Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Page 3
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
21
N6A*I}ÍÍÍJIttt
Úrslit aðfaranótt laugardags:
Bostonl’hiladelphia.......67-83
Pierce 22, Barros 13, Mercer 12 - Iver-
son 23, Ratliff 16, Lynch 13.
Atlanta-New York .........78-86
Blaylock 28, Long 19 - Sprewell 18,
Ewing 16. Johnson 13.
Charlotte-Washington .... 90-88
Campbell 32, Phiils 17, Jones 15 -
Strickland 25, Thorpe 20, Howard 18.
New Jersey-Toronto.......106-99
Van Horn 30, Marburry 20, Harris 17
- Carter 26, Willis 20, Brown 14.
Orlando-Millwaukee .......95-83
Hardaway 26, Armstrong 18,
Harpring 13 - Allen 21, Robinson 15.
Indiana-Detroit.........101-102
Smits 35, Miller 14, Rose 14 - Hill 30,
Dumars 25, Hunter 17.
Utah-Phoenix..............93-92
Malone 31, Anderson 17, Russell 10 -
Kidd 19, Morris 17, Mccloud 13.
Vancouver-Seattle ........98-93
Rahim 28, Lopes 21 - Ellis 20, Hawk-
ins 17, Baker 15.
LA Lakers-Minnesota.......96-89
O’Neal 25, Rice 25, Bryant 18, Hamm-
onds 22, Mitcheil 18, Garrnett 16.
Úrslit aðfaranótt sunnudags:
Cleveland-Atlanta ....... 81-67
Kemp 24, Person 14, Knight 12 -
Henderson 18, Cray 11, Long 9.
Dallas-Golden State......90-91
Trent 33, Finley 17, Bradley 12 - Coles
14, Cummings 14, Marshall 11.
Indiana-Charlotte.........90-92
Smits 22, Miller 17, Rose 16 - Phills
23, Jones 17, Wesley 15.
Chicago-Miami ............49-82
David 13, Kukoc 10, Wennington 7 -
Hardaway 22, Mourning 19, Mas-
hbum 14.
Phoenix-San Antonio . .. 110-84
Garrity 25, Robinson 22 Capman 11 -
Duncan 21, Rose 13, Elie 11.
Sacramento-Denver .... 110-104
Webber 23, Divac 21, Williamson 14 -
Van Exel 29, Washington 19,
Mccdyess 19,
LA Clippers-Portland .... 70-97
Nesby 17, Piatkowski 14, Olowokandi
13 - Wallace 19, Willaims 17, Cato 10.
Chicago gerói aðeins 49 stig gegn
Miami sem er lægsta skor liðs sið-
an skotklukkan var tekin í gagnið
1954. Liðið skoraði aðeins átta stig
i fyrsta leikhluta. Miami skoraði
fyrstu 15 stig leiksins.
Bill Wennington, þjálfari Chicago,
var ekki skemmt en gífurleg breyt-
ing hefði orðið á liðinu fyrir tima-
bilið.
Nýlióinn Pat Garrity skoraði 25
stig fyrir Phoenix i sigrinum gegn
San Antonio sem hafði unnið sex
leiki í röð.
Vlade Divac átti stórleik fyrir
Sacramento gegn Denver, skoraði
21 stig og hirti 15 fráköst. Sjö
leikmenn Sacramento fóru yfir tíu
stiga múrinn. Denver hefur tapað
átta af síðustu 12 leikjum sinum.
Atlanta skoraði aðeins þrjú stig í
fyrsta leikhluta gegn Cleveland.
Eftir það var á brattann að sækja.
Gary Trent, Dallas Mavericks,
setti persónulegt stigamet gegn
Golden State, skoraði 33 stig en þau
dugðu ekki til því gestirnir sigruðu
með eins stigs mun i æsispenanndi
leik.
-JKS
íþróttir
Guðmundur Helgi
Þorsteinsson,
fyrirliði bikar-
meistara ÍS,
hampar bikarn-
um um helgina.
Guðmundur og
félagar hans
unnu mjög ör-
uggan sigur í úr-
slitaleik bikarsins
gegn KA í Austur-
bergi. Þar með
unnu stúdentar bík-
armeistaratitilinn f
sjöunda sinn. Á
myndinni til hliðar
fagna leikmenn
ÍS titlinum.
DV-
myndir
ÞÖK
IS bikarmeistari karla í
blaki eftir sigur á KA:
Sjöundi
- bikartitill stúdenta sem sigruðu, 3-0
ÍS vann sinn sjöunda bikarmeistara-
titil í blaki karla á laugardag þegar lið-
ið lagði KA að velli í íþróttahúsinu í
Austurbergi, 3-0. Sigur stúdenta var
aldrei í hættu enda liðið með eindæm-
um samstillt og öflugt með þá Sushko,
Ismar og Zdravko sem bestu menn.
Stúdentar sýndu það strax i upphafi
að þeir ætluðu sér ekkert annað en sig-
ur í þessum leik og í fyrstu hrinu náðu
þeir fjögurra stiga forskoti, 5-1, sem
þeir héldu alla hrinuna og sigruðu,
25-20.
í annarri hrinu náðu KA-menn að
komast yfir í stöðunni, 13-14, en þá
gáfu stúdentar í og sigruðu með sama
mun og í fyrstu hrinu, 25-20.
Þriðja hrinan var sú jafnasta af
þeim sem leikin var. Þá náðu stúdent-
ar mest fjögurra stiga forskoti en KA-
menn fylgdu þeim fast eftir og héldu
þeim við efnið. Þessi aukna barátta
norðanmanna dugði þeim þó ekki því
stúdenta sigruðu i hrinunni, 25-23.
Davíð Búi Halldórsson og Mike
Perra voru bestir í liði KA.
„Þeir voru gulir en við vorum glað-
ir,“ sagði Guðmundur Helgi Þorsteins-
son, fyrirliði ÍS, eftir sigurinn. „Við
erum búnir að bíða eftir þessum leik
síðan í febrúar og það kom ekkert ann-
að en sigur tii greina. Við erum með
mikið stemningslið og þess vegna
misstum við taktinn um tíma í síðustu
hrinunni en það hefur gerst oft hjá
okkur í vetur. Við erum mjög ánægð-
ir, stúdentar, í dag. Þetta er þriðji tit-
ill félagsins í vetur, stelpumar íslands-
og bikarmeistarar og við bikarmeistar-
ar, þannig að þetta er mjög gott fyrir
iþróttalífið í vesturbænum."
Leikið var eftir nýjum stigareglum
Alþjóða blaksambandsins, þar sem gef-
ið er stig eftir hveija skorpu og leikið
upp í 25 stig í hverri hrinu. Það verð-
ur að segjast eins og er að ekki aðeins
auðveldar þessi breyting hinum al-
menna áhorfanda að fylgjast með
leiknum heldur verður þetta einnig til
þess að leikmenn leggja sig enn meira
fram en áður.
„Þessi nýja regla gefur leiknum nýtt
líf. Menn eru á tánum, maður finnur
blóðið flæða, það mega engin mistök
verða, fjögur, fimm stig
eru fljót að fara. Svo er
þetta miklu skemmtilegra
fyrir áhorfendur og í
framtiðinni verður þetta
okkur til tekna," sagði
Guðmundur sem síðast
lék með stúdentum fyrir
tíu árum en þá varð fé-
lagið einmitt síðast bik-
armeistari. Ætlarhann
að halda áfram?
„Ég er orðinn lög-
giltur öldungur í blak-
inu og strákamir eru
að rífa af mér gömlu
skóna og hlífamar
svo að ég komist ekki
á æfingar en á með-
an Valdimar (Öm-
ólfsson) leyfir mér
að mæta á æfingar
verð ég með,“ sagði
Guðmundur H. Þor-
steinsson, fyrirliði bikar-
meistara ÍS.
-ih
Þrír efstu menn í glímunni um helgina. Pétur Eyþórsson, Ingibergur
Sigurðsson og Arngeir Friðriksson. DV-mynd HH
Ingibergur sigraði
landsflokkaglímuna
Ingibergur Sigurðsson úr Víkverja
bar sigur úr býtum í lands-
flokkaglímunni en fiórða og síðasta
mótið i þessari mótaröð fór fram í
íþróttahúsi Seljaskóla á laugardaginn
var. Fyrir lokamótið hafði Ingibergur
eins stigs forystu samanlagt á Amgeir
Friðriksson, HSÞ, en Ingibergur hélt
sínu striki og fagnaði sigri með best-
an árangur samanlagt úr mótimum
fiórum.
Á mótinu á laugardag sigraði hins
vegar Pétur Eyþórsson, Víkverja,
nokkuð óvart og gerði hann sér m.a.
lítið fyrir og lagði Ingiberg. Amgeir
Friðriksson varð annar á mótaröðinni
og Pétur lenti í þriðja sæti.
Inga Pétursdóttir, HSÞ, sigraði í
kvennaflokki en Þingeyingar voru
einnig í efsta sæti í stigakeppni
kvennaliðanna. Víkveiji varð efstur á
stigum í karlaflokki. Stefán Geirsson,
HSK, sigraði í unglingaflokki en
varpa þurfti hlutkesti til að fá fram
úrslit. Stefán og Ólafur Krisfiánsson,
HSÞ, stóðu jafnir að stigum eftir
mótaröðina.
-JKS
Röð efstu
manna
1. Ingibergur Sigurðsson .... 17 stig
2. Arngeir Friðriksson .15 stig
3. Pétur Eyþórsson......13 stig
Vikverji vann liðakeppnina, HSK
varö i 2. sæti og HSÞ í 3. sæti.
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
V
INTER
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is