Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Qupperneq 8
*
26
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
Iþróttir
Tryggja eistu stóðhesta
fyrir milljónir króna
Hákon Hákonarson kynnti tryggingarnar á landsmótinu á Melgerðismelum.
DV-mynd E.J.
Margir hestamenn hafa lent í
þeirri aðstöðu að eignast skyndilega
stólpagæðing eða kynbótahross.
Verðmæti gripsins verður tölu-
vert og eigandinn fær áhyggjur af
því að hesturinn drepist og verð-
mætin séu fyrir hí.
Áður fyrr var erfitt að tryggja
slíka kostagripi en nú býður ís-
lenska vátryggingarmiðlunin (ísvá)
hestamönnum tryggingu á hrossin
fyrir 3-4°A tryggingarandvirðisins.
„Þegar ísland gerði samning um
aðild að EES lá ljóst fyrir að erlend
vátryggingarfyrirtæki geta verið
með rekstur á íslandi án þess að
vera þar með aðstöðu," segja þeir
Hákon Hákonarson og Valdemar
Johnsen hjá ísvá.
„ísvá var stofnuð árið 1996. Fyrir-
tækið er ekki vátryggingarfyrirtæki
í þeim skilningi heldur miðlari fyr-
»ir vátryggingar, leitar hagstæðustu
tilboða fyrir viðskiptavini sína,
jafnt á Islandi sem erlendis og gefur
þeim kost á að kaupa tryggingu.
Hákon er hestamaður og þegar
hann kom inn i fyrirtækið sá hann
að þama var óplægður akur og við
fóram að skoða tryggingar á hestum
af alvöru. Tryggingar á hestum hafa
verið mjög dýrar til þessa á íslandi
og fyrstu tilboðin sem við fengum
að utan vora ekki hagstæð að okkar
dómi.
Við sendum skýrslu til útlanda
um íslenska hestinn og sýndum full-
trúum ffá Trentwick-fyrirtækinu í
London aðstæður sem íslenskum
hestum er boðið upp á.
Undruðust er hestarnir
stóðu kyrrir
Við fóram með tvo Breta austur
fyrir fjall, að Hvoli í Ölfusi, til Ólafs
H. Einarssonar sem þar rekur
hestabú, og undruðust Bretarnir
margt sem þeir sáu. Til dæmis vora
þeir alveg hlessa er þeir sáu að hest-
arnir stóðu kyrrir er farið var á bak
þeim. Bretarnir sáu að íslenski
hesturinn er allt öðravísi en þeir er-
lendu, minni, léttari og yfirhöfuð
betur á sig kominn.
Við fengum betra tilboð, tilboð
sem við teljum mjög gott og lækkaði
iðgjaldið frá því sem var.
Við getum því boðið hestaeigend-
um iðgjald frá 3-4% af vátrygging
arupphæð og hugsanlega lægri upp-
hæð ef mörg hross era tryggð.
Stöðluð trygging er líftrygging á
hesti. Ef hann drepst af veikindum
eða slysi eða er felldur af mannúð-
arástæðum er hann borgaður út.
Tryggingartaki ákveður sjálfur hve
hann vill tryggja hestinn fyrir háa
upphæð. Innifalinn er í trygging-
unni flutningur innanlands.
Auk þess getum við útvegað aðr-
ar tryggingar, svo sem tryggingu á
stóðhesti sem verður ófrjór vegna
veikinda eða slyss eða skaðar kyn-
færi sín. Það er því hægt að tryggja
eistu stóðhesta fyrir skemmdum.
Einnig er hægt að tryggja keppn-
is- eða sýningarhross. Þau era þá
tryggð fyrir veikindum eða slysum
sem valda því að hrossin nýtast
ekki í það sem þeim er ætlað, svo
sem sýningar eöa keppni.
Ýmiss konar útgáfur eru á trygg-
ingunum. Það er hægt að tryggja
hross tímabundið, til dæmis hryss-
ur í stóðhestagirðingu og seld hross
á ferðalögum. Hrossaeigandi selur
hross til útlanda og hann getur
tryggt það á ferðalaginu öllu, jafnt
innanlands, á leiðinni utan og í út-
löndum.
Hæsta beiðni sem við höfum feng-
ið er 15 milljónir króna en það mál
er ekki'útkljáð. Hæst tryggða hross-
ið hjá okkur er tryggt fyrir 3 millj-
ónir króna en við erum til í að
tryggja hross á hvaða upphæð sem
er. Skilmálamir eru staðlaðir Ll-
oyds-skilmálar en Trentwick-fyrir-
tækið, sem við erum miðlarar fyrir,
er mjög stórt fyrirtæki, hluti af
bandarísku endurtryggingarfyrir-
tæki,“ segja þeir félagar. -EJ
Verðum að finna félaginu
fjárhagslegan grundvöll
- segir Kristinn Guðnason
Leikur og gleði á sýningu Fáks
Einnig þarf að fjalla um loforð um
styrk til markaðsátaks innanlands
sem við fengum hjá Framleiðni-
sjóði, en þaðan fengum við einnig
milli sjö og átta miljóna króna
styrk til rannsóknar á sumarexemi
og gildir sá styrkur til þriggja ára.
Finna verður próf til að kanna
hvaða hestar séu líklegir til að fá
sumarexem og einnig bóluefni við
sjúkdómnum. Rannsóknirnar
verða gerðar jafnt innanlands sem
utan. Einnig þarf að útbúa leið-
beiningar um meðferð hrossa til að
forðast sumarexem. Margt annað
mun koma upp og verður rætt jafn-
óðum“, segir Kristinn Guönason.
-EJ
Skartklæddir kvenriddarar Fáks í opnunaratriði.
- engir stórkostlegir toppar en breiddin mikil
Hestamannafélagið Fákur hélt ár-
legar sýningar í Reiðhöllinni um
helgina. Sýnt var í Reiðhöllinni á
fóstudags- og laugardagskvöld og síð-
asta sýningin var á sunnudeginum.
Var sunnudagssýningin frábragðin
hinum fyrri tveimur að því leyti að
meiri áhersla var lögð á sýningar
barna og unglinga, leik og gleði.
Reiðhöllin hefur tekið stakka-
skiptum að innan og er hin glæsileg-
asta.
Þátttaka kynbótahrossa í reiðhall-
arsýningum hefur aukist smám sam-
an á undanfórnum árum og þykir
mörgum hesteigendum kostur að
geta sýnt stóðhesta sína á vorin þar
sem von er á margmenni enda hafa
þeir jafnan dregið að áhorfendur.
Hrossakostur var mjög góður.
Engir stórkostlegir toppar en breidd-
in mikil. Það er orðið sjaldgjæft að
sjá illa ríðandi knapa á stórmóti eða
sýningum á Islandi enda er valið í
sýningar strangt.
Sýningar í Reiðhöllinni drógust
oft á langinn á fyrstu árunum en
sýningahaldarar hafa greinilega lært
af þeim mistökum því hvert atriði
tók nú skamman tíma og stóðst tíma-
áætlun. -EJ
Sigurbjörn Bárðarson með afkvæmasýnlngu. Hann er lengst til vinstri, þá Sigurbjörn yngri, sem er 5 ára og einn
yngsti sýnandi í Reiðhöllinni til þessa, og Sylvía og Sara. DV-myndir E.J.
Aðalfundur Félags hrossabænda
verður haldinn á morgun. Seturétt
eiga 49 fulltrúar 1.800 félagsmanna.
„Þetta er i fyrsta sinn sem aðal-
fundurinn er haldin að vori til,“
segir Kristinn Guðnason, formað-
ur félagsins. „Það er margt sem
þarf að ræða. Fyrst og fremst þarf
að ræða fjárhagslega afkomu fé-
lagsins. Það gengur ekki lengur að
vera háðir tilviljanakenndum
styrkjum. Við verðum að Finna fé-
laginu íjárhagslegan grandvöll svo
við getum gert langtíma áætlanir.
Framtíðar-
sýn Ágústs
Sigurðs-
sonar
- í stóðhestariti
Síðar í þessari viku kemur út
rit Hrossaræktarsamtaka Suður-
lands, með upplýsingum um
tæplega eitt hundrað stóðhesta.
Jón VUmundarson er ritstjóri
ritsins, en þetta er fjórða árið í
röð sem ritið kemur út.
„Þarna era upplýsingar um
alla stóðhesta í eigu hrossarækt-
arsambanda á íslandi og einnig
fjöldi stóðhesta í einkaeign,"
segir Jón.
„Töluverð aukning varð á
fjölda hestanna í fyrra, en fjöld-
inn er svipaður nú. Birtar era
ættir hestanna, hæsti dómur og
kynbótamat, og fylgir hverjum
hesti mynd. Einnig verða nokkr-
ar stefnumarkandi greinar. Til
dæmis mun Ágúst Sigurðsson,
nýráðinn landshrossaræktar-
ráðunautur, skrifa um fundar-
ferðir sínar og Kristins Guðna-
sonar um landið í vor og fjaUa
um hrossaræktunaiframtíðar-
sýn sína.
Ritið er opið öllum stóðhests-
eigendum og hefur reynst mjög
vinsælt meðal hestamanna.
Verð er 1.000 krónur," segir Jón.
-EJ