Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Síða 10
28
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
íþróttir
i
Þrir á palli. Frá vlnstri: Michael Schumacher, Mika Hakkinen og
Heinz-Harald Frentzen. Reuter
eSchumacher fær bað frá sigurvegaranum og ekki er að sjá að
samkomulagið sé slæmt. Ruter
,Hér er það Heinz-Harald Frentzen sem varð í þriðja sæti, sem
er baðaður í kampavíni af þeim Hakkinen og Schumacher.
#
Brasilíumaðurinn
Ricardo Zonta, ökumað-
ur BAR-liðsins, lenti í
miklu óhappi á laugardag
og gat hann ekki keppt af
þeim sökum. Nú er ljóst
að meiðsl hans eru mun
meiri en fyrr var haldið
og jafnvel líkur á þvi að
hann missi af tveim
næstu keppnum, San
Marino og Monaco.
BAR lenti í fleiri óhöpp-
um um helgina. Heims-
meistarinn Jaques Vill-
eneuve varð að láta sér
lynda að ræsa síðastur
vegna mistaka liðsins í
eldsneytisblöndu. Var þvi
tími hans ógildur og hann
færður aftast í rásröðina.
Villeneuve varð 28 ára á
föstudag og hélt BAR-liðið
því afmælisveislu honum
til heiðurs, og mættu yfir
100 manns. Afmælisbarn-
ið lét ekki sjá sig því
þaö var ekki ánægt með
bilanir og fór upp á hótel-
herbergi til að ná úr sér
fýlunni.
Griöarlegur áhugi var á
keppninni í Brasilíu og
talið að 200 þúsund áhorf-
endur haíl fylgst með.
Hinum þekkta breska
ökumanni, Damon Hill,
tókst ekki að klára keppn-
ina í Brasilíu. Jordan-bif-
reið hans bilaði eftir að-
eins 10 hringi. Hill tókst
heldur ekki að ljúka
fyrstu keppni ársins og
upphaf keppnistímabils-
ins er því að verða hrein
martröð fyrir hann.
Allir bestu ökumennimir
tóku aðeins eitt viðgerð-
arhlé og tókust þau öll
mjög vel.
Brautin í Brasilíu var
mjög erflð og varasöm.
Margar beygjur eru á
brautinni og bílarnir
runnu mjög til í beygjun-
um. Mjög margir bílar
féUu úr leik. .sk/ÓSg
Flnnlnn Mika Hakkinen ■ fyrsta sætinu en Rubens Barrichello,
sem ók á heimavelli og hafði forystuna lengi vel, er íöðru sæti.
Michael Schumacher á rauða Ferrari-bílnum er þriðji. Reuter
Myndin var tekin nokkrum sekúndum eftir að bílarnir lögðu af
stað frá rásmarkinu. Mika Hakkinen er fyrstur. Reuter
Mika Hakkinen veifaði finnska fánanum í sigurvímunni eftir
sigurinn í Brasilíu í gær.
Sagt eftir keppnina í Brasilíu í gær:
„Ég hélt að þetta
væri alveg búið“
- sagði Mika Hakkinen eftir að sigur var í höfn
„Ég er himinlif-
andi með sigurinn.
Um tíma lenti ég í
miklum vandræðum
og ég verð að viður-
kenna að ég hélt að
þetta væri alveg búið
hjá mér.
Girkassinn bilaði
og ég datt niður í
þriðja sætið. Ég veit
ekki hvað kom ná-
kvæmlega fyrir en
það var sama hvað ég
reyndi að gera til að
koma bílnum i gir,
þaö gekkekki lengi
vel,“ sagði Finninn
Mika Hakkinen eftir
að hann hafði tryggt
sér sætan sigur í
Formula 1 keppninni
í Brasilíu í gær.
„Ég var vel hvattur
af aðstoðarfólki minu
á viðgerðarsvæöinu
og mér var sagt að
halda stöðugt áfram
að reyna að koma
bílnum í gír. Það
tókst að lokum,“
sagði Hakkinen og
var greinilega í
sjöunda himni.
Hakkinen var
mjög sáttur
Finninn var greini-
lega mjög sáttur við
árangur sinn og bætti
við:
„Þetta gat orðið
mun verra. Ég hefði
hæglega getað lent í
þriðja eða fjórða sæt-
inu. Við höfðum gert
nákvæma áætlun um
viðgerðarhlé í þess-
ari keppni og þetta
gekk allt saman upp.
En Schumacher var
harður og erfiður að
þessu sinni sem oftar
og hann verður ekki
auðveldur við að eiga
í næstu keppnum,"
sagði Mika
Hakkinen.
Við getum báðir
verið bjartsýnir
Þjóðverjinn Mich-
ael Schumacher var
ekki sáttur við að ná
aðeins öðru sætinu
enda keppnisskapið
óvenjumikið.
„Ég gerði bókstaf-
lega allt sem ég gat til
að halda öðru sætinu.
Ég get sagt með góðri
samvisku að ég gerði
mitt besta. Það að
hafna í öðru sæti í
annarri keppni árs-
ins er árangur sem er
í lagi. Og ég held að
við Mika Hakkinen
getum báðir verið
bjartsýnir fyrir kom-
andi átök í sumar,"
sagði Schumacher.
Á síðustu bens-
índropunum
Heinz H. Frentzen
náði þriðja sæti meö
miklum naumindum.
„Ég sá að bensinið
var alltaf að minnka
og þegar ég varð
bensínlaus var ég
ekki viss um að mér
hefði tekist að tryggja
mér þriðja sætið. En
sem betur fer tókst
það og ég er
ánægður," sagði
Frentzen. -SK
Fjörug tímataka
Tímatakan á laugardag byrjaði
með miklum látum því von var á
rigningu og vildu flestir ökumenn
byrja á þurri brautinni áður en
færi að rigna og hún yrði hál eins
og svell.
En það rigndi aldrei og þegar
flestir höíðu komið út voru
McLaren-ökumennimir búnir að
smella sér á toppinn með Hakkinen
efstan á blaði og nokkuð ljóst að
enginn myndi ógna honum nema
Coulthard, félagi hans. Margir vom
í miklum vandræðum með að fá
nægilegt grip í hjólbarðana sem eru
bæði harðari og með einni rauf
meira í framhjóli fiá þvi á síðasta
ári.
Harðasta baráttan var um þriðja
sætið, á milli Michaels
Schumachers og heimamannsins
Rubens Barricheilo á Stewart Ford
sem hefur tekið stórstígum
framfómm frá því í fyrra þegar
liðið var nánast í botnbaráttunni en
er nú komið í baráttuna um efstu
sætin í tímatökunni. „Ég hef verið
að bíða eftir góðum bíl allan þann
tíma sem ég hef verið í Formula 1
og þetta er hann," sagði Barrichello
eftir að hafa tekið þriðja sætið af
Ferrari-ökumanninum
Schumacher. „Hringur-inn sem ég
ók í dag (laugardag) var einn sá
besti sem ég hef ekið á ævinni en ég
var ekki síðri í fyrra og lenti þá í 13.
rásmarki sem sýnir að ég þarf
góðan bíl.“
Schumacher varð að iáta sér
lynda fjórða sætið, heilli sekúndu á
eftir besta tíma Hákkinens og ekki
er ljóst hvort Ferrari muni geta
minnkað bil þeirra og McLaren
Mercedes þegar líður á árið. „Ég er
að áttas mig betur og betur á
bílnum og finn það að við eigum
enn eftir að bæta frammistöðu
hans,“ sagði Hakkinen eftir
tímatökuna. Coulthard var rétt á
hæla hans á tímatöflunni og er ljóst
að barátta þeirra á næstu mótum
kemur til með að verða spennandi.
Barrichello varð svo þriðji á
undan Schumacher. Fisicella á
Benetton var svo fimmti og sló út
Jordan-menn sem voru í sjöunda og
áttunda sæti á eftir Eddie Irvine í
sjötta. Hákkinen sem einnig var á
fiemsta rásstað í fyrsta móti ársins,
þríbætti tima sína á laugardag og
sannaði að hann er konungur
tímatakanna og í ellefta sinn á ferli
sínum ræsti hann fremstur.
-ÓSG
írinn Eddie Irvine var einbeittur í tímatökunni á laugardag en
komst þó ekki í fremstu röð. Reuter
Mika Hakkinen ræðlr málin við David Coulthard, félaga sinn Ricardo Zonta frá Brasilíu eyðilagði bíl sinn í tímatökunni á
hjá McLaren, fyrir keppnina í Brasilíu. Reuter laugardag á heimavelli. Reuter