég kann alla síma utan að.“
F: „Nú? Stálminni."
S: „Hann er 862..“
(Rödd heyrist á bak við Stefán segja
8723)
S: „8723.“
F: „Hver var að segja þetta við þig?“
S: „Hansa, bekkjarsystir min. Hún sit-
ur hér við hliðina á mér.“
F: „Jaaaaaá. Og er hún að hlusta?"
S: „Hún er að hlusta."
F: „Jaaaaá.“
S: „Má hún það ekki?“
F: „Ertu með spíker á eða eitthvað
þannig?"
S: „Neinei. Ekkert svoleiðis. Þú talar
bara svo hátt að þetta glymur hér
um allt.“
F: „Núhh.“
S: „Fólkið er farið að horfa á mig hér í
sjoppunni.“
(Hlátur báðum megin linunnar)
S: „Já, hún býr á Amameshæöinni og
ratar ekkert í Reykjavík heldur, gat
ekki sagt mér hvar Bílasala Reykja-
vikur er.“ (Hlær svo)
F: „Já, hún Hansa.“
S: (Hlær enn) „Já. Og við erum aö fara
að tékka á þessu í símaskránni."
F: „Heyröu, Stebbi."
S: „Jeees, já.“
F: „Ég vona að þú finnir bílasöluna."
S: „Já, ég lika.“
F: „Ókei.“
S: „Ókei.“
W „Ætli ^
~ hún fari þá ’
ekki bara aftur aö
syngja sóló og
veröl fræg en ég
sest við píanóið
^ og hverf.“ Á
„Hún syngur eins og
einhver segja þegar V
söng sigurlagið sitt
daginn. Sveinn Rúnar
skólafélögum sínum
nokkrum árum þegar
píanónám sautján ár
undireins í hæfileikarí
Nú hafa þessi tvö s
undanfarna daga hef
næstum því öllumj
vindurinn, heyröist
édís Hervör Árnadóttir
í Verzlóvælinu um
Sigurðsson kom
ekki síður á óvart fyrir
hann ákvað aö hefja
a gamall og breyttist
kan tónlistarmann.
ameinað krafta sína og
ur lagið þeirra heyrst á
útvarpsstöðvunum.
sama
list. Ef lagið fær góðar viðtökur kem-
ur kannski meira frá þeim saman en
ef ekki munu leiðir líklega skiljast.
„Ætli hún fari þá ekki bara aftur að
syngja sóló og verði fræg en ég sest
við píanóið og hverf,“ segir Svenni.
„Tónlistin er fyrst og fremst áhuga-
mál hjá okkur og við erum ekki að
þessu fyrir neinn annan en okkur
sjálf," segir Védís og Svenni kinkar
kolli.
„Þegar maður er búinn að vera að
fikta við tónlist og tónsmíðar einn úti
í homi í mörg ár, er eins og maður
þurfi á einhverri viðurkenningu að
halda, smá klappi á bakið. Þess vegna
ákvað ég að ráðast í að gefa eitthvað
af lögunum mínum út. Það er nóg að
einhver einn hringi i mig og segi:
„Rosalega gott lag.“ Þá er ég ánægð-
ur,“ segir Svenni.
Þegar Védís „söng eins og vindur-
inn“ í Verzlóvælinu var Svenni stadd-
ur á svæðinu, heillaður, og langaði
strax mikið að fá hana til að syngja
lag eftir sig. Reyndar bjóst hann ekki
við að hún myndi vilja það, þar sem
fleiri vildu fá Védísi til liðs við sig.
Hann ákvað samt að skella sér í röð-
ina og sjá til.
„Ég sá strax að Svenni var að gera
áhugaverða hluti og mig langaði jafn-
mikið og hann að láta reyna á þetta,"
segir Védís sem gerir í raun meira en
að syngja. Hún hefur lika fengist við
tónsmíðar, samdi til dæmis sigurlagið
í Verzlóvælinu sjálf og vann lagið að
miklu leyti með Svenna.
„Védís hefur verið meira í poppi,
ballöðum og slíku á meðan ég er bú-
inn að vera að grúska í klassíkinni.
Það er mjög gaman að blanda þessu
saman og ég kemst aðeins upp úr
klassískum hefðum og fæ smjörþefinn
af popparalífinu, get alla vega ímynd-
að mér að ég sé með nærbuxur og
brjóstahaldara á höfðinu," segir
Svenni. Védís brosir og fær sér sopa
af vatni.
Védis hefur gert meira athyglisvert
undanfarin misseri en að sigra í
Verzlóvælinu. Hún tók einnig þátt í
uppsetningu skólans á Dirty Dancing.
Þar lék hún litlu systur aðalpersón-
unnar og söng meðal annars lagið
Ástin mín eina (e. Be My Baby) en
það hefúr verið spilað þónokkuð í út-
varpinu. Hún þótti einnig leika
skrambi vel og einhverjir myndu nú
halda að stúlkan ætti að virkja hæfi-
leikana og nema leiklist að stúdents-
prófi loknu.
„Æ, ég veit það ekki,“ segir hún.
„Mig er búið að dreyma um að fara í
háskóla í Bandaríkjunum síðan ég
var lítil og átti heima þar. Annars hef-
ur tónlistin algjöran forgang hjá
mér.“
Hver tónlistarmaðurinn og leikar-
inn á fætur öðrum hefur sprottið upp
úr Verzlunarskólanum undanfarin ár.
Má þcú- nefna Rúnar Frey Gíslason,
Selmu Bjömsdóttur, Jón Ólafsson,
Gunnar Hansson, Valgerði
Gunnarsdóttur og nú Védísi og
Svenna. Öflugt félagslif skólans virð-
ist lokka til sín listaefnin því ósenni-
legt er að þau hafi séð viðskipti og
verslunarhætti í dýrðarljóma við inn-
ritun. Svenni og Védís taka undir
þetta og segja að í félagslífi Verzló
bjóðist nemendum mörg gullin tæki-
færi til að koma sér á framfæri.
„Þetta öfluga og oft tímafreka fé-
lagslíf er kannski líka ástæðan fyrir
því að slökustu viðskiptafræðinem-
amir í Háskólanum koma einmitt úr
Verzló," segir Svenni og glottir. Efa-
semdarsvipur kemur á Védísi sem
spyr hvort þetta sé nú örugglega rétt.
„Já, þetta er margsannað," segir
Svenni. Og er sannfærður.
Einn er sá maður sem hefúr hvað
mest hvatt Svenna áfram í tónlistinni
en það er móðurbróðir hans, Sverrir
Stormsker. Hvernig væri nú að
heiðra manninn fyrir vikið og taka
upp þetta ágæta ættamafn, Svenni
Stormsker?
„Nei, það mun ég aldrei gera,“ seg-
ir Svenni og vill ekki heyra svona vit-
leysu. -ilk
Bryan Adams og kryddpían Mel C
gerðu þetta líka. Tóku saman höndum
og sungu eitt lag saman. Annars eru
þau alveg sitt í hvoru lagi og óbilandi
tónlistaráhugi er það eina sem þau
virðast eiga sameiginlegt. Védís er
sextán og á fyrsta ári í Verzló. Svenni
er tuttugu og þriggja ára kerfisfræð-
ingur en kann eitthvað ekki alveg
nógu vel við tölvur og ákvað því að
skella sér í lögfræði síðasta haust.
Hann segist vel geta hugsað sér að
vinna sem lögfræðingur í nokkur ár
en þorir ekki að lofa að það verði ævi-
starfið. Védís hefur ekki hugmynd um
hvað hún ætlar að verða þegar hún
verður stór.
„Það verður bara að koma í ljós,“
segir hún áhyggjulaus. Enda hvað
ætti líka sextán ára blómarós að vera
að eyða tímanum í svoleiðis vanga-
veltur?
„Maður á bara að lifa lífinu án þess
að vera alltaf að skipuleggja það,“ seg-
ir Svenni og bendir á kunningja sinn
sem var í lögfræði eins og hann en
áttaði sig svo á því á útskriftardaginn
að hann langaði ekki til að vera lög-
FOKUSMYNDIR: HILMAR ÞÓR
fræðingur og dreif sig strax eftir út-
skrift til útlanda í læknisnám.
Lagið sem Védis og Svenni eiga
saman heitir Perfect Play of Life og
þau segja það vera blöndu af klassík
og poppi, svona góða geisladiskatón-
6
f Ó k U S 19. mars 1999