Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Side 4
22 MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999 íþróttir DV Handar- og nefbrotinn „Prins“ í vandamálum - rotaði þó Paul Ingle í 11. lotu og hélt titlinum Prince Naseem Hamed varöi enn og aftur heimsmeistaratitil sinn í flaðurvigt hnefa- leika um helgina er hann rotaði Paul Ingle í 11. lotu. Sigur Prinsins var tæpari en oftast áður. Undir lok bardagans sótti Ingle mjög í sig veðrið og Prinsinn var illa leikinn. Ingle hafði nefbrotið hann og að auki sagði Prins- inn eftir bardagann að hann væri handar- brotinn. En stórkostlegt högg í 11. lotu rotaöi Ingle og dómarinn stöðvaði bardagann. í upphafi hafði Prinsinn yfirburði og sló Ingle í gólfið. Bretinn var þó harður af sér og sótti jafnt og þétt í sig veðrið. Ég get ekki verið annað en ánægður með þennan sigur. Ingle er mjög snjall hnefaleik- ari og hann gaf sig allan í þennan bardaga. Ég reyndi ýmislegt nýtt í þessum bardaga sem gekk vel, til dæmis skrokkhöggin. Ég er að byrja að vinna með nýjum þjálfara og þetta á allt eftir að batna. Nýji þjálfarinn er miklu betri en sá gamli,“ sagði Prince Na- seem Hamed eftir að sigurinn var í höfn. Paul Ingle er enginn aukvisi í hringnum. Fyrir bardagann gegn Prinsinum hafði hann keppt 21 sinni og unnið alltaf. Prinsinn vann heimsmeistaratitilinn 1995 og titilvörnin gegn Ingle um helgina var númer tólf. Aldrei áður á ferlinum hefur Prinsinn þó komist í meiri vandræði. Og aldrei hefur Prinsinn gengið út úr hringnum eftir bardaga með brotið nef og hönd. -SK Prince Naseem Hamed komst í hann krappan um helgina en fagnaði þó tólfta heimsmeistara- titli sínum á ferlinum en titilinn vann hann fyrst árið 1995. Reuter Herdís Sigurbergsdóttir er alls ekki á því að leggja árar í bát og ætlar að halda áfram af fullum krafti í handboltanum. Hér er hún ásamt manni sínum, Jörundi Áka Sveinssyni, og dóttur þeirra hjóna, Sigrúnu Maríu Jörundsdóttur. Herdís Sigurbergsdóttir, handknattleikskona 1998: ekki södd - veltir því fyrir sér að fara í atvinnumennsku á komandi leiktíð Undanúrslit 1. deildar kvenna í handknattleik hefjast í kvöld þegar Stjarnan leikur gegn Val. Fram mætir síðan FH á morgun. DV fékk Herdísi Sigur- bergsdóttur, handknatt- leikskonu ársins 1998 og leikmann Stjörnunnar, til þess að spá í spilin fyrir úr- slitakeppnina en hún hefur þurft að horfa á félaga sína spila vegna meiðsla sem hún hlaut í janúar er hún sleit hásin i landsleik gegn Rússum. Fram-FH, 2-1 „Þarna mætast nú ekkert smá ólík lið, æskan á móti ellinni. Það kom mjög á óvart að Fram skyldi tapa fyrir ÍBV í öðrum leiknum en það má samt ekki gleyma því að þær gerðu einmitt það í næstsíðasta leik deildarkeppninnar. En Framstúlkur áttu tvo heimaleiki og það skipti máli. Þær vantar stöðug- leika og það sýndi sig í 8 liða úrslitunum. Það tel ég vera mesta veikleika Fram- liösins núna. FH er á alveg blússandi siglingu, þær ná allar virkilega vel saman. Ég geri ráð fyrir því að það komi til þriðja leiks í þessari viðureign. Mín J ; tilfinning er samt sú að Fram fari í úrslitaleik- inn en ef FH spilar 5-1 vöm allt frá byrjun getur allt gerst.“ Stjarnan-Valur, 2-0 „Ég spái því að Stjarnan vinni þessa leiki, 2-0. Stjaman er með mik iö reynslumeira lið heldur en Valur og veit hvað til þarf. Ef fé- lagar mín- ir í Stjömunni spila góðan leik og halda haus þá sigrar þær ekkert lið. Valur er í stöðugri upp- leið og hefur nær alveg sloppið við meiðsl. Rússinn Alla Gorkina er að koma betur inn í leik liðsins held- ur en hún gerði í upphafi, auk þess sem leikmenn eins og Gerður Beta (Jóhanns- dóttir) er að blómstra núna í lokin. Skórnir eru ekki á leiðinni á hilluna Sögur hafa veriö á kreiki um þad aö þú œtlir aö leggja skóna á hilluna, er þaö rétt? „Nei, nei, nei, langt í frá. Ég hef æft gríðarlega vel þrátt fyrir meiðslin sem hafa kennt mér margt og ég varð að taka stóra ákvörðun um það hvað væri fram undan. Það var þvílík pressa utan frá að gera rót- tækar breytingar, og sífelld- ar spumingar um það hvort það ætti að fara að fjölga í fjölskyldunni. En það er ekki á dagskrá, bara svo það sé á hreinu. Hugur minn stefnir að því að gera enn betm í handboltanum en ég hef gert og ég á mörg ár' ofHr í hnlfannm T Huo or södd á handbolta - ég er það alls ekki - ég á svo margt eftir.“ Rétti tíminn til að breyta til Nú ert þú búin aö vinna allt sem hugsast getur í boltanum hér heima. Hef- ur þú eitthvaö hugleitt aö reyna fyrir þér erlendis? „Já, ég get ekki neitað því að ég hef vissulega velt því fyrir mér í gegnum tíðina hvort ég ætti ekki einhverja möguleika á því. Mér finnst að ég sé loks tilbúin til þess að láta á það reyna hvað ég kemst langt og hef verið að hugleiða það núna í meiðslunum. En að sjálfsögðu er það lykilatriði að ég fái mig góða og ég ein- beiti mér að því. Mér finnst ég standa á ákveðnum tímamótum. Ég er orðin 28 ára gömul þannig að það er nú eða aldrei. Dóttir mín er að byrja í skóla í haust og ég þarf að taka tillit til þess. Ef ég fengi tækifæri til þess að fara út í atvinnumennsku þá mun ég skoða það dæmi vel.“ Og þá eitthvert sérstakt land? „Danmörk, Noregur eða Þýskaland, þetta heillar allt, en þá fyrst og fremst Dan- mörk.“ Hvaö meö félaga þína í Stjörnunni? „Félagar mínir í Stjörn- unni hafa staðið sig vel án mín og sýnt að það að eng- inn er ómissandi. Þess vegna gæti það verið rétti tíminn núna að breyta til,“ sagði Her- dís Sigur- bergs- dóttir. -ih Katrín á heimleið Katrín Jónsdóttir, knatt- spymukona úr Breiðabliki, sem leikið hefur með norska liðinu Kolbotn sl. tvö ár, mun koma heim og leika með bikarmeist- uram Breiðabliks í sumar. Hún verð- ur þó ekki með liðinu allt tímabilið en vegna heimsmeistaramóts kvenna, sem fram fer í Bandaríkjunum í sum- ar, er óvenjulangt sumarfrí í norsku knattspymunni og mun hún því ná að leika með liðinu nokkuð fram í júlímánuð. -ih Aron og félagar komnir í úrslit Aron Kristjánsson og samherj- ar hans i danska liðinu Skjern tryggðu sér um helgina réttinn til að leika um danska meistara- titilinn í handknattleik. Liðið sigraði Fredriksberg í undanúrslitum, 25-22, í síðari leik lið- anna en Skjem vann fyrri leikinn með einu marki. Aron skoraði þrjú mörk leiknum. Anders Dal Nielsen, þjálfari Skjern, hefur náð frábæram ár- angri með liðið í vetur en það hafði aldrei áður leikið i úrvals- deildinni. Ekki er ennn þá ljóst hvaða liði Skjem mætir í úrslit- um. Það verður annaðhvort Vir- um eða Kolding. -JKS Barcelona er meö meö sterka stööu Badel Zagreb og Barcelona skildu jöfn, 22-22, í fyrri leik lið- anna í úrslitum meistaradeildar Evrópu í handknattleik í Zagreb í gær. Saracevic jafnaði fyrir Badel skömmu fyrir leikslok. Bolic skoraði 5 mörk fyrir Badel en Guijosa 6 mörk fyrir Barcelona. Síðari leikur liðanna verður í Barcelona um næstu helgi og þar er liðið ósigrandiú langan tíma -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.