Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
29
íþróttir
Ferrari er efst
í liðakeppninni er Ferrari efst
með 18 stig. Þá kemur Jordan með
10, McLaren með 10, Williams 7,
Benetton 3, Stewart 2, Arrows 1 og
Prost 1.
Rubens Barrichello nálægt því að slá í gegn:
Ford í skammvinnri
forystu í fyrsta skipti
Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello var nálægt
því að skáka bestu ökumönnum heims í gær i Brasilíu,
heimalandi sínu.
Á meðan bíll hans af Ford-gerð var í lagi hafði hann
góða forystu en síðan gaf vélin í Fordinum upp öndina
og þar með var
M draumurinn búinn
í þessari keppni.
Barrichello
sýndi hins vegar
að hann getur
gert góða hluti.
-SK
Formula 1 keppnin í Brasilíu í gær
var skemmtileg og spennandi:
Bland í
Mjög er nú rœít um að
Honda og Toyota séu að
koma inn í Formula 1
keppnina. Það mun þó
skýrast á næstu árum. Þess
má geta að ný lið fá ekki
keppnisrétt nema þau sem
fyrir eru samþykki það.
Nœsta Formula 1 keppni
fer fram í San Marino. Þar
er talið að Ferrari-liðið eigi
mjög mikla möguleika á
sigri og að þeir Michael
Schumacher og Eddie Ir-
vine eigi að geta látið ljós
sitt skina í smáríkinu 2.
maí nk.
Gridarlegur áhugi er á
Formula 1 í Brasilíu eins
og víðar. Áhorfendur á
keppninni í gær voru um
200 þúsund og skemmtu sér
konunglega.
Heimsmeistarinn Mika Hákkinen er kominn af
stað og sigraði í brasilíska kappakstrinum á
Interlagos-brautinni í gær. Eftir að hafa helst úr
lestinni í fyrsta móti ársins gekk McLaren-bíll hans
eins og klukka og ók heimsmeistarinn greitt og
kom fyrstur í mark eftir æsipennandi keppni við
Michael Schumacher sem kom fast á hæla hans rétt
tæplega 5 sek. síðar.
Langt á eftir komu þeir Frentzen (Jordan), Ralf
Schumacher (Williams) og Eddie Irvine (Ferrari). í
sjötta ög síðasta sætinu, sem gaf stig, kom svo Oli-
ver Panis á Prost en hann hefur ekki fengið stig síð-
an seint á árinu ‘97. Aðeins 9 bílar kláruðu og er
greinilegt að liðin eru enn í vandræðum með nýj-
ungar i bílum sínum en þeim fjölgar sem klára þeg-
ar líður á árið.
Hakkinen heppnari en Coulthard sem
gekk allt í óhag
Finninn Mika Hákkinen var heppnari en félagi
hans, David Coulthard, sem drap á bíl sínum í ræs-
ingunni og var í stöðugum vandræðum alla keppn-
ina. Varð hann að lokum að hætta keppni.
Mistök hans á ráslínu gátu þó valdið stórslysi en
Michael Schumacher og næstu menn náðu að
svegja framhjá og koma í veg fyrir stórkostlegt
óhapp. Hákkinen hélt forystu úr ræsingunni en
fékk heimamannin Rubens Barrichello, og aðal-
keppinaut síðasta árs Schumacher á hæla sér.
En það sannaðist að með einni gírskiptingu
getur ökumaður tapað Grand Prix-keppni því
Hákkinen fipaðist á þriðja hring og missti næstu
tvo menn fram fyrir sig og skyndilega, í fyrsta
skipti í sögu Stewart Ford-liðsins, var Barrichello
kominn í forystu við mikinn fögnuð heimamanna.
Hélt Barrichello fyrsta sætinu með góðum akstri
þar til hann tók fyrsta viðgerðarhlé sitt á 27 hring
og afhenti því Michael Schumacher forystuna.
Hakkinen á auðum sjó eftir að hann
skaust fram fyrir Schumacher
Þjóverjinn þurfti að hafa mikið fyrir því að missa
ekki Hákkinen fram
fyrir sig en með
kænsku og reynslu
tókst honum að halda
geysiaflmiklum McL-
aren-bílnum og heims-
meistaranum í skefjum.
Eftir að Schumacher tók sitt eina viðgerðarhlé á
38. hring var Mika Hákkinen á auðum sjó og var
líkast að hann væri kominn í tímatöku og flaug
hann heila fjóra hringi áður en hann fór sjálfur inn
og tók bensin og fékk nýja hjólbarða.
Hernaðaráætlun McLarens tókst. Hákkinen
hafði tekið styttra viðgerðarhlé og honum tókst að
komast út af viðgerðarsvæðinu áður en
Schumacher færi fram hjá og var hann þá orðinn
fyrstur.
Eftir það var það bara spuming hvort Mercedes
Benz-vélarnar og vökvakerfi McLaren-bílsins dygðu
til loka keppninnar sem raunin var og hélt hann
greinilega viljandi hæfilegu bili milli sín og
Schumacher sem hafði talsvert fyrir því að halda í
Hákkinen sem kom svo fyrstur að endaflagginu og
fagnaði glæsilegum sigri. Stefnir í titilvöm Finnans
gegn Schumacher líkt og á síðasta ári.
Mikil keppni annarra ökumanna og hart
barist
Mikil keppni var á milli annarra ökumanna og
voru þeir Hanz H. Frentzen og Ralf Schumacher
enn að halda uppi heiðri liða
sinna. Meistararnir Damon
Hill og Alex Zanardi ollu enn
vonbrigðum á meðan aðrir
minni spámenn voru að gera
góða hluti.
Marc Gene ók til loka fyrir
Minardi og félagi hans, Sarrazin, ók ótrúlega vel
áður en hann ók út af og á hjólbarðastæðu á yfir 250
kílómetra hraða. Hann fékk einn mesta snúning
sem um getur og gekk ringlaður frá bílflakinu.
Maður keppninnar var þó Rubens Barrichello
sem ók geysilega vel en varð þó að játa sig sigrað-
an vegna vélarbilunar en gekk fram hjá brasilísk-
um áhorfendum stoltur og vonast til að gera betur
næst.
-ÓSG
Sérstaklega voru heima-
menn ánægðir á meðan
þeirra maður var í efsta
sætinu en Barrichelli var
hylltur er hann var fallinn
úr leik. >
írinn Eddie Irvine heldur
enn forystunni í stiga-
keppninni til heimsmeist-
aratitilsins. Irvine er með
12 stig eftir tvær fyrstu
keppnimar.
Heinz H. Frentzen er ann-
ar í stigakeppninni með 10
stig og sömu stigatölu hef-
ur Mika Hakkinen.
Ralf Schumacher er með 7
stig, bróðir hans, Michael *
Schumacher, 6, Fisichella
3 og Barrichello 2. Neðstir
em þeir De la Rosa og Oli-
ver Panis með aðeins eitt
stig.
-SK